Þjóðviljinn - 21.12.1985, Síða 8

Þjóðviljinn - 21.12.1985, Síða 8
VSÐHORF Á síðustu mánuðum hafa veður öll verið válynd í hinum íslenska fjármálaheimi. Óbreytt alþýða manna hefur horft á agn- dofa þegar rykinu hefur verið sópað af misfellum hinna sléttu og vel greiddu fjármálajöfra sem síðustu árin hafa verið fyrirmynd ungra og framgjarnra manna með bissneshjarta. Það sem undan rykinu hefur komið hefur verið hrukkótt og afskræmd á- sýnd fjárglæframannsins sem hagnast á réttri stöðu í pólitík og kunningjatengslum frekar en dugnaði og útsjónasemi. Húsbyggendur, sem nú í nokk- ur ár hafa verið óhreinn minni- hlutahópur í velferðarríkinu þar sem allir eiga að geta eignast þak yfir höfuðið, en bara sumir hafa dug og fjárhagslega útsjónasemi til að gera það, standa agndofa þegar í ljós kemur að það voru ekki þeir sem voru að setja bankakerfið á hausinn, heldur þeir sem hæst höfðu um að ekki mætti fyrir nokkurn mun koma einstaklingum upp á þann fjanda að fá lánaða peninga sem ekki væru greiddir til baka með eðli- legri ávöxtun. Mér er minnistæð umræða um þessi mál á landsfundi Sjálfstæð- isflokksins á síðasta vori, og ég hefi verið að rifja upp hvað menn sögðu á þeim vettvangi um ábyrgð einstaklingsins á orðum og gerðum, eins hefur þvælst fyrir mér, að mig eins og minnir, að á vettvangi fyrrnefnds flokks væri einhversstaðar lagt út af því að þegar einhver hefði lifað um efni fram eða fjárfest heimskulega þá væri rétt og skylt að sá hinn sami gyldi fyrir með öllum eigum sín- um undanbragðalaust. Nú velti ég því fyrir mér í fá- visku hvort þetta muni aðeins eiga við um launamenn sem í Veður öll válynd eftir Hrafnkel A. Jónsson. bjartsýni hafa ráðist í fjárfestingu eins og þeirri að koma sér þaki yfir höfuðið eða verkamanninn sem samkvæmt reynslu hefur ver- ið sviftur nær því 1/3 af áður um- sömdum kaupmætti launa sinna til að rétta af þjóðarskútuna. að hafa til fyrirmyndar. Því miður hafa ríkisbankarnir ekki úr háum söðli að detta þegar rætt er um okur, og vandséð að stjórnendur þeirra hafi efni á að setja sig á háan hest, eins og þegar rætt er um að þeir sem taka lán hjá „ok- greinum og mikilvægi þeirra fyrir þjóðarbúið. Loks hlýtur að fara fram póli- tískt endurmat þar sem flokkar stefnur þeirra og efndir verða endurmetin með hliðsjón af reynslunni. „Ég efast ekki um að þegar frjálshyggjufylleríið rennur afforystu Sjálfstœðisflokksins, þá mun hún taka sér tak en það er ofseint til að skapa á nœstunni trúverðuga mynd afþeim flokki sem baráttutœki launafólks í landinu. “ Eiga sömu lögmál að gilda fyrir athafnamennina velgreiddu og sléttmálu sem settu þjóðbankann á hausinn. Kannske einhver vilji upplýsa mig fávísan um þessa hluti. Þá leitar á mig spurningin um útlán peninga og rétt og rangt í þeim efnum. Fyrir einhver mis- tök í löggjöf þá var ungur og at- hafnasamur fjármálasnillingur tekin úr umferð fyrir skemmstu, fyrir þá sök eina að hafa ávaxtað sitt pund full ríkulega, nú er mála sannast að fátt mun hafa verið athugavert við starfsemi þessa unga eldhuga utan einhverjir ómerkilegir formgallar. Ávöxt- unin var ekki svo mikið betri hjá honum en gerist í „bransanum“, það eru bara sumir gætnari en aðrir, enda ríkisbankarnir til þess urlánurum“ eigi ekki skilið að eiga eignir. Það færi betur á því að ráð- herra bankamála og aðrir pening- afurstar héldu betur utan um lán- veitingar til gullrassa og glæfra- manna í stað þess að kreista síð- ustu blóðdropana undan nöglun- um á launafólki og veitast síðan að því með illyrðum eins og við- skiptaráðherra gerði á dögunum þegar rætt var um okurmálið á alþingi, eða sérlegur blaðafulltrúi Framsóknarflokksins á D/V Magnús Bjarnfreðsson hefur ítr- ekað gert í skrifum sínum um húsnæðismál. Atburðir síðustu vikna í fjár- málalífi landsmanna kalla á al- gera uppstokkun í efnahagskerf- inu. Það er óhjákvæmilegt að fram fari endurmat á atvinnu- Um langt árabil hefur verið að því unnið að brjóta niður trú landsmanna á hefðbundnum at- vinnuvegum fyrst í landbúnaði og nú síðari ár í sjávarútvegi. Það hefur tekist með síbylju áróðri að skapa það viðhorf hjá hluta þjóð- arinnar að þessar atvinnugreinar væru baggi á öllu almennilegu fólki sem hefði framfæri sitt af huggulegu starfi einhversstaðar í þjónustu t.d. við útgerð kaup- skipa. I samræmi við þetta hefur síð- an verið á skipulegann hátt kreppt að landbúnaði og sjávar- útvegi m.a. með því að halda niðri launum þeirra sem við þess- ar atvinnugreinar vinna. Milliliðirnir hafa síðan gerst æ aðgangsharðari við fyrirtæki í landbúnaði og sjávarútvegi með þeim afleiðingum að reiknispek- ingar þjóðarinnar sem velflesta dreymir um að feta leið al- heimsbissnesmannsins hafa reiknað hefðbundnar atvinnu- greinar norður og niður. Nú ætti allur almenningur að hafa séð í gegnum blekkingarnar, þessar vikurnar er að koma í ljós hver er kjölfestan í íslensku at- vinnulífi og það er ekki verð- bréfaviðskipti né annarskonar kaupmang Nú ber öllum þjóðhollum mönnum að taka höndum saman um endureisn hinna hefðbundnu atvinnuvega. Ég efast ekki um að þegar frjálshyggjufylliríið rennur af forystu Sjálfstæðisflokksins þá mun hún taka sér tak, en það er of seint til að skapa á næstunni trú- verðuga mynd af þeim flokki sem baráttutæki launafólks í landinu. Þótt þess sé að vænta að Sjálf- stæðisflokkurinn verði einhvern tíma aftur flokkur raunverulegra athafnamanna sem fást við al- vöru atvinnurekstur en ekki ein- göngu sjónhverfingar og útgerð á sparifé landsmanna, þá mun langur tími líða þar til flokkurinn skapar sér þá tiltrú hjá launafólki í landinu að það geti litið á hann sem sinn málsvara. Við sem voru þessarar trúar verðum að sætta okkur við þá staðreynd að flokkur þeirra Ólafs og Bjarna er liðin tíð, kjörorðin „stétt með stétt“ og „gjör rétt þol ei órétt“ eru orðin sagnfræði sem höfð er að háði og spotti hjá þeim sem flokkurinn erfa, ungu mönn- unum innan félags frjálshyggju- manna. Ég get lítið sagt annað en „far vel Frans“. Hrafnkell A. Jónsson, er formaður VMF. Árvakur á Eskifirði. Frotti sloppar frá Schiesser® stuttir - síðir - hvítir - gulir - bleikir - bláir Tveggja ára ábyrgð lympí Glæsibæ, sími 31300. Laugavegi 26, sími 13300. Dýnustærð: Teak 90x200 cm. Beyki 92x191 cm. Verð með dýnu kr. 19.500.- HUSGÖGN OG i * INNRETTINGAR CQ CQ SUÐURLANDSBRAUT 18 V/V/ VÍW „CABINA“ rúmsamstæðurnar eftirsóttu fást nú aftur

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.