Þjóðviljinn - 01.03.1986, Blaðsíða 6
ÍÞRÓTTIR
Island-Rúmenía 25-23
Fyrsti sigur íslands yfir Rúmenum gat ekki komið á betri tíma'
Bogdan: óvœntasti sigur vesturevrópsks liðs ísögu handboltans. Nú koma öll sœti
til greina, frá 4 til 12. Ungverjar næstir
Einar Þorvarðarson, - þjóðhetja eftir vítið í lokin. (Mynd: E.ÓI.).
Hátíðahöllin í Bern stendur
undir nafni. I gær sögðu
svissnesku blöðin að Island væri á
heimavelli í Festhalle í Bern, og
hvílíkur heimavöllur. Fyrst eru
Tékkar lagðir að velli og svo sjálf
heimstmeistaraefnin, Rúmenar.
Fyrsti sigur íslands á Rúmeníu í
28 ár kom á hárréttum tíma -
hann kom þegar íslenska Iiðið
þurfti mest á honum að halda.
„Þessi sigur er sá stærsti og þýð-
ingarmesti sem ísland hefur unn-
ið í nokkurri f1okkaiþrótt“, sagði
íslendingur eftir leikinn, og sá
hefur líklega rétt fyrir sér.
Og að sigra 25-23 eftir aðRúm-
enía, þetta leikreynda og sterka
lið, var komið í 14-18 í seinni hálf-
leik, er það stórkostlega við
þennan sigur. Áhorfendur í há-
tíðahöllinni vissu varla hvað þeir
hétu síðustu mínútur leiksins -
það voru ekki bara íslensku
stuðningsmennirnir sem fóru
hamförum - allir nema þeir rúm-
ensku hrifust með og hylltu ís-
lenska liðið í leikslok. Stuðningur
dönsku áhorfendanna var mikils-
verður í lokin.
Bogdan Kowalczyk landsliðs-
þjálfari gat ekki leynt fögnuði
sínum. Hvaða þjálfari í heimin-
um er ekki uppi í skýjunum eftir
að hafa sigrað Rúmeníu? spurði
hann. Ég stefni alltaf á sigur, það
var takmarkið að fá að minnsta
kosti eitt stig í kvöld. Strákarnir
hafa verið undir sannkölluðum
heraga, nánast í fangabúðum hjá
mér, en svona þarf að vinna til að
ná árangri. Þessi sigur Islands er
sá besti og óvæntasti sem lið frá
Vestur-Evrópu hefur unnið í sögu
handknattleiksins, sagði Bogdan
brosandi.
Síðustu þrjár mínútur leiksins
verða ógleymanlegar. Rúmenía
leiddi, 21-23, þegar Atli Hilmars-
son tók til sinna ráða, dyggilega
studdur af félögum sínum. Atli
skoraði, og lagði upp mark fyrir
Sigurð Gunnarsson, 23-23. Þá
kom upp hraðaupphlaupið hans -
24-23, og 1 mínúta 26 sekúndur
eftir á klukkunni. En Einar Þor-
varðarson á þó stærstu stundina.
Vítakastið sem hann varði frá
Berbece 29 sekúndum fyrir Ieiks-
lok er eitt af óteljandi slíkum sem
hann hefur varið - en það lang-
dýrmætasta og þýðingarmesta.
Þetta er sennilega mikilvægasta
markvarsla íslendinga frá upp-
hafi! Einar: Hann hafði fyrst
skotið í hægra hornið, svo í það
vinstra, og ég tók sénsinn á að
hann skyti aftur í það hægra.
Þetta var rétt, ég hafði heppnina
með mér.
Punkturinn yfir i-ið var svo
mark Guðmundar eftir sendingu
Atla tveimur sekúndum fyrir
leikslok. Guðmundur steig
stríðsdans um allan sal - hrifning
hans var innileg og endurspeglaði
líðan íslendinganna í Hátíðahöll-
inni.
Sástu Rúmenana - þeir voru
hrikalega taugaóstyrkir allan
tímann, sagði Guðjón Guð-
mundsson liðsstjóri. Þetta segir
nokkuð um þá virðingu sem ís-
lenskur handbolti er búinn að
skapa sér. Og gegn óstyrkum
andstæðingum komst ísland í 6-2
með stórkostlegum sóknarleik.
Atli sprakk loksins út, og Krist-
ján Arason sýndi að hann er orð-
inn eitt af stóru nöfnunum í hand-
knattleik í heiminum. Það var
ekki fyrren tveir íslenskir leik-
menn voru utan vallar að Rúm-
enía sneri leiknum sér í hag.
Leiddi 13-11 íhálfleik, ogkomstí
18-14 - það sem eftir var flokkast
undir mesta ævintýri sem um get-
ur í íslenskum handknattleik.
Og landsliðið okkar sýndi að
það er lið. Lið sem Bogdan hefur
mótað með aðferðum sem hafa
verið gagnrýndar - en hafa svo
sannarlega skilað árangri. Ég
spila alltaf til sigurs, segir hann,
og það er Iykillinn. Eftir áfallið
gegn Suður-Kóreu er ótrúlegt
hvernig honum hefur tekist að
snúa dæminu við.
Þegar fleiri einstakir leikmenn
eru nefndir verður fyrirliðinn
Þorbjörn Jensson að fá sinn
skammt. Mikilvægi hans í varnar-
leiknum hefur verið óumdeilan-
legt, en hans stóri þáttur um
seinni hálfleik þegar hann gerði
þrjú af mörkunum fjórum sem
jöfnuðu leikinn (14-18 í 19-19)
verður seint metinn til fjár.
Njarðvíkingar mæta Haukum
eða Valsmönnum í úrslita-
leiknum í körfunni, en það mátti
ekki tæpara standa í Keflavík í
gærkvöldi.
Keflvíkingar voru yfir mestan
hluta fyrri hálfleiks og héldu því í
hálfleik þegar Jón Kr. nældi í 3
stig af miðjum velli. í seinni hálf-
leiknum vöknuðu Njarðvíkingar
til lífsins, komust yfir 49-56, en
heimamenn sóttu sig og þegar sex
sekúndur voru eftir stóð 74-73.
Árni Lárusson bjargaði Njarð-
víkingum síðan í höfn, og eins
stigs sigur varð staðreyndin, -
UMFN hafði unnið báða leikina
nokkurnveginn eins naumlega og
hægt var.
Arni er maður leiksins vegna
lokakörfunnar, en ísak var einna
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN
Jón Hjaltalín Magnússon for-
maður HSÍ var skotspónn eftir
Kóreuleikinn. Tuttugu milljóna
undirbúningurinn var þungur
baggi á baki hans. En í gærkvöldi
hafði hann ríkari ástæðu en flestir
að fagna: Ég hef alltaf haft trú á
strákunum, þetta kom mér ekki á
óvart. Við höfum síðustu misser-
in unnið flest bestu lið heims - við
eigum mjög gott lið og æfingar
Bogdans og undirbúningur allur
hafa skilað árangri.
Hvað tekur nú við? ísland
leikur við Ungverjaland í milli-
riðli, og síðan Svíþjóð og Dan-
mörku. Hverjireru möguleikarn-
ir? Fáum við Ungverja á sunnu-
daginn? Púff - nú er mikil vinna
framundan á morgun. Við verð-
um farnir að skoða Ungverja á
myndbandi eftir tólf tíma, það
geturðu verið viss um. Mögu-
leikar? Allt frá fjórða til tólfta
sæti er möguleiki. Nánast allt í
þessari heimsmeistarakeppni
kemur á óvart - við getum orðið
fjórðu, og við getum líka orðið
tólftu, sagði Bogdan.
Vesturþýsku dómararnir
skiluðu sínu þokkalega - en það
er ekki hægt að segja að ísland
hafi hagnast á dómgæslu þeirra.
TÍMÍSvIss
Kang er
markahæstur
Haldi einhver að handknatt-
leikur sé evrópsk íþrótt, arísk
jafnvel (upprunnin í Þýskalandi)
eða að hún falli best slövum, - þá
ætti sá hinn sami að fara að hugsa
sinn gang eftir fyrrihluta HM í
Sviss, og líta á markahæstu
menn: gula kóreumanninn Jae-
Won Kang og svarta kúbumann-
inn Julian Duranona.
Báðir rétt tvítugir (fæddir
1965) og hafa í þessari viku
skipað sér í hóp bestu handknatt-
leiksmannaíheimsbyggðinni. En
gleðjumst: í næsta hópi er Krist-
ján Arason. Listi mestu marka-
skorara eftir forriðlana:
Kang, S-Kóreu..................32
Duranon, Kúbu..................30
Kovacs, Ungverjalandi..........22
Kristján Arason................21
Wiegelt, A-Þýskalandi..........21
Weber, Sviss...................20
Voina, Rúmeníu.................20
bestur Njarðvíkinga í heildina,
mjög virkur. Ellert og Kristinn
áttu góðan leik. Valur var veikur
og var aðeins inná í 20 mínútur.
Af Keflvíkingum voru Hreinn
og Þorsteinn bestir, þá stóð Jón
Kr. sig vel, - og þeir voru veru-
lega óheppnir að tapa.
SÓM/Suðurnesj um
Keflavík 28. febr.
ÍBK-UMFN 74-75 (43-42)
15-9, 27-28, 36-37, 43-42, 49-50, 56-
63, 67-63, 74-75
Stig IBK: Þorsteinn 18, Hreinn 15,
Guðjón 12, Jón Kr. 11, Ingólfur 6,
Ólafur 3, Hrannar 2, Magnús 2.
Stlg UMFN: Isak22, Arni 12, Ellert 12,
Kristinn 10, Jóhannes 7, Valur 5,
Teitur 4, Helgi 2, Ingimar 1.
Dómarar: Jón Otti Olafsson, Sigurður
Valur Halldórsson - góðir.
Maður leiksins: Arni Lárusson,
UMFN.
Leikurínn
í tölum
Markaröð
0-1 Dumitru
Atli 1-1
Kristján 2-1
Atli 3-1
3-2 Mirica
Atli 4-2
Bjarni 5-2
Guðmundur 6-2
6-3 Rosca
Kristján 7-3
• 7-4 Mocanu
7-5 Folker
Kristján 8-5
8-6 Berbece/v
8-7 Dumitru
8-8 Voinea
8-9 Dumitru
Atli 9-9
9-10 Voinea
Guðmundur 10-10
10-11 Folker
10- 12 Folker
Sigurður11-12
11- 13 Berbece/v
(hlé)
11- 14 Dumitru
Kristján 12-14
12- 15 Berbece
Sigurður 13-15
13- 16 Folker
13- 17 Dumitru
Sigurður 14-17
14- 18 Ghimes
Þorbjörn 15-18
Kristján 16-18
Kristján 17-18
17-19 Dumitru
Þorbjörn 18-19
Þorbjörn 19-19
19-20 Voinea
19- 21 Mirica
Steinar 20-21
20- 22 Voinea
Sigurður/v 21 -22
21 -23 Berbece/v
Atii 22-23
Siguröur 23-23
Atli 24-23
Guðmundur 25-23
Kristján Arason skoraði 6
mörk. Átti 4 misheppriuð skot,
tapaði aldrei bolta; 4 sendingar
sem gáfu mörk.
Atli Hilmarsson skoraði 6
mörk. Átti 4 misheppnuð skot,
tapaði bolta tvisvar; 4 sendingar
sem gáfu mörk.
Páll Ólafsson: eitt misheppnað
skot, tapaði bolta einu sinni.
Sigurður Gunnarsson skoraði
5 mörk. Átti 6 misheppnuð skot,
tapaði bolta einu sinni.
Þorbjörn Jensson skoraði 3
mörk. Tapaði bolta einu sinni;
ein sending sem gaf mark.
Bjarni Guðmundsson skoraði
eitt mark. Átti tvö misheppnuð
skot. Tapaði bolta tvisvar; ein
sending sem gaf mark.
Guðmundur Guðmundsson
skoraði 3 mörk. Tapaði bolta
einu sinni.
Steinar Birgisson skoraði eitt
mark.
Alfreð Gíslason kemur ekki við
þessa sögu, Þorgils Óttar Mathie-
sen kom ekki inná.
Mörk Rúmena: Dumitru 6, Folker
5, Voinea 4,, Berbece 4 (3v), Mirica
2, Rosca 1, Guimes 1.
Kóreuleikurinn
30 mörk
í gær var tilkynnt í Sviss að op-
inber úrslit í leik S-Kóreu og Is-
lands á þriðjudaginn væru 30-21
og ekki 29-21 eins og allir héldu.
Á þessu voru ekki gefnar frek-
ari skýringar. Fer ísland því í
milliriðilinn með einu marki
meira á móti sér en bestu menn
héldu.
Úrslit í gær
A-riðill
Jiigósl.-A.Þýskal...22-20 (10- 9)
Sovótríkin-Kúba......33-23 (13-12)
Lokastaða
Júgóslavía........3 3 0 0 80-70 4
A-Þýskaland.......3 2 0 1 71-64 4
Sovétríkin........3 1 0 2 73-72 2
Kúba..............3 0 0 3 75-93 0
Kúba keppir um 13.-16. sæti.
B-riðill
V-Þýskaland-Sviss ... 18-17 ( 8-10)
Pólland-Spánn.......20-20 (12-11)
Lokastaða
V-Þýskaland.......3 3 0 0 57-51 6
Sviss.............3 1 1 1 50-50 3
Spánn.............3 0 2 1 57-59 2
Pólland...........3 0 1 2 39-53 1
Pólland keppir um 13.-16. sæti.
C-riðill
Ísland-Rúmenía......25-23 (11-13)
S-Kórea-Tékkósl.....25-22 (10-13)
Lokastaða
S-Kórea...........3 2 0 1 76-65 4
Rúmenía...........3 2 0 1 68-64 4
ísland............3 2 0 1 65-71 4
Tékkóslóvakía.....3 0 0 3 58-67 0
Tékkóslóvakía keppir um 13,-16. sæti.
D-riöill
Ungverjaland-Alsír...23-19 (12-13)
Svíþjóð-Danmörk.....24-21 (12-11)
Lokastaða
Ungverjaland.....3 3 0 0 71-62 6
Svíþjóð............3 2 0 1 70-60 4
Danmörk............3 1 0 2 69-67 2
Alsír..............3 0 0 3 53-74 0
Alsír keppir um 13.-16. sæti.
Liðin flytja með sér í milliriðil úrslit úr
innbyrðisleikjum I forriðli og er þvi
staðan þessi áður en keppni hefst I
þeim:
Mllllriölll I
Júgóslavía...
V-Þýskaland
A-Þýskaland
Sviss.......
Spánn.......
Sovétrikin....
Milliriðill II
Ungverjaland.....2 2 0 0 48-43 4
S-Kórea............2 1 0 1 51-43 2
Svíþjóð............2 1 0 1 46-44 2
Rúmenía............2 1 0 1 45-46 2
Island.............2 1 0 1 46-53 2
Danmörk............2 0 0 2 42-49 0
Næstu leikir eru á sunnudag. Þá
keppa i riðli I Júgóslavía-Spánn, A-
Þýskaland-Sviss, Sovétríkin-
V.Þýskaland og I riðli II Island-
Ungverjaland, Rúmenia-Sviþjóð, S-
Kórea-Danmörk. I keppni neðstu liða
leika Kúba-Tékkóslóvakía og
Pólland-Alsir. Þarnæsti leikdagur er
á þriðjudag.
2 2 0 0 48-42 4
2200 36-31 4
2 1 0 1 43-40 2
2 0 1 1 32-33 1
2 0 1 1 29-33 1
2 0 0 2 40-49 0
m
VÍÐIR
SIGURÐSSON
Karfa
Njarðvík í úrslit