Þjóðviljinn - 21.12.1985, Qupperneq 9

Þjóðviljinn - 21.12.1985, Qupperneq 9
DJOÐVILJINN Umsjón: Þröstur Haraldsson Svart og sykurlaust Eitthvert segulstál... Þröstur Guðbjartsson segir undan og ofan af nýju kvikmyndinni Fellibylurinn Gullöldin hafin Skáld lesa Ijóð, - á snœldu og á Lœkjartorgi í kvöld „Gullöld Ijóðsins er að heljast, - sú tuttugasta og fyrsta, það er ekki ráð nema í tíma sér tekið" sagöi Daguráblaðamannafundi um Fellibylinn Gloríu, snældu sem sjö skáld hafa lesið inná úr- valúrljóðumsínum. Snældan kom út á miðvikudag eftir langvinna styrjöld við nú- tímatækni, og með henni fylgir kynningarbók um efni snældunn- ar og höfunda þess. í febrúar er svo von annars „bindis", þarsem sjö skáld í viðbót láta heyra í sér. í kvöld ætlar hluti hópsins að standa við hljóðnema á Lækjar- torgi og Ijóða á jólaösina frá fimm til sex. Þar verða Sigfús Bjartmarsson, Jóhamar, Dagur, Þór Eldon, Þorri, Sjón, Einar Melax, Einar Már og Björk. Dagur er aldursforseti snældu- skáldahópsins: „busabekkurinn er bestur, ég hef aldrei komist uppúr honum,,, en raddirnar eru af ýmsum aldri og tæi. Á hinni komnu snældu lesa Gyrðir Elíasson, Dagur, Bragi Ólafsson, Þorri, Linda Vilhjálmsdóttir, Jó- hamar og Sigfús Bjartmarsson. Á hinni ókomnu: Þór Eldon, Sjón, Einar Melax, Einar Már Guð- mundsson, Björk, Anton Helgi Jónsson, Steinþór og Geirlaugur Magnússson. Fellibylurinn Gloría er útgef- inn af Gramminu í 300 eintökum. -m Dagarnir voru mjög langir, ekki hætt fyrren seint á kvöldin. Oft eina máltíð dagsins hjá Matta kokki rétt undir miðnættið. Kraftur - En það er nauðsynlegt fyrir hvern leikara að ganga í gegnum þetta, og nauðsynlegt fyrir hvern íeikhóp. Svart og sykurlaust hef- ur verið með götusýningar núna í tvö ár, og það er þarft fyrir hóp- inn að fá þetta tækifæri. En við höfum ekki breytt stefnunni, og ég býst við að við höldum áfram á fyrri braut. Að lokum: þráðurinn í mynd- inni? - Ég vil auðvitað ekki eyði- leggja ánægjuna fyrir áhorfend- um með því að tiltaka hann í smáatriðum, - en það má segja að við höfum verið leidd á ein- hvern dularfullan hátt frá Snæ- fellsjökli og að Etnu á Sikiley. Hópurinn veit ekki af hverju hann er að fara alla þessa leið til Sikileyjar, það er einhver dular- fullur kraftur sem dregur okkur niður Ítalíuskagann, og þegar kemur að Etnu skýrist loksins þessi segulkraftur sem við finnum strax undir Jökli. Eitthvert segul- stál sem tengir þessi fjöll, - meira er eiginlega ekki hægt að segja. -m íslensk-þýsk mynd í Regn- boganum á annan í jólum og frammúr; og íslenski helm- ingurinn heitir Svart og sykur- laust. Einn úr þeim leikhópi er Þröstur Guðbjartsson og við báðum hann að segja okkur örlítið fráverkinu: - Ja, ég er einn af sex leikurum í leikhópi sem er staddur á Snæ- fellsnesi þegar skyndilega er ákveðið að pakka saman saman leikmyndinni, brenna í bæinn, búa til nýtt leikrit og fara til ítal- íu, - til draumalandsins. - Á Italíu á götuleikhúsið helstu rætur sínar. Þangað kemur á hverju ári fjöldinn allur af er- lendum leikhópum sem fara um landið og sýna, og við verðum einn af þessum hópum. - Það var sérstaklega gaman að koma í litlu þorpin, og okkur var tekið þar einsog hefðarfólki. Stundum kom allt þorpið á móti okkur, og oft var boðið í veislur, spaghettí og hvítvín. Við lékum á götum og torgum, og myndavélin var látin rúlla með. - Þetta fólk bar okkur á hönd- um sér. Á einum stað, í litlum bæ sem heitir Monte Cherneoni, kom bæjarstjórafrúin og tók all- an óhreina þvottinn okkar og þvoði, - og þegar við gengum um bæinn héngu fötin í snúrum og í trjám meðfram aðalgötunni. Bæjarstjórinn tók á móti okkur þegar við renndum inní plássið, bauð á barinn og hellti soldið í okkur og lagði síðan undir okkur leikhús bæjarins, í gömlum kast- ala. Þar breiddum við út dýnurn- ar og sváfum á sviðinu. - Bíllinn var reyndar í aðalhlut- verkinu hvar sem við komum, bíllinn Skúli sem var aðalheimili okkar allan tímann, einsog í myndinni. Fólk sneri sér við og horfði á eftir þessum gamla glæsi- vagni, svörtum og gulum og skreyttum með íslenska fánan- um. Það var lygilegt hvað þessi þrítugi bíll stóð sig á ferðalaginu suður alla Evrópu allt til Sikil- eyjar. Smáveikindi í bremsunum Einkennisfrú Ijóðskáldanna. Gloría sjálf? var það eina, það reyndi mikið á bílinn í tökum, þurfti að snúa við í brekkum og öðrum erfiðum stöð- um, stundum hvað eftir annað. Bíllinn sem þið notið er líka bíll leikhópsins í myndinni, og í þeim leikhóp kallið þið hvert annað raunverulegum nöfnum ykkar... - Já, við heitum sömu nöfnum, en leikum þó aðrar persónur en okkur sjálf. Þær mótaði leikstjór- inn með okkur, Lutz Koner- mann. Það var gaman að vinna með honum, og sérstaklega var handritið skemmtilegt, - hann hafði skrifaða grófa atburðarás, atriði fyrir atriði, en þegar kom að tökum settumst við niður með honum og bjuggum til samtölin. Það var mjög lítið af töluðum texta í handritinu. Það var aldrei ljóst fyrirfram hvort maður fékk setningu í næstu töku eða átti að þegja. Lúlli - Það var athyglisvert að sjá hvernig Lutz vinnur, eða Lúlli einsog við kölluðum hann, - hann var mjög nostursamur og pældi út smáatriðin: taka á hend- ur, síðan súmmað á andlit, síðan vídd... - Fyrsta myndin hans í fullri lengd, Aufdermauer, fékk virt þýsk kvikmyndaverðlaun sem er mjög sjaldgæft um svo unga leik- stjóra. En ég er ekki hissa, hann vinnur mjög vel. Hann færist mikið í fang í þessari mynd: hand- ritshöfundur, framleiðandi, leik- stjóri og leikur sjálfur stórt hlut- verk. Gaman að sjá hvað útkom- an er góð hjá honum. Hver er ykkar hlutur, svartra og sykurlausra? - Ætlum við séum ekki, fyrir utan leikinn, svona helmingur af framleiðanda. Allur íslandshluti myndarinnar er undirbúinn af okkur hér heima. Og leikatriðið sem við sýnum gerðum við sjálf, í samvinnu við Sjón og Pétur Ein- arsson. Þessi undirbúningsvinna áður en tökur hófust tóku um það bil tvo mánuði. Við höfum senni- lega lagt fram tæpan helming af Leikritið í kvikmyndinni: Guðjón Pedersen og Þröstur Guðbjartsson. fjármagni í myndina. Og nú velt- ur auðvitað á að myndin gangi vel, að fólk vilji koma að sjá okk- ur. Ég hef trú á að þetta gangi vel, held að þetta sé góð mynd. Svart og sykurlaust er fyrst og fremst götuleikhús, - og þú hefur reynslu þaðan og úr hefðbundn- ari leik; hvernig var að skipta yfir í kvikmyndina? - Þetta var fyrsti kvikmynda- leikur allra í hópnum nema Hönnu Maríu, mér fannst þessi vinna mjög erfið. Maður er dauðþreyttur eftir hvern dag. Þetta var miklu meira taugaálag en nokkurntíma í leikhúsi. Þetta eru allt önnur vinnubrögð, og það þarf að hugsa allt öðruvísi, bæði um hlutverkið og sjálfan sig. Það reynir líka á þolinmæðina að bíða og bíða eftir tæknimönnun- um og þurfa þegar loksins kemur að töku að vera með rétta hugsun og rétta tilfinningu í kroppnum. ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.