Þjóðviljinn - 21.12.1985, Side 11

Þjóðviljinn - 21.12.1985, Side 11
MENNING Leikstjórinn sem þýskur fálkaáhuga- maður. Löggulíf Leikstjóri: Þráinn Bertelsson Handrit: Þráinn Bcrtelsson og Ari Kristinsson Tónlistarumsjón: Guðmundur Ing- ólfsson og Lárus Grímsson Hljóðmeistari: Sigurður Snaeberg Kvikmyndataka, klipping: Ari Krist- insson Leikmynd: Hallur Helgason, Árni Páll, Stefán Hjörlcifsson Búningar: Dóra Einarsdóttir Leikarar: Eggert Þorleifsson, Karl Ágúst Úlfsson, Lilja Þórisdóttir, Flosi Ólafsson, Sigurður Sigurjónsson, Guðrún Þ. Stcphensen, Sigurvcig Jónsdóttir, Þórhallur Sigurðsson, Bríet Héðinsdóttir, Rúrik Haralds- son, Bjarni Steingrímsson, Jón Júlí- usson, Jón Gunnarsson og fleiri Nýtt líf 1985 Nýja bíó. Með lögum skal land byggja: Karl, Flosi, Eggert. Bakkabrœður i Töluvert spunnið í þennan ró- lynda og þjóstlitla mann, Þráin Bertelsson; með hægðinni tekst honum að ryðja sér veg í þeim ófærum sem hafa hrakið frá sér ofurhuga og yfirlýsingamenn, og á hans bláþræði virðist fram- haldslíf íslenskrar kvikmyndunar helst hanga á bitru hausti í þeim bransa. Þessi filmuvegur Þráins er að vísu ekki bikaður möl; slitlagið stundum soldið lítið bundið, - en það er eðli vega að ná frá einum stað til annars, og rennisléttir bútar duga ferðamönnum skammt sé milli þeirra hraun og klungur. Grallaramyndir einsog hin þrjú líf Þráins eru nefnilega nauðsynlegur partur af filmugerð allra landa, og sú niðurlæging sem þessi listiðnaður er lentur í hérlendis gerir slíkar myndir beinlínis lífsnauðsynlegar vegna þess að þær er hægt að hafa til- tölulega ódýrar og von til að verkamennirnir njóti launa sinna. Og síðan getur runnið fé til annarra verkefna áhættusamari einsog raunin hefur orðið á hjá Þráni um myndina Skammdegi sem að vísu var ekki vel heppnuð en þó góð um margt og stórgóð um sumt. Samt verður að vara við því að bakkabræðramyndir einsog Löggulíf séu litnar sömu augum og smjörlíkið hans Ragnars í Smára. Farsamynd getur líka ver- ið góð kvikmynd, og þótt enginn búist við meistaralegu listaverki má ekki slaka á kröfum um gæði; - þó ekki sé nema vegna þess að ef menn ekki vanda sig verður engin reynsla þeim að gagni sem ætla sér seinna útí önnur ævintýr og metnaðarfyllri. Löggulíf lendir í samanburði við fyrri myndirnar tvær um líf og störf þeirra Þórs og Danna, og fer hér þannig útúr þeim burði að hún er, sem betur fer, betri en Dalalíf, en ekki eins fersk og hressileg og fyrsta myndin, Nýtt líf, kannski vegna þess að Vest- mannaeyjar eru betri gaman- leikari en Reykjavík. Helsti galli á Löggulífi virðist aldrei þessu vant vera ónógt nost- ur við handrit. Tæknihliðin sem var soldið útí hött í Dalalífi er hér MÖRÐUR ÁRNASON komin í ágætt lag, - en það vantar einhverja samloðun, einhverja uppfyllingu í það tómarúm sem myndast milli brandara sem margir eru vel smellnir; og ég held mig vita hver sú uppfylling er. Sigurður Nordal segir einhver- staðar í tilefni af þeim Njálufé- lögum Birni og Kára að þegar leidd er fram tvennd í bók- menntum þurfi aðilar tvenndar- innar nauðsynlega að hafa eitt til að bera: að vera nógu ólíkir. löggunni Þetta gengur upp hjá Birni og Kára, hjá Kíkóta og Sankó Pasa, hjá Þorgeiri og Þormóði Kol- brúnarskáldi, og hjá Gög og Gokke, en ekki hjá Þór og Danna. Karl og Eggert eru úr- valsleikarar og má hafa af þeim mikið gaman, en það breytist ekki rnargt þótt Þór væri Danni og Eggert Karl: þeir hefðu fyrir þremur myndum síðan átt að setjast niður með leikstjóranum og búa sér til persónur. Á milli þeirra persóna” hefði kannski myndast spenna og pínu dramat- ík sem héldi áhorfandanum við efnið rnilli hláturframköllunarat- riða. Að þessu sögðu og afloknu: það má vera meiri fýludallurinn sem ekki skemmtir sér ein- hverntíma í þessari mynd. Þeir félagar tveir fara víða á kostum, og samleikarar þeirra bregðast ekki skyldu sinni: Siggi Sigurjóns löghlýðni róninn, meinhornið Bríetar Héðinsdóttur eða Þór- hallur Sigurðsson í hlutverki karl- afstyrmisins. Bestur finnst mér alltaf Flosi. Það er hreint með ósköpum hvað þeim leikara og rithöfundi tekst livað eftir annað að láta menn hlæja að leiðinlegu fólki. Svo er bílaleikur sem ég kveið fyrir að sjá vegna þess ég hélt að amríkanar væru búnirað afgreiða þau mál í eitt skipti fyrir öll, en bílahasarinn var ágætlega lunk- inn í þessu kunnuglega umhverfi, og San Fransisco-stælingin við Austurbæjarskólann hreint óborganleg. Fýludallurinn sem áðan var getið væri vís til að setjast niður við ritvél og rakka niður kvik- myndina Löggulíf, og það yrði sumpart erfitt að svara honum: já, myndin skilur ekki mikið eftir; já, sumir brandararnir eru endurteknir of oft; já, taka og klipping hefði mátt vera ögn harðhnjóskulegri, en í þessu þrasi stöndum við ekki sem vilj- um hafa íslenskar kvikmyndir, skemmtum okkur við að skemmta okkur og höldum með Þráni Bertelssyni. ARGUS/SlA Jóhannes Geir Ný bók í bókaflokknum ÍSLENSK MYNDLIST Jóhannes Geir er tvímælalaust einn þeirra myndlistar- manna sem vakið hafa hvað mesta athygli á síðari árum og á nú tryggan sess meðal þeirra útvöldu málara sem listunnendur fylgjast með af eindregnustum áhuga. í þessari bók birtast tvær ritgerðir um listamanninn. Sigurjón Björnsson prófessor, æskufélagi Jóhannesar Geirs og náinn vinur, ritar einkar skemmtilega um bernskuslóðir þeirra á Sauðárkróki, listnám o.fl. Aðal- steinn Ingólfsson listfræðingur fjallar í ritgerð sinni um sérkenni Jóhannesar Geirs meðal íslenskra listmálara. í bókinni eru litprentanir 49 málverka eftir Jóhannes Geir auk teikninga eftir hann og fjölmargra ljósmynda. LISTASAFN ASÍ LÖGBERG

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.