Þjóðviljinn - 01.03.1986, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 01.03.1986, Blaðsíða 2
FÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Vonarstræti 4 - Sími 25500 UNDIRBÚNINGUR EFRI ÁRA Námskeiö að Noröurbrún 1. 5., 6. og 7. mars frá kl. 20:00-22:00. ER NOKKUR LEIÐ AÐ UNDIRBÚA EFRI ÁR? Hvaða tekjur hef ég þegar launa- vinnu er hætt? Hver eru réttindi aldraðra hjá Trygg- ingastofnun ríkisins? Hver er þróunin í húsnæðismálum aldraðra? Hvernig er öldrunarþjónusta í Reykjavík? Stutt námskeið verður haldið á vegum deildar málefna aldraðra hjá Félagsmála- stofnun Reykjavíkurborgar. Kennsla fer fram frá kl. 20:00-22:00, að Norðurbrún 1. Takmarkaður þátttökufjöldi. Reykvíkingar 60 ára og eldri eru velkomnir. Kennslugjald, bæklingur og kaffi kr. 500.- (400 kr. fyrir hvort hjóna). Stjórnandi Þórir S. Guðbergsson, deildarstjóri. Upplýsingar og skráning í síma: 62 15 95 frá 17:00-19:00 og laugardag kl. 11:00-13:00. FORSTÖÐUMAÐUR ENDURSKOÐUNAR- SKRIFSTOFU Starf forstöðumanns Endurskoðunarskrif- stofu Sambandsins er laust til umsóknar. Leitað er að löggiltum endurskoðanda, við- skiptafræðingi af endurskoðunarsviði eða manni með víðtæka bókhaldsþekkingu. Umsóknum með upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist Geir Geirssyni, löggiltum endurskoðanda Ármúla 3, Reykjavík, sem veitir nánari upplýsingar um starfið. Umsóknarfrestur er til 12. þessa mánaðar. SAMBAND ÍSL. SAMVINNUFÉIAGA STARFSMANNAHALD LINDARGÖTU 9A LAUSAR STÖÐUR HJÁ REYKJAVÍKURBORG Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftirtalinna starfa. Starfskjör samkvæmt kjarasamningum. Fóstrur, þroskaþjálfar eða fólk með uppeldis- menntun óskast til starfa við dagheimili eða leik- skóla víðsvegar um borgina til að örva og að- stoða seinþroska börn. Starfið er unnið í samvinnu við starfsfólk á við- komandi dagsvistarstofnunum og í samráöi við Sálfræði- og sérkennsludeild Dagvista barna. Bæði hálfs- og heilsdagsvinna kemur til greina. Upplýsingar veitir Garðar Viborg, sálfræðingur í síma 27277. Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð, á sérstökum umsóknareyðublöðum sem þar fást. FRÉTTIR Jafnrétti Konurnar fá uppbót Um 700 konur fá persónuuppbót hjá ríki og borg. Höfðu áður setið eftir. Ragna Bergmann formaður Framsóknar: Lítum á þetta sem jafnréttisbrot Við höfum litið á það sem jafnréttisbrot að þessar konur skuli ekki hafa fengið desember- uppbót eins og aðrir. Það er vissulega mjög ánægjulegt að þetta skuli vera í höfn, sagði Ragna Bergmann formaður Verkakvennafélagsins Fram- sóknar í Reykjavík í samtali við Þjóðviljann í gær. Verkakvennafélagið samdi um það við ríki og Reykjavíkurborg í þessum mánuði að Framsóknar- konur sem vinna hjá ríki og borg fái eftirleiðis svokallaða desemb- eruppbót, eða desemberglaðn- ing. Þarna er um að ræða u.þ.b. 700 konur í Framsókn. Uppbótin nemur 28% af mánaðarlaunum í 19. flokki og þýðir fyrir konu í fullu starfi um 5 þúsund krónur. Greiðsla vegna síðasta árs verður innt af hendi í næsta mánuði. Sem kunnugt er fengu Dags- brúnarmenn persónuuppbót frá borginni fyrst í fyrra, en konurn- ar í Framsókn hafa fram til þessa setið eftir. Guðrún Jónsdóttir borgarfulltrúi Kvennaframboðs- ins lagði fram fyrirspurn um þetta í borgarráði fyrir nokkru og í svari til hennar kemur fram að áður en um samdist með Fram- sókn og borginni voru 404 konur í Framsókn meðal þeirra 758 sem ekki fengu þessa uppbót. Eftir eru þá um 350 manns sem engan glaðning fá og þar á meðal eru verkstjórar fjölmennastir. -gg Friðun Laugarnessins er eitt af staerstu áhugamálum íbúa á Laugarnesi. Nokkrir úr undirbúningshópnum halla sér upp að styttu Sigurjóns heitins á Laugarnesinu. Frá v. Margrét Einarsdóttir. Margrét Arnljótsdóttir, Hilmar Þórisson og Guðrún Olga Clausen. Mynd-E.ÓI. Laugarnesið íbúasamtök að fæðast Undirbúningsstofnfundur íbúasamtaka íLaugarneshverfi haldinn í Laugarlœkjaskóla kl. 14.00 ídag. Hjalti Pórisson og Margrét Arnljótsdóttir: Viljum fjölbreytt samstarf íbúanna r Idag, laugardag kl. 14, hefur hópur áhugamanna í Laugar- neshverfi boðað til undirbúnings- fundar fyrir stofnun íbúasamtaka í hverfinu. Fundurinn verður haldinn í Laugarlækjaskóla og hefst kl. 14.00. „Við viljum hvetja íbúa í Laugarnesi til að fjölmenna á þennan undirbúningsstofnfund því það er styrkur okkar að byggja upp virkt og sterk íbúa- sarntök," sagði Hjalti. Hann mun flytja ávarp á fundinum í Lauga- lækjarskóla í dag. Gestur Þor- grímsson mun flytja stutt erindi. Kolbeinn Bjarnason spilar á flutu og lagðar verða fram tillögur að lögum og stefnuskrá samtakanna og kosin bráðabirgðastjórn. -Ig- Að sögn þeirra Hjalta Þóris- sonar og Margrétar Arnljótsdótt- ur sem unnið hafa að undirbún- ingi fundarins er hugmyndin orð- in gömul en íbúar hverfisins hafa í nokkur skipti á undanförnum árum látið til sín heyra vegna fyr- irhugaðra bygginga og skipulags- breytinga á svæðinu. Hátt á ann- að hundrað íbúar hafa lýst sig fúsa til þátttöku og er kjarninn úr þeim úr foreldrafélögum skóla og barnaheimila í hverfinu. „Við höfum mikinn áhuga á að virkja íbúana í fjölbreyttu starfi, þá ekki síst í ýmsu félags- og tóm- stundastarfi auk þess sem við vilj- um láta til okkar taka varðandi umferðarmál, umhverfis- og skipulagsmál og vinna upp safn að sögu hverfisins," sögðu þau Hjalti og Margrét í samtali við Þjóðviljann. Það kom einnig franr í máli þeirra að ein brýnustu málin í dag væri að tryggja friðun Lauganessins og bæta aðkomu íbúa í Laugarnesi að útivistar- svæðinu í Laugardal en þangað er erfitt að komast úr hverfinu vegna skurða og girðinga. 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Akranes Karíus óvenju iðinn Tennurskólabarna áAkranesi verri en jafnaldranna annars staðar á landinu. Tennur skólabarna á Akranesi virðast í öllu verra ástandi en tennur jafnaldra þeirra annars staðar á landinu, bæði hjá 15 ára unglingum og 12 ára börnum. Þetta kemur fram í Skagablað- inu á Akranesi og er haft eftir Sigfúsi Elíassyni. Sigfús hefur skoðað tennur 2000 skólabarna á landinu á aldrinum 6, 12 og 15 ára. Niðurstöður Sigfúsar eru þær helstar, að 15 ára unglingar á Akranesi hafi sérlega vondar tennur. Að meðaltali eru 24.9 tennur unglinga á þeim aldri ým- ist skemmdar, viðgerðar eða út- dregnar. Akureyringar og Allt upp í 100% munur Hafnfirðingar gefa Skaga- mönnum lítið eftir í tann- skemmdum, en 15 ára unglingar á Selfossi eru öllu betur staddir. Sambærileg tala þar er 16.1 tönn, og er munurinn á Skagamönnum og Selfyssingum um 65%. 12 ára gamlir Skagamenn eru tönnum sínum einnig verstir ef miðað er við jafnaldra annar staðar á landinu. Þeir hafa að meðaltali 15,4 tennur skemmdar, viðgerðar eða útdregnar, en til samanburðar má nefna að 12 ára börn í uppsveitum Árnessýslu hafa aðeins 7.8 tennur í sama á- standi. —22

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.