Þjóðviljinn - 22.11.1985, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 22.11.1985, Blaðsíða 1
GLÆTAN HELGIN VIÐHORF HEIMURINN Erlend lán 300 miljónir í flugstöð Fjárveitingin íflugstöðina nœrfimmfalt hœrri en til allra framkvœmda við sjúkrahús og heilsugæslu. Bygginganefndin undirbýr kynningarbœkling og vœntir stóraukinnar umferðar umflugvöllinn. r Anæsta ári munu 300 miljónir renna af fjárlögum til nýju flugstöðvarbyggingarinnar á Keflavíkurflugvelli. Öll þessi fjárhæð er tekin í erlendum lán- um. Hér er um að ræða nær fimmfalt hærri fjárhæð en veitt verður á næsta ári til allra ný- framkvæmda við sjúkrahús, heilsugæslustöðvar og lækna- bústaði á öllu landinu, en eftir nýjasta niðurskurð fjármálaráð- herra er sú fjárhæð komin niður í 65 miljónir. Á dögunum voru opnuð tilboð í innréttingar í nýju flugstöðinni og hljóðaði lægsta tilboð uppá tæpar 600 miljónir. Inni í þeim framkvæmdum eru hitalagnir, loftræstikerfi, baðherbergi og all- ar fastar innréttingar. Þessum framkvæmdum á að vera lokið í aprílbyrjun árið 1987 að sögn Sverris Hauks Gunnlaugssonar formanns byggingarnefndar flug- stöðvarinnar. í þessum fram- kvæmdum eru hins vegar ekki neinar lausar innréttingar, eld- húsbúnaður fyrir mötuneyti, lyft- ur, rúllustigar né tengibrýr útí flugvélar. Heildarkostnaður íslendinga vegna flugstöðvarbyggingarinnar er áætlaður um 22 miljónir bandaríkjadollara eða tæpar 900 miijónir íslenskar. Bandaríkja- Uppskipunarbannið VSÍ kærir Dagsbrún Þröstur Ólafsson: Dagsbrún er að stíga sama skrefog samskonar félög í nágrannalöndum. Fráleitthjá VSÍ í gær barst Dagsbrún stefna frá Vinnuveitendasambandi Islands sökum uppskipunarbanns félags- ins á vörur frá Suður-Afríku. VSÍ gerir jafnframt kröfu um að Dagsbrún greiði allan málskostn- að. „Ég verð að segja að mér finnst þetta algerlega fráleit afstaða hjá VSÍ“, sagði Þröstur Ólafsson, framkvæmdastjóri Dagsbrúnar. „Dagsbrún er með þessu að styðja baráttu blakkra stéttar- bræðra í S-Afríku sem eru sann- arlega beittir kúgun af stjórn- völdum í heimalandi sínu. Við erum hér að stíga sama skref og samtök verkafólks í nágranna- löndunum, án þess að þau hafi fengið á sig kærur frá samtökum atvinnurekenda í viðkomandi löndum. Ég á einfaldlega erfitt með að trúa þessu. Þeir sem flytja inn vörur frá S-Afríku hafa sýnt þessu mikinn skilning og dregið mjög verulega úr kaupum þaðan. Skipafélögin hafa sömuleiðis ekki legið á liði sínu með að kynna þessa afstöðu Dagsbrúnar fyrir innflytjendum", sagði Þröst- ur að lokum. _ös menn eiga að greiða að hámarki um 20 miljónir dollara auk þess sem þeir sjá um allan kostnað við flughlað og sérstaka vegarlagn- ingu að nýju flugstöðinni. Byggingarnefnd flugstöðvar- innar hyggst gefa út sérstakt kynningarrit um nýju flugstöðina á næsta ári og dreifa því víða er- lendis. Að sögn Sverris Hauks gera menn sér vonir um að nýja flugstöðin muni draga að auknar flugsamgöngur bæði frá vestur- heimi og Evrópu, samfara því að erlend flugfélög nota nú í síaukn- um mæli minni og skammdrægari flugvélar í millilandaflugi sem yrðu þá í auknum mæli að notast við Keflavíkurflugvöll á leiðinni yfir Atlantshafið. -Ig. Friðarganga I þágu friðar í Mið-Ameríku Ari Traustason tekurþátt ísex vikna friðargöngu um Mið-Ameríku í desember og janúar. Pátttakendur frá 25 löndum Eg heyrði fyrst um þessa göngu í Mið-Ameríku í gegnum félaga mína í El-Salvador nefndinni og fannst þetta mjög freistandi þannig að ég ákvað bara að skella mér, sagði Ari Traustason vagn- stjóri í samtali við Þjóðviljann í gær, en hann ætlar einn Islend- inga að taka þátt í sex vikna friðargöngu um Mið-Ameríku sem hefst 10. desember n.k. Hugmyndina að göngunni áttu norskir friðarhópar, en þátttak- endur verða frá 25 löndum. Á meðal þeirra sem munu ganga með Ara eru ekki ófrægari menn en Jessie Jackson, Daniel Ells- berg og leikararnir Martin Sheen og Foxworth. Margir heims- kunnir menn styðja göngumenn í Ari bindur skóþveng sinn og virðist þess albúinn að takast á við kílómetr- ana 2000. Ljósm. Sig. baráttunni og má þar nefna Willy Brandt, Gunter Grass, Petru Kelly og Bibi Anderson. Gengið verður í þágu friðar í Mið- Ameríku. Gangan hefst í Panama 10. desember. Þaðan verður gengið um Costa Rica, Nicaragua, Honduras, E1 Salvador, Guate- mala og hápunktur göngunnar verður í Mexíkóborg 22. janúar á næsta ári. Þaðan mun svo fara sendinefnd göngumanna til Was- hington og boða þar frið. „Vð munum fara um 2000 kíló- metra vegalengd og verður reyndar ekið og gengið á víxl. Hluti gönguleiðarinnar verður um óróasvæði og mér er kunnugt um að gangan hefur ekki beinlín- is verið boðin velkomin í Guate- mala, svo dæmi sé tekið,“ sagði Ari. -gg Þingflokkur AB Bönd á okrið Þingflokkur A Iþýðubandalagsins: Bann á okurstöðvarnar „Svör ráðherranna sýna að ríkisstjórnin ætlar ekki að gera neitt til að stöðva okrið og verð- bréfabraskið. Þingflokkur Al- þýðubandalagsins hefur því gengið frá lagafrumvarpi um bönd á okrið og munum við leggja það fram á næstu dögum,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon í umræðum á Alþingi í gær. Utandagskrárumræðu sem hann hóf á þriðjudag var fram- haldið í gær og stóð hún allan fundartíma Alþingis. Umræðan snerist upp í almennar stjórnmálaumræður, þar sem fjallað var um vaxtastefnu ríkis- stjórnarinnar og svik hennar í húsnæðismálum. -ÁI Sjá bls. 3. SÍS/Hafskip Mikill urgur er í kaupfélagsstjórum Hafskip þrýstir mjög á SÍS. Valur með takmarkað umboð. Margir kaupfélagsstjórar vilja ekki út í neitt ævintýri Síaukinnar gagnrýni gætir hjá ýmsum forystumönnum Sam- bandsins á þátttöku SÍS í sam- eiginlegum skiparekstri með þrotabúi Hafskips. Einkum eru það kaupfélagsstjórarnir utan af landsbyggðinni sem eru á móti þvl að Sambandið fari að flækja sé I einhver ný fjármálaævintýri með Sjálfstæðismönnum. Þessi mál bar mjög á góma á sérstökum fundi kaupfélagstjóra Sambandsins sem haldinn var í gær. Stjóm SÍS fól Vali Am- þórssyni stjórnarformanni ein- ungis takmarkað umboð til við- ræðna við Hafskipsmenn um sameiginlegt skipafélag, en stjórnin hefur í valdi sínu að kveða endanlega uppúr í þeim efnum, þegar öll mál liggja skýr á borðinu. Hafskipsmenn leggja mikla áherslu á að samningaviðræðum verði hraðað og benda á að Eim- skipafélagið bíði aðeins eftir rétta augnablikinu til að komast yfir eigur Hafskips, hafni Sambandið fátttöku í íslenska skipafélaginu. gærkvöld sátu stjómarmenn Hafskips á fundi með yfir- mönnum Sambandsins þar sem þessi tnál vom til umræðu en óvíst er að endanleg ákvörðun Sambandsins liggi fyrir fyrr en í næstu viku. ->g-

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.