Þjóðviljinn - 21.12.1985, Side 10

Þjóðviljinn - 21.12.1985, Side 10
MENNING Talað útúr mínu hjarta íslenska hljómsveitin: Álfadrottning- in eftir Henry Purcell. Einsöngvarar: Katrín Sigurðardóttir, Hrönn Hafliðadóttir, Marta G. Hall- dórsdóttir, Sigrún Hjálmtýsdóttir, John Speight, Gunnar Guðbjörnsson. Þjálfari kammerkórsins: Þóra Fríða Sæmundsdóttir. Stjórnandi: Guðmundur Emilsson. Það er vissulega ánægjuefni að hér hefur loks verið flutt stórt verk eftir Henry Purcell. Það var kominn tími til. íslenska hljóm- sveitin stóð fyrir þessu verðuga framtaki og má óska öllum til hamingju með það. Álfadrottn- ingin eftir Purcell sem flutt var í Langholtskirkju í fyrrakvöld (hafði verið flutt á nokkrum stöð- um útá landi dagana áður) er grímuleikur, „masque“ einsog þeir tíðkuðust í renesansinum og eitthvað lengur, eitthvað þó sem við gætum allteins kallað gervi- óperu eða hálfpartinn óperu og allt gott um það að segja. Músík- in í svona stykkjum er gjarnan samtíningur úr verkum eins eða fleiri tónsmiða, en í þessu verki er eftir sem ég best veit allt eftir Purcell. Þetta er nú ekki átakanlega skemmtileg músík nema á köflum og endurómurinn af Monteverdi og Lully heldur veikur og ósamstæður. Kannski er það þessvegna sem þetta höf- Ríó tríó: meiri dýpt, meiri breidd, betri samhljómur. Hugljúf og skemmtileg Lengi gctur vont versnað. Ríó tríó. 1985. Aðdáendur Ríó-tríósins. sem eru margir ef marka má viðtök- urnar sem strákamir fengu á Breiðvangi í fyrravetur, hafa ef- laust beðið með óþr.eyju, þegar það spurðist að von væri á nýrri hljómplötu með tríóinu. Þeir hin- ir sömu hafa áreiðanlega ekki orðið fyrir vonbrigðum. Hljóm- plata þeirra félaga, „Lengi getur vont versnað" er í einu orði sagt frábær. Það má svara nafngift plötunnar eins og maðurinn sagði forðum „eðá gott bestnað". meiri dýpt og meiri breidd og samhljómur þeirra er betri en nokkru sinni áður, þar sem á þetta atriði reynir. Þeir hafa held- ur engu gleymt, þar sem galsi og gamantextar ráða ferðinni. Textaframburður þeirra félaga hefur alltaf verið og er enn ein- stakur. Jónas Friðrik semur sem fyrr alla texta fyrir Ríó-tríóið. Hér áður fyrr voru það mest grín og gamantextar sem þeir sungu og yrkingar Jónasar voru frábærar. Hann er mikill húmoristi og hag- yrðingur góður. Nú eru aftur á móti innanum textar alvarlegs eðlis, jafnvel rómatískir. Jónas sýnir þar á sér nýja hlið, því hann er nefnilega skáld. Hann er án vafa okkar besti dægur- eða söng- lagatextahöfundur um þessar mundir. Það þarf aldrei að hafa mörg orð um tónlistina þegar Gunnar Þórðarson annast hana. Eins er að þessu sinni. Útsetningar eru fágaðar og smekklegar og undir- leikur og hljóðfæraskipan eins og best verður á kosið. Og í lokin, áfram strákar, eina plötu í við- Fyrir minn smekk er söngur þeirra félaga betri nú en á eldri plötum þeirra og var hann þó góður fyrir. Raddirnar eru að vísu ekki jafn bjartar og á ung- lingsárunum, en fyrir bragðið er uðtónskáld breta hefur enn, eftir um það bil 300 ár, ekki unnið sér nafn utan heimalandsins svo telj- andi sé. Þó verður ekki fram hjá þvf komist að Dido hans og Aen- eas er eitt af meistaraverkum smáóperunnar í barrokkinum, hvernig svosem á þeirri tilviljun stendur. Álfadrottningin er samin við texta sem að einhverju leyti er smíðaður upp úr Jónsmessunæturdraumi Shake- speare. Hver setti hann í rím- fjötra er ókunnugt mál, en eitthvað minnir þetta mann á Dryden og hans nóta. Annars er allur þessi púrítanakveðskapur sem á upptök sín á stalínstímum þeirra bretanna (Cromwell) heldur leiðinlegur áheyrnar, hvort sem við hann er sungin geð- ug músík eða ekki, en þar bætti hinsvegar akkústikkin í Lang- holtskirkju talsvert um, því varla var hægt að greina orðaskil vegna ofhljóms. Þó held ég að flestír söngvar- anna séu prýðilega enskumæl- andi og þó nokkrir voru þarna ágætlega syngjandi þó rammfalskur hljómur hljóðfær- anna væri oft að mörkum þess að slá þá út af laginu. Hverniger það annars; er ekki hafður kons- ertmeistari til áð stemma liðið saman? Eða var þetta einhver lið- ur í „barrokkendursköpun“? Það er aldrei að vita nú á dögum. Ég verð að játa að þetta falsspil og yfirhljómur þess gerði mér ómögulegt að halda út fram yfir hlé, svo ég hef kannski misst af einhverjum afréttara. Hinsvegar heyrði ég slitur af síðustu hend- ingum kórsins í öðrum þætti: Hush, no more, be silent all... og... No noise disturb her sleeping sense... og það var eins og talað útúr mínu hjarta. Efnissími til miðaida Thea Beckman Krossferð á gallabuxum Þýðing: Margrét Jónsdóttir Rv., Iðunn, 1985 Saga þessi er vísindaskáldsaga, þar sem maðurinn ferðast aftur á bak en ekki áfram í tímanum. En víkjum að söguþræði. Rúdólf, 14 ára og stór eftir aldri, er sendur með tímavél, „efnissíma“ aftur í tímann til árs- ins 1212. Hann ætlar að horfa á burtreiðar í Frakklandi, en lendir í stað þess í Þýskalandi þar sem hann bjargar lífi ítalsks kaup- mannssonar. Rúdólf hafði ætlað að snúa aftur eftir nokkra klukk- utíma (og það var eini mögu- leikinn á því yfirleitt að snúa aftur til 20. aldarinnar, eftir því sem hann best vissi), en það mistekst og Rúdólf og Leónardó, sem hann bjargar, slást í för með barnakrossferð. í þessari barnakrossferð eru þúsundir barna, flest bláfátæk og munaðarlaus, leidd af tveim full- orðnum munkum og draumi sín- um um að frelsa landið helga undan Serkjum og lifa síðan betra lífi en fyrr. Rúdólf og Leónardo verða bjargvættir og hjálparhellur barnanna. Þeir sinna um sjúka og skipuleggja hópinn. Þá grunar að ekki sé allt með felldu um stjórn munkanna á ferðinni. Rúdólf grunar þetta vegna þekkingar sinnar á landafræði, en Leónardó vegna þekkingar á guðfræði- En áfram er haldið þrátt fyrir miklar þrengingar suður yfir Aipa og til Genúa. Þar á ströndinni verður illur grunur þeirra félaganna að vissu. Skömmu seinna fær Rúdólf boð frá 20. öldinni... Sagan er sögð í 3. persónu og allir hlutir eru séðir með augum Rúdólfs. Hann er ákaflega skyn- samur drengur, mildur og skiln- ingsríkur, stjórnsamur og úrræð- agóður. Hann er eiginlega alltof þroskaður eftir aldri. Hann stjórnar börnunum ekki aðeins í HELGA EINARSDÓTTIR krafti meiri þekkingar, heldur einnig ótvíræðra skipulagshæfi- leika, sem eru allavega óvenju- legir hjá 14 ára dreng. Hann hef- ur yfirsýn yfir það sem þarf að gera til að halda hópnum saman og á lífi. Það þarf að útvega mat, eldivið, skýli o.s.frv. Rúdólf sjálfur kann hins vegar lítið til verka. Og það er ekki aðeins að Rú- dólf sé ótrúlega fullkominn, hann er líka svolítið ótrúlega gallaður. Hann virðist ekki sakna foreldra sinna eða fjölskyldu neitt að ráði. Hann er tilfinningakaldur gagnvart þeim. Höfundur bókarinnar virðist hafa allíhaldsamt viðhorf til hlutverkaskiptingar kynjanna. Strákarnir eru hressir og duglegir að bjarga sér. Þeir stjórna, veiða, synda og verja hópinn. Stelpurn- ar hjúkra sjúkum og tína grös og ber. Þær eru mildar, blíðar, fal- legar og þrautseigar. Málið á bókinni er fremur stirt og textinn sums staðar jafnvel ruglingslegur, (sjá t.d. bls. 53 neðst). Er þetta leiður galli á bók, sem er annars vönduð að frágangi. Hvað skyldi nú höfundur meina með þessari bók? Hvað ætlar hann sér annað en að skrifa spennandi sögu? Við þessu eru sjálfsagt til fleiri en eitt svar, en eitt af svörunum er allavega að hann er að sýna okkur hve vitlaus mannkynssagan er, hin skráða, viðurkennda mannkynssaga sem kennd er í skólum. Rúdólf hefur áhuga á sögu. Hann ætlar að skoða aðalinn, 10 SIÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 21. desember 1985 horfa á burtreiðar og sjá glæsi- Ieikann, sem mannkynssagan segir frá. En hann lendir meðal hinna aumustu, barna sem eiga engan að en eru ginnt af svikur- um sem aðeins hugsa um gróða. Aðallinn reynist illa (séð frá sjón- arhóli barna). Hertogar og greif- ar eru óþjóðalýður sem féflettir, brennir og myrðir, og hinir göf- ugu riddarar reynast verstu ræn- ingjar. Svipað má segja um vel stæða bændur og borgara, en fá- fræði fólksins og ótti við refsingu guðs verður stundum börnunum til bjargar. Hins vegar finnur Rú- dólf meðal barnanna tryggð, kær- leika og alls konar færni og kunn- áttu sem hann átti ekki von á á „Svörtustu miðöldum". Höfund- ur sýnir einnig mjög eindregið fram á hversu nauðsynleg verk- kunnátta og þekking á náttúrunni var til að bjargast, og er ekki lík- legt að svo geti orðið aftur? Sagan um Rúdólf og krossferðina er spennandi og skemmtileg. Hún verður að öllum líkindum mikið lesin enda á hún það skilið. Bókin er fyrir u.þ.b. 12 ára og eldri. Helga Einarsdóttir

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.