Þjóðviljinn - 01.03.1986, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 01.03.1986, Blaðsíða 7
DJOÐVHJINN Umsjón: Mörður Árnason Yvonneog prinsinn: HildurGylfadóttirog Gisli Guöiaugsson. Mynd: E. Grímmd valdsins Leikfélag Flensborgarskóla sýnir YVONNE eftir Witold Gombrowicz Þýðandi: Magnús Jónsson Leikstjórn: Ingunn Ásdísardóttir Búningar og leikmynd: Ingunn og hópurinn Yvonne, eftir þann servitra og frumlega Pólverja Gombrowicz, er sérkennilegt verk og eiginlega engu öðru líkt. Að formi til er það ævintýri, það segir frá prinsi og heitmey hans, kóngi og drottningu og allri hirðinni og það er hvorki staðsett í rúmi né tíma. í því er líka að finna tölu- vert af grimmd þeirri og grályndri glettni sem einkennir mörg ævintýri. Inntak .þess er hins vegar fyrst og fremst að afhjúpa heimsku, yfirborðsmennsku, skinhelgi og grimmd spilltra valdhafa. Prins- inn, sem getur tekið sér hvaða fegurðardís sem er að ástkonu, kvs út úr leiðindum að trúlofast ólánlegri og ólundarlegri stúlku, Yvonne. En það kemur í ljós að Yvonne hefur til að bera nokkuð sem alla aðra skortir við hirðina, tilgerðarleysi og eðlilega þrjósku. Þessir eiginleikar af- hjúpa hirðfólkið í hræsni þess og yfirdrepsskap, og að lokum verð- ur ljóst að Yvonne verður að ryðja úr vegi. Leikfélag Flensborgar hefur nýlega verið endurreist og er Yvonne frumraun þess. Þetta er ekki áhlaupaverk fyrir lítt reynda unglinga, en sem betur fer hafa þeir ekki reist úr hurðarás um öxl, sýningin er ljómandi falleg og skemmtileg þegar á heildina er litið. Það er vafalaust ekki síst að þakka vönduðum, smekkvísum og hugkvæmum vinnubrögðum leikstjórans, Ingunnar Ásdísar- dóttur. Ingunn hefur fundið sýning- unni heilsteyptan stfl sem hæfir efni verksins. í nokkuð sérkenni- legum salarkynnum skólans hef- ur hún sviðsett verkið á fjórum sviðum með áhorfendur í miðj- unni. Þetta er skemmtileg aðferð og gefur öllum salnum heildstæð- SVERRIR HÓLMARSSON . an blæ. Leikmyndin er af ætt ó- raunveruleikans og ævintýrisins, fallega unnin, og einkennist af því yfirborðstildri sem merkir hegðan hirðarinnar. Búningar eru á sáma veg, undirstrika tild- ur, tilgerð og ónáttúru þessa fólks. Yvonne sker sig skemmti- lega úr hvað þetta snertir í byrj- un, og þessi notkun búninga verður einkar áhrifarík þegar henni er seinna troðið í hirðbún- ing sem hún berst á móti af þrjósku. Það er auðvitað mikill viðvan- ingsblær á leik þessara ung- menna, en greinilegt að leikstjór- inn hefur lagt mikla rækt við hreyfingar og framsögn. Gísli Guðlaugsson leikur Filipus prins af töluverðum krafti og öryggi, framsögn hans er vönduð. Hann sýnir vel drambsemi prinsins en einnig ráðvillu hans og leit að ein- hverju raunverulegu. Konungur og drottning eru í höndum Sig- urðar Arnarsonar, sem á ýmsa kostulega spretti og túlkar ein- feldni konungs af sannfæringu, og Eddu Svavarsdóttur, sem er skemmtilega fleðuleg og hræsnis- full. En ekki er minnst ástæða til að geta Hildar Gylfadóttur í hinu þögla hlutverki Yvonne. Svip- brigði hennar og hreyfingar allar túlkuðu kröftuglega einþykkni og þrjósku þessarar stúlku sem neitar að semja sig að siðum hirð- arinnar - eftirminnilegur leikur. Það er ánægjulegt að Leikfélag Flensborgar skuli hafa farið af stað með þessari stílhreinu og skemmtilegu sýningu. Sverrir Hólmarsson. Nýlistasafn Bjarni sýnir málverk Bjarni H. Þórarinsson myndlistar- Nýlistasafninu við Vatnsstíg. inu í Múla,“ sagði Bjarni þegar maður opnaði í gærkvöldi sýn- „Þetta er afrakstur þriggja ára Þjóðviljinn leitt inn í Nýló í vikunni. inguárúmlega20málverkumí vinnusamhliðastarfiápósthús- Bjarni var þá búinn að hengja upp og tók lífinu með ró, enda sólarhringur þar til opna skyldi dyrnar almenningi. í spjalli við blaðamann sagði Bjarni að í myndum sínum tækist hann á við ýmsan vanda sem uppi er í sam- tíðinni, ekki síst kjarnorkubrjá- læðið. Hann fór að mála af kappi upp úr 1980 en hafði áður fengist við ljósmyndir og aðrar tegundir myndlistar. „Ég er að reyna að þróa með mér persónulegan stfl enda er það nauðsynlegt hverjum lista- manni að vera einkennandi fyrir sjálfan sig. Og þótt erlendar stefnur og straumar séu góðir og nauðsynlegir er ekki síður brýnt að leyfa íslensku sérlundinni að njóta sín,“ sagði Bjarni. Sýning Bjarna H. Þórarins- sonar er opin til 9. mars kl. 16-20 Bjarni H. Þórarinsson við stærstu myndina á sýningunni en hún blasir við virka daga en 14-20 um helgar. gestum þegar þeir stíga inn fyrir dyr Nýlistasafnsins. Mynd: Sig. — I Níu af tíu eigendum Gallerís Gangskarar, frá vinstri í fremri röð: Kristjana Samper, Jenný Guðmundsdóttir, Ásrún Kristjánsdóttir, Lisbet Sveinsdóttir. Efri röð: Steingrímur Þorvaldsson, Árni Páll, Sigrid Valtingojer, Egill Eðvarðsson og Sigurður Orlygsson. Á myndina vantar Þórdísi Sigurðardóttur. Myndlist Nýtt gallerí á Torfunni Gallerí Gangskör verður opnað í dag Eitt kemur þá annað fer má segja um myndlistargalleríin í borginni. Fyrirskömmu lokuðu Langbræk- ur galleríi sínu í Torfunni en í dag, laugardag, kl. 14verðurnýttgall- erí opnað á Bernhöftstorfu. Gall- erí Gangskör nefnist það. Að Gallerí Gangskörstanda 10 myndlistarmenn og hefja þeir leikinn með samsýningu. Þar verða sýnd málverk, teikningar, grafík, glerverk, skúlptúrar ofl. Er ætlunin að halda reglulega sýningar á innlendri og erlendri myndlist auk þess sem verk eftir aðstandendur gallerísins vérða þar til sölu. Gallerí Gangskör verður opið alla virka daga frá kl. 12-18 en þegar sýningar eru í gangi verður einnig opið um helgar frá kl. 14- 18 —ÞH

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.