Þjóðviljinn - 22.11.1985, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 22.11.1985, Blaðsíða 3
FRETTIR Framsókn Okrið er afleiðing stjómarstefnunnar Páll Pétursson: Hávaxtastefnan undirrótin. Matthías Bjarnason: Vaxtastefnan samþykkt afbáðum stjórnarflokkunum. Stjórn peningamála hefur farið úrskeiðis hjá ríkisstjórninni. Vextir eru of háir. Það voru mis- tök að gefa vextina frjálsa. Þetta sögðu þingmenn Framsóknar- flokksins um stjórnarstefnuna á alþingi í gær, þeir Páll Pétursson og Haraldur Olafsson. Páll var harðorður í garð ríkis- stjórnarinnar. Hann sagði að hún ætlaði sér að draga úr verðbólgu, stöðva erlendar lántökur og reka ríkissjóð hallalaust. Þetta væri góðra gjalda vert, en þetta næðist ekki nema látið væri af hávaxta- stefnunni. Páll sagði að háir bankavextir væru stökkpallur sem okrarafélögin notuðu til að krefja skuldunauta sína um enn hærri vexti. Lánsfé væri of dýrt í landinu og þegar svo væri, blómstraði okurlánastarfsemi. Það væri rétt að okur væri ekkert nýtt, en nú væri okur almennara og þróaðra en áður hefði verið og það kæmi í kjölfar þeirrar stefnu sem ríkisstjómin hefði fylgt. Okrið væri afleiðing vaxtastefn- unnar. Matthías Bjarnason viðskipt- aráðherra sagði slæmt að nú væri Páll Pétursson heima en Steingrímur Hermannsson á ferðalagi. Hann sagðist vilja minna Pál á að Framsóknarflokk- urinn væri aðili að ríkisstjóminni og stefna hennar væri stefna beggja flokkanna. Vaxtastefnan væri ákvörðun stjórnarflokkanna beggja og á ábyrgð Framsóknar ekki síður en Sjálfstæðisflokks- ins. Páll mótmælti þessum orðum ráðherrans. Stefna ríkisstjómar- innar væri málamiðlun milli stjórnarflokkanna, ekki stefna Framsóknarflokksins. -ÁI Reykjavík Nýtt lag á Kvosinni Sigurður Harðarson: Prófkjörsbomba sem enga umfjöllun hefur fengið Ný tillaga að deiliskipulagi gamla miðbæjarins, Kvosarinn- ar, er nú til sýnis í Gallerí Borg við Pósthússtræti. Tillagan gerir ráð fyrir að milli 20 og 30 gömul timburhús i Kvosinni verði rifín og í þeirra stað reist 5 hæða hús með verslunum, íbúðum og skrif- stofum. Austurstræti, Pósthús- stræti og hluti Hafnarstrætis eru sýnd sem göngugötur, en af stór- um nýbyggingum má nefna mið- stöð SVR, bflageymslu við Hafn- arstræti, nýtt ráðhús við Tjarn- arendann og menningarmiðstöð á Steindórsplani. „Skipulagshöfundar og aðdá- endaklúbburinn sem var stofnað- ur í kringum þetta skipulag í síð- ustu viku gera sér enga grein fyrir því að til þess að Kvosin standi sig í samkeppni við nýja miðbæinn verður að varðveita sérkenni hennar og undirstrika þau“, sagði Sigurður Harðarson, fulltrúi AB í skipulagsnefnd. „í stað þess er boðað niðurrif á 20-30 gömlum húsum án þess að nokkurt mat sé lagt á gildi þeirra fyrir umhverfið eða tengingu við fyrri tíð. Mark- miðið er aðeins eitt og það er að koma fyrir sem flestum fermetr- um í nýju verslunarhúsnæði í Kvosinni jafnvel þótt það kosti að öll sérkenni gamla bæjarins verði þurrkuð út“. „Ég hvet alla borgarbúa til að kynna sér þessa tillögu“ sagði Sigurður. „Þetta er prófkjörs- bomba íhaldsins og þeim hefur legið svo mikið á að auglýsa sjálfa sig að þeir hafa ekki einu sinni haft fyrir því að ræða tillöguna í nefndum borgarinnar. Eg er sannfærður um að það er ætlunin að keyra þetta í gegn án nokkurr- ar umfjöllunar, þrátt fyrir að reynslan frá svipuðum slysum er- lendis sýni að þetta er ekki það sem gera á við gamlan miðbæ, ef maður vill að hann lifi“. -ÁI Kristín Ólafsdóttir varaformaður AB var á meðal frummælenda á fjölmennum fundi Alþýðubandalagsins í Kópavogi sl. miðvikudagskvöld. Alþýðubandalagið Fjölmenni í Kópavogi Þetta var mjög góður fundur, fjölmennur og baráttuglaður og það var einróma áiit fundar- gesta að það væri knýjandi nauð- syn fyrir allt launafólk að koma ríkisstjórninni frá hið bráðasta, sagði Sigurður Magnússon for- maður Alþýðubandalagsins í Kópavogi, en í fyrrakvöld var þar fyrsti fundur Álþýðubandalags- ins í fundaröðinni Ný sókn - nýtt fólk - nýtt afl. „Húsfyllir var í Þinghól þetta kvöld og tóku menn virkan þátt í Margir gengu ífélagið ífyrrakvöld umræðunum eftir að framsögu- harðlega þá stefnu ríkisstjórnar- mennirnir Svavar Gestsson, innar sem birtist í vaxandi okur- Ólafur Ragnar Grímsson og lánastarfsemi. Fundurinn skorar Kristín Á. Ólafsdóttir höfðu lok- ið máli sínu“, sagði Sigurður enn- fremur. Fundurinn í fyrrakvöld var op- inn óflokksbundnu fólki og sagði Sigurður að í lok hans hefði hóp- ur manna gengið í flokksdeildina í Kópavogi. Eftirfarandi ályktun var sam- þykkt: „Almennur stjórnmála- fundur á vegum ABK fordæmir Doktor Einar Már Einar Már Jónsson sagnfræð- ingur varði doktorsritgerð við Svartaskóla í París á þriðjudag. Hlaut ritgerðin mjög jákvæða umsögn þriggja andmælanda, en fyrir þeim var Jacques Fontaine, sérfróður um latneskar bók- menntir miðalda. Doktorsritgerð Einars Más fjallar um heimspekilegan bak- grunn og uppruna þeirrar bók- menntagreinar sem kennd er við „speculum“ - eða „skuggsjá". En þess er að geta að ein bók úr þeim flokki er Konungsskuggsjá, sem reyndar er ekki viðfangsefni þessarar ritgerðar. Einar Már er fæddur 1942 og hóf nám í Frakklandi 1962. Hann hefur hin síðari ár verið lektor í íslensku og íslenskum bók- menntum við Svartaskóla og er lesendum Þjóðviljans að góðu kunnur fyrir skrif í blaðið. Dokt- orsritgerð hans mun vera hluti af stærra verki á sviði miðalda- fræða. á Alþingi að taka völdin úr hönd- um ráðherranna og samþykkja þegar í stað lög um að banna ok- urlánastarfsemina". Næsti fundur í fundaröð AB verður á laugardaginn í Bolunga- vík en þar hafa framsögu þau Svavar Gestsson og Margrét Frímannsdóttir gjaldkeri flokks- ins. -v Borgarstjórn Sveitastjómir ákveði útsvars- álagningu FuIItrúar Alþýðubandalagsins ,í borgarstjórn lögðu í gær fram tillögu þess efnis að borgarstjórn skori á Alþingi að breyta iögum um tekjustofna sveitarfélaga á þann veg að sveitarstjórnum verði heimilað að hafa hundr- aðshluta útsvarsálagningar breytilegan eftir tekjum framtelj- anda. Tillagan var samþykkt með orðalagsbreytingum frá borgar- stjóra. Sigurjón Pétursson sagði í ræðu á borgarstjórnarfundi í gær- kvöldi að útsvar væri láglauna- fólki talsverð byrði og því yrði að stefna að því að leggja útsvar á eftir tekjum framteljanda. Til- lögu Alþýðubandalagsins var breytt á þann veg að því væri beint til Álþingis að ákvörðun- arréttur um álagningu útsvars yrði algjörlega í höndum sveitarstjórnanna í landinu. ~SS Húsafriðun Torfusamtökin til í slaginn Ráðstefna á morgun. Hjörleifur Stefánsson: Verður að vernda gamla miðbœinn Það hefur verið hljótt um Torfusamtökin undanfarið, húsafriðunarfólk hefur lítið hist, en með þessari ráðstefnu á laugardaginn verður gerð nokk- ur bót þar á. Meðal þess sem ég vona að komi til umræðu þarna er nýja skipulagið að miðbænum, en þar er gert ráð fyrir að á þriðja tug gamalla húsa verði rifín. Það má auðvitað ekki verða, sagði Hjörleifur Stefánsson formaður Torfusamtakanna í samtali við Þjóðviljann í gær. Á nokkrum seinustu árum hafa Torfusamtökin einbeitt sér að viðgerð og endurbyggingu hús- anna á Bernhöfstorfunni, en vernd þeirra hefur nú verið falin Minjavernd. „Við vorum komin á þá skoðun, að almennur vilji væri fyrir því að vemda gömul hús, en svo virðist ekki vera, eins og nýtt miðbæjarskipulag ber með sér. Því bjóðum við til ráð- stefnu öllum þeim sem áhuga hafa á þessum málum“, sagði Hjörleifur. Ráðstefnan verður í Litlu Brekku á Bemhöfstorfu kl. 10.00 á morgun en síðan taka við erindi og umræður. Flutt verða erindi um íslenska húsfriðunarstefnu, viðhorf arkitekta til endumýjun- ar gamalla húsa, stefnu borgaryf- irvalda í varðveislu gamla mið- bæjarins og hvernig tryggja má varðveislu gamallar byggðar. -gg ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.