Þjóðviljinn - 01.03.1986, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 01.03.1986, Blaðsíða 1
ÞJÓÐMÁL SUNNUDAGS- BLAÐ MENNING Kjell Olof Feldt fjármálaráð- herra Svfa staðfesti þessar fregnir seint í gærkvöldi. Tilræðismaður- Ríkisstjórnin Kjarasamningarnir Þótt veist sé að bændum, hefur lífið sinn vanagang í sveitinni, nýtt líf fæðist. Þjóðviljamenn óku suður í sveit í vikunni og gerðu stuttan stans á Vatnsskarðs- hólum í Mýrdal. Það vildi svo skemmtilega til að rétt áður en Þjóðvijinn renndi í hlaðið fæddist þetta myndarlega kýrefni, veikburða en velkomið. Það þótti því tilvalið að smella mynd af yngstu kynslóðinni á bænum ásamt stoltri móðurinni, og það er sem manni sýnist að þau Unnur, Gunnar Þormar og Eva Dögg séu ekki síður hreykin af þeirri litlu. -gg/Sig Lögin í höfn Alþingi samþykkti seint í gær- kvöldi lög til staðfestingar kjara- samningunum eftir að ríkis- stjórnin hafði gert á því nokkrar breytingar að kröfu ASÍ. Pingmenn Bandalags jafnaðar- manna og Kvennalista ásamt Guðrúnu Helgadóttur AB sátu hjá við atkvæðagreiðsluna. Aðrir þingmenn studdu frumvarpið, Alþýðubandalagsmenn þó með nokkrum fyrirvörum. Mikillar óánægju gætti með að ríkisstjórn- in skuli ætla að fjármagna sinn hlut með aukinni lántöku í stað þess að fara að ráðum ASÍ um hækkaða skatta á banka og mikl- ar eignir. Svavar Gestsson benti m.a. á þessi ákvörðun myndi valda harðnandi samkeppni um lánsfé og hærri vöxtum. Svavar og Ragnar Arnalds lögðu þunga áherslu á að ríkisstjórnin stæði við sinn hlut varðandi húsnæðis- málin ella væru forsendur samn- inganna brostnar. _sáf Sjá nánar bls. 13. Palme myrtur Olof Palme var skotinn til bana í miðborg Stokkhólms um klukk- an 11 að sænskum tíma í gær- kvöldi. 600 miljón króna misskilningur Framlög ríkissjóðs til Húsnœðisstofnunnar áttu að lœkka um sömu upphœð og framlög lífeyrissjóðanna áttu að hœkka.\Ásmundur: Misskilningur sem hefur verið leiðréttur. Þorsteinn Pálsson ákafur að hafaþetta íhúsnœðispakkanum Ifrumvarpi því sem Þorsteinn Pálsson lagði fram á föstu- dagskvöldið vegna kjarasamn- inganna var klásúla um að fram- lag ríkissjóðs til Byggingarsjóðs ríkisins lækkaði um jafn háa upp- hæð og framlag lífeyrissjóðanna næmi í sjóðinn, eða um 625 milljónir króna. Þannig hefði Byggingarsjóðurinn haft úr sama fjármagni að moða í ár þrátt fyrir framlag lífeyrissjóðanna! „Þarna var um misskilning að ræða,“ sagði Ásmundur Stefáns- son, forseti ASÍ, við Þjóðviljann og bætti því við að þetta hefði verið leiðrétt í morgun, þannig að framlag ríkissjóðs myndi ekki lækka. Samkvæmt heimildum Þjóð- viljans var þetta eitt af þeim at- riðum, sem VSÍ reyndi að fá inn í samkomulag aðila vinnumarkað- arins um aðgerðir í húsnæðismál- um. Mun Þorsteinn Pálsson hafa þrýst mjög á um að framlög ríkis- stjóðs lækkuðu til jafns við aukin framlög lífeyrissjóðanna, en samningamenn ASÍ tóku slíkt ekki í mál. Eins og fram kom í frétt Þjóð- viljans í gær, þá var í svari ríkis- stjórnarinnar hafður viss fyrirvari um húsnæðispakkann. Er bent á að þarna sé komin ein af ástæðum þess, að Þorsteinn hafi ætlað að reyna til þrautar að ná þessu atr- iði inn í frumvarpið. Hörð við- brögð ASÍ-forystunnar munu hinsvegar hafa komið í veg fyrir það, enda hefði slíkt verið talið algjört brot á samningnum. Asmundur Stefánsson, sagði í samtali við Þjóðviljann á fimmtudaginn, að ríkisstjórnin gæti treyst því að fylgst yrði náið með viðbrögðum hennar, enda sýnir það sig nú að ekki er van- þörf á. í tvígang hefur hún reynt að ganga gegn vilja samningsað- ila, fyrst með því að ætla að hækka raunvexti þó farið hefði verið fram á vaxtalækkun og síð- an með því að lækka framlög rík- issjóðs um rúmar 600 milljónir króna. Hlunnindi Bændur gera það gott Silungsveiði undir ís gengur vel. Gott verð. Hœgt að veiða allt að 1000 tonn á ári inn var ókunnur þegar Þjóðvilj- inn fór í prentun og þá enn ekkert kunnugt um nánari atvik. Palme var forsætisráðherra Svíþjóðar, forystumaður sænskra og norrænna sósíalista um árabil og áhrifamaður til friðar, fram- sækni og vituriegrar samræðu um heimsbyggðina alla. Þjóðviljinn vottar sænsku þjóðinni djúpa samúð sína. Silungsveiði undir ís gengur víða mjög vel og fiskurinn er feitur og fallegur. Bændur hafa mjög gott upp úr þessu, enda gengur salan vel, sagði Anna Guðrún Þórhallsdóttir hlunn- indaráðunautur Búnaðarfélags- ins í samtali við Þjóðviljann í gær, aðspurð um hlunnindi bænda yfir vetrartímann. Að sögn Önnu er áætlað að hægt sé að veiða 500-1000 tonn af silungi í vötnum á íslandi árlega, en sem stendur er aðeins hluti þess magns nýttur, eða um 200 tonn. Bændur geta haft talsverð- ar tekjut af þessum veiðum. Sautján bændur í Skagafirði stunduðu silungsveiðar í fyrra og munu hafa haft 18 þúsund krónur að meðaltali í mánaðartekjur. Silungurinn er ýmis reyktur eða seldur ferskur. Mývetningar eru talsvert iðnir við að reykja silung með afbragðsgóðum ár- angri. Flakaður silungur selst einnig vel. Nokkuð hefur verið flutt út og að sögn Önnu er nú unnið að því að vinna markaði erlendis. „Það hefur verið talsverð vakning meðal bænda um sil- ungsveiðar, enda hafa þeir verið hvattir til þess að snúa sér að þeim í auknum mæli,“ sagði Anna Guðrún í gær. -gg

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.