Þjóðviljinn - 02.11.1985, Qupperneq 6
ÍÞRÓTTIR
Ómar Torfason skallar í mark Glentoran í 1. umferðinni á Laugardalsvellin-
um. Leikur hann sama leik gegn Rapid á miðvikudaginn?
Fram-Rapid
„Höfumengu
að tapa“
Leikið á Laugardalsvellinum
á miðvikudaginn kl. 14.30
„Við höfum engu að tapa gegn
Rapid Wien á miðvikudaginn og
ætlum því ekki að liggja í vörn
gegn þessu sterka liði. Eg tel að
við eigum möguleika á sigri á
Laugardalsvellinum“, sagði
Ómar Torfason Framari um Evr-
ópuleik Fram og Rapid Wien
næsta miðvikudag.
Þetta er síðari viðureign lið-
anna í 2. umferð Evrópukeppni
bikarhafa í knattspyrnu en Rapid
vann fyrri leikinn í Vín 3-0. Pað
þótti of stór sigur miðað við gang
leiksins - Framarar fengu mörg
góðfæri, m.a. áttu þeir sláarskot.
„Við höfum æft vel undanfar-
ið, það er létt yfir mannskapnum
og mikill áhugi fyrir leiknum. Pað
háir okkur að sjálfsögðu að hafa
ekki leikið nema Evrópuleikina
frá 14. september, í tæpa tvo
mánuði, en það hafa verið settir
upp æfingaleikir þar sem leik-
menn úr öðrum félögum hafa
leikið gegn okkur“, sagði Ómar
Torfason.
Laugardalsvöllurinn verður
væntanlega þungur yfirferðar á
miðvikudaginn en vonandi helst
veður og hitastig skaplegt fram
að þeim tima. Leikur liðanna á
miðvikudaginn hefst kl. 14.30 -
slæmur tími með tilliti til aðsókn-
ar en útilokað er að byrja seinna
vegna þess hve birtu er farið að
bregða snemma. Nú vantar til-
finnanlega flóðlýsinguna á aðal-
leikvanginn.
-VS
KSÍ
Auglýst og leitað
að þjálfara
Knapp tilkynnir KSÍað hann
hafi skrifað undir hjá Brann
Stjórn Knattspyrnusambands
Islands hefur sent frá sér eftirfar-
andi fréttatilkynningu:
Eins og fram hefur komið í
fréttum hefur stjórn KSÍ haft
áhuga á að ráða Tony Knapp sem
landsliðsþjálfara fyrir næsta ár,
enda yrði hann búsettur hér á
landi oe starfaði einvörðungu
fyrir KSI.
Tony Knapp hefur nú tilkynnt
KSÍ að hann geti ekki tekið boð-
inu þar sem hann hafi skrifað
undir samning hjá Brann í Berg-
en, Noregi, í síðustu viku. Tony
Knapp hefur undanfarin tvö ár og
einnig á árunum 1974 til 1977
starfað sem landsliðsþjálfari við
mjög góðan orðstír. Undirbún-
ingur, skipulag og agi hefur alla
tíð verið til fyrirmyndar í lands-
liðshópnum undir stjóm Tonys.
Það háði hins vegar starfi hans
undanfarin tvö ár að Tony var
búsettur í Noregi, sem auðvitað
er annmarki. KSÍ vissi þó að
hverju það gekk, enda naut Tony
aðstoðar og upplýsinga frá
Guðna Kjartanssyni.
Að gefnu tilefni skal tekið fram
að Tony, eins og aðrir landsliðs-
þjálfarar á vegum KSÍ, fyrr og
nú, annaðist og bar ábyrgð á
endanlegu vali landsliðsins
hverju sinni.
Leiðréttist hér með sá mis-
skilningur að landsliðsnefnd hafi
valið eða haft áhrif á val lands-
liðsins. Hlutverk nefndarinnar er
í því fólgið að skipuleggja undir-
búning, leiki og keppnisferðir
liðsins, en ekki að velja liðið.
Stjórn KSÍ færir Tony Knapp
þakkir fyrir frábært samstarf, en
hefur nú ákveðið að auglýsa og
leita eftir nýjum landsliðsþjálfara
hér heima og/eða erlendis. Er
stefnt að því að ráða þjálfara til
tveggja ára.
Úrvalsdeildin
Sætur sigur Hauka
Fyrstir til að leggja UMFN-unnu í Njarðvík
Sigurganga íslandsmeistara
Njarðvíkinga var rofin í gær-
kvöldi, á þeirra eigin heimavelli.
Haukarnir, sem hafa verið heldur
köflóttir til þessa, unnu sætan
sigur, 82-80, og hann sann-
gjarnan. Þeir léku betur þegar á
heildina er litið og voru yfirveg-
aðri á spennandi lokamínútun-
um.
Leikurinn var góður strax frá byrj-
un og baráttan og stemmningin í lagi
hjá báðum. Haukar sigu framúr á
lokamínútum fyrri hálfleiks en með
hraða og krafti náði UMFN að vinna
þann mun upp í byrjun síðari hálf-
leiks. Bæði lið urðu fyrir áföllum,
Henning Henningsson hjá Haukum
meiddist á auga í fyrri hálfleik og fór
útaf og Valur Ingimundarson Ienti
snemma í villuvandræðum og lék
l'var Webster lék mjög vel með
Haukunum í Njarðvík í gærkvöldi.
nánast ekkert í seinni hálfleik af þeim
sökum. Hafði aldrei náð sér á strik.
Þegar 50 sek. voru eftir skoraði Pálm-
ar fyrir Hauka, 82-78, og Njarðvík
tókst ekki að svara fyrr en 6 sek. voru
eftir, Árni Lárusson var þar að verki.
Haukarnir voru ekki í vandræðum
með að halda boltanum það sem eftir
var og fögnuður þeirr í leikslok var
mikill.
Njarövík 1. nóv.
UMFN-Haukar 80-82 (36-
42)
9-9, 20-17, 30-30, 33-42, 36-42, 53-
52, 59-62, 63-66, 74-70, 76-78, 78-80,
78-82, 80-82.
Stig UMFN: Helgi Rafnsson 17, Jó-
hannes Kristbjörnsson 16, Kristinn
Einarsson 15, Árni Lárusson 14, Isak
Tómasson 9, Valur Ingimundarson 7,
Ingimar Jónsson 2.
Stig Hauka: Ivar Webster20, Pálm-
arSigurðsson 19, Ólafur Rafnsson 17,
(var Ásgrimsson 8, Kristinn Kristins-
son 8, Viðar Vignisson 4, Henning
Henningsson 4, Reynir Kristjánsson 2.
Dómarar: Ómar Scheving og Krist-
inn Albertsson - góðir.
Maður leiksins: (var Webster,
Haukum.
Körfubolti
Stórsigur
Lakers
Los Angeles Lakers unnu sinn
annan sigur í jafnmörgum
leikjum í bandarísku NBA-
deildinni í körfuknattleik í fyrra-
kvöld. Þú burstuðu þeir Phoenix
Suns 144-107. Los Angeles Clipp-
ers unnu sinn þriðja sigur og eru
ásamt Lakers og Portland Trail
Blazers með fullt hús stiga í vest-
urdcildinni.
-VS/Reuter
ívar Webster átti stórgóðan
leik í vörn og sókn með Haukum,
sennilega hefur hann ekki leikið
betur í vetur. Ólafur lék mjög vel
og Pálmar líka og í heild var það
samheldnin sem færði Haukum
þennan sigur.
Jóhann og Árni áttu mjög góð-
an leik með Njarðvík. Jóhannes
hefur sýnt miklar framfarir og
fellur vel inní liðið. Helgi var
sterkur í vörninni að vanda. En -
Njarðvík er ekki ósigrandi - það
sönnuðu Haukarnir í gærkvöldi.
-SÓM/Suðurnesjum
Staðan
f urvalsdeildinni í körfuknattleik:
UMFN................7 6 1 624-537 12
Haukar..............7 4 3 538-534 8
Valur...............6 3 3 460-435 6
IBK.................6 3 3 443-483 6
KR..................6 2 4 463-487 4
IR..................6 1 5 461-513 2
Stigahæstir:
Valur Ingimundarson, UMFN..........185
Pálmar Sigurðsson, Haukum..........149
RagnarTorfason, |R.................117
BirgirMikaelsson, KR..............111
IvarWebster, Haukum................108
ÍBK og ÍR Itika í Keflavík í dag kl.
14 og Valur-KR í Seljaskóla kl. 20
annað kvöld.
Handbolti
Lugi-Valur
í Lundi
Frjálsar
Námskeið í hlaup-
um og spjótkasti
Helgina 9.-10. nóvember fer
fram í íþróttamiðstöðinni í
Laugardal B-leiðbeinenda nám-
skeið í millivegalengdum og
langhlaupum á vegum FRI.
Kennarar verða Jón Diðriksson
og Gunnar Páll Jóakimsson.
Námskeiðið veitir A-stigs-
mönnum B-stigs viðurkenningu í
viðkomandi greinum.
Næstu helgi á eftir, 16.-17.
nóvember, verður haldið nám-
skeið í spjótkasti í KR-heimilinu,
einnig á vegum FRÍ. Kennari
verður Einar Vilhjálmsson.
Bæði námskeiðin hefjast kl. 10
á laugardegi og er þátttökugjald
kr. 500 á hvort. Þátttökutilkynn-
ingar berist skrifstofu FRÍ í síma
91-83686 sem fyrst.
Valur og sænska félagið Lugi
leika fyrri leik sinn í 2. umferð
IHF-keppninnar í handknattleik í
Lundi á morgun, sunnudag. Síð-
ari leikur liðanna fer fram í Laug-
ardalshöllinni um næstu helgi,
nánar tiltekið á sunnudagskvöld-
ið kl. 20.30.
Valur lék við Kolbotn frá Nor-
egi í 1. umferð og komst áfram
þótt báðir leikirnir færu fram
ytra.
Körfubolti
Annað tap Hauka
ÍS vann góðan sigur á
Haukum, 57-40, í Hafnarfirði á
miðvikudagskvöldið er félögin
mættust þar í kvennadeildinni í
körfuknattleik. Þetta var annað
tap Haukastúiknanna í röð en
þær höfðu unnið fyrstu þrjá leiki
sína.
Staðan í deildinni er þessi:
Haukar.............5 3 2 231-194 6
lR.................2 2 0 96-71 4
KR...................3 2 1 121-100 4
IS...................3 2 1 127-109 4
IBK..................3 1 2 133-134 2
UMFN.................2 0 2 49-67 0
lA...................2 0 2 35-117 0
Næsti leikur er KR-UMFN í
Hagaskóla á morgun, sunnudag,
kl. 15.30.
Iþróttir fatlaðra
Leiðbeinendanámskeið
Dagana 21.-24. nóvember mun
íþróttasamband fatlaðra efna til
leiðbeinendanámskeiðs í íþrótt-
um fyrir fatlaða. Verður nám-
skeiðið haldið í húsakynnum ÍSÍ,
íþróttamiðstöðinni Laugardal,
og í íþróttasal Álftamýrarskóla.
Það mun standa yfir frá kl. 9-18
dagana 21.-23. nóvember og kl.
9-16 þann 24. nóvember.
Á námskeiöinu veröur lögð
áhersla á að kynna hinar ýmsu
tegundir fötlunar og hvaða
möguleikar séu í boði fyrir fatl-
aða til íþróttaiðkunar.
Námskeiðið verður öllum
opið, en íþróttakennarar, sjúkra-
þjálfar, starfsfólk á stofnunum og
vistheimilum og aðrir er áhuga
hafa eru hvattir til að mæta. Rétt
er að benda á að á undanförnum
leiðbeinendanámskeiðum hafa
íþróttakennarar fengið nám-
skeiðin metin til stiga og verður
svo væntanlega einnig nú.
Tilkynna þarf þátttöku á nám-
skeiðið fyrir 14. nóvember til
íþróttasambands Fatlaðra,
íþróttamiðstöðinni Laugardal,
104 Reykjavík. Þar er einnig unnt
að fá allar nánari upplýsingar úm
námskeiðið í síma 91-686301,
mánudaga, þriðjudaga,
fimmtudaga og föstudaga kl. 17-
19. Námskeiðsgjald er kr. 1000
og greiðist það í upphafi nám-
skeiðsins.
6 SlÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 2. nóvember 1985