Þjóðviljinn - 27.10.1985, Side 16

Þjóðviljinn - 27.10.1985, Side 16
IÐNSKÓLINN I REYKJAVIK Innritun nýnema á vorönn 1986 Innritun í eftirtaldar deildir skólans stendur nú yfir og lýkur 6. desember. 1. Samningsbundið iðnnám. 2. Grunndeild málmiðna. 3. Grunndeild tréiðna. 4. Grunndeild rafiðna. 5. Framhaldsdeild vélvirkja/rennismiða. 6. Framhaldsdeild rafvirkja/rafvélavirkja. 7. Framhaldsdeild rafeindavirkja. 8. Framhaldsdeild bifvélavirkja. 9. Fornám. 10. Almennt nám. 11. Tækniteiknun. 12. Meistaranám. 13. Rafsuða. 14. Tölvubraut. 15. Tæknifræðibraut. Fyrri umsóknir sem ekki hafa verið staðfestar með skólagjöldum þarf að endurnýja. Nánari upplýsingar eru gefnar í skrifstofu skólans. Innritun í einstakar deildir er með fyrirvara um næga þátttöku. Skrifstofa skólans er opin virka daga kl. 9.30 -15.00. Iðnskólinn í Reykjavík. Viðskiptafræðingur Fjárhagsdeild Sambandsins óskar að ráða viðskipta- fræðing í hagdeild. Hér er um að ræða starf sem krefst sjálfstæðra vinnu- bragða, þekkingar og áhuga á tölvunotkun. Umsóknareyðublöðun fást hjá starfsmannastjóra er veitir upplýsingar. Umsóknarfrestur til 5. nóv. n.k. SAMBAND ÍSL.SAMVINNUFÉLAGA STARFSMANNAHALD UNDARGÖTU 9A Austfirðingafélagið í Reykjavík Austfirðingamót 1985 á Hótel Sögu föstudaginn 1. nóvember. Dagskrá: Sonja Berg, varaformaður félagsins setur samkom- una. Anna Sigurðardóttir forstöðumaður Kvennasögu- safns íslands, heiðurgestur fagnaðarins flytur ávarp. Ólöf Kolbrún Harðardóttir syngur einsöng við undirleik Jóns Stefánssonar. Jóhannes Kristjánsson fer með gamanmál. Jóna Kristín Þorvaldsdóttir frá Fáskrúðsfirði stjórnar fagnaðinum. Hljómsveit Grétars Örvarssonar leikur fyrir dansi til kl. 3 eftir miðnæti. Húsið opnað kl. 19.00. Dagskrá hefst stundvísiega kl. 20.00 Aðgöngumiðar verða seldir í anddyri Hótels Sögu miðvikudaginn 30. og fimmtudaginn 31. október milli kl. 17.00 og 19.00. Borð tekin frá um leið. Framboðs frestur Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjaratkvæða- greiðslu í Verzlunarmannafélagi Reykjavíkur, um kjör fulltrúa á 15. þing Landssambands íslenskra verzlun- armanna. Kjörnir verða 75 fulltrúar og jafn margir til vara. Listar þurfa að hafa borist kjörstjórn fyrir kl. 12.00 þriðjudaginn 29. október n.k. Kjörstjórnin s\' VAÐALL Bríet Héðinsdóttir skrifar Hvers vœntum við? Vetrardagskrá sjónvarpsins er í þann veginn að hefjast, og svei mér, ef hún lofar bara ekki góðu. En hvern fjandann á ég annars við með því? Hvers væntir hæstvirtur al- menningur af sjónvarpinu? Hvað vonumst við til að fá að sjáþarogheyra? íslenska sjónvarpið hefur nú starfað í nær tvo áratugi. Þeir, sem nú eru á miðjum aldri ólust ekki upp við sjónvarp, en hafa nú um það bil komið upp börnum, sem hafa gert það. Hvernig metum við þann hlut, sem það kann að hafa átt í uppeldi þeirra? Og í mótun okkar allra á þessum árum? Erum við betur upplýst en áður fyrir tilverknað sjónvarpsins - um aðrar þjóðir, lönd þeirra og siði, sögu og menningu; um nátt- úruna, sköpunarverkið allt, him- ingeiminn; fylgjumst við betur með framvindu heimsmála og ís- lenskra stjórnmála; hefur það örvað gagnrýna hugsun okkar, skerpt fegurðarskyn okkar, þroskað smekk okkar; er mannlíf á íslandi fjölbreyttara, skemmti- legra, göfugra, við sjálf menntaðri, víðsýnni, umburðar- lyndari og pólitískt þroskaðri þjóð en áður en við nutum þess? Hefur sjónvarpið gert okkur að betri manneskjum? Ha - ætlast enginn til þess? Af hverju ekki? Veitti okkur nokkuð af? Hvers ætlumst við þá til af sjónvarpinu? Að það skemmti okkur og fræði okkur? En hvað skemmtir okkur og hvers konar fræðslu viljum við fá og um hvað? Viljum við annars nokkuð eiga þetta sjónvarp? Jú; sennilega myndum við flest svara síðustu spurningunni játandi, þó að svörin við hinum kynnu að standa í okkur. Og við höfum nú átt það í næstum tuttugu ár og höfum ráðið þangað fólk til þess að velja og framleiða efni handa okkur. Og borgum því kaup fyrir. Að vísu lágt kaup, en það er ekki okkur að kenna: aðrir starfs- menn, sem við álpuðumst til að ráða í þjónustu okkar fara illa með peningana okkar og fleygja þeim í t.d. Kröflu, sem framleiðir víst bara alls ekki neitt og þá heldur ekki sjónvarpsefni. Einu sinni í viku kemur einn þessara sjónvarpsstarfsmanna okkar fram í þætti, sem heitir „Sj ón varp næstu viku” og tilkynnir okkur hvað þeir hafi valið handa okkur. En ég minnist þess ekki, að þá, eða við annað tækifæri, sé nefnt einu orði, hvers vegna þeir hafi valið einmitt þetta efni handa okkur en ekki eitthvert annað, hvað hafi vakað fyrir þeim með valinu, hvaða viðmiðanir þeir hafi við valið. Nú mega þeir vita, að sjónvarpið hefur nú, á því herrans ári 1985, meiri áhrif á al- menna menntun okkar en allir skólar landsins til samans. Þetta eru stór orð, sem ég nenni ekki að rökstyðja hér, en ég býst ekki við, að margir treysti sér til að hrekja þau að hugsuóu máli. Er- lendis eru skrifaðir doðrantar og haldnir maraþonfyrirlestrar um ábyrgð og skyldur þeirra, sem annast val á þessari andlegu fæðu almennings og matreiðslu henn- ar. Hvernig væri, að við fengjum, þó ekki væri nema í einum sjón- varpsþætti, að heyra í þessum starfsmönnum okkar: hvernig þeir standa að verki við efnisval og þó einkum og sér í lagi hvað þeir hafa að leiðarljósi og hver þau markmið eru, sem þeir stefna að. Eigum við, vinnuveitendur þeirra, ekki nokkurn rétt á því, að þeir standi okkur skil á þessu? Stundum heyrist því fleygt manna á meðal, að eitthvað sé sýnt af því að „fólk vilji þetta”. Þetta er augljóst bull. Hvernig kemur það í ljós, hvað við viljum sjá í sjónvarpi? Skoðanakannanir eru fár og strjálar og orka víst tvímælis hvort sem er. Og vitum við sjálf, hvað við viljum í þessum efnum? Hvernig vitum við t.d., hvort við viljum sjá eða ekki sjá það efni, sem EKKI er keypt til sýningar hérlendis, en til er á al- þjóðlegum markaði? Eða allar þær hugmyndir að sjónvarpsefni, sem liafnað er strax og eru aldrei nýttar? Hver veit, nema við hefð- um endilega viljað sjá þær verða að veruleika? Nei; starfsmenn okkar í sjónvarpinu sitja uppi með ábyrgðina, hvort sem þeim líkar betur eða verr: það eru þeir sem velja efnið handa okkur. Og ég held, að brýn þörf sé á, að við kynnumst sjónarmiðum þeirra. Eins og vonandi skilst, er ég að auglýsa eftir skoðunum þeirra varðandi einhvers konar mennta- og menningarstefnu sjónvarps- ins. En ef við lítum á pólitíska uppfræðslu þess, þ.e. pólitískt fréttaefni í þrengri skilningi, blas- ir strax við hvernig pólitíski meirihlutinn í yfirstjórn Ríkisút- varpsins kúgar minnihlutann í nafni lýðræðis. Ástand, sem allir virðast samþykkja með þögninni. En það skyldi nú ekki vera, að sú vantrú okkar á stjórnmálamönn- um, sem orðin er áberandi í þjóð- lífinu og þeir virðast sjálfir hafa áhyggjur af, sé að einhverju bein afleiðing þess, að við höfum kynnst þeim betur en við gátum gert áður - gegnum sjónvarpið? Þeir bregðast svo við þessu með því að koma í sjónvarpssal í fínu jökkunum sínum, biðja smink- una að vanda sig, og reyna að ganga í augun á okkur með því, sem þeir halda að sé traustvekj- andi framkoma, búa til „ímynd” sína. Er það ekki rétt ein móðg- unin við dómgreind okkar að halda, að við séum ginkeypt fyrir slíku? Værum við ekki æst í að kjósa hringjarann í Notre Dame í druslunum sínum á þing, ef við sannfærðumst um yfirburða vitsmuni hans, réttsýni og ómútanlegan heiðarleika? Eða tækist svo ótótlegum manni aldrei að sannfæra okkur um slíkt? Við skulum fara varlega í að stæra okkur af dómgreind. Núverandi ríkisstjórn Islands braust ekki til valda með ofbeldi. Sumir halda því fram, að sú þjóð sem nýtur almenns kosningar- réttar fái þá ríkisstjórn, sem hún á skilið. Kannski núverandi ríkis- stjórn sé bara mátuleg á þetta samsafn af sinnulausum og þröngsýnum eiginhagsmuna- seggjum, skattsvikurum, bók- haldssvindlurum, frjálshyggju- bullum, ökuníðingum, fylliröft- um og flónum, sem selja atkvæði sitt jólasveinum fyrir mútur - semsagt: kannski hún sé mátuleg á okkur öll, sem gegnum kallinu „háttvirtir kjósendur”. Og þá eigum við líka skilið að eiga vont sjónvarp. En er íslenska sjón- varpið vont? Ja, mér er spurn. - Ég ætlaði víst að skrifa um dagskrána. Það verður að bíða næsta vaðals. Bríet Að biðja skrattann um sál Staða rásar eitt hefur batnað til muna eftir að rás tvö er komin á skrið eftir rúmlega eins árs starf- semi. Þetta er helsta niöurstaðan af hinni breyttu útvarpsstarfsemi síðustu þrettán mánaða. Rás eitt hefurfengið að einbeita sér að ákveðnum dagskrárliðum sem fáirgætu ímyndað sér, viðnúver- andi aðstæður að fengju inni á rástvö. Að biðja t.d. um að fá inni á „Rásinni" eins og hún er oftast nefnd, fyrir þátt á borð við þann sem var á síðasta miðvikudags- kvöld klukkan 21.25 á rás 1 og hét Ég byrjaði átta ára í físki, „viðtal Ingu Huldar Hákonardóttur við Sesselju Einarsdóttur, aldraða konu frá ísafirði sem býr nú í Kaupmannahöfn." Væri það ekki að biðja skrattann um sál? Með fullri virðingu fyrir oft ágætri dagskrá þeirra „Rásar- manna“. Það getur nefnilega gengið út í öfgar, allt þetta tal um að hafa dagskrána létta og skemmtilega. Þetta „létta og skemmtilega" á rás tvö hefur nefnilega átt það til að vera barasta hundleiðinlegt. Einfaldlega vegna þess að þulir eru stundum að rembast eins og rjúpan við staurinn að vera „léttir og skemmtilegir". Það má ekki rembast of mikið. Og þessi hugmynd, að taka þættina á daginn með látum en hægja síðan ferðina á kvöldin er ekkert náttúrulögmál. Ég ætla ekkert að loka augunum fyrir því' að á rás tvö hefur stefnan frá upp- hafi verið sú að á hefðbundnum vinnutíma skuli leikin popptón- list í léttari kantinum, inn um annað og út um hitt, eins og sagt er. En talað mál sem er eitthvað meira en kynningar á lögum og brandarar inn á milli, getur lfka verið skemmtilegt. Viðtalið við hana Sesselju Einarsdóttur hefði þannig farið vel á rás tvö um miðjan dag. Óperusviðsþáttur- inn hans Leifs Þórarinssonar sem er seint á miðvikudagskvöldum gæti þannig vel eins verið á rás tvö um miðjan dag. Það eru fleiri en Duran Duran aðdáendur sem hlusta á „Rásina“. - IH. 16 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 27. október 1985

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.