Þjóðviljinn - 02.11.1985, Síða 13
Stýriflaugar
Hollenska stjómin hikandi
Frá mótmælafundi gegn uppsetningu stýriflauga í Hollandi sem haldinn var um
síðustu helgi. Kassarnir á sviðinu innihalda undirskriftir 3,8 miljóna hollendinga
sem mótmæla flaugunum.
Haag - Eitthvað vafðist það
fyrir hollensku ríkisstjórninni
að taka ákvörðun um það
hvort hún vildi heimila Nató að
setja upp 48 stýriflaugar búnar
kjarnaoddum í landinu. Ríkis-
stjórnarfundi um málið átti að
Ijúka kl. 15.30 í gærdag og þá
hafði verið boðað til blaða-
mannafundar. Þeim fundi var
tvívegis frestað og það var
ekki fyrr en kl. 19.40 sem Reut-
er sendi frétt þess efnis að
stjórnin hefði samþykkt að
taka við flaugunum.
Stjórnmálamenn í Hollandi
töldu líklegast að það væru stýr-
iflaugarnar 48 sem hefðu tafið
fundinn. Stjórnarflokkarnir
tveir, kristilegir demókratar og
frjálslyndir voru á einu máli um
að taka við Nató-flaugunum. Það
sem þá greindi á um eru ýrnis
smærri atriði í kjarnorkuvígbún-
aði landsins. Frjálslyndir vilja að
hollendingar taki við kjarnorku-
sprengjum sent setja má í flugvél-
ar en kristilegir eru því mót-
fallnir. Töldu stjórnmálamenn-
irnir sem fréttamaður Reuters
ræddi við líklegt að þessi ágrein-
ingur hefði reynst stjórninni erf-
iðari en við hafði verið búist.
Víða í Hollandi lét fólk í ljósi
andstöðu sína gegn uppsetningu
stýriflauganna. Kennarar hvöttu
Afvopnun
Genf, Moskvu, Bonn - Banda- vopnunarviðræðunum í Genf
ríska samninganefndin í af- iagði í dag fram nýjar tillögur
OPEC
Olíuverð gefið frjálst
Abu Dhabi - Olíumálaráðherra
Sameinuðu furstadæmanna
við Persaflóa Mana Saeed al-
Oteiba, sagði i sjónvarpsvið-
tali í Abu Dhabi í fyrrakvöld að
aðildarríkjum OPEC, Samtaka
olíuútflutningsríkja, væri nú
frjálst að selja framleiðslu sína
á því verði sem þau vilja og
geta fengið fyrir hana.
Ráðherrann sagði að OPEC
hefði ákveðið að gefa upp á bát-
inn tilraunir sínar til að stjórna
olíumarkaði heimsins með þvt' að
auglýsa opinbert olíuverð. Und-
anfarin tvö ár hefur ríkt mikil
óeining innan samtakanna sem
stafar af minnkandi eftirspurn
eftir olíu á heimsmarkaði. Ein-
stök ríki hafa brugðist við með
því að selja olíu undir markaðs-
verði frekar en að sitja uppi með
hana. Á síðasta fundi OPEC í
október viðurkenndu samtökin
að flest aðildarríkin væru farin út
á þá braut að víkja frá opinberu
olíuverði.
frá Reagan forseta en þær eru
svar við tillögum sem sovét-
menn lögðu fram í byrjun októ-
ber. Samninganefndir stór-
veldanna urðu ásáttar um að
halda viðræðum áfram fram
eftir næstu viku en þeim átti
samkvæmt áætlun að Ijúka í
gær.
Ekki hefur verið greint frá því í
hverju tillögur Reagans eru
fólgnar en hann sagði í fyrradag
að í þeim væri farið inn á öll þrjú
svið viðræðnanna í Genf. Með
því á hann við langdrægar kjarn-
orkueldflaugar, meðaldrægar
flaugar og geimvopn. Sagði Re-
agan að tillögurnar byggðust á
jafnvægi í niðurskurði kjarnorku-
vopna, þær gerðu ráð fyrir mikl-
um niðurskurði sem hægt væri að
fylgjast með hvort gerður væri.
Sovéska fréttastofan Tass fjall-
aði um tillögur Reagans í gær og
sagði að flestum sem þær hefðu
séð bæri saman um að Reagan
hefði tekið gömlu tillögurnar
sínar, snurfussað þær lítillega og
pakkað þeim inn í nýjar umbúðir.
I tillögunni væri gert ráð fyrir að
fjöldi kjarnaodda sern hvort stór-
veldi mætti halda eftir yrði 4.500
en að tilhögun niðurskurðarins
væri sovétmönnum nijög í óhag.
Til dæmis væri ekki minnst á
kjarnorkuvopn í flugvélum, en
þar eru Bandaríkin mun öflugri,
og aðeins væri sett þak á eina teg-
und vopna, stórar eldflaugar sem
draga milli heimsálfa, en þær eru
uppistaðan í eldflaugakerfi sovét-
manna. Loks hefði Reagan ekki
hvikað frá því að halda stjörnu-
stríðsáætlunum sínum utan við
samningaviðræðurnar.
Argentína
Buenos Aires - Á morgun,
surinudag, fara fram kosning-
ar til þings í Argentínu í
skugga herlaga sem Raul Al-
fonsín forseti setti á í síðustu
viku í því skyni að stöðva
hryðjuverk og sprengingar
sem mikið hefur verið um
undanfarnar vikur.
Efnahagsástandið í Argentínu
er bágborið, verðbógan var kom-
in upp fyrir 1.000% snemma í
sumar (eða öllu heldur vetur því
nú er að vora í Argentínu),
atvinnuleysi nær til 13% verk-
færra manna og hefur ekki verið
meira í 20 ár, laun hafa lækkað að
raungildi um 30% á einu ári og
erlendar skuldir nema 50 milj-
örðum dollara.
í júní boðaði Alfonsín miklar
aðhaldsaðgerðir í efna-
hagsmálum sem hafa skilað þeim
árangri að helminga verðbólg-
una. Fyrir þetta fékk hann hrós á
fundi Álþjóðagjaldeyrissjóðsins í
sumar. En það hrós gæti reynst
tvíbent heimafyrir þar sem
stjórnarandstæðingar halda því
fram að Alfonsín hafi brotið öll
kosningaloforðin sem hann gaf
árið 1983 þegar hann var kjörinn
forseti. Nú segja þeir að honum
Alfonsín forseti (tv.) og Antonio Troccoli innanríkisráðherra sitjandi fremst á
myndinni sem tekin var stuttu áður en þeir settu á herlög í Argentínu.
sé svo mikið í mun að greiða nið-
ur erlendu skuldirnar að honum
sé sama þótt þegnar hans svelti.
Stefna Alfonsín hefur mælst
vel fyrir meðal millistéttarinnar
sem fagnar því hve mikið hefur
dregið úr verðbólgunni. Meðal
verkalýðs hefur hins vegar gætt
vaxandi óánægju sem birst hefur í
fjölmennum kröfugöngum og
verkföllum. Nýr leiðtogi perón-
ista í höfuðborginni, Carlos
Grosso, hefur sagt að markmið
efnahagsstefnunnar eigi að vera
aukinn hagvöxtur en svo sé ekki
um stefnu forsetans. Grosso
hvetur til þess að sett sé þak á
afborganir af erlendum lánum og
aðeins borguð viss prósenta af út-
flutningstekjum.
Alfonsín
eða valdarán?
Flokkur forsetans, Róttæki
flokkurinn, sem er borgaralegur
miðjuflokkur hefur reynt að setja
endurreisn lýðræðisins efst á dag-
skrá kosningaumræðunnar en
ekki gengið sem skyldi. Nú
standa yfir réttarhöld yfir herfor-
ingjunum sem stjórnuðu landinu
á árunum 1976-83 og gerðust sek-
börn til að vera heima í dag og í
höfuðborginni Haag fóru 6.000
börn í kröfugöngu að stjórnar-
skrifstofunum. Lestarferðir
gengu víða treglega vegna þess að
andstæðingar kjarnorkuvopna
höfðu skipulagt tafir á þeim sem
fóru þannig fram að fólk noíaði
neyðarhemla lestanna óspart.
Þótt hollenska stjórnin hafi vís-
að á bug tilboði sovéskra ráða-
manna um viðræður gætu sovét-
menn enn haft áhrif á uppsetn-
ingu stýriflauganna nteð því að
fækka SS-20 eldflaugum sínum
um 63 áður en hollenska þingið
staðfestir ákvörðun stjórnarinnar
en það gerist ekki fyrr en eftir
áramót. Fremur ólíklegt er talið
að sovétmenn bregðist svo skjótt
við.
Reagan setur fram tillögur
Kosningar í skugga herlaga
ir um margháttuð mannréttinda-
brot og vill stjórnarflokkurinn að
þeir verði dæmdir í harðar ref-
singar. Því eru margir sammála
en margir hafa látið í ljósi efa-
semdir um réttmæti herlaganna
sem Alfonsín setti í síðustu viku.
Alfonsín segir að það sé líka
liður í endurreisn lýðræðisins því
nauðsynlegt hafi verið að grípa til
þeirra ef komast átti hjá tilraun-
um til valdaráns. Stjórnarand-
stæðingar hafa hinsvegar haldið
því fram að með herlögunum sé
Alfonsín að draga upp svarthvíta
mynd sem ekki sé í samræmi við
veruleikann.
í kosningunum á morgun er
helmingur sæta á argentínska
þinginu í veði en kosið verður urn
127 af 254 þingsætum. Núverandi
staða er sú að Róttæki flokkurinn
hefur 129 þingsæti, perónistar
111 og aðrir 14 þingsæti. Skoð-
anakannanir hafa sýnt framgang
perónista og einnig smá flokka til
hægri og vinstri, allt á kostnað
Róttæka flokksins. Þetta gildir
um fulltrúadeild þingsins en í
öldungadeildinni er staðan sú að
perónistar hafa 21 þingsæti. Rót-
tæki flokkurinn 18 og aðrir flokk-
ar sjö.
Kaffi
Uppskeru-
brestur
Bogota Miklir þurrkar á kaffi-
ræktarsvæðum Brasilíu í
sumar valda því að uppskeran
verður sennilega aðeins helm-
ingur af því sem áætlað var.
Við það fellur þessi stærsti
kaffiútflytjandi heims niður í
annað sæti og gefur eftir sæti
sitt fyrir Kólumbíu.
Ekki er þó talið að heimsmark-
aðsverð á kaffi verði fyrir miklum
áhrifum af uppskerubrestinum í
Brasilíu. Alþjóða kaffisamband-
ið, ICO, hefur komið sér upp
kvótakerfi sem tryggir að
jafnvægi ríki í framboði og eftir-
spurn eftir þessum vinsæla drykk.
Kaffi er mælt í pokum sem hafa
að geyma 60 kíló af kaffibaunum
hver og er alheimskvótinn í ár 58
miljónir poka.
Áf þessum kvóta átti Brasilía
að fá 16,42 miljónir poka en Kól-
umbía 8,67 ntiljónir. Hlutur
Brasilíu mun sennilega dragast
saman um 5 miljónir poka en
hlutur Kólumbíu eykst töluvert.
Kaffiframleiðendur í Kólumbíu
fagna þessum óförum nágranna
sinna að sjálfsögðu því þær munu
auka tekjur landsins af kaffiút-
flutningi um 300 miljónir dollara
en á síðasta reikningsári sem lauk
í lok september voru tekjur
landsins af þessari aðalútflutn-
ingsvöru sinni 1,5 milarðar doll-
ara.
Kólumbía hefur um langt ára-
bil verið í öðru sæti á listanum yfir
stærstu kaffiframleiðendur heims
en markaðurinn sem bitist er um
er uþb. 10 miljarðar dollara á ári.
Kvótaskipting framleiðslunnar
sem samið var um á þingi ICO í
september mánuði sl. gerir ráð
fyrir því að verð á kaffibaunum
haldist innan ntarkanna 120-140
cent (50-60 kr.) pundið. Að und-
anförnu hefur verðið verið held-
ur á uppleið og er búist við því að
sú tilhneiging haldist eitthvað
áfram.
ERLENDAR
FRÉTTIR
haraldsson/ R E U 1 E R
Laugardagur 2. nóvember 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13