Þjóðviljinn - 22.12.1985, Síða 18
Nr. 498
KROSSGÁTA
i z ¥ (e> 8 8 9 (o 10 <9 II 7
V 5' á> /0 Qp 12 (, /0 £2 /3 /0 )¥ /s )(? ¥
)0 \r V ‘*K —1 zó S? )Ý 18 3 7 \8
13 1*7 3 V (p /S 20 2/ V W~ ¥ T~ T~
3 ¥ /S' )0 7- V? ¥ n> 22 V S ¥ 7 7 ¥
7 V )¥ 18 3 /S 28 3 T~ 25 28 7
4 10 )sJ 2{, % é 7 ¥ y { Z 2o 28 f *
ie 2? rv*' V i íp ¥ )P $2 Z W 17 )¥ 2¥
n *) j&> ¥ 10 7 )¥ )7 2o ts 2é? T 20 (t?
4 z 8 2é /s /(? T~ /s 20 8
28 7 y /8- 2 Ib ¥ w 3 22~ IC?
2*i V 8 ts 2é> 28- lb> N? 20 30 T 17 22 ¥
iy z 4 23 <2 vF~ 3 S3 10 31 °) 1°) 23
AÁBDÐEÉFGHIÍJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞÆÖ
Setjiö rétta stafi í reitina hér fyrir neöan. Þeir mynda þá
kvenmannsnafn. Sendið þetta nafn sem lausn á
krossgátunni til Þjóðviljans, Síðumúla 6, Reykjavík, merkt:
„Krossgáta nr. 498“. Skilafrestur er þrjár vikur. Verðlaunin
verða send til vinningshafa.
á> 3 13 5 /8 3 )S l(o
Stafirnir mynda íslenskt orð eða mjög kunnugleg erlend heiti hvort sem
lesið er lá- eða lóðrétt.
Hver stafur hefur sitt númer og galdurinn við lausn gátunnar er sá að finna
staflykilinn. Eitt orð er gefið og á það að vera næg hjálp því með því eru
gefnir stafir í allmörgum orðum. Það eru því eðlilegustu vinnubrögðin að
setja þessa stafi hvern í sinn reit eftir því sem tölurnar segja til um. Einnig er
rétt að taka fram, að í þessari krossgátu er gerður skýr greinarmunur á
grönnum sérhljóða og breiðum, t.d. getur a aldrei komið í stað á og öfugt.
Bók Flosa Ólafssonar og
Árna Elfars „Slett úr klaufun-
um“ er í verðlaun fyrir rétta
lausn á krossgátunni. Mál og
menning gefur út.
Verðlaun fyrir krossgátu nr.
495 hlaut Aðalsteinn Sv. Sig-
fússon. Lausnarorðið var
Guðbjörn, en Aðalsteinn fær
senda bókina „Felix Krull“,
játningar glæframanns eftir
Thomas Mann. Mál og menn-
ing gefur út.
Flosi Ólofsson
og Árni Elfar
Sf ett úr klaulunum
___________SKAK__________
Andrei Sokolov
Heimsmeistarakandidat
Fyrstu spor Andrei Sokolov á
alþjóðlegu skákbrautinni voru
ekki ýkja burðug. Þegar hann var
átján ára tók hann þátt í Skák-
þíngi Sovétríkjanna og stóð sig
frekar slælega. Þeir sem hafa séð
nafn hans í alþjóðlega stigalistan-
um það ár með 2265 stig hafa
varla átt von á því að fimm árum
seinna yrði þessi drengur meðal
þeirra sex sem berðust um
heimsmeistaratignina.
En strákur lét þessa slæmu
byrjun ekki hafa áhrif á sig og
tveimur árum seinna, árið 1982,
skaust hann snögglega upp á
stjörnuhimininn. Arið byrjaði
með þriðja sætinu á Evrópu-
meistaramóti unglinga. En í
kjölfar þess fylgdi góður árangur
í meistaramóti heimaborgar hans
Moskvu, þar sem hann lenti í 3.-
6. sæti í mjög sterku móti. Og til
að kóróna árið þá sigraði Sokolov
með yfirburðum á
Heimsmeistaramóti unglinga í
Kaupmannahöfn. Eftir þessa
glæsilegu frammistöðu fór Sokol-
ov jafnt og þétt fram og tveimur
árum seinna varð hann
heimsfrægur á meðal skákmanna
þegar hann vann sovéska
meistaramótið með yfirburðum.
Hann hlaut 12VÍ vinning af 17
mögulegum og var heilum vinn-
ingi á undan næsta manni. Meðal
þeirra sem á eftir komu voru nöfn
eins og Psahis (margfaldur Sovét-
meistari), Beljavskí, Balasov og
Chernin. Með þessum sigri
tryggði Sokolov sér sæti í sovésku
ólympíusveitinni og eftir góðan
árangur á Ólympíumótinu í
Thessaloniki var hann sæmdur
stórmeistaranafnbót.
18 SIÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur
Átta mánuðum seinna, í júlí á
þessu ári, lendir svo Sokolov í
þriðja sæti á geysisterku milli-
svæðamóti í Biel á eftir Vaganjan
og Seirawan. Sá árangur gaf hon-
um rétt á að taka þátt í Áskorend-
amótinu í Montpellier og hinn 22
ára nýbakaði stórmeistari lét sig
ekki muna um að komast áfram
úr því líka. Hann mun því tefla
ásamt Jusupov, Vaganjan og
Timman einvígi um rétt til að
tefla við þann sem tapar „hefnd-
areinvíginu“ Kasparov-Karpov.
Sokolov hefur mjög kraft-
mikinn skákstíl og teflir oft
óhemju flóknar skákir (sérstak-
lega gegn landa sínum Salov).
Honum gengur mjög vel þegar
hann stýrir hvítu mönnunum, en
á móti kemur að það skeður sár-
asjáldan að hann vinni með þeim
svörtu. Að lokum kemur svo ein
skák sem lýsir skákstíl hans mikið
betur en mörg orð.
Hvítt: Andrei Sokolov.
Svart: Lev Psahis.
Spænskur leikur.
1. e4 eS
2. Rfi Rc6
3. Bb5 a6
4. Ba4 Rf6
5. 0-0 Be7
6. Hel b5
7. Bb3 0-0
8. c3
Upp á síðkastið hefur 8. a4 notið
mikilla vinsælda. Hann kemur í
veg fyrir Marshall-árásina sem er
þyrnir í augum margra. En Sok-
olov óttast greinilega ekki þá
leikaðferð.
8. - d6
Hafnar d5 sem hefði leitt til
Marshall-árásarinnar.
9. h3 Hc8
10. d4 Bb7
11. a4
Kasparov lék 11. Rbd2 Bf8 12. a4
Dd7 13. axb5 í einvíginu við
Karpov í haust.
11. -h6
12. Rbd2 Bf8
13. Bc2 exd4
14. cxd4 Rb4
22. desember 1985
15. Bbl c5
16. d5 Rd7
17. RH f5!?
Nýr leikur. Áður hafði verið
leikið 17. - bxa4 og svartur hafði
ekkert upp úr krafsinu.18. exf5
Hxel?!
Eins og Beljavskí sýndi fram á í
skák gegn De Firmian í haust þá
er 18. - Rf6 rétti leikurinn.
19. Rxel Rxd5
20. Ha3!
Hrókurinn er á leiðinni í dálítið
skrítið ferðalag.
20. - Kh8
21. Rf3 R5b6
22. He3 d5
23. He6 d4
8 X W ± w
7 i. 4 i
6 n i
5 Íi &
4 A k
3 £> A
2 & AA
1 &&
abcdefgh
24. Rg5! Dc7
Svartur hefði orðið mát eftir 24. -
hxg5 25. Dh5+ 26. f6 Rxf6 27.
Hxf6! Dxf6 28. Bh7+ Kh8 29.
Bg6+.
25. Rf7+ Kg8
26. Rxh6+ gxh6
27. Dg4+ Kh8
Ef27.-Bg7 þá 28. He7 ogmátar.
28. f6!
28. Bxh6 hefði verið mistök
vegna 28. - Rd5 29. Bxf8 Rxf8 30.
Hh6+ Rh7 og svartur sleppur.
28. - Rd5
Ef 28. - Re5 þá einfaldlega 29.
Hxe5!.
29. f7 R7f6
30. Dg6 c4
31. Bf5 gefið
Svartur á ekkert svar við hótun-
unum 32. Hxf6 og 32. Bxh6.
BRIDGE
Ovœnt úrslit
Karl Logason og Svavar Björnsson
urðu Reykjavíkurmeistarar í tví-
menning 1985. Þeir báru sigurorð af
öllum bestu pörum landsins, í úrslit-
akeppninni sem háð var um síðustu
helgi. Mikil barátta var í lokin um
þrjú efstu sætin, þar sem fjögur efstu
pörin áttu í hlut. Þar á undan, höfðu
þeir bræður Hrólfur og Oddur
Hjaltasynir „nánast" tryggt sér titi-
linn, en allt hrökk í baklás hjá þeim
undir lokin, og sigur þeirra Karls og
Svavars varð staðreynd. Þeir eru
yngstu Reykjavíkurmeistarar í tví-
menning til þessa, báðir rétt 23 ára.
Mikil efni þar á ferð
ÓLAFUR
LÁRUSSON
Úrsliturðuþessi:
1. Karl Logason
- Svavar Björnsson
2. Hrólfur Hjaltason
- Oddur Hjaltason
3. Hermann Lárusson
- Ólafur Lárusson
4. Þórarinn Sigþórsson
- Þorlákur Jónsson
5. Guðlaugur R. Jóhannsson
- Örn Arnþórsson
6. Aðalsteinn Jörgensen
- Valur Sigurðsson
7. Jón Ásbjörnsson
- Símon Símonarson
8. Ragnar Björnsson
- Sævin Bjarnason
9. Björn Eysteinsson
- Guðmundur Sv. Hermannsson 83
10. Ásmundur Pálsson
- Karl Sigurhjartarson 58
11-13. Ragnar Magnússon
- Valgarð Blöndal 49
11-13. Gestur Jónsson
- Sigurjón Tryggvason 49
11-13. Stefán Guðjohnsen
Þórir Sigurðsson 49
14. Hörður Arnþórsson
. - Jón Hjaltason 40
Mótið fór vel fram undir stjórn fs-
aks Arnar Sigurðssonar (í fjarveru
Agnars, sem fagnaði 60 ára afmæli)
og tölvuútreiknings Vigfúsar Páls-
sonar.
Opið hús
Opið hús lauk starfsemi sinni fyrir
jól sl. laugardag. Spilaður var að
venju tvímenningskeppni og urðu úr-
slit þessi (efstu pör):
Stig
168
163
141
133
117
116
94
93
N/S: Stig
Lárus Hermannsson -Sigmar Jónsson 189
Helgi Skúlason - Vignir Bjarnason 187
Björn Hermannsson - Gústaf Björnsson 184
A/V: Stig
Hrannar Erlingsson - Matthías Þorvaldsson 200
Helgi Samúelsson - Sigurbjörn Samúelsson 198
Eyjólfur Magnússon - Hólmsteinn Arason 170
Alls urðu spilakvöldin 14 hjá Opnu
húsi og meðalþátttakan á dag var 20
pör.
Óvíst hvort/hvenær Opið hús hefur
starfsemi sína eftir áramót. Umsjón-
armenn þakka þátttökuna fyrir jól og
óska bridgeáhugafólki árs og friðar.
Frá Bridgesambandi
Reykjavíkur
Minnt er á að Reykjavíkurmótið í
sveitakeppni hefst mánudaginn 6.
janúar n.k. Skráning stendur yfir í
öllum bridgefélögum á Reykjavíkur-
svæðinu, en auk þess geta væntanleg-
ir fyrirliðar haft samband við: Ólaf
Lárusson 16538 - Hermann Lárusson
41507 - Esther Jakobsdóttur 82486 -
Hjálmar S. Pálsson 76834 eða Anton
R. Gunnarsson 71465 til skráningar
um hátíðarnar.
Reykjavík á að þessu sinni 12 sveit-
ir til íslandsmóts (Reykjavíkurmótið
er jafnframt úrtökumót fyrir ísland-
smótið í sveitakeppni) þannig að lík-
urnar á að komast í íslandsmót að
þessu sinni eru verulegar.
Spilarar eru eindregið hvattir til að
hafa samband sem fyrst, við einhvern
af þeim ofantöldu.
Fró Bridsdeild
Breiðfirðinga
Aðalsveitakeppni félagsins lauk
með sigri sveitar Ingibjargar Hall-
dórsdóttur. Auk hennar spiluðu í
sveitinni Jón Stefánsson, Magnús
Oddsson, Porvaldur Matthíasson,
Guðjón Kristjánsson og Sigvaldi Þor-
steinsson. Röð efstu sveita varð ann-
ars þessi:
1. Sveit Ingibjargar
Halldórsdóttur 371
2. Sveit Hans Nielsen 351
3. Sveit Ólafar Valgeirssonar aaaa343
4. Sveit Alison Dorosh 334
5. Sveit Jóhanns Jóhannssonar 333
6. Sveit Arnar Scheving 325
7. SveitDaníelsJónssonar 315
8. Sveit Óskars Karlssonar 313