Þjóðviljinn - 22.11.1985, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 22.11.1985, Blaðsíða 16
Aðalsfmi: 81333. Kvöldsími: 81348. Helgarsfmi: 81663. MðÐVIUINN Föstudagur 22. nóvember 1985 270. tölublað 50. örgangur Kollafjarðarstöðin Aftur vart við nýmaveikina Klakfiskur sem tekinn var í haust hefur reynst sjúkur. Málið er í athugun og óvíst hvort öllum hrognunum verður hent Nýrnaveiki hefur aftur orðið vart í laxi í Laxeldisstöð ríkis- ins í Kollafirði. Veikinnar varð vart í þeim klakfiski sem tekinn var í haust og gæti verið að sá fiskur hafi farið smitaður frá stöðinni á sínum tíma. Sem kunnugt er varð nýrna- veiki í laxi vart í Kollafjarðar- stöðinni fyrr á þessu ári og var þá gripið til þess ráðs að eyða seiða- hrognum og seiðum frá haustinu áður. Ákvörðun var tekin um að eyða eins árs gömlum seiðum, enda reyndist sýking lítil meðal þeirra við ýtarlega rannsókn, að- eins 0,5% til 0.6%. Þeim seiðum hefur nú verið sleppt í sjó. íhaldsprófkjör Okkur er mismunað Þeir sem ekki hafa komiðfram í sjónvarpinu segja að þeim sem þar hafa komið sé hyglað. Fréttastjóri sjónvarps Ingvi Hrafn: Hafi mennfréttirfram að fœra segir sjónvarpið frá því Viðtalið við Vilhjálm Þ. á mið- vikudagskvöidið var hámarkið hjá sjónvarpinu, sagði einn fram- bjóðandi í prófkjöri íhaldsins sem fram fer um helgina, en mikil ólga er nú í röðum frambjóðenda vegna misnotkunar borgarfull- trúa Sjálfstæðisflokksins á frétta- stofu sjónvarps. Á undanförnum 2 vikum hafa í sjónvarpi birst viðtöl við Davíð Oddsson, Vilhjálm Þ. Vilhjálms- son, Pál Gíslason, Júlíus Haf- stein, Önnu K. Jónsdóttur og Magnús L. Sveinsson, og telja menn það enga tilviljun, þar sem sjónvarpið hefur hingað til ekki sýnt minnsta áhuga á málefnum borgarinnar. Sem dæmi er tekið viðtalið við Pál Gíslason, þar sem hann kynnti í löngu máli „tillögu“ um nýbyggingu á homi Garða- strætis og Vesturgötu sem ætlað væri að hýsa heilsugæslustöð og íbúðir fyrir aldraða. Þessi tillaga hefur hvergi verið kynnt í borgar- kerfinu. „Þetta er eins og hver önnur fjarstæða. Sé boðað til blaða- mannafundar og menn, hverjir sem það em, hafa fréttnæmt fram að færa, þá er sagt frá því, svo einfalt er það. Sjónvarpið getur ekki flokkað það niður hvort ein- hversstaðar er prófkjör eða ekki prófkjör, þegar fréttir eru ann- arsvegar", sagði Ingvi Hrafn ný- ráðinn fréttastjóri sjónvarpsins um þetta mál í gær. S.dór/-v. Sigurður Helgason fisksjúk- dómafræðingur að Keldum, sagði í samtali við Þjóðviljann í gær að ekki hefði verið ákveðið til hvaða ráða yrði gripið nú, mál- ið væri enn í rannsókn og að menn myndu sjá til hvað gert yrði þar til henni væri lokið. Þá sagði Sigurður að verið væri að rannsaka mjög stórt úrtak af öllu landinu, hvort nýmaveikin væri til staðar víðar. Þessari rann- sókn er hvergi nærri lokið og því ekkert hægt að fullyrða enn hvort veikin finnst annarsstaðar, en enn sem komið er hefur hennar ekki orðið vart í rannsókninni. -S.dór Enn er nýrnaveiki komin upp í Lax- eldistöð ríkisins í Kollafirði. Sigurður Helgason (innfellda myndin) segir ekki vitað hvort veikin hafi komið upp annars staðar. Ljósm. Sig. Grandi h.f. Kært til félagsmálaráðuneytis Minnihlutinn í borgarstjórn mun leita úrskurðar félagsmálaráðuneytisins um lögmœti vinnubragða borgarstjóra við skipun stjórnar Granda. Sigurjón Pétursson: Þetta er siðlaust ogmun ekki standast lög. Stangast á við reglugerðir. Eg lýsi því hérmeð yfir fyrir hönd fulltrúa minnihlutans í borgarstjórn að við munum leita úrskurðar fél- agsmálaráðuneytisins um lög- mæti þeirra vinnubragða sem beitt hefur verið af meirihlutan- um við skipun stjórnar Granda h.f., sagði Sigurjón Pétursson borgarfulltrúi Alþýðubandalags- ins á fundi borgarstjórnar í gær- kvöldi. Sigurjón mótmælti því harð- lega að fulltrúar borgarinnar í stjórn Granda, sem eins og kunn- ugt er var stofnað úr sambræðingi BÚR og ísbjamar, hafa verið skipaðir án nokkufs samráðs við borgarfulltrúa minnihlutans. Reykjavíkurborg á þrjá fulltrúa í stjórn. Engin grein hefur verið gerð fyrir skipaninni í borgar- stjórn. „Ég mótmæli þessum gerræðislegu vinnubrögðum meirihlutans. Þetta er siðlaust og mun ekki standast lög,“ sagði Sigurjón. Hann vitnaði í reglugerðir um stjórn borgarinnar, þar sem segir að það sé hlutverk borgarstjómar að fjalla um eignir borgarinnar og borgarstjórn og borgarráð eigi að fara með framkvæmdastjórn borgarinnar. Minnihlutinn telur þessar reglugerðir hafa verið brotnar. Þá var bent á hvernig er með svona mál í öðmm sveitarfé- lögum og bar Sigurjón vinnu- brögð íhaldsins í Reykjavík sam- an við hvemig málum er háttað á Akureyn. Akureyrarbær á meiri- hluta í Útgerðarfélaginu og kosið er um fulltrúa bæjarins í stjórn þess fyrirtækis. Sama gildir um fulltrúa Akureyrarbæjar í stjórn Slippstöðvarinnar, þar sem bær- inn á að vísu ekki meirihluta. Davíð Oddsson minnti á að þegar borgarritari lýsti yfir því í borgarráði að borgarstjóri myndi fara með umboð borgarstjórnar við skipun í stjórn Granda hafi enginn andmælt, en Sigurjón kvað orð borgarritara ekki taka af tvímæli um lög og reglugerðir. -gg Fjárlög Meira í hemaðarmálin íslenskur fulltrúi hjá NATO í Brussel með herfrœðilega þekkingu. Tekur til starfa í mars. Kostar hálfa aðra miljón Hækkun á framlagi ríkissjóðs til varnarmálaskrifstofu utan- ríkisráðuneytisins samkvæmt fjárlögum fyrir næsta ár er nær 100%. Ástæðan er ráðning fjög- urra nýrra starfsmanna, þar af þriggja á skrifstofunum í Reykja- vík og einn herfræðilegur fulltrúi hjá aðalstöðvum NATO í Brussel. Á aðalskrifstofu í Reykjavík verða tveir nýir ritarar ráðnir og auk „hermálasérfræðings“ eins og segir í fjárlagafrumvarpinu, en eins og komið hefur fram í frétt- um hefur Amór Sigurjónsson liðsforingi úr norska hemum ver- ið ráðinn í það embætti, en veitti víkingasveit lögreglunnar áður forstöðu. Kostnaður vegna þess- ara nýju embætta er áætlaður 1250 þús. kr. Þá verður ráðið í stöðu sem ber heitið „Fulltrúi í Bmssel“. Hér er um að ræða stöðu fulltrúa með hertæknilega þekkingu sem á að hefja störf 1. mars. n.k. hjá „Int- ernational Military Staff“ í aðal- stöðvum NATO í Brussel. Kostnaður við þessa stöðu her- fulltrúans verður 1.475 þús. kr. að meðtöldum rekstrargjöldum að því er fram kemur í fjárlaga- fmmvarpinu. -lg-

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.