Þjóðviljinn - 22.12.1985, Síða 12
Blaðberar óskast
í Hafnarfjörð í gamla vesturbæ
og í
Garðabæ í Tún og Mýrar.
DJÚÐVIIJINN
Við aukum öryggi í umferðinni með
því að nota ökuljósin allan
sólarhringinn, rétt stillt og í góðu lagi.
Ljósaperur geta aflagast á skömmum tíma,
og Ijósaperur dofna smám saman viö notkun.
Þannig getur Ijósmagn þeirra rýrnað um
allt aö því helming.
Dúkkurúm
Er meö blómskreytt og furudúkkurúm til sölu í þremur
stæröum. Verö á útimarkaðinum viö Lækjartorg
laugardaginn 21. des. og á Þorláksmessu ef veður
leyfir. Verö annars á Seilugranda 2.
Upplýsingar í síma 611036.
Auður Oddgeirsdóttir
Tilkynning
um eftirgjöf aðflutningsgjalda af bifreiðum til fatl-
aðra
Ráðuneytið tilkynnir hér meö að frestur til aö sækja
um eftirgjöf aöflutningsgjalda af bifreiöum til fatlaðra
skv. 27. tl. 3. gr. tollskrárlaga er til 15. febrúar 1986.
Sérstök athygli er vakin á því aö sækja skal um eftir-
gjöf á sérstökum umsóknareyðublöðum og skulu um-
sóknir ásamt verijulegum fylgiskjölum sendast skrif-
stofu Öryrkjabandalags íslands, Hátúni 10, Reykjavík,
á tímabilinu 15. janúar til 15. febrúar 1986.
Fjármálaráðuneytið, 20. desember 1985
Unnusti minn, sonur okkar og bróðir
Þórður Harðarson
Hábergi 24
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 23.12.
kl. 15.
Margrét Harðardóttir
Helga M. Harðardóttir
Inga Mjöll Harðardóttir
Hrönn Harðardóttir
Hörður Harðarson
María Jónsdóttir
Hörður Þórðarson
Sigríður Sóley Magnúsdóttir
Svavar Magnússon
Hafliði J. Hafliðason
Guðný Harðardóttir
Hermann Bjarnason
Svanhildur Ó. Harðardóttir
Maðurinn minn
Geir Jónasson,
f.v. borgarskjalavörður,
andaðist 12. des. s.l.
Jarðarförin hefur farið fram.
Kristín Jónasdóttir
Það leynir sér ekki aðkonan hagar sér ekki eðlilega. Valgerður og Kjartan.
Jólafarsi LR
SEX í
Það var mikið hlegið á fyrstu
æfingunni með áhorfendum á
jólafarsa Leikfélags Reykjavíkur
nú í vikunni, en frumsýningin
verður á milli jóla og nýárs. „Sex í
sama rúrni" er heitið sem Karl
Guðmundsson þýðandi hefur
gefið verkinu, sem hefurverið
metsölufarsi beggja vegna Atl-
antshafsins og hafa höfundarnir,
Cooney og Chapman, fengið
mikið hrós fyrir þennan snjalla
gamanleik. Leikstjóri er Jón Sig-
urbjörnsson, en hann hefursett
upp nokkrar vinsælustu leiksýn-
ingar Leikfélagsins og má þar
nefna„Flóáskinni“, „Skjald-
hamra“ og „Þið munið hann
Jörund" svo eitthvað sé nefnt.
„Sex í sama rúmi“ segir frá
tvennum hjónum; barnabókaút-
gefendum og eiginkonum þeirra,
viðhöldum, vinnukonum, og við-
skiptavinum, að ógleymdum inn-
anhússarkitektinum sem er að
innrétta íbúð annarra hjónanna.
Erfiðleikarnir hefjast fyrir alvöru
þegar allir eru búnir að fá sömu
íbúðina til afnota til stefnumóts-
sama kvöldið. Þetta er dæmi-
gerður misskilningsfarsi, þar sem
persónurnar rekast ætíð á þann
sem síst skyldi og á verstu augna-
blikum.
Ekki verður rakið frekar efni
verksins, en leikarar eru: Val-
gerður Dan, Þorsteinn Gunnars-
son, Kjartan Bjargmundsson,
Hanna María Karlsdóttir, Mar-
grét Ólafsdóttir, Lilja Þórisdótt-
ir, Sigurður Karlsson og Rósa
Þórsdóttir, sem er nýútskrifuð úr
Leiklistarskóla íslands. Leik-
mynd gerir Jón Þórisson. Frum-
sýningin verður 28. desember.
sama rúmi
Innahússarkitektinn hyggur gott tll glóðarinnar. Heimilishjálpin (Lilja Þórisdótt-
ir) og arkitektinn (Kjartan Bjargmundsson). Ljósm.: Sig.
Næsta verkefni verður af
nokkru öðru tagi, og hefjast
æfingar á því nú um áramótin.
Það er leikgerð Bríetar Héðins-
dóttur á Svartfugli Gunnars
Gunnarssonar, sem hún leikstýr-
ir sjálf.
Runólfur Ágústsson blaðafull-
trúi Leikfélagsins sagði í viðtali
að LR byði upp á sérstaka jóla-
pakka í ár, sem er nýja LR-
platan, gjafakort og leikskrá á
hinn vinsæla söngleik Land míns
föður. Þá verða einnig seld stök
gjafakort á Land míns föður og
nýja farsann „Sex í sama rúmi“
og geta þeir sem fá slík kort síðan
hring til LR og pantað miða á þá
sýningu sem þeim hentar. Byrjað
er að selja miða á „Sex í sama
rúmi“ fyrir sýningarnar eftir ára-
mótin og rétt er að minna á að
hægt er að greiða með því að
hringja og gefa VISA-númerið
upp í símann.
Þess má geta að lokum að nafn-
ið á sýninguna var valið eftir til-
lögum frá leikhúsgestum á „Land
míns föður“ á einni sýningunni í
nóvember. Var dreift miðum
með tillögum þar sem áhorfendur
voru beðnir að merkja við það
nafn sem þeim fannst best. Og
valið var „Sex í sama rúmi“.
Hvað er konan að segja í símann? Og það í rúminu". Kjartan, Þorsteinn og Valgerður.
12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 22. desember 1985