Þjóðviljinn - 22.12.1985, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 22.12.1985, Blaðsíða 2
FLOSI \iku skammtur af Ijótum konum og börnum Frá því ég man eftir mér hefur forsíða Morg- unblaðsins verið helguð tímamótaatburðum er- lendis. Sá maður sem vill fylgjast grannt með heimsmálunum þarf ekki annað en fara yfir for- síðu Moggans og öðlast með því staðgóða vitn- eskju um allt það sem umtalsvert getur talist frá útlandinu, hvort sem það nú eru byltingar, valdarán, fegurðarsamkeppnir, morð, hryðju- verk, afrek í menningarmálum, heimsstyrjaldir eða vopnahlé. Þó Mogginn sé jafnaðarlega um 100 síður er - og hefur raunar verið frá því ég man eftir mér - allt, raunar allt sem máli skiptir heima og heiman, á forsíðu og baksíðu þessa ágæta blaðs og þessvegna kaupa það allir landsmenn og má kannske segja um Morgunblaðið það sem bóndinn sagði um fjöliynda vinnukonu í Kjósinni: - Fá fleiri en vilja. Á þriðjudaginn var, kom tímamótafrétt á for- síðu Morgunblaðsins undir yfirskriftinni: „Ekki með sældum sótt að vera ófríður". í fréttinni segir síðan frá rannsóknum sem gerðar hafi verið í Pensilvaníu og var niðurstaðan þessi: Fríðleiksbörnum gengur betur í skóla og í íþróttum og lyndir betur við önnur börn heldur en ófríðum börnum að því er fram kemur í rannsóknum stofnunar sem fæst við athug- anir á þroska barna og fullorðins fólks. Fram kemur að sjálfsímynd, skapgerð, kynþroski og aðrir þættir séu veigaminni en fríðleiki og einnig það að fríð börn séu til minni vandræða en ófríð börn. Þá eru fríðu börnin vinsælli og gengur betur í skóla. Mér þótti afskaplega vænt um að rekast á þessa stórfrétt, einkum og sérílagi vegna þess að hún rennir stoðum undir kenningar mínar um það hvað fríðleiki sé æskilegur, eða ég vil segja áríðandi, í samskiptum okkar við börn, að ég tali nú ekki um konur. Þeir vita það sem reynt hafa, hver raun það er að þurfa að vera í samvistum við Ijótar konur og segja má að ekki sé ein báran stök ef börnin eru Ijót líka. Líklegt er að ófríð börn og ófríðar konur hafi valdið umhverfi sínu meira hugarangri, sál- arkvöl og örvilnan en nokkurt annað böl sem hrjáir mannkynið að áfengisbölinu meðtöldu. Hve mýmörg dæmi höfum við ekki um heimilislíf í rúst vegna þess hvað konan er ófríð. Maðurinn er kalinn á hjarta, ófær um að eiga við konuna mannleg samskipti, vegna ófríðleika hennar. Öll orðræða er bundin á klafa Ijótleikans og óhugsandi að sýna slíkri konu vinarhót, hvað þá að ganga í eina sæng með henni, nema þá í skjóli náttmyrkurs þar sem hugmyndaflugið skaffar mönnum þá konuna sem þeir hafa löngum girnst mest. Fagra konu. Eftir slíkar bólfarir fyllist hver sannkristinn maður óbærilegri sektarkennd, því hvað segir ekki í Matteusar guðspjalli 5.28: „Hver sem lítur á konu með girndarauga hefur þegar drýgt með henni hór í hjarta sínu“. Þegar svo börnin eru ófríð líka bætist ofaná sú óhamingja sem Morgunblaðið bendir á, og þá blasir ekkert við nema upplausn heimilisins. Nú er það svo að við lifum á tímum umburðar- lyndis og mannkærleika. Þess vegna reynir samfélagið að umbera Ijótar konur og Ijót börn. Það er nú einu sinni svo, að ljótar konur eiga sama tilverurétt og fagrar konur, eða réttara sagt ættu að eiga hann. Ef Ijótar konur geta til dæmis hugsað sér að vera á almannafæri, þá ætti enginn að geta bannað þeim það. Og þó búið sé að sanna það í Pensilvaníu, að ófríð börn séu fæstum þeim kostum búin sem fríð börn hafa til að bera, eiga þau Ijótu að njóta sömu réttinda og þau fallegu. Þá ber að fagna því að ófríðar íslenskar konur hafa bundist samtökum um vandamál sín og orðið talsvert ágengt, eins og dæmin sanna, þó grundvallarvandi þeirra verði víst seint leystur. Kvenlega fegurð á að rækta, það á að hlúa að henni til þess að konan geti orðið samfélaginu til yndisauka og þess vegna ber að fagna því að í dag eigum við íslendingarfegurstu konu í heimi. Það var sannarlega dásamleg stund þegar „Hófí“ kom heim með kórónuna, borðann og veldissprotann. Fögur kona og eiguleg. Einu, sem kom fram í máli ungfrúr alheimur, ber þó umfram allt að fagna, en það er að for- ráðamenn alheimsfegurðarsamkeppninnar skuli hafa sent hóp lýtalækna af stað um heim- inn til að lappa uppá þá sem þarfnast lagfæring- ar. Eftir því sem segir í Morgunblaðinu er fyrsti viðkomustaður lýtalæknanna Sri Lanka. Nú ættu forsvarsmenn íslensku fegurðar- samkeppninnar að beita sér fyrir því að lýtalæknarnir komi næst til íslands, ef það gæti orðið til þess að bægja frá þeim hremmingum sem skapast af ófríðum konum og Ijótum börn- um. Og þegar búið er með þessum hætti að hressa uppá útlitið á þeim hluta íslenska kven- peningsins, sem ekki hefur lágmarks útlit, kemst ástarlíf hjóna aftur í samt lag og farið verður að syngja aftur brúðarvísuna gömlu: Brúði karlinn blíðuhót byrjaði að sýna. Af því hún var ekki Ijót var allt í þessu fína. Kreppa Verslun í desember hefur ver- iö svo lítil aö elstu menn í kaupmannabransanum segj- ast ekki muna annað eins. Að vísu eru elstu menn yfirleitt orönir nokkuö gleymnir en svona er nú samt tekið til orða. Þess eru dæmi aö á miklum verslunardögum í desembermánuði hafi versl- anir sem venjulega selja mikið fyrir jólin og raunar lifa á jólavertíðinni, selt helmingi minna en á sömu verslunar- dögum í fyrra. Þrátt fyrir þá staðreynd að vörur hafa hækkað 35% uppí 50% á einu ári. Bera margir kaup- menn sig afar illa um þessar mundir. Þeir segjast ekki um langt árabil hafa orðið varir við jafn mikla kreppu hjá almenn- ingi og núB Og svo er það ódýrara Það vakti athygli þegar Steingrímur Hermannsson, Páll Pétursson og nokkrir 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagu aðrir létu einkaflugvél Flug- málastjórnar flytja sig til Finn- lands og bíða þar eftir að veisluhöldum lyki, sem þeir tóku þátt í. Þetta ævintýri kost- aði 100 þúsund krónur á mann í stað 50 þúsund króna ef farið hefði verið með áætl- unarvélum. Daginn sem þeir félagar komu heim var títeingrímur kominn niður í þing og var á tali við þing- mann sem spurði hvernig ferðin hefði verið. „Þetta er al- veg frábært að ferðast svona“ sagði Denni, en þá sá hann blaðamann frá Þjóðviljanum og skynjaði að sá hafði heyrt hvað hann sagði og bætti þá við mióohátt: „Og svo er þetta líka'fnjkM ódýrara“B er1985 Rennur blóðið til skyldunnar I Leiðari DV í vikunni, þar sem reynt er að afsaka Hafskips- hneykslið með því að benda á önnur fjármálaævintýri sem séu stærri með því að falsa taptölur Útvegsbankans hefur vissulega vakið athygli. Það var Jónas Kristjánsson sem skrifaði þénnan makalausa leiðara. En þegar menn lesa leiðarann verða þeir að gæta þess að aðal eigendur DV, Sveinn R. Eyjólfsson og Hörður Einarsson eru líka í hópi stærstu hluthafa í Haf- skip. Það makalausasta í mál- inu er að Jónas segir tap Út- vegsbankans vera tæpar 300 milj. króna en talsmenn Út- vegsbankans tala um lág-. mark 500 milj. Meira um Útvegsbankann: Ekki vitum við hvort það er tilviljun, en gárungarnir segja að klukkan góða uppá Út- vegsbankanum minni sann- arlega á atburði liðinna daga, því nú er hún í sorgarklæðum. Eftir viðgerðina birtist klukkan sjónum manna svört að lit og þykir mönnum það sannar- lega við hæfi.B Jólaös Það er víða mikið að gera í jölaösinni þessa dagana. Einna mestur er hasarinn á flugvöllum landsins. Austan frá Egilsstöðum fréttum viö að þar hafi heyvagn einn mikill .verið grafin'n upp úr fönn til að flytja jólapóstinn frá flugvellin- um. Á Keflavíkurflugvelli koma flokkar úr innkaupa- ferðum í útlöndum og sagan segir að töskurnar séu svo út- troðnar að þær springi gjarn- an á leiðinni og á starfsfólk í mestu vandræðum við að tína farangurinn saman. Ein frú var svo klyfjuð, þegar hún var að fara í gegnum tollinn að hún festist í dyrunum..H Lúlli laukur Handrit Páls Péturssonar var 15 síðna og hálfri betur. Þar segir hann m.av að Lúð- vík Geirsson blaðamaður, sem Páll titlar „þingfrétta- mann“ að ósekjú, hafi ekki komið tillögu Páls og félaga á framfæri. Reyndar hafði Þjóð- viljinn sagt efnislega frá téðri tiHögu og meiren það, að Lúð- vík hafði verið að þvælast í þinginu í annars konar frétta- snapi - og rabbaöi við Pál utan atvinnu sinnar í þeim græskulausa tóni sem Hafnfirðingar og Húnvetning- ar einir kunna skil á. Lúðvík kannast því ekkert við þessa formlegu beiðni Páls um birt- ingu á einhverjum pappírum. Hins vegar hló Þjóðvilja- skáldið óspart vegna þessa máls og setti saman þessa vísu: Þetta er orðið mikið mál og mannorð hlaðið blettum því Lúlli fantur lék á Pál og laumaði undan fréttum.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.