Þjóðviljinn - 21.12.1985, Blaðsíða 7
Hœkkanir
Fjárlagadœmið
229 tillögur
til breytinga
Pingmenn AB leggja áherslu áfélagsmál, menningarmál og
þróunaraðstoð. Tillaga um stóreignaskatt á nœsta ári, og 700
miljón króna niðurskurð íflugstöðvarbyggingunni
Hátt á þriðja hundrað
breytingatillögur liggja fyrir við
fjárlagafrumvarp Þorsteins Páls-
sonar og er búist við að atkvæða-
greiðsla, sem hefst klukkan 10
fyrir hádegi í dag taki marga
klukkutima.
Þingmenn Alþýðubandalags-
ins flytja um 30 breytingatillögur
við frumvarpið. Þeirra á meðal er
tillaga frá Ragnari Arnalds,
Skúla Alexanderssyni,
Steingrími J. Sigfússyni, Guð-
rúnu Helgadóttur og Helga Selj-
an um að tekinn verði upp stór-
eignaskattur á næsta ári upp á 300
miljónir króna og að flugstöðin
verði skorin um 700 miljónir.
Sömu þingmenn gera tillögur
um 30 miljón króna hækkun til
grunnskólabygginga, 40 miljón
króna hækkun til dagvistarbygg-
inga, 425 miljón króna hækkun til
Lánasjóðs ísl. námsmanna, 30
miljón króna framlag í Þjóðar-
bókhlöðu í stað 0, 16 miljón
króna hækkun í Kvikmyndasjóð,
og 18 miljón króna hækkun tii
listastyrkja.
Steingrímur J. Sigfússon,
Svavar Gestsson og Ragnar Arn-
alds flytja tillögu um 5 miljón
króna framlag til undirbúnings
háskólakennslu á Akureyri, 24ra
miljón króna hækkun á framlagi
til Þróunarsamvinnustofnunar
Islands, og 10 miljón króna
hækkun til Matvæla- og neyðar-
aðstoðar.
Þá flytur Svavar Gestsson til-
lögu um tvöföldun á framlagi til
Rannsóknasjóðs úr 50 í 100 milj-
ónir og um 2ja miljón króna
hækkun til Blindrabókasafns.
Helgi Seljan flytur tillögu um 1
miljón í heimavist framhalds-
skólans í Neskaupstað og þeir
Helgi, Skúli Alexandersson og
Steingrímur J. Sigfússon flytja til-
lögur um hækkun á jöfnun náms-
kostnaðar og til leiklistarstarf-
semi utan atvinnuleikhúsa.
Auk þessa flytja þingmenn
flokksins ýmsar tillögur með
þingmönnum annarra flokka.
Þannig stendur Guðrún Helga-
dóttir að tillögu um 45 miljón
króna hækkun á framlagi til
Framkvæmdasjóðs fatlaðra og
Guðrún og Guðmundur J. Guð-
mundsson að tillögum um stór-
aukin framlög til sambýla og
verndaðra vinnustaða fyrir fatl-
aða og öryrkja. Þá stendur Guð-
rún að tillögu um 1 miljón til
kvennarannsókna ásamt 5 kon-
um öðrum og Helgi Seljan að til-
lögu um 300 þúsund króna fram-
lag til tölvumiðstöðvar fatlaðra.
Loks má geta tillagna frá þing-
mönnum allra flokka um hækkun
á blaðastyrk alþingis og um
niðurfellingu á aðflutningsgjöld-
um af tækjum til útvarps-
rekstrar.
-ÁI
Fjárlög
16 miljónir
króna í
ónæmistæringu
Frumvarp Ragnhildar saltað yfir hátíðirnar
Við þriðju umræðu um
fjárlög í gær kom fram tillaga
frá meirihluta fjárveitinga-
nefndar um 15,9 miljón króna
framlag til rannsókna á
ónæmistæringu.
Búast má við að þessi tillaga
eins og aðrar tillögur meiri-
hlutans verði samþykkt í dag
og verður fénu varið til rekstr-
ar og fjárfestinga við aðstöðu
og tækjabúnað.
Frumvarp Ragnhildar
Helgadóttur um að flokka
ónæmistæringu með kynsjúk-
dómum hefur nú verið saltað
fram yfir hátíðir vegna ein-
dreginnar andstöðu þing-
manna stjórnarandstöðu, sem
byggir m.a. á aðvörunum
lækna og samtaka homma og
lesbía.
-ÁI
Sverrir Hermannsson
Úr glerhúsi
/
Réðistað starfsmönnum LINfyrir
ranga útreikninga og töliir Þorsteins
Pálssonar
Sverrir Hermannsson,
menntamálaráðherra, réðist
harkalega að starfsmönnuin
Lánasjóðs íslenskra námsmanna í
ræðu á alþingi í fyrrakvöld. Sagði
Sverrir að klögumálum vegna
starfsemi sjóðsins rigndi yfir sig,
þar ríkti bæði óráðsía og lausung
Ríkisstjórnin
Húsnæðisskattinum
stolið í ríkíssjóð
Geir Gunnarsson: Niðurskurður áframlögum til
húsnœðismála hœrri en skatturinn sem ákveðinn var til að
tryggja viðbótarfjármagn í vor
Geir Gunnarsson gagn-
rýndi harðlega í gær að sér-
stök fjáröflun sem átti að
tryggja viðbótarfjármagn í
húsnæðislánakerfið og sam-
þykkt var með stuðningi allra
þingflokka sl. vor hefur nú
verið gerð að almennum skatti
sem rennur í ríkissjóð.
Geir benti á að framlag
ríkisins í húsnæðislánakerfið á
næsta ári hefði verið dregið
saman um 222 miljónir króna
að raungildi, en áætlaðar
skatttekjur vegna húsnæðis-
málanna sérstaklega munu
skila 213 miljónum á næsta
ári!
„Þannig hefur þetta við-
bótarfjármagn verið hirt í al-
mennan rekstur ríkissjóðs í
basli stjórnarinnar við að
tjasla saman fjárlögum“,
sagði Geir.
og ýmislegt krefðist þar
gagngerðra endurbóta.
Ráðherrann nefndi sem dæmi
að áætlanir sjóðsins fyrir útlán á
næsta ári hefðu ekki borist sér
fyrir tilsettan tíma og ekki væri
hægt að taka mark á tölunni 1657
miljónir í fjárþörf LÍN á næsta
ári. Fjárveiting til sjóðsins nemur
sem kunnugt er aðeins 1265 milj-
ónum.
Svavar Gestsson vísaði þessari
gagnrýni Sverris til föðurhúsa.
Talan 1657 miljónir væri frá ráðu-
neyti Þorsteins Pálssonar komin
en ekki LÍN eins og bréf fjárlaga-
og hagsýslustofnunar sýndi. Það
stoðar því lítt fyrir ráðherrann að
veitast að starfsmönnum sjóðsins
af þessu tilefni og sæmir ekki að
velta eigin sök yfir á aðra menn,
sagði Svavar.
Þá rifjaði Svavar upp að það
var Sverrir Hermannsson þáver-
andi iðnaðarráðherra sem gerði
skattsamninginn við Alusuisse í
sumar og byggði hann á kolröng-
um útreikningum eins og upplýst
var á alþingi. Þá kom í ljós að
reiknivélin hafði bilað á hnjánum
á starfsmönnum Seðlabankans,
sagði Svavar, og svo ætlar ráðher-
rann að fara að kenna öðrum
mannasiði og reikningslist!
-ÁI
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7
Póstur og
sími 17%
3/4 renna beint í
ríkissjóð!
Gjaldskrár Pósts og síma munu
hækka 1. febrúar n.k. um 16-
17%. Pálmi Jónsson formaður
fjárveitinganefndar skýrði frá
þessu á alþingi í gær og sagði jafn-
framt að 188 miljónir eða um
13% af þessari hækkun rynnu
beint í ríkissjóð sem „arð-
greiðslur".
Geir Gunnarsson gagnrýndi
þessi áform harðlega og benti á
að með þessu móti væri verið að
gera afnotagjöld Pósts og síma að
almennum skattstofni ríkissjóðs.
Það sem renna á í ríkissjóð
jafngildir öllum ársfjórðungs-
gjöldum af heimilis- og versl-
unarsímum. Af fyrirhugaðri
hækkun 1. febrúar n.k. fara %
beint í ríkissjóð eða 13% af 16-
17% verðhækkuninni! Ofaná það
bætist svo 25% söluskattur sem
fer líka í ríkissjóð.
Póstur og sími hækkaði síðast
gjaldskrá sína 1. ágúst 1983 og
hún var svo lækkuð um 7% 1. júlí
s.l. Fjárfestingar fyrirtækisins á
næsta ári verða ríflega 470 milj-
ónir króna. _^j
Rafmagn
14-17%
Ákveðið hefur verið að hækka
gjaldskrár Rafmagnsveitna ríkis-
ins um 14% frá og með 1. janúar
n.k. og taxta rafhitunar um
17,6%
Pálmi Jónsson formaður fjár-
veitinganefndar skýrði frá þessu
á alþingi í gær og sagði að 9%
hækkun til viðbótar á árinu 1986
væri nauðsynleg til að jöfnuður
næðist í rekstri Rarik. Fram-
kvæmdir Rarik á næsta ári verða
uppá 175 miljónir króna. Ný lán
uppá 90 miljónir verða tekin og
177 miljónir fara í afborganir
annarra lána. _áj
RUV 15%
Formaður
fjárveitinganefndar
sagði hœkkunina
ekki verða
nema 6-8%
I fréttum Ríkisútvarpsins í
gærkvöldi var frá því skýrt að af-
notagjöld útvarps og sjónvarps
myndu hækka um 15% um kom-
andi áramót. Þetta er tvöföld sú
hækkun scm formaður fjárveit-
inganefndar, Pálmi Jónsson,
skýrði þingheimi frá í gær að
fyrirhuguð væri.
Pálmi sagði í ræðu sinni að fjár-
festingar RÚV á næsta ári gætu
orðið um 79 miljónir króna og
væri það byggt á 6-8% gjaldskrár-
hækkun um áramót. „Fjárhagur
stofnunarinnar verður tekinn til
athugunar þegar líður á árið“,
sagði Pálmi.
Ekki er ljóst hvort þessi tvö-
földun á hækkun afnotagjalda
þýðir tvöföldun á framkvæmdum
Ríkisútvarpsins. Eftir áramót
verða afnotagjöldin greidd árs-
fjórðungslega og nemur gjald
fyrir útvarp og litasjónvarp á
fyrsta ársfjórðungi 1525 krónum
og gjald fyrir útvarp 380 krónum
fyrir sama tíma. _ÁI