Þjóðviljinn - 21.12.1985, Page 6
Jón Torfason
Sjúkrastöð
í Salvador
í E1 Salvador er um þessar
mundir nokkurs konar þrátefli
með sveitum skæruliða og hinum
svokallaða stjórnarher. Hvor
aðilinn ræður yfir um þriðjungi
landsins en einn þriðjungurinn er
ótryggt landsvæði þar sem báðir
hafa ítök. Skæruliðarnir hafa
ekki enn bolmagn til að sigrast á
stjórnarhernum og stjórninni
hefur ekki tekist að vinna á
skæruliðunum þrátt fyrir ómæld-
an fjárstuðning og vopnaaustur
frá stjórn Reagans.
Þar sem stjórnarhernum hefur
orðið lítt ágengt á landi hefur ver-
ið brugðið á nýtt ráð, að gera
stórfelldar loftárásir á sveitahér-
uðin sem eru höfuðvígi skæru-
liða. Þannig er dregið úr mann-
falli stjórnarliða en að vísu tekst
ekki að fella marga vopnfæra
skæruliða. Svonefndir hernaðar-
lega mikilvægir staðir, sem stund-
um er talað um, fyrirfinnast í
rauninni ekki í sveitahéruðunum.
Ætlunin með loftárásunum er
heldur ekki að fella skæruliða því
sprengjunum er varpað á allt
kvikt og að vanda verða þeir sem
minnsta hafa líkamsburðina
harðast úti í þessum árásum,
börn og gamalmenni. Tilgangur-
inn er sá að gera íbúunum óbæri-
legt að búa heima hjá sér. Nú er
um ein milljón manna á flótta í
landinu en íbúarnir eru alls um
fimm milljónir. Það samsvarar
því að um 40.000 til 50.000 ís-
lendingar væru flóttamenn.
Stiórn Duartes forseta biðlar nú
til Bandaríkjastjórnar um enn
fleiri flugvélar og enn fleiri
sprengjur, í jólagjöf.
Heilbrigðismál hafa aldrei ver-
ið í sérlega góðu lagi hjá alþýðu
manna í E1 Salvador þótt yfir-
stéttin hafi aldrei þurft að bera
neinn kvíðboga vegna þeirra
mála. Ástandið hefur þó versnað
síðustu ár. T.d. lokaði stjórnin
læknaskóla landsins árið 1980 og
hafa læknar ekki fengið formlega
menntun þar síðan. Nú er um
El Salvadornefndin á íslandi safnar nú fé fyrir sjúkrastöð í landinu og er ekki að efa að þarlendir hafa fulla þörf fyrir að við
skenkjum þeim af okkur efnum. Ljósm. Sig.
einn læknir á hverja 25.000 fbúa í
sveitahéruðunum og væru um 10
læknar hér á landi ef sama hlutfall
réði. Meðalaldur sveitafólks er
um 45 ár og 18 af hverjum hundr-
að fæddum börnum ná ekki eins
árs aldri.
í þeim héruðum sem skærulið-
arnir ráða hefur verið kappkost-
að að sinna heilsugæslu þótt
óhægt sé um vik. Mik'ið er byggt á
hefðum alþýðulækna og um
helmingur lyfja er framleiddur úr
jurtum og grösum. Komið hefur
verið upp litlum heilsugæslu-
stöðvum þar sem fólki í nágrenn-
Islensk
og ensk ~
KNATTSPYRNA
Víðir Stgur&ason ISLENSK
KNATTSPYRNA 1985
Dttgbók knattspymunnar
t máii og myndom
íslensk knattspyrna er komin út,
ítarlegri en nokkru sinni fyrr.
í bókinni er að finna nákvæmar
töflur um leiki, leikjafjölda og
markaskor einstakra leikmanna
auk 300 mynda. íslensk
knattspyrna ’85 er besta
heimildarit um íslenska
knattspyrnu sem völ er á. . .
Verð kr. 1.488.-
Þetta er 5. árbókin
Saga Westham er komin út.
Bókin fjallar í máli og myndum
um Westham, sögu þess og sigra.
Westham er eins og kunnugt er
eitt frægasta knattspyrnulið
Bretlands og í dag eitt af
toppliðunum. Verð kr. 975.-
inu er sinnt og veitt fræðsla um
hreinlæti og varnir gegn sjúk-
dómum.
Santa Barbara er lítil borg
skammt frá höfuðborginni. Þar
er á vegum skæruliða rekið
sjúkraskýli. Hefur það unnið hér-
aðsbúum ómetanlegt gagn þótt
lítið sé. Rekstrarkostnaðurinn er
ekki mikill miðað við hvað tíð-
kast hérlendis, um ein og hálf
milljón króna á ári. Fer mestur
hlutinn í að kaupa lyf og ýmiss
konar sjúkragögn.
Þótt ekki sé þetta nú meira fé
er héraðsmönnum um megn að
standa undir kostnaðinum. Hef-
ur verið leitað til líknarfélaga er-
lendis og samtaka sem styðja
frelsisbaráttuna í E1 Salvador um
að safna peningum til að reka
þessa stöð og aðrar af svipuðu
tagi.
E1 Salvadornefndin á Islandi
stendur nú að söfnun til að styðja
rekstur þessarar heilsugæslu-
stöðvar í Santa Barbara. Er stefnt
að því að safna 400.000 krónum
og mundi það duga til að reka
stöðina í þrjá mánuði. Mörg
samtök og félög styðja þessa
söfnun með E1 Salvadornefnd-
inni einsogt.d. ASÍ ogBSRB. Er
nú verið að koma fyrir söfnunar-
baukum og ætti fólk að hafa þá í
huga í kauptíðinni. Má þá hafa
það hugfast að tiltölulega litlar
fjárhæðir geta orðið til að lina
þjáningar margra og að lyf og
hjúkrunargögn eru þarflegri jóla-
varningur en drápstól og sprengj-
ur.
[=1 ÓKHL.AÐAN*'.
w
ÞCBUF
Tímarit
Þjóðlíf komið út
Svavar Gestsson ínýju tímaritifélagshyggjufólks: Ég
vilsjástjórn Alþýðubandalags, Alþýðuflokks ogetv.
Kvennalistans
Ég vildi sjá hér ríkisstjórn okkar
og Alþýðuflokksins. Ef til vill
með þátttöku Kvennalistans, við
eigum mikið sameiginlegt með
þeim...En samstarf við markaðs-
öflin, þessi ómanneskjulegu
markaðs- og peningaöfl sem ráða
Sjálfstæðisflokknum núna, kem-
ur ekki til greina af hálfu Alþýðu-
bandalagsins.
Þessi orð Svavars Gestssonar
er að finna í viðtali sem birtist í
fyrsta tölublaði tímaritsins Þjóð-
líf sem kemur í verslanir nú um
helgina. Þar er rætt við Svavar að
afloknum landsfundi Alþýðu-
bandalagsins um stöðu flokksins
og ýmsar spurningar reifaðar sem
vöknuðu á þeim fundi. Fyrirsögn
viðtalsins er „Við erum að byrja
nýtt líf“.
Þjóðlíf er tímarit félagshyggju-
fólks og þar er að finna ýmsar
greinar um helstu mál sem
brenna á fólki þessi misserin. Þar
er greint frá sérstæðri aðferð ís-
' lendinga við útreikning verðbóta
en hún er allt öðruvísi en alþjóð-
areglur um viðskipti segja til um
og þeir eru til sem halda því fram
að þessi aðferð hafi kostað ríkið
og einstaklinga, ekki síst hús-
byggjendur, stórfé á undan-
gengnum verðbólguárum. í rit-
inu er ítarleg grein um Stjörnu-
stríð Reagans, rituð af Hans
Guðmyndssyni eðlisfræðingi sem
kemst að þeirri niðurstöðu að á-
ætlun Reagans sé óframkvæman-
legur draumur. Einnig er fjallað
um öryggismál sjómanna, hella-
myndir Kjarvals, horfur í út-
varpsmálum og ýmislegt fleira.
Ritstjóri Þjóðlífs er Jón Guðni
Kristjánsson en þetta fyrsta tölu-
blað er 84 bls. —m
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 21. desember 1985