Þjóðviljinn - 01.03.1986, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 01.03.1986, Blaðsíða 3
___________FRETTIR_____________________ Samtök kvenna Konur sitja eftir Anni Haugen Samtökum kvenna á vinnumarkaði: Slœmir samningar. Engin lágmarkslaun. Engin verðtrygging. Stjórninni ekki treystandi íbúðabyggingar Afturför úti á landi íbúðabyggingar úti á landi hafa dregist saman um tvo þriðju frá 1978-1984 en á því árabili gætti ekki samdráttar á höfuð- borgarsvæðinu. Þetta kemur fram í svörum Húsnæðisstofnunar ríkisins við fyrirspurn frá Hjörleifi Gutt- ormssyni, en tölurnar fyrir 1985 liggja ekki fyrir ennþá. Vitað er þó að eitthvað dró úr íbúðabygg- ingum í fyrra á höfuðborgar- svæðinu líka. Á árinu 1978 reis tæpur helm- ingur nýrra íbúða úti á landi en árið 1984 risu 3 íbúðir í Reykjavík og Reykjanesi fyrir hverja eina sem reist var úti á landi. _Á| Sjá bls. 13. Miðað við það sem við höfum verið að ræða okkar á milli erum við afar óhressar með þessa samninga. Þeir eru slæmir. Það er ekki búið að tryggja lágmarks- laun og í þessu er ekkert að finna um verðtryggingu, sagði Anni Haugen um samninga ASI og VSI í gær, en hún á sæti í stjórn Sam- taka kvenna á vinnumarkaði. Anni sagði að Samtök kvenna hafi lagt áherslu á 30 þúsund króna lágmarkslaun og verð- tryggingu og í ljósi þess væru þær afar óhressar. „Það má benda á það þegar rætt er um þessa samn- inga hvaða þýðingu 5% lækkun dagvistargjalda hefur. Þeir eru nýbúnir að hækka þessi gjöld um 20%, þannig að þeir eru að segja núna að þeir ætli „aðeins" að hækka þau um 15%. Annað, sem er lækkun tolla á ýmsum heimilistækjum eins og myndbandstækjum, svo og lækk- un tolla á bílum. Þetta kemur verkafólki ekki til góða. Það er fyrst og fremst að berjast við að láta enda ná saman, en ekki að kaupa sér nýja bfla. Ég get ekki séð að það sé neitt í þessu sem kemur konum sérstak- lega til góða og það út af fyrir sig gerir samningana vonda. Það eru fyrst og fremst konur sem eru á þessum lágu töxtum og þær sitja eftir með það sama. Svo sé ég ekki að við höfum ástæðu til þess að treysta þessari ríkisstjórn, henni hefur ekki ver- ið treystandi hingað til og ég er svartsýn á að það muni breytast“, sagði Anni í gær. -gg Loftleiðir Fráleit vinnubrögð Landssamband Iðnaðarmanna biður Verslunarráð aðgefa álitáframkvœmd útboðs Loftleiða. Porleifur Jónsson: Ekkigóð vinnubrögð. Verðuraðskapa um- rœðu Nýbyggingar Fjórða hver íbúð rís úti á landi Áriðl978 var önnurhver ný íbúð byggð utan höfuðborgarsvœðisins. Slnfóníuhljómsveit islands bregður undir sig betri fætinum, yfirgefur hátíð- legt blómum skreytt Háskólabíósviðið, fer úr kjólfötunum og heimsækir skóla- krakka með tónlist úr Carmen og danstónlist ýmissa tíma. Áttundu skólatón- leikar hljómsveitarinnar í vikunni voru haldnir í íþróttahúsi Kópavogsskóla í gær. Áður höfðu hljóðfæraleikarar heimsótt Kársnesskóla og skóla í Garðabæ og Mosfellssveit. Stjórnandi var Páll P. Pálsson og kynnir Jón Stefánsson og kunna krakkarnir vel að meta nýbreytnina. Ljósm. Sig. „Það getur nú orkað tvímælis hvort hægt er að kalla þetta kæru. En okkur finnst að stjórnarnefnd Hótels Loftleiða hafí sýnt nógu góð vinnubrögð og því höfum við farið fram á það við Verslunarráð að það gefí álit sitt á því, hvort þetta eru viðun- andi viðskiptahættir“, sagði Þor- leifur Jónsson framkvæmdastjóri Landssambands iðnaðarmanna í samtali við Þjóðviljann í gær. Landssamband iðnaðarmanna og Félag húsgagna- og innréttingaframleiðenda fóru fram á það við Verslunarráð ís- lands í fyrradag að það gæfi álit sitt á því hvort viðskiptahættir sem viðhafðir voru við útboð á húsgöngum í 50 herbergi á Hótel Loftleiðum hafi verið viðunandi. Þá hefur Landssambandið farið þess á leit við stjórnarnefnd Loft- leiða að hún taki málið til endur- skoðunar frá sinni hálfu. Þjóðviljinn skýrði frá því 19. þessa mánaðar að stjórnarnefnd- in hefði ákveðið að taka tilboði um húsgögn í þessi 50 herbergi 'frá HP húsgögnum sem hefur umboð fyrir erlenda framleiðslu. 7 íslenskir aðilar buðu hins vegar í verkið, en þeir voru snið- gengnir. Þegar útboð fór fram hérlendis var íslendingunum ekki kunnugt um erlenda tilboðið og er talið að íslensku tilboðin hafi aðeins þjónað þeim tilgangi að keyra verðið á því erlenda niður. Ætl- unin hafi ávallt verið að fá erlent. „Menn eru leiðir á því að vera notaðir svona og þegar þetta kemur frá stóru og virtu fyrirtæki eins og Flugleiðum verður maður að segja eitthvað við því“, sagði Þorleifur í gær. „Það verður að skapa umræðu um þetta“. -gg Asex árum hafa íbúðabygging- ar úti á landi dregist saman um tvo þriðju meðan íbúðabyg- gingar í Reykjavík og Reykjanes- kjördæmi hafa verið nær óbreyttar og ívið meiri en 1978 ef eitthvað er. Á árinu 1978 var byrjað á 2274 íbúðum á landinu öllu. 47% þeirra, eða 1065 voru utan höfuð- borgarsvæðisins en sex árum síð- ar á árinu 1984 var aðeins byrjað á 387 íbúðum úti á landi. 1978 var byrjað á 1209 íbúðum á höfuð- borgarsvæðinu og 1984 var byrj- að þar á 1348 íbúðum. Hlutdeild landsbyggðarinnar í heildaríbúð- arbyggingum landsmanna hefur því hrapað úr 47% niður í 22,3% á þessum sex árum, sem jafngildir því að nú ris aðeins ein íbúð úti á landi fyrir hverjar þrjár sem byggðar eru á suð- vesturhorninu. íslandsmet í folksflotta Þetta eru upplýsingar frá Hús- næðisstofnun ríkisins sem Hjör- leifur Guttormsson rakti sem dæmi um þá öfugþróun sem orðið hefur á undanförnum árum í mál- efnum landsbyggðarinnar, þegar sveitarstjórnarfrumvarpið var til umræðu á alþingi. Hann benti á að á örfáum árum eða frá 1980 hefur landsbyggðin tapað samtals 3500 manns til höfuðborgarsvæð- isins og á árinu 1984 var slegið íslandsmet í þessum flutningum þegar 1113 manns fluttu af lands- byggðinni suður, umfram þá sem fluttu út á land. Þessi þróun hélt áfram á síðasta ári en þá töpuðu Vestfirðir t.d. 212 manns suður, „Samdráttur í íbúðabygging- um og fólkfslótti af landsbyggð- inni er afleiðing af rangri stefnu ríkisstjórnarinnar í atvinnumál- um,“ sagði Hjörleifur. Þar við bætist gífurlegur niðurskurður hennar á framkvæmdafé m.a. til samgöngu- o&hafnarbóta að ekki sé talað um skóla-, dagvistar- og sjúkrahúsbyggingar. A þremur árum hafa þessi framlög ríkisins verið skorin niður um helming og í minni sveitarfélögum þýðir það einfaldlega að ekkert er hægt að gera til að bæta þjónustuna við íbúana. Engin bót í frumvarpinu „En þetta eru ekki aðeins af- leiðingar stjórnarstefnunnar í at- vinnumálum, húsnæðismálum og byggðamálum," sagði Hjör- leifur, „þetta er líka afleiðing rangrar stefnu í stjórnkerfismál- um sem fleiri bera ábyrgð á en sú ríkisstjórn sem nú situr.“ Hann gagnrýndi að í sveitarstjórnar- frumvarpinu væri sáralítið sem treysti stöðu sveitarfélaganna í heild, hvað þá landsbyggðarinn- ar. „Hvar eru tillögurnar um verkaskiptingu ríkis og sveitarfé- laga og tekjuskiptingu þeirra í milli?“: „Þingmenn landsbyggð- arinnar geta ekki setið aðgerðar- lausir hjá þegar nú er lagt fram frumvarp um sveitarstjórnarmál án þess að þar sé að finna nokkra bót í þessum efnum.“ Listamannalaun Sjö terðust upp Uthlutunarnefnd Listamanna- launa hefur úthlutað 4,1 milj- ón króna til 110 manna. 40 þús- und krónur fá 95 listamenn og bætast sjö í þann hóp. Fimmtán listamenn fá 20 þúsund krónur og hefur enginn fengið listamanna- laun fyrr. Það er hefð, að þeir sem hafa farið í „efri flokk“, sem er að upphæð helmingi hærri en sá neðri, hverfi þaðan ekki síðan fyrren til feðra sinna. Nefndin hefur fylgt þeirri stefnu undan- farin ár að bæta nokkrum lista- mönnum við efri flokk en fækka að sama skapi í þeirn neðri, og stefnir nú í það að sá flokkur hverfi úr sögúnni. Einn maður lést í fyrra úr efri flokki en við bætast: Einar Þorláksson myndlistar- maður, Elías B. Halldórsson myndlistarmaður, Hafliði Hall- grímsson tónlistarmaður, Helga Ingólfsdóttir tónlistarmaður, Hjörtur Pálsson skáld, Hörður Ágústsson myndlistarmaður, Sigurður Pálsson skáld. I neðri flokki fækkaði úr 21 í 15. Þessir fengu 20 þúsund kr. hver: Aðalsteinn Vestmann, Anna Málfríður Sigurðardóttir, Dóra Einarsdóttir, Einar Kárason, Friðrik Guðni Þórleifsson, Guð- rún Gísladóttir, Inga Bjarnason, Kristín Pálsdóttir, Mist Þorkels- dóttir, Sigfús Bjartmarson, Sig- urður Sólmundarsson, Sjöfn Haraldsdóttir, Valgarður Egils- son, Vigdís Grímsdóttir og Órn Einarsson. Laugardagur 1. mars 1986 ÞJÖÐVILJINN - SÍÐA 3

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.