Þjóðviljinn - 01.03.1986, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 01.03.1986, Blaðsíða 9
Kjarvalsstaðir Grænlensk sýning I dag verður opnuð á Kjarvals- stöðum sýning frá Grænlandi, - svar granna okkar við íslenskri sendingu til Nuuk fyrir skömmu. Parna verður á ferðinni ýmis konar blanda listar, listiðnaðar, hefðbundins handiðnaðar ' og vörukynningar. Meðal annarra er mættur völundur sem ætlar að smíða kajak á meðan sýningin stendur, sem er aðeins fram á miðvikudag. 15 ár Handrítamálinu ioks lokió 21. apríl á þessu ári verða 15 ár liðin síðan sögð voru á Hafnar- bakkanum í Reykjavík hin frægu orð: Fladöbogen og Codex Regi- us, værságo’, - og var ekki seinna vænna að útkljá loks handritamálið. Sem var gert á miðvikudaginn þegar þeir Sverrir Hermannsson og hinn danski kollega hans Bertel Haarder undirrituðu samkomulag um hversu lokið skyldi handrita- skilumyfirAtlantshafið. í tilkynningu menntamálaráðu- neytisins um þetta segir svo: „Samkvæmt handritalögunum frá 1965 og samningi milli Islands og Danmerkur sem gerður var á grundvelli þeirra var nefnd með tveimur fulltrúum beggja ríkja skipuð til að gera tillögur um hvaða handrit skyldu afhent ís- lendingum í samræmi vi ákvæði laganna. Samkomulagið varð í nefndinni um afhendingu rúm- lega 1600 handrita úr Árnasafni og rúmlega 100 handrita úr Kon- ungsbókhlöðu, auk fjölmargra embættisskjala og skjalaaf- skrifta. Ágreiningur var hins veg- ar í skilanefndinni um rösklega 200 handrit. í viðræðum sérfræð- inga frá báðum löndum, sem fram fóru í janúar sl. varð sam- komulag um tillögu til mennta- málaráðherranna um skiptingu þessara handrita, og fól hún í sér, að 84 þeirra verði afhent fslend- ingum. Menntamálaráðherra íslands og Danmerkur undirrituðu í dag í Kaupmannahöfn sameiginlega tillögu tii forsætisráðherra Dan- merkur um að handritaskiptun- um verði endanlega lokið í sam- ræmi við þetta samkomulag. Jafnframt undirrituðu þeir samn- ing, sem felur m.a. í sér að hand- rit þau sem eftir verða í Dan- mörku skuli ljósmynduð til af- nota fyrir fræðimenn á íslandi, jafnframt ákvæðum um eflingu handritastofnanna í Danmörku og á íslandi og náið samstarf þeirra.“ T MENNING Höggorrusta á sviði Þjóðleikhússins, Ríkharður þriðji (Helgi Skúlason) lenqst til vinstri. Nœsta helgi Ríkhardur þriðji Laugardaginn 8. mars frum- sýnir Þjóðleikhúsið leikritið um Ríkharð þriðja, eftir Wil- liam Shakespeare, íþýðingu Helga Hálfdanarsonar, og er það frumflutningurverksins hérálandi. Leikstjóri er John Burgess frá breska Þjóðleikhúsinu, tónlist er eftirTerry Davies, leikmynd eftir Liz da Costa, búningar eftir Hil- ary Baxter og lýsing eftir Ben Ormerod, en þau koma öll frá Bretlandi. Það er Helgi Skúlason sem leikur hið fræga titilhlutverk, hinn kaldrifjaða kroppinbak Rík- harð, en með önnur stór hlutverk fara Róbert Arnfinnsson, Rúrik Haraldsson, Flosi Ólafsson, Mar- grét Guðmundsdóttir, Kristbjörg Kjeld, Herdís Þorvaldsdóttir, Ragnheiður Steindórsdóttir, Sig- urður Skúlason, Erlingur Gísla- son, Sigurður Sigurjónsson og Jón S. Gunnarsson. Alls fara um fjörutíu leikarar ineð hlutverk í sýningunni. Kjarvalsstaðir Einn aðgangseyrir Félög myndlistarmanna og myndhöggvara hafafagnaö þeirri tillögu stjórnar Kjarvals- staða að tekinn verði upp sam- eiginleguraðgangseyrirsem gestir borgi að öllum sýningum í húsinu í stað þess að borga sig nú innáhvern viðburö fyrir sig. I ályktun Myndhöggvarafélags Reykjavíkur er talið að nýtt fyrir- komulag geti orðið til að stór- auka aðsókn að húsinu og verði þannig listalífi höfuðborgarinnar lyftistöng. I tillögu stjórnar Kjarvalsstaða er gert ráð fyrir því að leigugjöld sýnenda falli niður og fagna sam- tökin því. Þá hafa bæði Myndhöggv- arafélagið og Félag íslenskra nryndlistarmanna samþykkt ályktanir þarsem stjórn hússins fær ákúrur fyrir að leyfa Alþýðu- leikhúsinu að sýna í húsinu á meðan „umsóknir myndlistar- rnanna hrúgast upp vegna slæm- rar fjárhagsstöðu annarra sýning- arsala borgarinnar sem margir hverjir hafa nú þegar þurft að loka dyrurn sínum fyrir fullt og allt", einsog segir í ályktun mynd- höggvara, - og þar er sagt „ámæl- isvert, ef ekki algerlega siðlaust að tveir stjórnarmanna hússins", þau Guðrún Erla Geirsdóttir og Viðar Eggertsson, „misnoti þannig aðstöðu sína og vald, að því best verður séð í eigin- hagsmunaskyni". Guðrún og Viðar koma bæði við sögu í sýn- ingu Alþýðuleikhússins á Tom og Viv. Látitf okkur sjá um fermingarveisluna Leitið nánari upplýsinga hjá okkur Skipholti 25, simi 21771 OPIÐ TIL KL. 41DAG » z 31 Jón Loftsson hf. Hringbraut 121 Simi 106CX) +

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.