Þjóðviljinn - 01.03.1986, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 01.03.1986, Blaðsíða 12
Dregið var í happdrætti Flugbjörgunar- sveitanna þann 17. fébrúar síðastliðinn. Vinningar féllu á eftirfarandi miða: Toyota Tercel-bílar á miða nnmer 46537. 110216 og 124130. Toyota Corolla-bílar á miða númer 18698. 19993 og 72608. Yamaha-vélsleðar á miða númer 24901, 35636 og 126118. Myndbandsupptökutæki á miða númer 14030. 16391, 59111.84652, 8581 1.99248, 101 157 og 130285. Myndbandstæki á miða númer 23678. 27459. 83545, 94283. 104305, 1 17543. 120006 og 158902. Mclntosh-tölvur á miða númer 1171. 34178, 51344 og104550. Apple-tölvur á miða númer 26935, 85586, 93077, 131707og146758. Utanlandsferðir á miða númer 16164 og 112675. Skíðaferð á miða númer 140227. Ferðahljómflutningstæki á miða númer 7994, 8592, 11783. 13688, 21381, 24184. 26234, 27847, 33139, 35646, 43432, 45900, 47295. 52974. 64715. 65972, 68527, 70325, 76941. 81655, 83477, 89983, 91150, 91317,99030,99725, 102904,105816, 107079, 108309, 111415, 114788. 117527, 118186, 120258, 120939, 121032, 125478, 128678, 131121, 132467. 133810, 134309, 134621, 136190, 141776, 142201, 151978, 157041 og159981. Soda-Stream-tæki á miða númer 1262, 6195, 10771, 14789, 19499, 19852, 20550. 22071, 24932, 25413, 25787, 27257, 29009, 29150. 31511, 32810. 34566, 37284, 37675. 40086, 42317, 46645, 48606, 50238, 52520. 59090, 59598, 60344, 60438, 61622, 68720, 76540, 77814, 80682, 81500, 82056, 84009, 84222, 84999. 85471, 87313. 87581, 88167, 88449, 89884, 91108, 94380, 95494. 96118, 96951, 97980, 98321, 99613, 101326, 102076, 102811, 104976, 105691, 105965, 109310, 111305, 111340, 113594, 114546, 114653, 116624, 117577, 117998, 119587, 122146, 122649. 124638, 125647, 126117, 127413, 127755, 129242, 132230, 132688, 137273, 139931, 140479, 141185, 142104, 142868. 142898, 143496, 144257, 144389. 144433, 145718, 146115, 147356. 150713, 151667,152497, 153854,155030, 156326, 159147. Ósóttir vinningarúrdræUinum 23. desembereru Myndbandstæki á miðum númer 46886 og 111425. Myndbandsupptökutæki á miðum númer 108328 og 145694. Væntanlegir vinningshafar hringi í síma 91 -671688. Flugbjörgunarsveitirnar þakka öllum_______________ veittan Stuðning. Birt án ábyrgðar Landvari Aðalfundur Landvara, landsfélags vörubifreiða- eigenda á flutningaleiðum, verður haldinn að Hótel Esju, Reykjavík, laugardaginn 8. mars n.k. og hefst kl. 13 stundvíslega. Dagskrásamkvæmt félagslögum. Stjórn Landvara. ráv RÍKISÚTVARPIÐ Ríkisútvarpið auglýsir lausa til umsóknar stöðu deildarstjóra Ríkisútvarpsins á Akureyri Háskólapróf í fjölmiðlun eða sambærileg menntun æskileg. Viðkomandi þarf að hafa mikla reynslu í dag- skrárgerð fyrir útvarp. Reynsla í stjórnunarstörfum einnig æskileg. Ráðningartími ertil fjögurra ára. Nán- ari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri Ríkisútvarps- ins- hljóðvarps, Skúlagötu 4, Reykjavík, sími 22260. Umsóknum ber að skila til Ríkisútvarpsins, Skúlagötu 4, Reykjavík fyrir 3. apríl n.k. á umsóknareyðublöðum sem þar fást. DÆGURMÁL Poppstjarnan virta Cat Stevens á hljómleikum um 1970- því miöur eigum við ekki mynd sem sýnir hann einsog hann er i dag, sveipaðan skikkju að múslíma sið, en skeggið kvað vera samt við sig. Cat Stevens Safnar meðal múslíma til hjálpar fátækum löndum heims - fyrsta hjálparstarfsemi á vegum þeirra í hinum vestræna heimi. Hljótt hefur verið um gamla poppgoðið Cat Stevens síð- an árið 1977, er út kom hans síðasta plata, Izisto. Þávar Högni orðinn sár og svekktur á lífinu og kaþólskri trú, sem hann tók í föðurarf, og tók mú- hameðstrú. Hann hefursíðan varið auðæfum sínum, tekjum af fornri poppfrægð, til styrkt- arstarfsemi múslíma (mú- hameðstrúarmanna) í Bret- landi. Hið rétta nafn Cats Stevens er Stephen Demetri Georgiou. Hann fæddist 21. júlí í London 1948, er af grískti faðerni en móð- ir hans sænsk. Nú hefur Högni Stefánsson enn skipt um nafn og heitir upp á múhameðsku Yusuf Islam og er orðinn helsta jarð- neska goð meðal múslima í Bret- landi. Hann hefur nú hrundið af stað söfnun meðal trúbræðra sinna um allan heim, sérstaklega í hinum ríkari löndum þeirra, og á afrakstur að renna til fátækra landa heimsins. Cat Islam sagði á blaðamanna- fundi sl. fimmtudag að hann hefði að nokkru leyti fengið hug- myndina af Live Aid tónleikun- um og hann væri fullur aðdáunar yfir framtaki Bobs Geldof í hjálparstarfi hans. Þegar Islam var spurður hvort hljómleikahald yrði liður í söfnunarherferð hans var svarið: „Nei, það er grimmdarlegt og ósiðlegt að láta sér detta í hug að fólk fái eitthvað í staðinn fyrir það sem það gefur í goðgerðarskyni". Yusuf Islam sagði að Múham- eðska hjálparsveitin (Moslem Aid) sæti nú á rökstólum um hvaða land væri mestrar hjálpar þurfi, en að hefði ákveðið að byrja á að senda í skyndingu föt, mat og lyf til Súdan og Afgani- stans. Enn fremur bætti hann við að Moslem Aid mundi leitast við að hjálpa jafnt múhameðstrúar- mönnum sem fólki sem tilheyrði öðrum trúarbrögðum. Moslem Aid er fyrsta múham- eðska góðgerðarstofnun í hinum vestræna heimi. „Við vonum að okkur takist að gera múhameðs- trúarmenn virkari í bæði starfi og fjárframlögum til hins alþjóðlega hjálparstarfs, að leggja fram sinn skerf með því að taka á jákvæðan hátt þátt í að Iina þær þjáningar og hörmungar sem hrjáir fólk víða um heim“, sagði Cat Jósep Islam Stevens. Annars er það engin nýlunda að hann styðji hjálparstarf; á poppárum sínum lét hann töluvert fé af hendi rakna til ýmissa góðgerðarstofn- ana, ekki síst barnahjálpar Sam- einuðu þjóðanna, enda þótt það færi ekki hátt í þá daga. Talið er að um ein og hálf milljón múhameðstrúarmanna búi í Bretlandi og er það stærsti trúarhópur utan Bresku biskupa- kirkjunnar. Islam (... út í hött að kalla manninn þetta!) rekur skóla í London á múhameðskum nót- um og í fyrra tókst honum að fá breska ríkið til að styrkja skólann til frambúðar. Er það í fyrsta skipti að skóli músiima fær ríkis- fjárstyrk í Bretlandi, þannig að ekki er furða að Yusuf Islam njóti virðingar trúbræðra sinna þar. En mikil synd og skömm er að eiga ekki von á fleiri plötum frá kappanum - nema hann sé eitthvað að taka við sér með þess- ari friðarlest sinni - og kannski er líka hægt að verða leiður á að vera dýrkaður af múhameðstrú- armönnum - ekki síður en mis- trúuðum poppurum - hvað getur svo sem ekki gerst í henni veslu? oh baby baby it’s a wiid world. Reuter/A 12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 1. mars 1986

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.