Þjóðviljinn - 22.11.1985, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 22.11.1985, Blaðsíða 7
Ma3,s*ut<en to°rf,TPn' \nnav \ Vv- Hamagangur í öskjunni 'ringur á Isafirði Jarðskjálfti á Akranesi Nemendur í framhaldsskólum landsins eru í miklum ham þessa dagana. Það stendur nefnilega yfir mælskukeppni framhalds- skólanna sem MORFIS sér um. Það er skammstöfun fyrir mælsku- og rökræðukeppni framhaldsskólanna á íslandi. Fyrir nokkrum dögum fóru Verslunarskólanemendur til ísa- fjarðar og öttu kappi við nem- endur í Menntaskólanum á ísa- firði. Verslunarskólanemar hafa sjálfsagt talið sig nokkuð örugga um sigur því þeir sendu B-lið sitt til keppni. ísfirðingar komu þeim hins vegar á óvart með því að vinna „glæsilegan sigur“ eins og Vestfirska Fréttablaðið orðaði það. Jarðskjálfti Það mun hafa verið titringur í loftinu í Alþýðuhúsinu umrætt kvöld á ísafirði en nær væri þó að segja að legið hafi við jarðskjálfta þegar Fjölbrautarskólarnir á Akranesi og í Breiðholti leiddu saman hesta sína í Bíóhöllinni nokkrum dögum síðar, í sömu keppni. Breiðhyltingar mættu upp á Skaga í fríðu föruneyti stuðnings- manna úr sínum skóla. Akurnes- ingar lágu heldur ekki á liði sínu og á endanum var Bíóhöllin orðin troðfull af áhangendum beggja liða sem höfðu svo hátt að hand- boltalandsleikur í laugardalshöll- inni hefði orðið eins og mjálm við hliðina á þeim ósköpum sem heyrðust úr Bíóhöllinni þetta kvöld. Umræðuefnið var Siðprúði meirihlutinn (Moral Majority), Breiðhyltingar drógust til þess að mæla með honum og Akurnes- ingar á móti. Þeir fyrrnefndu tóku þann kostinn að draga á gamansaman hátt upp dökka mynd af siðferðisástandi Akra- nesbæjar. Og þeir gerðu það svo hressilega að þeir voru dæmdir frá frekari þátttöku í þessari keppni, eftir að hafa unnið keppnina á Skaganum. Þessu vildu þeir ekki una, mótmæltu þessum úrskurði og eftir að málið hafði verið tekið upp að nýju varð endir þessara mála sá að ein- um kepandanum úr liði Breið- hyltinga var vísað úr keppni en Fjölbrautarskólinn í Breiðholti stóð endanlega uppi sem sigur- vegari. Akurnesingar sátu hins vegar eftir með sárt ennið. Skemmtileg keppni Þjóðviljinn hafði samband við tvo menn úr liði Fjölbrautar- skólans í Breiðholti, þá Albert Imsland og Sigsteinn Grétarsson. Albert er fyrirliði ræðuliðsins og Sigsteinn er liðsstjórinn. „Það er dálítið leiðinlegt að endirinn skuli hafa orðið með þessum hætti miðað við það hvað þetta var skemmtileg keppni þarna í Bíóhöllinni," sagði Al- bert. Bæði liðin höfðu undirbúið sig geysilega vel fyrir þessa keppni, unnið baki brotnu við að semja ræður og undirbúa flutn- inginn. Og keppnin varð alveg geysilega spennandi, þetta voru jöfn lið.“ - En nú mun hafa orðið einhver titringur uppi á Skaga vegna þess- arar keppni vegna bollalegginga ykkar um siðferðisástandið á Akranesi. „Já, okkur finnst þetta nú dá- lítið yfir strikið með því að blanda utanaðkomandi aðilum inn í þessan skáldskap okkar um Akranes, en við höfum beðið hlutaðeigandi afsökunar, send- um skeyti og blóm. Hvað af- ganginn varðar er ekkert annað að segja en það að fólk verður að hafa svolítinn húmor, sérstaklega hvað varðar málefni eins og Sið- prúði meirihlutinn. Og við gátum ekki séð annað en að allir í saln- um þetta kvöld skemmtu sér hið besta, Akurnesingar ekki síður en Breiðhyltingar. Alveg rosalega - Og þið hafið skemmt ykkur vel? „Alveg rosalega. Það er svo mikil stemmning í kringum svona viðburði í skólunum. Sérstaklega í skólum þar sem er ekkert bekkjakerfi eins og er í Fjöl- brautaskólanum í Breiðholti. Þetta þjappar nemendum saman um ákveðið málefni, skólinn verður svo sterklega þeirra skóli. Og fyrir áhorfendur er sona keppni geysilega skemmtileg. Ég held að það megi segja að þetta sé orðinn einn aðalviðburðurinn í starfsemi skólanna. Það er aldrei dauður punktur í svona keppni, ef Tæðumennirnir eru nógu góðir, nógu fyndnir. Húmorinn skiptir miklu máli. Húmor „Pið eruð sem sagt ekki á því að Akranes sé Sódóma íslands? - Auðvitað ekki, en einhverjir hafa í hita augnabliksins verið eitthvað viðkvæmir fyrir þessu. Við vorum bara svo óheppnir að lenda í því að þurfa að vera í for- svari fyrir fyrirbæri á borð við Moral Majority í Bandaríkjun- um, sem er auðvitað vægast sagt heldur leiðinleg aðstaða. Við reyndum að bjarga hlutunum með því að nota húmorinn. Og það gekk upp, svona að flestu leyti. Skagablaðið talar um fúk- yrðaflaum, við urðum að tileinka okkur hugmyndafræði „Siðprúða meirihlutans" þar sem fúkyrðaf- laumur hefur verið helsta vopnið. Og við tókum svo sterkt til orða að okkur datt ekki í hug að við yrðum teknir alvarlega utan ramma þessarar keppni. En ég held að allir séu nú orðnir sáttir, þegar mesti hamagangurinn er genginn yfir,“ sagði Albert að lokum og Sigsteinn samsinnti því. IH ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.