Þjóðviljinn - 10.12.1985, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 10.12.1985, Blaðsíða 6
HAFSKIP Hafa mennirnir efni á að borga þessa skuld - í stað þess að fagður verði á sér- stakur Hafskipsskattur á hverja fjölskyldu í landinu? Þannig spyrja margir þessa dagana og velta því fyrir sér hvað þeir eiga stjórnar- mennirnir í Hafskipi. Flestir stjórnarmannanna eiga í fjöimörgum fyrirtækjum því þeir eru flestir meðal stærstu við- skiptajöfra í landinu. í síðustu stjórn Hafskips voru Bjarni Magnússon, sem er þar á vegum íslensku umboðssölunnar hf, sem er einn stærsti skreiðarútflyjandi í landinu. Bjarni er ólíkur flestum þeim sem koma við sögu Haf- skips, að því leyti að hann á rætur í SÍS og Framsóknarflokknum. Var framkvæmdastjóri útflutn- ingsdeildar SÍS um skeið, for- maður Félags ungra Framsóknar- manna í Reykjavík, og í fram- kvæmdastjórn SÍS. Auk íslensku umboðssölunnar hefur hann Gert upp viðRE 1. október Reykvísk endurtrygging heitir vaxandi og vel húsað vátrygg- ingafélag I Reykjavík. Forstjóri Hafskips, Björgúlfur Guðmunds- son og stjórnarformaður Haf- skips Ragnar Kjartansson eiga 18,5% í þessu vátryggingafélagi. Þeir sitja líka ásamt Gísla Lárus- syni forstjóra tryggingafélagsins í 3ja manna stjórn þess. Hafskip hafði umtalsverð viðskipti við RE eða sem nemur 18% af starfsemi tryggingafélagsins. Munu skip Hafskips hafa verið tryggð þar. Gísli Lárusson forstjóri var spurður um hvort það væri rétt, sem haldið er fram, að Hafskip hafí verið búið að gera upp aliar iðgjaldagreiðslur við Reykvíska endurtryggingu þann 1. október sl.. Sagði hann það rétt vera, enda hefði slíkt verið nauðsyn- legt þar sem nýtt tryggingatíma- bil hófst 1. október. Tryggingafé- lagið yrði að fjármagna endur- tryggingu erlendis og ef iðgjöld af henni væru ekki greidd, félli tryggingin niður. Því hefði sú krafa verið gerð á Hafskip sl. tvö ár að félagið greiddi iðgjalda-af- borganir viku- eða mánaðarlega og hefði verið staðið við það. Ennfremur sagði Gísli að sá háttur hefði verið hafður á að þegar tjónauppgjör hefði farið fram að iðgjöld væru skuld- jöfnuð. Sagði Gísli að nú sem stendur skuldar tryggingafélagið Hafskip tjónagreiðslur á skipun- um. Reykvísk endurtrygging er til húsa að Sóleyjargötu 1 í Reykja- vík. Húsið er í eigu fyrirtækis sem heitir Staðarstaður h.f. Eigendur þess eru Björgólfur Guðmunds- son, Ragnar Kjartansson, Gísli Lárusson. Voru húsakaupin, sem námu 9,5 miljónum króna fjár- mögnum með bankalánum og lání frá seljanda. Eru persónu- legar eignir þremenninganna veðsettar fyrir þeim skuldum. Það var vegna tilmæla endur- skoðenda RE að þessi háttur var hafður á til að binda ekki sjóði tryggingafélagsins í húsakaupun- um. -4S.dór gegnt stjórnarformennsku í fyrir- tækjum einsog: Netasalan hf. Höfn hf á Selfossi, Langeyri hf í Hafnarfirði, Loðskinna hf, Búr- felli hf á Rifi. Finnbogi Kjeld á Víkur hf skipaútgerð og kemur við sögu fleiri fyrirtækja. Guðlaugur Bergmann forstjóri í Karnabæ er sagður eiga í mörg- um fleiri fyrirtækjum. Gunnar Þór Ólafsson (Fiskiðjan hf) og Ólafur B Ólafsson (Keflavík hf) eru báðir í stjórn Hafskips. Þeir eru einnig báðir í stjórn Fiskiðj- unnar, Miðness og Keflavíkur hf. Hilmar Fenger er eigandi og framkvæmdastjóri Nathans og Olsen. Jón Helgi Guðmundsson forstjóri og stjórnarformaður BYKO, Byggingavöruverslunar Kópavogs er einnig í stjórn, sem og Jón Snorrason í Húsasmiðj- unni. Þá er fulltrúi í stjórn Hafskips Jónatan Einarsson frá Einari Guðfinnssyni hf í Bolungarvík, í stjórn Skeljungs, í stjórn Versl- unarráðsins í um tíu ára skeið, í stjórnum eftirtalinna fyrirtækja í Bolungavík: Baldurs hf, íshúsfé- lags Bolungarvíkur hf og Völu- steins hf. Páll G. Jónsson kenndur við Polaris er sagður vera ríkasti maður landsins. Hann á laxveiði- ár og fyrirtæki einsog gosdryk- kjaverksmiðjuna Sanitas (pepsí og fleiri drykkir) og Sana á Akur- eyri og fleiri eignir stórar. Aðal keppinautur hans í gos- drykkjastríðinu Pétur Björnsson Vífilfell hf (kóka kóla) er einnig í stjórn Hafskips. Hann er einnig í stjórn Stofnunar Jóns Þorláks- sonar sem ekki er víst að gefi af sér mikinn eða skjótfenginn arð. (Það er stofnunin sem Hannes Hólmsteinn stjórnar). Víðir Finnbogason í Teppa- landi hf er stjórnarmaður í síð- ustu stjórn skipafélagsins. Þar er líka Sveinn R. Eyjólfsson fyrir hönd Hilmis hf og Dagblaðsins/ Vísis. Langflestir þessara manna eru kunnir flokksmenn úr Sjálfstæð- isflokknum, margir þeirra úr röðum Hulduhersins. í millitíð- inni var starfandi íslenska skipafélagið sem stjórnað var af Sveini R. Eyjólfssyni, Páli í Pólar- is Jónssyni Olafi B. Olafssyni áð- urnefndum, - og Herði Ein- arssyni framkvæmdastjóra Frjálsrar Fjölmiðlunar hf og Jóni G. Zöega. Jón G. Zöega hefur ekki komið áður við sögu í frétt- askýringum í Þjóðviljanum um þetta mál. Hann var lögfræðingur Hafskips,- en hafði áður verið starfsmaður Sjálfstæðisflokksins, varaformaður Heimdallar. Finnbogi Kjeld Páll G. Jónsson Guðlaugur Bergmann Ragnar Kjartansson stjórnar- formaður Hafskips og Björgúlfur Guðmundsson framkvæmda- stjóri Hafskips eru sagðir eiga miklar eignir bæði hérlendis og erlendis. Víst er að þeir eru báðir í stjórn Reykvískrar endurtryggingar en eiga þar 18% hlut hvor. Þá er Björgúlfur í stjórn Bláskóga hf en þar er Ragnar einnig sagður eiga Ragnar Kjartansson Sveinn R. Eyjólfsson Hilmar Fenger Bjami V. Magnússon Jónatan Einarsson Ólafur B. Ólafsson hluti. Þeir eru einnig sagðir eiga í íslenska námafélaginu, sem og í Almennum tryggingum hf. í stjórn Almennra Trygginga er m.a. Davíð Scheving Thor- steinsson fyrrum stjórnarmaður í Hafskip. Davíð er auk þess að vera miðstjórnarmaður í Sjálf- stæðisflokknum í framkvæmda- stjórn VSÍ, framkvæmdastjóri Smjörlíkisgerðarinnar Ljóma hf, Smjörlíkis hf,og Sólar hf. Hann er eða hefur verið í stjórn Hydrol hf, Lyftis hf, Glits hf auk áðurnefnd- ra fyrirtækja. Það mætti sjálfsagt lengi bæta við þennan lista, - en væru hlut- hafar ábyrgir, þá væri sjálfsagt komið langleiðina uppí skuldir Hafskips með þessari upptaln- ingu. -óg Ósannindi á Alþingi Matthías Á. Mathiesen þáver- andi viðskiptaráðhcrra sagði í ræðu á Alþingi 18. júní sl. að full veð væru fyrir hendi hjá Hafskip h.f. vegna skulda þess við Utvegsbankann. Hann sagði enn- fremur að eftir því sem hann vissi best hefði bankaeftirlitið enga at- hugasemd gert í þessu tilviki. Matthías Bjarnason sagði í um- ræðum um Hafskipsmálið 14. nóvember sl. að þann 3. júní hefði legið fyrir að Hafskip h.f. átti ekki veð fyrir skuldum. Orð- rétt sagði Matthías Bjarnason: „f júnímánuði á þessu ári fékk Seðlabankinn skv. beiðni upplýs- ingar um stöðu Hafskips gagnvart Útvegsbankanum, sem dagsett er 3. júní, en þar kom fram að nokkuð vantaði til þess að tryggingar bankans nægðu fyrir heildarskuldbindingum Hafskips gagnvart bankanum að meðtöldum víxlum vegna annara ábyrgða...“. Þegar Matthías Á. Mathiesen bankamálaráðherra þáverandi sagði 18. júní á þingi að full veð væru fyrir skuldum Hafskips vitn- aði hann í opinbera yfirlýsingu bankastjóra Útvegsbankans. Sú spurning vaknar hvort Matthías sagði vísvitandi ósatt, eða fylgdist hann ekki betur með en það að hálfum mánuði eftir að bankaeft- irlitið sendir honum og Seðla- bankanum skýrslu um málið, hafi hann ekki lesið skýrsluna. Þó vissi Matthías vel að bankaeftir- litið hafði árum saman gert at- hugasemdir við þetta umrædda Hafskipsmál án þess að því væri svarað í nokkru utan árið 1979. f ljósi tengsla toppmanna í Sjálf- stæðisflokknum við Hafskips- málið, þarf að fá skýringar á um- mælum þessara tveggja við- skiptaráðherra Sjálfstæðisflokks- ins með 5 mánaða millibili um þetta sama mál. Albert Guðmundsson iðnaðar- ráðherra sagði líka ósatt í umræð- unum á Alþingi 14. nóvember sl. Þá sagði hann að allan þann tíma sem hann var stjórnarformaður Hafskips hafi vikulega verið fylgst með öllum peningamálum Hafskips af lögfræðingi Útvegs- bankans og að hann vissi ekki betur en að það væri gert enn. Halldór Guðbjarnason banka- stjóri Útvegsbankans sagði í sjónvarpsumræðum um Haf- skipsmálið sl. föstudag að þetta væri ósatt. Það hefði ekkert slíkt eftirlit átt sér stað. -S.dór 6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 10. desember 1985

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.