Þjóðviljinn - 21.12.1985, Page 4
LEIÐARI
Brenglaðar áætlanir
Þaö er í meira iagi umhugsunarvert, aö þegar
núverandi ríkisstjórn tók viö þá lagði Sjálfstæö-
isflokkurinn höfuöáherslu á aö breyta
efnahags- og peningakerfinu þann veg að verö-
bólga yröi úr sögunni og aö áætlanir opinberra
aöilja, sveitarfélaga og stofnana ættu aö stand-
ast.
í Ijósi þessara „stööugleikakenninga" Sjálf-
stæöisflokksins er fróölegt aö líta á hvernig
þeim sjálfum, til dæmis fjármálaráðherra og
borgarstjóranum í Reykjavík hefur tekist aö
standa viö áætlanir sem flokkur þeirra hefur
gert hjá ríki og borg.
Á árinu sem er aö líða áttu samkvæmt láns-
fjárlögum aö verða tekin erlend lán aö upphæö
7.2 miljörðum. Nú er hins vegar álitið aö erlend
lán nemi þess í staö 11.5 miljörðum króna. Þau
hafa farið 60% fram úr áætlun. Svavar Gests-
son formaöur Alþýöubandalagsins sýndi Þor-
steini Pálssyni formanni Sjálfstæðisfiokksins
og fjármálaráöherra fram á þetta viö umræö-
urnar á alþingi um lánsfjárlög í fyrrakvöld.
Ekki er nú orðheldnin, samkvæmnin og
stöðugleikinn meiri ífjármálastjórn Reykjavíkur-
borgar. Sigurjón Pétursson hefur sýnt fram á aö
nákvæmlega sama sukkiö og óráðsían sé uppi
hjá Davíð Oddssyni. Hjá Reykjavíkurborg voru
áætlaðar lántökur 20.5 miljónir 1985 en í raun
stefnir í lántökur fyrir 259 miljónir króna. Auðvit-
aö eru inní slíkum hækkunum „skiljanlegir" liöir,
en þaö breytir engu um þaö aö áætlanirnar eru
langt, langt frá því aö standast.
Þaö er ekki síður forvitnilegt aö skoöa sér-
staklega þá liöi í áætlunum Sjálfstæöisflokksins
sem falla undir grundvallarmál flokksins sjálfs.
Þannig er til aö mynda um liðinn „opinberir
aöilar" á lánsfjáráætlun, sem Sjálfstæðisflokk-
urinn segist innáviö og útáviö ævinlega vilja
skera sem mest niður. Hins vegar þrútnar og
bólgnar bálkniö aldrei meira út en einmitt undir
stjórn Sjálfstæðisflokksins. Svavar Gestsson
benti á í umræðunum á alþingi, aö á þessu ári
heföi liðurinn „opinberir aöilar" hækkað frá
áætlun um 4.3 miljarði króna í 7.2 miljarða
króna eöa um 67%. Og sömu sögu má lesa útúr
fjárlagafrumvarpinu sjálfu einsog Geir Gunn-
arsson hefur sýnt fram á.
Hjá Reykjavíkurborg er þessu nákvæmlega
eins fariö. Meö ofboöslegri auglýsingamennsku
og hamagangi þóttist núverandi borgarstjóri
vera aö skera niður bákniö í borginni, meö „hag-
ræöingaátaki" á borgarstjórnarskrifstofum.
Nokkrum mönnum var skákaö til í kerfinu. Og
Sigurjón Pétursson hefur sýnt hvaö þetta þýðir í
raun. Á árinu 1982 var áætlaður kostnaöur við
borgarstjórnarskrifstofurnar 94.5 miljónir fram-
reiknað meö byggingavísitölu til verölags í dag.
Samkvæmt þeirri fjárhagsáætlun sem Davíð
Oddsson hefur lagt fram, hækkar þessi kostn-
aður hins vegar uppí 109.9 miljónir króna.
Meö sams konar brölti var Fræðsluskrifstofa
Reykjavíkur lögö niöur í fyrra. Þaö hét m.a.
„sparnaðarátak'1. Áætlaöur kostnaöur viö
hana, segir Sigurjón, var á árinu 1982 4.1 miljón
króna, - en kostnaður við Skólaskrifstofu
Reykjavíkur, sem Davíö setti á laggirnar í staö-
inn fyrir Fræðsluskrifstofuna, veröur sam-
kvæmt áætlun hans 11.7 miljónir króna.
Þannig er þaö eins hjá Þorsteini og Davíð, -
engar áætlanir þeirra standast. Og allar áætlan-
ir fyrir næsta ár eru sömuleiðis hjómiö eitt. Þaö
er ekkert aö marka þær, - þeir trúa ekki einu
sinni sjálfir á þessar áætlanir og spár.
El-Salvador söfhunin
Nú um jólin fer fram söfnun fyrir fólk í El
Salvador. Það fé sem safnast fer til reksturs
sjúkrastöövar í Santa Barbara, þar sem er mikil
þörf á hjúkrun og heilsugæslu fyrir óbreytta
borgara. Þjóöviljinn hvetur (slendinga til aö
sýna meðbræðrum okkar hug í verki og styöja
þannig viö bakiö á fólki sem býr viö stöðugar
ógnir í Suður-Ameríku. - óg.
Ó-ÁUT
Og örninn litur ekki
oní hið dimma haf
og horfir í himinljómann
Hafskipið sökkur í kaf.
(Jónas Hallgrimsson).
DJÚÐVIIJINN
Málgagn sósíalisma, þjóöfrelsis
og verkalýðshreyfingar
Útgefandi: Útgáfufólag Þjóðviljans.
Rit8tjórar: Árni Berqman, össur Skarphéðinsson.
Ritstjórnarfulltrúi: Oskar Guðmundsson.
Fréttastjóri: Valþór Hlöðversson.
Blaðamenn: Aðalbjörg Óskarsdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Garðar
Guðjónsson, Ingólfur Hjörleifsson, Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gísla-
son, Mörður Árnason, Sigurdór Sigurdórsson, Víðir Sigurðsson, Þór-
unn Sigurðardóttir, Þröstur Haraldsson.
Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar.
Ljósmyndir: Einar ólason, Sigurður Mar Halldórsson.
Utllt: Sævar Guðbjörnsson, Garðar Sigvaldason.
Símvarsla: Siaríður Kristjánsdóttir.
Húsmæður: Ágústa Þórisdóttir, Ólöf Húnfjörð.
Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir.
Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir.
Skrif8tofustjóri: Jóhannes Harðarson.
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Magnús Loftsson.
Útbreiöslustjóri: Sigríður Pótursdóttir.
Auglýsingastjóri: Ragnheiður Óladóttir.
Auglýsingar: Ásdís Kristinsdóttir, Guðbergur Þorvaldsson,
Olga Clausen.
Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristin Pótursdóttir.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, ólafur Björnsson.
Útkeyrsla, afgreiðsla, auglýsingar, ritstjórn:
Síðumúla 6, Reykjavík, sími 681333.
Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verð í lausasölu: 35 kr.
Sunnudagsblað: 40 kr.
Áskrift á mánuði: 400 kr.
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 21. desember 1985