Þjóðviljinn - 01.03.1986, Síða 15
HEIMURINN
Og þetta
gerðist
líka...
Manila — Hin nýja ríkisstjórn Fil-
ippseyja hóf í gær mikla leit að
hershöfðingjum sem voru á bandi
með Marcos fyrrum forseta. Talið
er að möguieiki sé á því að þeir ætii
að reyna að ná aftur völdum.
Bonn — Neðri deild vesturþýska
þingsins samþykkti í gær umdeild
lög sem kveða á um að gerðar
verði skýrslur um alla Vestur-
Þjóðverja sem geymdar verði á
tölvum. Stjórnarandstaðan segir
að þetta muni leiða til aukins eftir-
lits með hinum almenna borgara.
Lagos — Stjórn Nígeríu tilkynnti i
gær að landamæri Nígeríu hefðu
verið opnuð á ný eftir tveggja ára
lokun. Landamæri Nígeríu og
Chad verða hins vegar áfram lok-
uð.
París — Stjórnvöld í Frakklandi
hafa ekki fengið beiðni frá hinum
nýju stjórnvöldum á Haiti um að
framselja Jean-Claude Duvalier.
Frönsk stjórnvöld telja að slíkt
muni reynast tilgangslausir þar
sem engir slíkir samningar eru í
gildi milli landanna.
Bahrain — Tilkynnt var í Teheran í
gær að gagnsókn írana á Faw
fenjasvæðinu hefði verið brotin á
bak aftur. írakar höfðu sagt að þeir
væru um það bil að reka Irana burt
af landi sinu.írakar halda áfram ár-
ásum sínum á oiíuskip sem eru
með olíu frá íran.
New York — Hráolíuverð féll í gær á
Bandaríkjamarkaði um tæpan
dollar á hverja tunnu. Svo lágt hef-
ur verðið ekki verið í Bandaríkjun-
um síðan 1978.
ERLENDAR
FRÉTTIR
hjörle^sson/REUIER
Egyptaland
Óvissuástand meðal Egypta
Eftir óeirðirsem ekki virðast úti enn, hefur Mubarak skipað nýjan yfirmann öryggislögreglu
Kaíró — Hosni Mubarak, forseti
Egyptalands, stendur nú
frammi fyrir mestu erfiðleikum
í stjórn landsins síðan hann
tók við völdum eftir að Anwar
Sadat var myrtur fyrir 4 árum.
Mubarak fór í yfirlitsferð á
óeirðasvæðin við píramídana í
gær, bardagar hafa eitthvað
minnkað en svo virðist sem þeir
geti blossað upp aftur hvenær
sem er. Bardagar hafa nú staðið
yfir síðan á þriðjudag og rétt áður
en Mubarak kom í heimsókn í
gær heyrðist mikil skothríð.
í gær sagði innanríkisráðherra
landsins,Ahmed Rushdi af sér en
hann er yfirmaður öryggisiög-
reglunnar. Mubarak setti í hans
stað lögreglustjóra sem sagður er
vanur að stjórna á óróastöðum.
Það var ljóst í gær að þó herinn sé
að ná tökum á ástandinu er mikill
spenningur í lofti í Kaíró. Margir
uppreisnarmenn hafa hörfað út í
eyðimörkina og þó hermenn séu
stöðugt að handtaka uppreisnar-
menn eru margir sem enn ganga
lausir. Yfirlitsferð Mubaraks
stóð í aðeins 13 mínútur og eftirlit
var geysilegt á meðan.
Hvíldardagur múhameðstrúar-
manna var í gær og var þá aflétt
útgöngubanni sem staðið hafði
nær óslitið yfir frá því á þriðju-
daginn. En útgöngubanninu var
aðeins aflétt í sex stundir meðan
bænir stóðu yfir, það er nú aftur
komið á. Það mun nú standa yfir
að nóttu til en skólar verða allir
lokaðir til 8. mars næstkomandi.
Þegar upplýsingaráðherra
stjórnarinnar var beðinn um
skýringu á skothríðinni rétt áður
en forsetinn fór um óeirðasvæðið
sagði hann að 5 uppreisnarmenn
hefðu hleypt af byssum sínum í
nágrenninu. Þeir hefðu hins veg-
ar verið yfirbugaðir fljótt. Frétta-
maður sem varð vitni að þessu
atviki sagði að tugir lögreglu-
manna hefðu verið þarna á ferð.
Egypsk uppreisn. Egypska stjórnin sendi skriðdrekasveitir inn á óeirðasvæðið
við píramídana. í bakgrunni sést Holiday Inns Pyramids hótelið í björtu báli.
Sovétríkin
Gagnrýni á spillingu, forréttindi, leti
„Viðþurfum að losna við stimpilklukkuþjóna meðflokksskírteini'\ segir Boris Yeltsin,
yfirmaður Moskvudeildar kommúnistaflokksins í harðorðri rœðu
áþingi kommúnistaflokks Sovétríkjanna sem stendur nú yfir
Moskvu — Gagnrýni á spill-
ingu, leti og lítil afköst er ráð-
andi í almennum umræðum á
27. þingi sovéska kommúnist-
aflokksins sem haldið er í Mos-
kvu þessa dagana.
En þrátt fyrir þessa gagnrýni
hefur einn af meðlimum fram-
kvæmdaráðs miðnefndar, sem er
æðsta stofnun flokksins, neitað
því að fulltrúar í flokknum njóti
óverðskuldaðra forréttinda.
Geidar Aliyev heitir hann og lýsti
því yfir á blaðamannafundi að
flokksmenn ættu skilið að versla í
hinum sérstöku dollaraverslun-
um sínurn þar sem þeir væru oft
24 klukkustundir á dag við skrif-
borð sitt. „Þannig er kerfi okkar
en það er ekki hægt að segja að
flokksmenn einir búi við einhver
sérstök vildarkjör eða njóti sér-
stakra forréttinda", sagði Aliyev
við blaðamenn.
Hinn nýi yfirmaður flokks-
deildarinnar í Moskvu, Boris
Yeltsin, bar hins vegar fram
harða gagnrýni á forréttindi í
ræðu sinni á fíokksþinginu. Hann
nefndi sérstaklega mistök flokks-
ins á síðustu árum við að losa sig
við fólk sem hefði það eitt að
markmiði að tryggja sér sem
besta afkomu innan flokkskerfis-
ins. „Hvers vegna tökum við upp
sömu vandamálin, þing eftir
þing?“ spurði hann. „Af hverju
hefur þetta einkennilega orð,
„stöðnun" komist inn í orðabók
flokksins? Hvers vegna höfurn
við ekki, í öll þessi ár, komist
fyrir rætur skrifræðis, félagslegs
óréttlætis og misnotkunar
valds?“
Yeltsin var settur í embætti sitt
í desember síðastliðnum af Gor-
batsjoff og átti hann að hrista upp
í Moskvudeild flokksins eftir að
þar hafði komið upp innanbúðar-
hneyksli. Yeltsin sagði í ræðu
sinni á þinginu að enn væru marg-
ir flokksmeðlimir sem ekki væru
tilbúnir til að skilja við sínar
gömlu venjur. „Jafnvel í dag
finnst fjöldinn allur af stimpil-
klukkuþjónum með flokksskírt-
eini sem drepa niður allar rót-
tækar breytingar", sagði Yeltsin í
harðorðri ræðu sinni.
Yeltsin sagðist hafa sérstakar
áhyggjuraföllu talinu um forrétt-
indi háttsettra embættismanna
flokksins. Hann sagði að öll for-
réttindi sem ekki væri hægt að
réttlæta yrði að hreinsa burt.
Geidar Aliyev sem vitnað var
til hér framar, er varaforsætisráð-
herra ogfyrrum yfirmaður KGB í
Azerbaijan. Hann sagðist hafa
svipuð íaun og verksmiðjufor-
stjóri. „Ég er ánægður með þau
laun“, sagði hann. „Við verðurn
að berjast gegn þeim neikvæðu
áhrifum að vera sérstaklega
hrifin af peningum."
Þegar leið á þingið hóf Gorbat-
sjoff viðræður við leiðtoga
bandalagsríkja Sovétmanna.
Austur þýski leiðtoginn, Erick
Honecker, fordæmdi vestur-
þýsku stjórnina fyrir að styðja
stefnu Bandaríkjamanna í af-
vopnunarmálum og sagði að
þetta rnyndi hafa slæm áhrif á
sarnbúð hinna þýsku ríkja. Leið-
togi Rúmeníu, Nikolai Ce-
ausescu, mun hinsvegar hafasagt
að taka ætti tillit til tillagna
Bandaríkjanna til þess að unnt
reyndist að ná árangri í afvopn-
unarviðræðum. Ceausescu hefur
stundum stýrt á ská við stefnu So-
vétmanna í utanríkismálum.
Hann lýsti hins vegar yfir fullum
stuðningi við síðustu tillögur
Gorbatsjoffs í afvopnunarmálum
en þar er meðal annars talað um
50 % niðurskurð á kjarnorkuvíg-
búnaði og að bundinn verði endir
á kjarnorkutilraunir.
✓
Uruguay
Friðargæslusveitir
í Suður-Ameríku
Punta Del Este — Átta ríki í
Suður—Ameríku sem verið
hafa á fundi í Uruguay síðustu
tvo daga samþykktu í gær að
koma upp friðargæsluliði á
landamærum Costa Rica og
Nicaragua til að koma í veg
fyrir frekari átök þar. Átök
landamærasveita þessara
ríkja hafa aukist nýlega þegar
hersveitir Nicaragua hafa ver-
ið að elta uppi skæruliða,
studda af Bandaríkjamönnum
sem leitað hafa yfir landamær-
in.
Ef þessi samþykkt kemst til
framkvæmda, verður það í fyrsta
sinn í sögu Contadora samtak-
anna sem friðarumleitanir þeirra
í Mið-Ameríku bera einhvern ár-
angur. I samtökunum eru nú fjór-
ar þjóðir.Mexíkó, Kólombía,
Venezuela og Panama. Þessar
þjóðir fengu stuðning á síðasta
ári þegar aðrar fjórar þjóðir gerð-
ust nokkurs konar stuðningsaðil-
ar þeirra. Þær þjóðir eru Argent-
ína, Brasilía, Uruguay og Perú.
Forseti Nicaragua sendi ráð-
stefnuríkjunum í Uruguay bréf
varðandi áætlanir Bandaríkja-
forseta um að veita Contra
skæruliðum 100 milljóna dollara
stuðning. Utanríkisráðherra Úr-
uguay, Enrique Iglesias neitaði
að gefa fréttamönnum upplýsing-
ar um nánara innihald bréfsins.
Þegar Iglesias var spurður um
för sérstaks erindreka Reagans í
Suður-Ameríku í síðustu viku, “
sagði hann að Suður-
Ameríkuríki væru sammála um
að gera þyrfti lýðræði í Nicaragua
sveigjanlegra. Hins vegar sagði
hann að þau væru að móti aðferð-
um Reagans í þessu máli, þ.e. að
nota Contra skæruliða til þess að
auka þar lýðræði.
INNLAUSNARVERÐ
VAXTAMIÐA VERÐTRYGGÐRA
SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS
Í1.FL.B1985
Hinn 10. mars 1986 er fyrsti fasti gjalddagi vaxtamiða verðtryggðra
spariskírteina ríkissjóðs með vaxtamiðum í 2. fl. B1985.
Gegn framvísun vaxtamiða nr. 1 verður frá og með 10. mars nk. greitt sem hér segir:
__________Vaxtamiðimeð 50.000,-kr. skírteini_kr. 1.901,70_
Ofangreind fjárhæð er vextir af höfuðstól spariskírteinanna fyrir tímabilið
10. september 1985 til 10. mars 1986 að viðbættum verðbótum sem fylgja hækkun
sem orðið hefur á lánskjaravísitölu frá grunnvísitölu 1239 hinn 1. september 1985
til 1428 hinn 1. mars 1986.
Athygli skal vakin á því að innlausnarfjárhæð vaxtamiða breytist aldrei eftir gjalddaga.
Innlausn vaxtamiða nr. 1 ferfram gegn framvísun þeirra í afgreiðslu Seðlabanka Islands,
Hafnarstræti 10, Reykjavík, og hefst hinn 10. mars n.k.
Reykjavík, 2. mars 1986
SEÐLAB ANKIÍSLANDS
Laugardagur 1. mars 1986 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15