Þjóðviljinn - 02.11.1985, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 02.11.1985, Blaðsíða 16
Aðalsími: 81333. Kvóldsími: 81348.,Helgarsími: 81663. DJQÐVILJINN Lauoardaour 2. nóvember 1985 253. tölublað 50. árgangur Húsnœðisstofnun Grænt Ijósá Búseta Hollenska stjórnin samþy kkti í gær að veita Nató heimild til að setja upp 48 stýritlaugar búnar kjarnaoddum í landinu. Víðtæk mótmæli hafa verið gegn uppsetningu flauganna og skoðanakannanir hafa sýnt að meirihluti uppsetninga er henni andvígur. Anstæðingar stýriflauganna söfnuðu 3,8 miljónum undirskrifta gegn þeim og afhentu þær Ruud Lubbers forsætisráðherra sl. sunnudag. í lok þeirrar söfnunar var haldinn fundur og farið í kröfugöngu í Haag til að leggja áherslu á andstöðu almennings við kjarnorkukapphlaupið. Vilborg Harðardóttir tók þátt í þessum fundi og tók myndina í göngunni sem farin var að honum loknum. gj^ þ|g -| g Félagsmálaherra hefur heimilað lánveitingu til Búseta. Fjármálaráðherra reyndi að grípa í taumana. Sigurður E. Guðmundsson: Alitsgerð Jóns Steinars Gunnlaugssonar hafði engin áhrif Alexander Stefánsson fé- lagsmálará'ðherra staðfesti í gær samþykkt húsnæðismála- stjórnar frá því fyrr í þessari viku þess efnis að byggingasamvinnu- félaginu Búseta verði heimilt að hefja framkvæmdir við byggingu um 15 íbúða í Grafavogi. Líklegt er að Búseti fái lán til fram- kvæmdanna úr Byggingasjóði verkamanna innan skamms og þar með hefur félagið fengið sína fyrstu opinberu lánveitingu. var við að þetta plagg úr fjár- né neinu,“ málaráðuneytinu hafi breytt einu mundsson Sigurður E. Guð- framkvæmdastjóri Húsnæðisstofnunar í samtali við Þjóðviljann í gær. -gg Lánveiting til Búseta er þeim skilyrðum háð að einungis verði byggðar leiguíbúðir fyrir náms- menn í fullu námi, aldraða sem náð hafa 65 ára aldri og öryrkja með a.m.k. 50% örorku. Náms- menn sem fá inni hjá Búseta verða að rýma íbúðir innan eins árs eftir að nánii lýkur. Mál þetta hefur verið mjög umdeilt og talsverður ágreining- ur er um þetta innan ríkisstjórn- arinnar. Þannig er Þorsteinn Pálsson svarinn fjandmaður Bús- eta og nú í vikunni sendi hann Húsnæðisstofnun álit Jóns Steinars Gunnlaugssonar lög- fræðings á málinu, þar sem segir að óheimilt sé að veita Búseta lán úr byggingasjóði verkamanna. Húsnæðisstofnun heyrir aftur á móti algjörlega undir fél- agsmálaráðuneytið og það hefur komið mörgum á óvart að fjár- málaráðherra skyldi hafá afskipti af málinu á þennan hátt. „Þessi álitsgerð breytti engu um afstöðu manna í málinu, það þori ég að fullyrða. Þetta kom hingað inn til mín og ég taldi betra að menn vissu af þessu en hitt og lagði þetta fyrir bæði í húsnæðismálastjórn og í félags- íbúðanefnd. En ég hef ekki orðið Schulz heimsækir ísland Heimsóknunt stórmenna fer nú ört fjölgandi: George Schulz, utanríkisráðherra Bandaríkj- anna, mun hafa viðdvöl á íslandi í næstu viku á heimleið frá Moskvu. Hann kemur á þriðjudags- kvöld og fer á miðvikudagskvöld. í fylgdarliði hans er Robert McFarlane öryggismálafulltrúi forsetans og í flugvélaráðherrans er þar að auki heil hersing blaða- manna. Laxeldi 19 þús fyrir hrognalítrann Skortur á hrognum. Mikil eftirspurn Mikil eftirspurn eftir laxa- hrognum hér á landi hefur nú leitt til þess, að verðið á hrognunum hefur snarhækkað í haust. Lítri af frjóvguðum laxahrognum gengur nú á 12 til 15 þúsund krón- ur, og þess eru dæmi á síðustu dögum að menn hafi greitt allt að 19 þúsund krónur fyrir lítrann. Nú er sá tími þegar hrogn eru kreist úr klakfisk og sett til klaks, og menn sem hyggja á seiðaeldi á næsta ári verða að ná í hrogn um þessar mundir. Að sögn árbænda hefur hrognaskortur leitt til þess að aldrei hefur verið jafn mikil ásókn í leyfi til að draga á fyrir klakalax. Sumum gengur þó erf- iðlega að tryggja sér hrogn, þann- ig er kunnugt um að minnsta kosti eina eldisstöð, sem á að taka til starfa á næsta ári sem ekki hefur tekist ennþá að tryggja sér hrogn. Eldisfrömuðir eru tregir að selja hrognin, þarsem þeir sjá fram á mikla og arðsama seiða- sölu, innanlands og til Noregs, á næsta ári og vilja því ekki gefa hrognin eftir. _q§ í f I ► ! i t FLUGLEIÐIR GERA ÞER KLEIFT AD TAKA ELSMþÍNA MEÐ NNANLANDS Ef þú ferðast miMð með Flugleiðum Innanlands átt þú það á „hættu“ að fá einn daginn frímiða upp í hendurnar, sem gildir til hvaða áfangastaðar okkar sem er innanlands — fram og til báka. Við gefum þér nefnilega punkta í hvert skipti sem þú ferðast með okkur og þegar þú ert búin/n að fljúga 13-17 sinnum á fjórum mánuðum finnst okkur tími til kominn að við borgum farið — ekki þú. Fáðu safnkort hjá afgreiðslufólki Flugleiða og láttu það kvitta fyTir þegar þú kaupir flugmiða. Við munum sjá um það að skrá punktana og senda þér frímiðann - og þá getur þú tekið elskuna með þér í flugið til tilbreytingar — fritt... FLUGLEIDIR i

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.