Þjóðviljinn - 01.03.1986, Side 16
Aðalsfml: 681333. Kvðldsími: 681348. Helgarsími: 81663.
Laugardagur 1. mars 1986 50. tölublað 51. örgangur
Krabbameinsleit
Gjald fyrir
skoðunina
stórhækkar
• Gjaldfyrir legháls-
krabbameinsleit hef-
urhœkkað úr240
krónum í 750 krónur
á einu ári.
• Sjáumfjöllunum
Krabbameinsfélagið
og leitarstarfið í
Sunnudagsblaði
bls.6-7
Krabbameinsfélaginu hafa
borist kvartanir og ábendingai
frá konum, fulltrúum svæðafé-
laga sinna og ábyrgum staðarl-
æknum víðsvegar um landið um
að konur með lítil fjárráð telji sig
ekki hafa efni á að fara i
krabbameinsleit!
Þetta kemur m.a. fram í svar-
bréfi Snorra Ingimarssonar for-
stjóra Krabbameinsfélagsins,
sem Ragnhildar Helgadóttur
heilbrigðisráðherra kynnti á al-
þingi vegna fyrirsprurnar frá
Guðrúnu Agnarsdóttur.
Á einu ári hefur gjaldið sem
konum er gert að greiða þegar
þær eru kallaðar inn til legháls-
krabbameinsleitar hækkað úr 240
krónum í 750 krónur. Fram til 1.
júlí í fyrra greiddu konurnar að-
eins göngudeildargjald, sem þá
var komið í 270 krónur. Viðbót-
arkostnað vegna frumurann-
sóknarinnar átti Tryggingastofn-
unin síðan að greiða samkvæmt
ákvörðun ráðherra, en trygginga-
ráð taldi þessa leitarstarfsemi
ekki falla undir TR þar sem um
heilbrigða einstaklinga væri að
ræða! Tryggingastofnun neitaði
því að greiða Krabbameinsfé-
laginu fyrir frumurannsóknirnar
og kostaði sú neitun félagið 12,6
miljónir á síðasta ári. 1. júlí á-
kvað þáverandi heilbrigðisráð-
herra að velta rannsóknakostn-
aðinum yfir á konurnar sjálfar og
þann dag tvöfaldaðist gjaldið og
vel það. í september var það
komið í 640 krónur, hækkaði í
700 í desember og er nú 750 krón-
ur.
í bréfi forstjóra Krabbameins-
félagsins kemur einnig fram að
gjald vegna þessa forvarnarstarfs
er mjög mismunandi eftir búsetu
og getur munað allt að 100% milli
staða.
- ÁI
í tilefni 100 ára afmælis Landsbankans
á þessu ári hefur stjórn bankans ákveðið að gera
sparifjáreigendum freistandi afmælistilboð:
100 ára afmælisreikningurinn er verðtryggður innlánsreikningur
sem gefur 7,25% ársvexti umfrani vísitölu
og er aðeins bundinn í 15 mánuði.
Þetta er tilboð sem allir peningamenn
getamæltmeð. ^- . . , .
Landsbanki
Islands
Banki allra landsmanna
HIÓÐVILJINN
Hagvangur
Uttekt lauk með gjaldþroti
Gerði úttekt áfjárhagsstöðu Kaupfélags Svalharðs eyrar í nóvember. Kostaði 840þúsundir.
Tryggvi Stefánsson, stjórnarformaður Kaupfélagsins: Dýr úttekt en skilaði engum árangri
Ráðgjafaþjónustan Hagvangur
tók að sér að gera úttekt á
fjárhagsstöðu Kaupfélags Sval-
barðseyrar í nóvember sl. Var sú
úttekt gerð að frumkvæði KEA
og beindist hún að þvi hvernig
mögulegt væri að breyta lánum
sem hvfldu á Kaupfélaginu þann-
ig að reksturinn stæði undir sér.
Tók athugunin nokkra daga og
kostaði Kaupfélagið 840 þúsund
krónur.
„Þetta var dýr athugun og hún
skilaði litlum sem engum ár-
angri,“ sagði Tryggvi Stefánsson,
stjórnarformaður Kaupfélagsins
við Þjóðviljann í gær.
Einsog lesendum er kunnugt
um var Kaupfélag Svalbarðs-
eyrar skömmu seinna lýst gjald-
þrota og reksturinn leigður KEA
til sex mánaða.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
Hagvangur kemur við sögu hjá
Kaupfélagi Svalbarðseyrar, því
fyrir tveim árum gerði fyrirtækið
athugun sem miðast við að auka
framleiðni í kartöfluframleiðslu
kaupfélagsins og kjötvinnslu.
Árangurinn af þeirri athugun var
öllu betri því Kaupfélagsmenn
notfærðu sér niðurstöður Hag-
vangs og var breytt um vinnu-
brögð við framleiðsluna.
Um áramótin var öllu starfs-
fólki Kaupfélagsins sagt upp en
nú hefur meirihluti þess verið
ráðinn af KEA, þó að enn innan-
við 10 manns sem ekki hafa feng-
ið vilyrði fyrir vinnu er uppsagn-
arfresturinn rennur út. Þá er líka
óljóst hvað gerist er leigusamnin-
gurinn við KEA rennur út í sum-
ar.
- Sáf
f