Þjóðviljinn - 15.01.1986, Síða 15
ÍÞRÓTTIR
Baltic-Cup
Sannfærandi sigur á
Dönum í Árósum
Heffengið leikgleðina aftur, sagði Þorbergur sem átti
stórleik. ísland án sjö sterkra. Leikið við A.Þjóðverja íkvöld
Það virtist ekki skipta nokkru
máii þótt sjö snjallir landsliðs-
menn væru fjarri góðu gamni
þegar ísland lék við Danmörku i
opnunarleik Baltic-kcppninnar í
Arósum í gærkvöldi. Með frá-
bæran varnarleik að grunni var
íslenska liðið með undirtökin
nánast allan tímann og vann
sannfærandi sigur, 20-17,
frammi fyrir 3000 háværum á-
horfendum, fjölmörgum þeirra
íslenskum.
Þorbergur Aðalsteinsson lék
að nýju með landsliðinu í gær-
kvöldi og átti snilldarleik. „Éger í
toppformi núna, hef æft geysilega
vel undanfarið og með því að
breyta um umhverfí hef ég fengið
leikgleðina á ný,“ sagði Þorberg-
ur, þjálfari og leikmaður Saab í
Svíþjóð, í samtali við Þjóðviljann
í gærkvöldi.
ísland skoraði tvö fyrstu mörk-
in en Danir komust yfir, 4-3. ís-
lenska liðið gerði þrjú næstu
mörk, Danir jöfnuðu 7-7, en síð-
an komu þrjú íslensk í viðbót, 10-
7. Staðan var 10-8 í hálfleik og
ísland komst í 12-9. Þá gerðu
Danir fjögur mörk í röð en á þeim
kafla voru þeir einum til tveimur
mönnum fleiri. ísland náði strax
forystu á ný og lét hana ekki af
hendi, var komið í 20-16 rétt fyrir
leikslok en Danir gerðu síðasta
markið úr vítakasti, 20-17.
Auk Þorbergs lék Kristján
Arason mjög vel og nafni hans
Sigmundsson í markinu. „Það
var fyrst og fremst vilji og á-
kveðni sem færði okkur þennan
sigur. Danir komust aldrei í gang,
við leyfðum þeim það ekki, gáf-
um þeim aldrei frið. Varnar-
leikurinn gekk upp og þá kemur
hitt af sjálfu sér,“ sagði Þorberg-
ur.
Kristján gerði 8 mörk, 3 úr vít-
um. Þorbergur skoraði 7, Þorgils
Óttar Mathiesen 3 og Guðmund-
ur Guðmundsson 2. Nielsen
skoraði 9 marka Dana, Roep-
storff 3, Sletting Jensen 3,
Andersen 1 og Merk 1. ísland
leikur við Austur-Þýskaland í 2.
umferð keppninnar í Viborg í
kvöld.
—VS
England
Birmingham skellt
Birmingham hefur ekki unnið
leik í 1. deild ensku knattspyrn-
unnar síðan í september og í gær-
kvöldi dundi enn eitt reiðarslagið
Körfubikar
Endasprettur IR
Með góðum endaspretti náðu
IR-ingar 12 stiga forskoti fyrir
seinni leikinn gegn ÍBK í 8-liða
úrslitum bikarkeppninnar í
körfuknattleik. Þeir sigruðu
Keflvíkinga 93-81 í fyrri leiknum í
Seljaskóia í gærkvöldi eftir að
staðan hafði verið 75-74 skömmu
fyrir leikslok.
Leikurinn var skemmtilegur og
spennandi og hnífjafn þar til í
lokin. ÍR var oftast yfir en staðan
í hálfleik var jöfn, 44-44.
Björn Steffensen átti mjög
góðan leik með ÍR og skoraði 21
stig. RagnarTorfason lék líka vel
og gerði 20. Jón Örn Guðmunds-
son skoraði 14 og Jóhannes
Sveinsson 13. Guðjón Skúlason
og Jón Kr.Gíslason voru bestir
Keflvíkinga. Guðjón skoraði 25
stig, Jón 21 og Ólafur Gottskálks-
son 13. Seinni leikur liðanna fer
fram í Keflavík næsta þriðjudags-
kvöld.
—iogi/VS
yfir. Liðið tapaði 1-2 á heimavelli
fyrir utandeildaliðinu Altrinc-
ham í 3. umferð ensku bikar-
keppninnar og er þar með úr leik.
Robert Hopkins kom Birming-
ham yfir á 63.mínútu, Ronnie El-
lis jafnaði strax og síðan gerði
Hopkins sjálfsmark 15 mín. fyrir
leikslok, 1-2. Altrincham mætir
York á útivelli í 4. umferð.
Tottenham er líka heillum
horfið og fékk sinn annan 0-3
skell á heimavelli á fjórum
dögum. í gærkvöldi kom Liver-
pool í heimsókn í Stórbikar-
keppninni, Super-Cup, og vann
3-0 á White Hart Lane.
—VS/Reuter
Þorbergur Aðalsteinsson lék að
stórleik, skoraði 7 mörk gegn Dönum
nýiu með landsliðinu i gærkvöldi og átti
í Arósum.
2.deild
Þór vann
Þór frá Vestmannaeyjum vann
Gróttu 26-18 í 2. deild karla í hand-
knattleik í gærkvöldi. Leikið var á
Seltjarnarnesi og komust Þórarar í
10-2. Þeir leiddu 14-7 í hléi og 24-12
skömmu fyrir leikslok. Sigbjörn Ósk-
arsson gerði 7 mörk fyrir Þór en Jó-
hann Pétursson 5 fvrir Gróttu.
—VS
V. Þýskaland
England
Sigunmark Alfreðs
gegn Gummersbach
Robson til Hollands
Enski landsliðsfyrirliðinn í
knattspyrnu, Bryan Robson, hef-
ur verið sendur í endurhæfmgu til
Hollands. Hann slasaðist í leik
Englands og Tyrklands í október
og hefur síðan aðeins leikið í 15
mínútur með Man.Utd, byrjaði
þá inná gegn Sheff.Wed. í nóvem-
ber en meiðslin tóku sig strax
upp. Man.Utd sendi Arnold Mu-
hren fyrir fáum árum á sama stað
með góðum árangri'og Ron Atk-
inson framkvæmdastjóri bindur
miklar vonir við að Robson nái
skjótum bata í Hollandi.
—VS/Reuter
Getraunir
23 með 12 rétta
í 20. leikviku Getrauna komu fram 23 raðir með 12 réttum lcikjum og
372 raðir með 11 réttum. Vinningur fyrir tólf rétta er 43,040 krónur en
fyrir ellefu 1,140 krónur. Samtals seldust 754,256 raðir og var vinn-
ingspotturinn 1,414,230 krónur og fer vaxandi á ný. Knattspyrnudeild
KR seldi mest, um 55,000 raðir. > ^ _
Spá fjölmiðlanna fyrir 21. leikviku er þessi: o5> E “
Q i— Q <0
Birmingham-Everton............................ 2 2 2 2 x 2 2
Coventry-Watford............................... x 1 1 1 1 x 1
Leicester-Arsenal............................. 2 2 2 x 1 x x
Liverpool-West Ham............................ x 1 1 1 x 1 1
Luton-Aston Villa............................. 1111111
Manch.Utd-Nottm.For............................ 11112 11
Q.P.R.-Newcastle............................... x x 1 1 1 1 x
Sheff.Wed.-Oxford.............................. 1111111
Southampton-lpswich............................ 111x112
Tottenham-Man.City............................. 1 1 1 1 x 1 x
W.B.A.-Chelsea................................. 2 2 2 2 x 2 2
Norwich-Portsmouth............................. 1 1 1 1 1 1 x
Alþýðublaðið er efst sem fyrr í fjölmiðlakeppninni með 52 rétta leiki.
DV er með 47, Tíminn 46, Morgunblaðið 45, Útvarpið 40, Þjóðviljinn
39 og Dagur 37 rétta. Hörku fallbarátta framundan!
Alfreð Gíslason tryggði Essen
sigur á meisturum Gummers-
bach, 18-17, í Bundesligunni í
handknattleik á laugardaginn.
Hann skoraði úr hraðaupphlaupi
á síðustu mínútunni. Alfreð lék
mjög vel og gerði fimm mörk í
leiknum.
Dankersen vann sinn fimmta
sigur í síðustu sex leikjunum, 30-
15 gegn Göppingen. Páll Ólafs-
son gerði 8 af mörkum Dankers-
en. Gunzburg tapaði hinsvegar
21-13 fyrir botnliðinu Reinedorfe
í Berlín og hefur ekki fengið stig
úr síðustu fjórum leikjum sínum.
Atli Hilmarsson skoraði tvö
marka Gunzburg.
Grosswallstadt hefur 23 stig á
toppi deildarinnar en Essen og
Schwabing 21 og þessi þrjú lið
virðast ætla að berjast um
meistaratitilinn. Neðst eru Lem-
go og Gunzburg með 8 stig,
Hofweier með 7 og Reinedorfe
með 6 stig.
—VS
Körfubolti
Naumur
sigur
Vals
Framarar veittu Valsmönnum
harða keppni þegar félögin léku
fyrri leik sinn í 8-liða úrslitum
bikarkeppninnar í körfuknattleik
í gærkvöldi. Leikið var í Selja-
skóla og lauk leiknum á tólfta tím-
anum með sigri Vals, 79-77.
Valur var yfir nánast allan
leikinn, 39-36 í hálfleik, en Fram-
arar gerðu harða hríð að mót-
herjum sínum úr úrvalsdeildinni í
lokin. Litlu munaði að þeir næðu
að jafna á síðustu sekúndunum.
Einar Ólafsson skoraði 23 stiga
Vals, Sturl Örlygsson 16 og Jón
Steingrímsson 12. Símon Ölafs-
son skoraði 21 stig fyrir Fram,
Ómar Þráinsson 12 og Þorvaldur
Geirsson 10. Seinni leikur lið-
anna fer fram í Hagaskóla næsta
þriðjudagskvöld.
-logi/VS
Afreksmannasjóður
Eftir hverju er farið?
Opið bréf til stjómar Afreksmannasjóðs
Nýlega veitti „Afreksmannasjóð-
ur“ ÍSI styrki til íþróttamanna og
sérsambanda innan ISÍ. f blaðafrétt-
um var greint frá því að þessir styrkir
væru veittir vegna góðs árangurs við-
komandi íþróttamanna og til undir-
búnings þátttöku þeirra í Ólympíu-
leikunum 1988.
Það er alltaf vandaverk að veita
slíka styrki og umdeilanlegt hverjir
hafi unnið til þeirra. Ef þetta væri í
fyrsta eða annað sinn sem styrkir eru
veittir úr þessum sjóði myndi ég láta
málið kyrrt liggja, en þar sem svo er
ekki get ég ekki þagað lengur.
Allir þeir íþróttamenn sem styrk
hlutu eru allrar virðingar verðir og
hinir ágætustu íþróttamenn, en því
miður eru ekki nema tveir þeirra
íþróttamenn á heimsmælikvarða og
kannski tveir til viðbótar á Evrópu-
mælikvarða. Hinir kæmust ekki einu
sinni í Norðurlandaúrval.
Hinsvegar eru þrír fatlaðir íþrótta-
menn sem allir hafa unnið til afreka á
heimsmælikvarða á síðasta ári —
þ.e.a.s. Baldur Guðnason sem vann
bæði silfur- og bronsverðlaun á
Heimsleikum mænuskaðaðra sl. sum-
ar, Haukur Gunnarsson sem vann
bæði silfur- og bronsverðlaun á Evr-
ópumóti sl. sumar og síðast en ekki
síst Jónas Óskarsson sem setti heims-
met í 100 m baksundi sl. vor. Auk
þess unnu bæði Jónas og Haukur til
verðlauna á Ólympíuleikum fatlaðra
1984.
Ég hlýt því að spyrja stjórn „Af-
reksmannasjóðs" fSI hvort hún líti á
íþróttir fatlaðra sem einhvers konar
Ea flokks íþróttir. Telur hún
ttasamband fatlaðra sem ein-
hverskonar „auka“aðila að ÍSÍ?
Ef svo er ekki, eftir hverju í veröld-
inni er þá farið þegar ákveðið er
hvernig veitt er úr „Afreksmanna-
sjóði“ ISÍ?
Mcð íþróttakveðju
Arnór Pétursson
fyrrv.formaður íþróttafélags fatlaðra
í Reykjavík og nágrenni
Miðvikudagur 15. janúar 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15