Þjóðviljinn - 29.01.1986, Side 9

Þjóðviljinn - 29.01.1986, Side 9
MENNING Rauðhóla - Rannsý Vel glímt, hundflaturtexti Hitt leikhúsið RAUÐHÓLA-RANNSÝ eftir Clurie Luckham Leikstjóri: Páll B. Baldvinsson Þýðing: Magnús Þór Jónsson og Páll B. Baldvinsson Höfundurinn hefur fengið þá smellnu hugmynd að segja sögu konu sem hefst til þeirra metorða að verða Evrópumeistari í fjöl- bragðaglímu og láta sýninguna alla fara fram á giípupalli. Rannsý heyr glímur við móður sína, föður, vinkonu, skólasál- fræðing osfrv. - og heyr að end- ingu lokaglímuna við eiginmann sinn, Badda brúsk, senr einnig er glímukappi, og á sú glíma að skera úr um hvort þeirra eigi að vinna húsverkin. Hugmyndin er sniðug vegna þess að hún býður uppá langa runu af æsilegum sýn- ingaratriðum sem hægt er að búa til úr fjölbragða^glímunni og skemmta þannig áhorfendum SVERRIR HÓLMARSSON Edda Heiðrún sem Rauðhóla-Rannsý í Hinu leikhúsinu. sem hafa gaman af að sjá vel út- færð og sviðset glímutök. Og það skortir ekkert á að glímunni eru gerð góð skil í þess- ari sýningu, leikararnir henda hver öðrum í gólfið, hoppa hver á öðrum og snúa upp á handleggi og fótleggi af hinni snilldarleg- ustu íþrótt. Og yfir þessu virtist áhorfendum afskaplega vel skemmt. Hins vegar skal enginn halda að hann sæki styrk og nær- ingu í texta höfundar, hann er eitthvað það hundflatasta og óm- erkilegasta sem ég hef heyrt. Sem innlegg í hina eilífu baráttu kynj- anna og jafnréttisbaráttuna hefði hann kannski sloppið fyrir horn fyrir svosem tíu-fimmtán árum, núna verkar hann úreltur, gam- aldags, lágkúrulegur og algerlega fyrirsjáanlegur. Það er bókstaf- lega ekkert sem kernur manni á óvart í þessu verki. Okkur er sagt í upphafi að sýningin muni enda á glímu milli Rannsýjar og Badda- og við sláum því um leið föstu hvort þeirra vinni. Og svo gengur líf Rannsýjar alveg nákvæmlega eins og við mátti búast, mamma hennar skilur hana ekki, pabbi hennar vill ekki hún verði sjálf- stæð, skólasálfræðingurinn kúgar hana, vinkonan keppir við hana - og að lokum fer glíman við Badda alveg nákvæmlega einsog allir höfðu búist við. En með hjálp glímubragðanna og grófs skopstælingarleiks hjá flestum leikaranna tekst að gera úr þessu þónokkuð kraftmikla sýningu sem vakti hrifningu þorra áhorfenda. Samt er sýning- araðstaðan , í Gamla bíói þeim annmörkum háð að ekki er unnt að setja verkið upp eins og ætlast er til, þ.e. með áhorfendur á alla vegu í kringum glímupallinn. Með slíku fyrirkomulagi er vafa- laust hægt að æsa áhorfendur upp og gera þá að hluta sýningarinn- ar. Þetta var reynt í Gamla bíói en tókst ekki nema að litlu marki. Sýningin er vönduð og vel unn- in á marga lund. Sem fyrr segir eru glímuatriðin útfærð af snilld og leikararnir ótrúlega óragir við að láta sig detta í gólfið og kastast á kaðlana. Tveir breskir glínru- kappar, Clifford Twenlow og Brian Wete, eiga heiðurinn af þessum atriðum og þar með drjúgum hluta afsýningunni. Páll Bald- vinsson leikstýrir sínum hluta í mjög groddalegum skopfærslust- íl, gerir teiknimyndasögufígúrur úr persónunum. Kannski býður verkið ekki uppá annað, en þess- ar grófu einfaldanir höfðuðu ekki til mín, einkum þóttu mér þær setja ljótan svip á leik Eddu Björgvinsdóttur og Guðjóns Pedersen. Eddu Heiðrúnu Back- mann tókst að hefja sig allvíða upp yfir þennan leikmáta og gera persónu sína manneskjulega, en Edda Heiðrún hefur líka óvenju- legan persónukraft til að bera. Hún leysti allar þrautir af prýði, en á einum stað var henni ofgert af algerum óþarfa. Hún hefur prýðilega söngrödd í alla venju- lega söngleikjamúsík, en hér er hún látin syngja sigursöng sinn við lag eftir Wagner. sem hún einfaldlega ræður ekki við. Þetta var óþarfi og smekkleysa. Andri Örn Clausen leikur dómarann, það er heldur einhæft hlutverk og leikur hans var frekar einhæfur líka. Leifur Hauksson sýndi nreiri tilþrif og fékk enda fleiri tækifæri til þess sem faðir Rannsýjar. en var alveg fastur í myndsögumynstrinu. Kristín Kristjánsdóttir náði tæplega að sýna þann glæsibrag sem á að vera yfir Klöru klassa. Sverrir Hólmarsson Reykjavíkur- myndir Sýning Sigfúsar Halldórssonar að Kjarvalsstöðum Ein Reykjavíkurmynda Sigfúsar á Kjarvalsstöðum. Um síðustu helgi opnaði Sigfús Halldórsson einkasýningu að Kjarvalsstöðum, nánar tiltekið í vestursal hússins. Par sýnir.hann 152 verk, vatnslitamyndir, olíu- málverk og teikningar. Sýning Sigfúsar tengist afmæli höfuð- staðarins, enda eru flestallar myndirnar frá Reykjavík, eink- um gömlu hverfunum í borginni. Langflestar myndanna eru mál- aðar með vatnslitum og sver sýn- ingin sig þ.a.l. í ætt við síðustu sýningu Sigfúsar að Kjarvalsstöð- um. Allt frá því impressionistarnir frönsku gerðu borgarlíf Parísar að viðfangsefni sínu hafa stemmningar frá strætum og torg- um evrópskra borga notið ómældra vinsælda hjá almenn- ingi. Enda eru þeir ófáir málar- arnir sem gert hafa sér mat úr sínu nánasta umhverfi. Frægastur slíkra málara var eflaust Frakk- inn Maurice Utrillo, en hann gerði umhverfi Mont- martre-hæðarinnar í París ódauð- legt á fyrri hluta aldarinnar. Má segja að hann hafi gefið tóninn öllum síðari tíma borgarmálur- um. Einhverra hluta vegna hafa fáir íslenskir málarar fengist við að túlka borgarumhverfi. E.t.v. er það vegna fátæktar yrkisefna, en eins og menn vita er aðeins ein borg á íslandi. Óspillt náttúran hefur komið í stað yrkisefna frá byggðu bóli og flestir listamenn á íslandi hafa kosið að hverfa út fyrir bæjarmörk í leit að mótív- um. Trúlega finnst málurum þeir einnig hafa betra næði í óbyggð- um, þar sem engir óboðnir áhorf- endur svífa á þá og glápa á lista- verkið yfir öxl þeirra. Sigfús Halldórsson er undan- tekning frá þessari íslensku reglu. Stærstur hluti verka hans til þessa hefur snúist um landslag borga og bæja. Fjöll hans eru húsin og heiðar göturnar. Án efa hefur af- staða Sigfúsar mótast á námsár- um hans í Oxford, þar sem hann komst í tæri við hina evrópsku borgarlífshneigð og lærði þær að- ferðir sem hingað til hafa dugað honum best. Eins og fyrr er það andrúms- loftið og birtan sem Sigfús fæst við í Reykjavíkurmyndum sín- um. Vatnslitir eru kjörnir til að draga fram blæbrigði yrkisefn- anna, enda eru bestu rnyndir sýn- ingarinnar úr þeim flokki. Þau verk bera af þar sem viðíangsefn- in eru einföld í formi og lit og málarinn fær tækifæri til að draga fram skil ljóss og skugga. Það sannast nefnilega á sýn- ingu Sigfúsar, sem reyndar er fyrir löngu vitað, að það eru ekki sjálf yrkisefnin sem mestu máli skipta heldur hitt hvernig þau henta aðferðum listamannsins. T.d. hentar þröngt sjónarhorn Sigfúsi mun betur en vítt og eins gefa skörp birtuskil myndum hans áþreifanlegri blæ. Svipmót sýningarinnar er heilsteypt ef frá eru talin olíumál- verkin og teikningarnar. Senni- lega hefði betur farið á því að hafa einungis vatnslitamyndir, en þær bera af og mynda órofa heild. Hins vegar hefði mátt brjóta upp salinn með pastelmyndum, eða tefla saman ólíkari stærðum af vatnslitamyndum. Það hefði skapað rneiri spennu í salinn. En um slíkt má alltaf deila. HBR ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.