Þjóðviljinn - 22.11.1985, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 22.11.1985, Blaðsíða 2
FRETTIR Austfirðir Gífurlegur bræðslufnykur EnginfiskimjölsverksmiðjaáAustfjörðum hefur starfsleyfi. Megn óánægja heimamanna vegna loft- oggrútarmengunar. Hollustuvernd ríkisins með kröfur um úrbœtur og ákveðin tímamörk Hollustuvernd ríkisins hefur nýlega lagt fyrir heilbrigðis- ráðuneytið skilyrtar tillögur að starfsleyfi fyrir fiskimjölsbræð- slur á Seyðisfirði. Þá er Hollustu- verndin að vinna að samskonar tillögum varðandi starfsleyfi fyrir aðrar fiskimjölsverksmiðjur á Austfjörðum en allar verksmiðj- urnar á Austfjörðum hafa verið starfræktar án starfsleyfis um nokkurt skeið. Mikil mengun hefur fylgt loönubræðslu verksmiðjanna fyrir austan í haust, bæði loft- og grútarmengun. Einna verst hefur ástandið verið á Seyðisfirði og er mikil og almenn óánægja meðal Útvegsbankinn Opinber rannsókn á bankastjórana Guðmundur Einarsson þing- maður hefur óskað tafarlausrar opinberrar rannsóknar á þeim yf- irlýsingum bankastjóra Utvegs- bankans frá í júní sl. sumar að bankinn hefði fullar tryggingar fyrir lánum sínum til Hafskips. í júní svaraði Matthías Mathie- sen þáverandi viðskiptaráðherra, fyrirspurn frá Guðmundi á al- þingi, í kjölfar blaðaskrifa um fyrirsjáanlegt gjaldþrot Haf- skips, um stöðu Útvegsbankans í því sambandi. í svari sínu vitnaði ráðherrann til bankastjóra Út- vegsbankans sem fullyrtu þá að tryggingar væru nægar. Nú er fram komið að svo var alls ekki og reyndar einnig að bankastjór- unum hafi verið kunnugt um að svo var á þessum sama tíma. Því fer Guðmundur fram á opinbera rannsókn á þessum staðhæfing- um þeirra. - ÁI. Dagsbrún/Vari Enn er frestað Baldur Ágústsson eigandi ör- yggisþjónustunnar Vara fær- ist enn undan því að setjast að samningaborði með Dagsbrún og semja á tilhlýðilegan hátt um kaup og kjör starfsmanna sinna. Ætlað var að hann kæmi til fundar við fulltrúa Dagsbrúnar í gær, en ekki varð af því. Baldur hringdi þess í stað og bað um frest fram á þriðjudag í næstu viku. Frestirnir eru nú orðnir nokkuð margir, en nokkrar vikur eru liðnar síðan Dagsbrún fór að nefna samninga við Baldur. -gg Dýrtíðin Nýmjólk 11tr. 200% 150% Hækkun: 165,3% Frá því ríkisstjórnin kom til valda í maí 1983 hefur iítrinn af mjólk hækkaö um 165,3%. Kostaði nýmjólkin 12,55 kr. þá en kostar í dag 33,30 kr. Á sama tíma hafa meðallaun iðnaðarmanna samkvæmt upplýsingum Kjararannsóknarnefndar hækkað um 80.4% (svarta súlan). Þjóðviljinn mun á næstu dögum taka fleiri vöruflokka til samanburðar. bæjarbúa þar sem víðar á Austfjörðum vegna mengunar frá verksmiðjunum. Allar verk- smiðjurnar fyrir austan eru komnar nokkuð til ára sinna og eru með svokallaða beina eld- þurrkun en henni fylgir mikil loftmengun. Ólafur Pétursson hjá mengun- ardeild Hollustuverndar ríkisins sagði í samtali við Þjóðviljann í gær að ekki væri hægt að gera kröfur varðandi mengunarvarnir í verksmiðjunum á Austfjörðum sem um nýjar verksmiðjur væri að ræða en til að verksmiðjurnar fengju starfsleyfi fyrir næstu ver- tíð þyrfti víða að bæta úr. í þeim starfsleyfum sem heilbrigðisráðuneytið mun vænt- anlega gefa út fljótlega eftir ára- mótin koma bæði fram kröfur um ákvæði sem beri að uppfylla hjá viðkomandi verksmiðju og einn- ig verða sett tímamörk á úrbæt- umar. -Ig. Friðarbarátta Fagnaður gegn kjamorkuvá Samtök um kjarnorkuvopnalaust ísland efna til vetrarfagnaðar í Félagsstofnun í kvöld Þessi vetrarfagnaður er fyrst og fremst til þess hugsaður að gefa fólki, sem er þeirrar skoðun- ar að kjarnorkuvopn séu af hinu illa, færi á að koma saman og gleðjast saman. Þetta á ekki að verða neinn fræðslufundur, sagði SigurðurÁrnason læknir í samtali við Þjóðviljann í gær, en hann er í stjórn Samtaka lækna gegn kjarnorkuvá. Samtök um kjarnorkuvopna- laust ísland gangast fyrir vetrar- fagnaði í Félagsstofnun stúdenta í kvöld og hefst hann kl. 21.00. Dagskráin verður hin fjöl- breyttasta. Nefna má upplestur skáldanna Þórarins Eldjársn og Einars Kárasonar úr nýjum bókum þeirra. Kristín Á. Olafs- dóttir ætlar að syngja lög af ný- útkominni plötu sinni, A morg- un, og leikarar úr leikritinu Land míns föður munu koma í heim- sókn eftir sýningu og syngja lög úr leikritinu. Þá mun fulltrúi frá Samtökum lækna gegn kjarnork- uvá flytja erindi í tilefni þess að alþjóðleg samtök þeirra munu fá friðarverðlaun Nóbels á þessu ári. „Það að við höfum fengið þessi verðlaun á að vera öðrum ands- tæðingum kjarnorkuvopna hvatning og sýnir að með vinnu og áhuga er hægt að hafa áhrif í þessari baráttu," sagði Sigurður í gær. Fagnaður þessi er öllum opmn og auðvitað eru allir andstæðngar kjarnorkuvopna hvattir til að taka þátt í skemmtuninni. -gg 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 22. nóvember 1985 íslenskt hervit - ný niður- greidd útflutningsvara? Launamál Sérstakt tillit til kvenna Borgarstjórn vill láta farafram könnun á launum kvenna. Borgarstjórn samþykkti í gær tillögu fulltrúa Alþýðubandalags- ins um að beina því til Starfs- mannafélags Reykjavíkur að við gerð næstu sérkjarasamninga verði gerð tilraun til að leiðrétta það misvægi sem nú viðgengst í launakjörum karla og kvenna. „Með því að samþykkja þessa tillögu tel ég að stórt skref hafi verið stigið í þá átt að jafna launamisrétti milli karla og kvenna" sagði Guðmundur Jóns- son er hann mælti fyrir tillögunni. Tillagan hljóðar svo: „Borgar- stjórn samþykkir að beina því til Starfsmannafélags Reykjavíkur, að samningsaðilar kanni sérstak- lega fyrir gerð næstu sérkjara- samninga röðun þeirra starfs- heita í launaflokka sem að meiri- hluta eru skipum konum. Verði launaflokkaröðun þeirra starfs- heita borin saman við röðun ann- arra starfsheita. í næstu sérkjara- samningum verði niðurstöður framangreindrar könnunar grundvöllur viðræðna aðila“. Kvennaframboð lagði í sept- ember fram tillögu um að fram fari fyrir gerð næstu kjarasamn- inga endurmat á störfum kvenna. Henni var vísað til borgarráðs, sem síðan felldi hana á forsend- um umsagnar frá þremur emb- ættismönnum borgarinnar. Guð- rún Jónsdóttir deildi hart á þessa umsögn á fundinum og taldi hana ómerka. Fulltrúar Kvennafram- boðs lögðu fram harðorða bókun vegna meðferðar tillögunnar; og umsagnar embættismannanna. -gg Fiskstjórnun Tvö ár í stað 3ja Sjávarútvegsráðherra hefur l lagt fram á Alþingi frumvarp til laga um stjórnun fiskveiða. Það var ætlun ráðherra fyrr í haust að frumvarpið gerði ráð fyrir stjórnun veiðanna til 3ja ára en því hefur verið breytt og er gert ráð fyrir að gildistími lag- anna verði tvö ár. Þá er aðeins hliðrað til fyrir minni bátana, trillumar, en hvergi nærri eins og trillukarlar hafa farið fram á. Ekki er talið að frumvarpið fari óbreytt í gegnum Alþingi og eru það einkum málefni trillukail- anna sem margir alþingismenn vilja breytingar á. -S.dor

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.