Þjóðviljinn - 06.03.1986, Blaðsíða 11
LANDBUNAÐUR
Sigurjón Friðriksson
Agætt samstarf
sveitar og kauptúns
Sigurjón Friðriksson, bóndi Ytri-hlíð.
Búnaðarsamband
Austurlands er býsna víð-
feðmt því það nær yfir Múla-
sýslurnar báðar. Afkoma
bænda á þessu svæði er
auðvitað misjöfn en í
Vopnafirði, þar sem ég
þekki best til, er hún yfirleitt
þokkaleg og bændur vænta
sér auðvitað góðs af því,
ekki síður en aðrir, ef það
tekst að ná niður verðbólg-
unni. Svo mælti Sigurjón
Friðriksson, bóndi í Ytri-
hlíð í Vopnafirði, er blaðið
náði snöggvast tali af hon-
um á Búnaðarþinginu.
- Fullvirðisrétturinn í mjólk-
urframleiðslunni kemur mjög
misjafnlega við bændur hér.
Svæðin kringum Neskaupstað og
Djúpavog verða fyrir tilfinnan-
legri skerðingu og veldur það
bændum þar verulegum vanda:
Mest af mjólkurframleiðslu
þeirra fer beint til neyslu. Þeir
hafa ekki búið við framleiðslu-
takmarkanir undanfarið og því
e.t.v. framleitt umfram búmark
og gjalda þess nú. Svæðin kring-
um mjólkurstöðvarnar á Egils-
stöðum og Vopnafirði koma bet-
ur út gagnvart fullvirðisréttinum
þó að einstaka mjólkurfram-
leiðendur þar fái líka tilfinnan-
lega skerðingu.
Loðdýraræktin er komin vel að
rekspöl eystra. Hún vex einkum
út frá tveimur kjörnum, sem eru
fóðurstöðvarnar í Fellabæ og á
Vopnafirði, sem nú er í uppbygg-
ingu. í Vopnafirði eru loðdýra-
búin orðin 11 eða 12 og á þeim
eru 700-800 refalæður og álíka
margar minkalæður. Hvolpa-
fjöldi var nokkuð misjafn milli
búanna á sl. ári en orsakir þess
óljósar. Menn eru töluvert bjart-
sýnir á þessa búgrein þó að
óneitanlega hafi verðfallið á upp-
boðinu í fyrra mánuði valdið
nokkrum vonbrigðum. En menn
vita auðvitað að verðið er
sveiflukennt og treysta á að það
nái sér upp á ný.
Síðastliðið sumar jókst lax-
veiði í vopnfirsku ánum alveg
stórkostlega en hún hefur verið í
miklum öldudal að undanförnu.
Tvö þekkt nöfn á einni vél
CASEINTERNATIONAL
Frá 47 hestafla til 97 hestafla
á mjög hagstæðu verði
T.D.
mim
685L-2wd 72 hö.
VERÐ KR.
520.000.-
!&
¥
MDWSmHF
Járnhálsi 2 Sími 83266 110 Rvk.
Menn eru ekki á eitt sáttir um
skýringu á þessari miklu
breytingu. Öll rök eru talin hníga
að því að þessi laxagengd haldist
eitthvað eftirleiðis. Flestar jarðir
í Vopnafirði hafa laxveiðihlunn-
indi.
Byggðin í Vopnafirði er öll í
einu hreppsfélagi og hefur sam-
starf þorpsins og sveitarinnar ver-
ið náið og gott og stuðningur
gagnkvæmur. A svæðinu voru
tveir skólar, heimangönguskóli í
kauptúninu og heimavistarskóli á
Torfastöðum. Síðastliðin 3-4 ár
hefur eingöngu verið kennt í
Vopnafjarðarskóla og börnun-
um, sem annars hefðu verið á
Torfastöðum, ekið í skólann. Nú
er daglegur akstur á börnum úr
miðsveitinni og stefnt að dag-
legum akstri á öllum sveitabörn-
um á næstu árum. Ekki hefur enn
verið ákveðið til hvers skólahúsið
á Torfastöðum þá verður notað.
Atvinnuástandið hefur verið
gott. Veldur því ekki hvað síst
síldarsöltunin og veiðar og
vinnsla á skel, sem nú hefur verið
stunduð á annað ár.
Veðurfar mátti heita gott hér
sl. ár að heyskaparmánuðunum
undanteknum. Tíðin í júlí og ág-
úst og fram um miðjan sept. var
afleit og komu þá sárafáir þurrk-
dagar. Líktist mest sumrinu 1950,
sem var með afbrigðum slæmt.
Fimm þurrkdagar komu í byrjun
júlí og náðu þá nokkuð margir
ágætum heyjum. Um rniðjan júlí
kom slæmt hret (forsetabylurinn)
og snjóaði þá niður undir byggð.
Heyfengur varð mikill og sums-
staðar með mesta móti en mikið
af heyjunum úr sér sprottið og
hrakið. Veturinn hefur mátt
heita góður tii þessa, ekki snjó-
þungur en mikil svellalög. -mhg
(gengi 27/1 ’86)
+ Alsamhæfður gírkassi, 8 áfram og 4 afturábak. + Tveggja hraða aflúrtak.
+ Vandað hljóðeinangrað öryggishús með miðstöð. * Yfirstærð af rafgeymi.
* Vökvaúrtak. + Demparasæti. * Annar fullkominn búnaður.
Silungur
Tímabœr
tillaga
Samræmt gæðaeftirlit
forsendasölunnar
Fyrir Búnaðarþingi liggur er-
indi frá Önnu Guðrúnu Þórhalls-
dóttur hlunnindaráðunaut þar
sem þess er farið á leit að þingið,
beiti sér fyrir því að landbúnað-
arráðuneytið setji hið fyrsta regl-
ur um gæðamat og gæðaeftirlit á
silungi.
Bent er á að hin síðari ár hafi
silungsveiðar aukist verulega og
fyrirsjáanleg enn mikil aukning á
þeim. Mest af silungnum hafi til
þessa verið selt innanlands en
lítið flutt út. Aukin veiði kalli
hins vegar á aukinn útflutning.
Til þessa hafi ekkert gæðamat
verið á sölufiskinum. Léleg vara
seld á sama verði og góð og hafi
það eflaust spillt fyrir sölumögu-
leikum utanlands sem innan.
Samræmt gæðamat sé hins vegar
forsenda þess að halda þeim
mörkuðum sem unnist hafa og
afla nýrra.
Þetta er tímabær tillaga.