Þjóðviljinn - 06.03.1986, Síða 1
Bifreiðatryggingar
Stórhækkun iðgjalda
Iðgjöld af ábyrgðartryggingum hœkka um 22% frá 1. mars. Eigin ábyrgð
úr 4500 Í5600 krónur. Jónas Bjarnason FÍB: Hóflega ánœgður
r
Igaer var ákveðið að hækka ið-
gjöld bifreiðatrygginga um
22% að meðaltali frá og með 1.
mars, minnst 7,7%., mest
31,8%. Bónusgreiðslur trygging-
afélaganna verða hins vegar
óbreyttar. Á sama tíma í fyrra
hækkuðu iðgjöld af ábyrgðar -
tryggingum um68%,en þá hækk-
uðu bónusgreiðslur jafnframt.
Hækkanirnar hafa verið staðfest-
ar af tryggingaráðuneytinu.
Félag íslenskra bifreiða-
eigenda hafði áður búist við
meiri. hækkunum á iðgjöidum,
og segir í fréttatilkynningu sem
félagið sendi frá sér áður en
ákvörðun um þetta var tekin að
það teldi líklegt að tryggingafé-
lögin myndum fara fram á mun
meiri hækkun en raun er orðin á.
„Mín fyrstu viðbrögð við þess-
ari frétt eru þau að ég er hóflega
ánægður með þessa hækkun
ábyrgðartrygginga bifreiða. Ég
tel að þetta sé að hluta til árangur
harkalegra mótmæla sem urðu
vegna hækkananna í fyrra," sagði
Jónas Bjarnason framkvæmda-
stjóri FÍB þegar Þjóðviljinn
leitaði álits hans á hækkun-
unum í gær .
Auk þess sem iðgjöld hækka
að meðaltali um 22%, hækkar
eigin áhætta úr 4500 krónum í
5600, sem er um 24% hækkun,
framrúðutrygging hækkar um
22%, ökumanns- og farþega-
trygging hækkar um 20%. Er-
lendur Lárusson hjá Trygginga-
eftirlitinu í gær sagði í gær að fjár-
hagur tryggingafélaganna hefðu í
fyrra staðið í járnum.
-gg-
MANNLÍF
LANDBÚNAÐUR
HEIMURINN
S-Afríka
Beit eyrað af
lögregluþjóni
Höfðaborg - Edward Pietersen,
27 ára gamall Suður-Afríkani var
í gær dæmdur í 600 klukkustunda
fangelsi fyrir að bíta eyrað af lög-
regluþjóni.
Pietersen mun hafa misst
stjórn á skapi sínu þegar götulög-
regluþjónn stöðvaði hann fyrir
gáleysislegan akstur. Hann sló til
lögregluþjónsins, sparkaði í hann
og beit síðan af honum eyrað.
Pietersen mun afplána dóm
sinn um helgar og er ástæðan fyrir
því sögð vera sú að þannig geti
hann haldið starfi sínu áfram.
Bókmenntir
Alltaf
að
skrifa
Bœkur Tryggva Emils-
sonar gefnar út á þýsku.
Eg er mjög ánægður með þessa
útgáfu, maður er ekki orðinn svo
gamail að maður geti ekki glaðst,
sagði Tryggvi Emilsson rithöfund-
ur í samtali við Þjóðviljann í gær,
en bækur hans hafa nú verið gefn-
ar út á þýsku í 10 þúsund cin-
tökum.
Það eru bækurnar Fátækt fólk,
Baráttan um brauðið og Fyrir
sunnan, endurminningar
Tryggva. Bruno Kress, sem er fs-
lendingum að góðu kunnur,
þýddi bækurnar á þýsku og eru
þær gefnar út í einu bindi hjá
Aufbau-Verlag í Berlín. Titill
bókarinnar á þýsku er Arm sein
ist teuer, sem útleggst: það er
dýrt að vera fátækur.
Tryggvi er nú kominn á níræð-
isaldur, en hann stundar ritstörf
enn af miklu kappi. „Ég skrifa frá
morgni til kvölds, hef verið að
fást við að rita ættartölur foreldra
minna síðastliðin þrjú ár og er
það starf nú langt komið," sagði
Tryggvi í gær.
-gg
Það er dýrt að vera fátækur. Mynd E.ÓI.
Reykjavíkurborg
Óskir íbúa hundsaðar
Húsnœðisfulltrúi Reykjavíkurborgar: Ekki hœkkun - bara endurskoðun á
niðurgreiðslu! ítrekaðar ábendingar um skort á viðhaldi í mörg ár
Húsnœðismálin
Vandinn er
ekkileystur
Húsnœðish reyfingin:
Aðgerðir í húsnœðismál-
um alls ekki fullnœgjandi
Húsnæðishreyfingin fundaði í
gær um fyrirhugaðar aðgerðir
ríkisstjórnarinnar í húsnæðismál-
um. Segir í ályktun að í aðgerð-
unum felist engar úrbætur sem
leiðrétti það misgengi sem hafi
lagt ómældar byrðar á fjárhag
húsnæðiskaupenda. Aukin lán
þeim til handa duga ekki. Of lítil
kaupmáttaraukning nýgerðra
kjarasamninga eykur á vandann,
segir einnig þar.
Sjá bls 3.
etta er ekki hækkun, heldur
endurskoðun á niðurgreiðslu,
sagði Gunnar Þorlákssson, hús -
næðisfulltrúi Félagsmála-
stofnunar, þegar Þjóð-
viljinn spurði hann út í ástæður
fyrir hinni furðulegu 67 prósent
hækkun borgarinnar á fram-
leigðu húsnæði til öryrkja.
Aðspurður hví í ósköpunum
hækkun af slíkri stærðargráðu
hefði ekki verið rædd í fél-
agsmálaráði eða öðrum kjörnum
stofnunum borgarinnar sagði
Gunnar það vera vegna þess, að í
rauninni væri bara verið að laga
fjárhagsstuðning borgarinnar að
reglum sem félagsmálaráð hefði
verið búið að setja.
Gunnar upplýsti, að fundur
þriggja deildarfulltrúa stofnunar-
innar, yfirmanns fjölskyldu-
deildar og hans sjálfs hefðu upp á
sitt eindæmi ákveðið hækkunina.
í samtölum við íbúa húss, sem
borgin framleigir, héldu íbúarnir
því fast fram að stöðugar óskir
um endurbætur á leku og úr sér
gengnu húsnæði hefðu verið
bornar fram ítrekað á síðustu
árum. „Að minnsta kosti þau
þrjú ár sem ég hef verið hér,“
sagði einn íbúinn.
„Það er rétt að ábendingar um
viðhaldsskort hafa komið frarn,"
sagði Gunnar Þorláksson, hús -
næðisfulltrúivið Þjóðviljann. Að-
spurður féllst hann á, að ítrekað-
ar ábendingar um það hefðu
komið fram.
- Afhverju hefur þá ekki verið
ráðin bót á ágöllum húsnœðisins?
„Það er ýmislegt sem hefur
komið í veg fyrir það. Eigandi
húsnæð'sins hefur til dæmis á-
formað breytingar á því, og við
höfum viljað bíða eftir því.“
- En varþað ástceða til að bíða
með nauðsynlegar úrbœtur í þrjú
ár?
„Ég kannast ekki við að hafa
fengið ábendingar um viðhalds-
skort strax fyrir þrernur árum,“
sagði Gunnar.
Sjá leiðara bls 4 -ös