Þjóðviljinn - 02.11.1985, Page 15
Bogasalur
Hannyrðasýningin framlengd
Um 13.500 manns hafa nú séð
sýninguna í Bogasal Þjóðminja-
safns á hannyrðum og
handaverkum ísienskra kvenna.
Vegna þessarar miklu athygli hef-
ur sýningin verið framlengd til
áramóta, en upphaflega var ætl-
OKHOLM
FJOLVII **
33 ■,
Heilsufar
Hollráð
til langlífis
Út er komin hjá Fjölva heilsu-
bókin Hollráð til langlífis og
heilsu eftir danska lífefnafræð-
inginn Lars Okholm. Bókin ber
fram sjónarmið hinna nýju við-
horfa í læknisfræði, sem nýlega
var fjallað um í þætti í íslenska
sjónvarpinu.
„Okholm fjallar um hinn nýja
vanda, að þrátt fyrir framfarir í
hinni opinberu læknisfræði og
allskyns undralyf, hefur ekki tek-
ist að vinna bug á sjúkdómunum,
heldur þvert á móti. Sjúkdómar
hrjá fólk meira en nokkru sinni.
Sjúkrahúsin fyllast. Það hefst
ekki undan að byggja ný sjúkra-
hús og hæli. Biðlistarnir lengjast.
Okholm ræðir ýtarlega um
þennan vanda og hvernig hann
snertir hvern einstakling. Nú
deyr nærri annar hver maður af
hjarta- og æðasjúkdómum, og
það sem er kannski allra verst, -
að þessir sjúkdómar hitta fólk
oftast á miðjum aldri. Þó það lifi
af fyrstu áföllin, eru þeir ekki
hálfir menn, tóra í áratug við
mestu harmkvæli.“
Þorsteinn Thorarensen hefur
séð um útgáfu bókarinnar og
aukið hana með margvíslegum
upplýsingum um íslenskar efna-
og fæðurannsóknir.
Mál
Hljóðstöðu-
myndir
í sjónvarpinu eru nú sýndir
þættirnir „Móðurmálið" sem
Árni Böðvarsson cand. mag.
annast. I þáttunum er ma. notast
við Hljóðstöðumyndir, íslensk
málhljóð eftir Jón Júl. Þorsteins-
son kennara, en hann notaði þær
árum saman við tal- og lestrar-
kennslu með ágætum árangri.
Myndirnar hafa verið gefnar út
af minningarsjóði Jóns, og eru
þær samtals 83, þar af 18 eftir
Árna Böðvarsson. Árni samdi
jafnframt skýringar við allar
myndirnar og fylgja tvær töflur
um einkenni íslenskra hljóða til
glöggvunar. Eru myndirnar lit-
prentaðar í stærðinni A4 og frá
þeim gengið í þremur
plastmöppum. í fjórðu möpp-
unni er Lestrarkennsla - hljóð-
lestraraðferð Jóns Júlíusar Þor-
steinssonar, en þar gerir hann
grein fyrir kennsluaðferðinni og
prentaðir eru og gefnir út á þrem-
ur hljóðsnældum kennslukaflar
hans um einstök hljóð.
unin að taka hana niður í októ-
berlok.
Á sýningunni sem nefnist Með
silfurbjarta nál er kynntur um
hálfur fimmti tugur nafngreindra
íslenskra hannyrðakvenna frá
fyrri hluta 12. aldar til seinni
hluta 19. aldar - auk einnar frá
fyrri hluta hinar tuttugustu - og
sýnd dæmi um handaverk flestra
þeirra.
Sýningunni fylgir myndskreytt
skrá í samantekt Elsu E. Guð-
jónsson deildarstjóra textíl-
deildar Þjóðminjasafnsins. Er
þar gerð grein fyrir hannyrða-
konunum og verkum þeirra auk
sögulegs yfirlits.
Eitt verka í Bogasal: Stafaklútur eftir Elínu Magnúsdóttur frá 1871.
Mynd: Gísli Gestsson.
Nú í ár hefur Húsnæðisstofnun reynt með ýmsu
að koma þeim til aðstoðar sem hafa átt í verulegum örðugleikum með greiðslu húsnæðislána.
Nefna má viðbótarlán, sérstaka þjónustu ráðgjafa og greiðslujöfnun skulda.
í beinu framhaldi af þessari starfsemi allri mun stofnunin nú
efla mjög fræðslu- og upplýsingastarf til að aukin þekking forði fólki frá að leiðast
út í slíkar ógöngur.
iít'RÁÐGIAFARSTÖÐ
?!fc HÚSN1EÐISSIOFNUNAR
hefur verið komið á fót
og forstöðumaður hennar er Grétar J. Guðmundsson, verkfræðingur.
Stöðin mun annast beina ráðgjöf til einstaklinga sem til hennar leita,
áður en þeir ráðast í að eignast húsnæði.
Hún mun aðstoða þá við gerð áætlana um fjármögnun og gefa þeim góð ráð í
hvívetna þannig að fullrar forsjár megi gæta í framkvæmdum.
Þá mun Ráðgjafarstöðin taka saman og gefa út fræðsluefni
um t.d. greiðslubyrði og gjaldþol. Einnig um tæknileg efni og ráð til sparnaðar
í byggingu húsnæðis og búnaði þess.
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15