Þjóðviljinn - 06.03.1986, Blaðsíða 4
LEIÐARI
Afmælisgjöfin til öryrkjanna
í tilefni 200 ára afmælis Reykjavíkurborgar
hefur Davíð Oddsson borgarstjórinn sniðugi, og
íhaldið komið sér saman um alveg einstaklega
viðeigandi afmælisgjöf til fjölmargra öryrkja,
sem framleigja húsnæði af Reykjavíkurborg.
Borgin hefur nefnilega ákveðið að hækka húsa-
leigu þessa fólks um 67 prósent.
Þetta var einkum vel til fundið þegar haft er í
huga, að einmitt um þessi sömu mánaðamót
fengu öryrkjar stórkostlegar hækkanir á lífeyri
og tryggingabótum, sem hækkuðu um heil 5 -
fimm - prósent!
Auðvitað sjá allir, að með fimm prósent
hækkuninni hafa öryrkjar í rauninni alltof mikið
af peningum handa á milli. Þeir fá nú heilum
þúsund krónum meira en áður í lífeyri. Þess
vegna var það sniðugt hjá Davíð og Sjálfstæðis-
flokknum að hækka húsaleiguna um tvö þús-
und svo að segja sama dag.
Ekki dregur úr útsjónarsemi Sjálfstæðis-
flokksins þegar haft er í huga að kjarasamning-
arnir eru nýafstaðnir, og grundvöllur þeirra var
einmitt loforð þess opinbera að stilla hækkun-
um í hóf. Þessvegna var mjög sniðugt hjá Davíð
að hækka húsaleiguna hjá öryrkjunum ekki
nema um 67 prósent.
Svo er þetta eiginlega ekki hækkun. Sérstak-
ur húsnæðisfuíltrúi borgarinnar, Gunnar Þor-
láksson, bendir eimitt á það í Þjóðviljanum í dag,
að 67 prósent hækkunin sé „ekki hækkun, held-
ur endurskoðun á niðurgreiðslu". Það er auðvit-
að allt annað mál, og furðulegt að öryrkjarnir
skuli vera með múður í fjölmiðlum yfir þessari
hækkun sem er semsagt engin hækkun, þó
húsaleigan aukist um allt að 67 prósent. Snið-
ugir menn, Davíð og Gunnar.
Húsnæðisfulltrúinn er líka einkar sanngjarn
maður, einsog kemur berlega fram í viðtalinu
við Þjóðviljann. Hann gengst fúslega við því að
öryrkjarnir séu sýknt og heilagt að kvarta undan
þessu hræódýra húsnæði sem hann og Davíð
skaffa þeim. „Það er rétt að ábendingar um
viðhaldsskort hafa komið fram,“ segir hann í
viðtalinu. Þetta er líka alveg stórsniðugt, að nota
bara orð einsog „viðhaldsskort" yfir hriplekt og
úrsérgengið húsnæði borgarinnar. Það kemur
auðvitað miklu betur út á skýrslum.
Húsnæðisfulltrúinn er meira að segja svo
sanngjarn að fallast á að ítrekaðar ábendingar
hafi komið fram um „viðhaldsskort'1. Hins vegar
hafi þurft að bíða eftir því að eigandi hússins,
sem borgin leigir af, ákvæði hvers kyns
breytingar hann hygðist gera á því. Auðvitað var
sjálfsagt mál að láta öryrkjana bíða á meðan, í
niðurníddu og hripleku húsnæði. Auðvitað var
sjálfsagt mál, að láta húseigandann ráða, og sá
er vafalaust önnum kafinn maður sem ekki hef-
ur haft neinn tíma til að sinna málinu. Sjálfsagt
mál að láta öryrkjana sitja í rigningu í eigin stof-
um þangað til. Var það ekki bara frekja í þeim að
vera með undirskriftalista og mótmæla svo
snöggri og stórri hækkun á ónýtu húsnæði? Og
þó þeir hafi verið að kvarta í þrjú ár- hvað með
það? Sjálfstæðisflokkurinn verður auðvitað að
taka hagsmuni húseigandans framyfir hag ör-
yrkjans.
Það sem er einna skrítnast við þessa sniðugu
sparnaðarhugmynd hjá Sjálfstæðisflokknum
sem felst í því að skattleggja öryrkja umfram
annað fólk er það, að enn hefur Morgunblaðið
ekki birt neina mynd af Davíð Oddssyni þar sem
hann er að óska öryrkjum til hamingju með
afmælisgjöfina. Hvernig stendur á því?
Þó Morgunblaðið og ríkisfjölmiðlarnir þegi yfir
þessari afmælisgjöf, þá vill að minnsta kosti
Þjóðviljinn nota tækifærið og óska Davíð Odds-
syni sérstaklega til hamingju með það hugvit,
sem felst í því að hækka húsaleigu hjá öryrkjum
um 67 prósent sama dag og tryggingabæturnar
hækka um 5 prósent. Það þarf meira en venju-
legan mann og venjulega samvisku til að finna
upp á slíku.
Hvílfk rausn - hvílíkur stórhugur - hvílíkur
afmælisbragur!
-ÖS
KUPPT OG SKORIÐ
Gleðitíð
Einhver besti gleðiviðburður
sem fyrir klippara hefur komið
síðustu daga eru fréttirnar af
lækkun bifreiða. Þessi lækkun er
einhver mesta og besta kjarabót
sem fyrir gat komið nema ef vera
skyldi þegar smjörið var lækkað á
dögunum. Enda var hækkunin á
öðrum unnum mjólkurvörum að-
eins smáræði, sem maður gleymir
strax.
Þar sem flestir sem komnir eru
á einhvern björgulegan aldur
þurfa ekki að fá sér ökuskírteini,
sem hækkaði um 500% í síðasta
mánuði, - en á móti kemur að
hjólbarðar hafa lækkað í verði frá
og með síðustu mánaðamótum.
Það er í rauninni meiri kjarabót
heldur en ef ökuskírteinisverðið
hefði staðið í stað, þarsem fjórir
hjólbarðar eru undir hverri bif-
reið, en ekki nema einn skírt-
einishafa þarf til að stjórna slíku
tæki.
Að kaupa bíl
Fyrir hvern einstakling og fjöl-
skyldu er það meiriháttar pólitísk
ákvörðun að fjárfesta í húsnæði
og bílum. Menn þurfa að hafa
ótvíræðan tilgang, mótif, ástæðu
til að stússa í þess háttar. Hvaða
rök hníga að því fyrir fólk með
meðallaun að kaupa bíl í dag?
Kaupið hækkar ekki, en bíllinn
lækkar í verði. í sjálfu sér næg
ástæða. Dagvistargjöldin sem
hækkuðu um 20% í janúarmán-
uði hafa lækkað um 5% - eða
hafa hækkað um 15%. Það er því
15% dýrara að hafa barn á barna-
heimili en áður. Gæti ekki bíll
komið í stað barnaheimilis? Og
hvað með orkusparnaðinn? Raf-
orka hækkaði um 14% á dögun-
um en lækkaði svo um 10% eða
hún hefur hækkað um 4%. Getur
ekki verið órkusparnaður af því
að vera í bílnum en minna heima?
Þessu er eflaust hægt að svara ját-
andi, - svo það er sjálfsagt að
kaupa bíl.
Að vanda valið
Sjálfsagt er að vanda valið þeg-
ar um bifreiðakaup er að ræða.
Einsog kunnugt er hefur bensín
lækkað í verði á alþjóðamarkaði
og það var eiginlega samið um
það líka á íslandi, þannig að auð-
sætt er að bensínfrekja bifreiða
skiptir nú litlu máli.
Það sem mestu skiptir er lækk-
un bifreiðaverðs. Og því meiri
sem lækkunin er þá græði ég
meira samkvæmt þeirri rök-
hyggju sem þegar er viðtekin í
þjóðfélaginu einsog sagt er. Þá er
að líta á bílverðin, - hvað kosta
bílar eftir lækkun?
Jákvæð hugsun
Og þarsem flestir eru menn já-
kvæðra viðbragða, þá er rétt að
fara að þessu dæmi opnum huga.
Og þarsem kaupmátturinn er
ekki alltof hár er best að byrja að
skoða stéttartáknið - Skoda.
Ódýrasti Skodinn kostaði 193
þúsund fyrir kjarabót, en kostar
núna 149 þúsund. Mismunurinn,
þ.e. það sem kaupandinn græðir
er 44 þúsund eða 22.7% sam-
kvæmt áreiðanlegum útreikning-
um Morgunblaðsins.
Lada bíll sem áður kostaði 235
þúsund kostar núna 199 þúsund,
mismunurinn 36 þúsund eða
15.3%. En jákvæður maður vill
spara meira en sem nemur 36
þúsundum eða 44 þúsundum, svo
það er best að skoða dýrari bíla.
TollaJækkanirnar:
Dýrari bílar lækka um
verð nokkurra smábíla
MORGUNBLAÐIÐ hefur birt tðlur um lækkun á verði
nokkurra algengra bifreiðategunda vegna lækkunar á
aðfhitningagjðldum bifreiða. En hvað skyldu dýrari bflamir
Wlrlta mildð? Morgunblaðið kannaði bjá nokkrum bflaum-
boðum lækkun bifreiða sem koetað hafa frá 800.000 <■'
upp undir tvær mihjjónir króna. Lækkun þeirragnjj^
verði nokkura amábfla.
FW Mercedes Benz eru fluttir inn
fólksbflar með þrenns konar yfir-
byggingu. Af hverri gerð eru *>-
margar mismunandi vél»
Dæmin sem hér »-
ódýrasta hf ’
v
\W!
&
‘&000
V*b
kostaði ' & ay,0
^.000 <1^
\»o V.
^.000
■é
^looo
T2..'
.00°
nv
000
\ftí>
\b?
V*
w
V1
\*vAooo
^ooo
yft.O
•2.3,0
Dýrir bílar
ódýrastir
Og nú verða undur og stór-
merki. Eftir því sem bílarnir eru
dýrari þeim mun meiri afsláttur,
bæði hlutfallslega og í krónum
talið. Þannig kostaði Opel Rec-
ord 870 þúsund krónur áður, en
nú kostar hann skitnar 600 þús-
undir. Mismunurinn er hvorki
meira né minna en 270 þúsund
j/fO-
..eufylgjandi
verð þeirra bfla er
f gær auk nokkurra f
krónur eða 31%. BMW 520, sem
er dýrasti bíllinn sem fæst hjá því
umboði kostaði áður 1 miljón 37
þúsund, en kostar núna ekki
nema 765 þúsund krónur og hef-
ur lækkað um 272 þúsund eða
26.2%.
Fundið fé
Hér er greinilega fundið fé.
Landsfeðurnir hafa vísað veginn
til sparnaðar og gróðasöfnunar
hjá okkur fávísum launa-
mönnum. Auðvitað fá allir sér
dýra bíla. Morgunblaðið gefur
líka tóninn í gær þarsem segir að
„dýrari bílar lækka um verð
nokkurra smábíla."
Þeir sem mögulega geta selja
auðvitað íbúðarholuna sína, sem
hvort eð er er alltof dýr í rekstri,
og kaupa dýran bíl, BMW eða
Mercedes Bens. Og með sömu
hagfræði fá menn náttúrlega út,
að það borgar sig að kaupa slíkan
bíl og spara sem samsvarar verði
tveggja skoda-bifreiða. Græða
þarmeð tvo skoda.
Allir á
forstjórabíla
Launamenn taka þessu að
sjálfsögðu fagnandi, afþví að nú
lifa menn eftir kjörorðinu: allir á
forstjórabíla. Skítt veri með
kaupið og matinn þegar hægt er
að kaupa forstjórabíl. Þetta er
dásamlegt líf og fjölskyldurnar
flytja í breiða stóra og góða bíla.
Þjóðhagsýni
f þjóðfélögum einsog okkar
eru alltaf til einhverjir neikvæðir
menn, andófsmenn sem skilja
ekki hvað er þjóðinni fyrir bestu.
Þegar bílarnir hafa lækkað svona
í verðinu munu þeir æða af stað
með sínu venjulega nöldri og
segja: „Hefði ekki verið ábyrgara
að stuðla að gjaldeyrissparnaði,
sparifjármyndun á íslandi og
minni þenslu í bifreiðainnflutn-
ingi? Og lækka lyf og matvöru í
staðinn fyrir dýra bíla.“ Klippari
vill vara við neikvæðum röddum
af þessum toga.
-óg
DJÚÐVIUINN
Málgagn sósíalísma, þjóðfrelsis
og verkalýðshreyfingar
Útgefandi: Útgáfufólag Þjóðviljans.
Ritstjórar: Árni Bergmann, össur Skarphéðinsson.
Ritstjórnarfulltrúi: Oskar Guðmundsson.
Fréttastjórl: Valþór Hlöðversson.
Blaðamenn: Álfheiður Ingadóttir, Garðar Guðjónsson, Guðlaugur
Arason, Ingólfur Hjörleifsson, Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gíslason,
Mörður Árnason, Sigurdór Sigurdórsson, Sigurður Á. Friðþjófsson,
Víðir Sigurðsson (íþróttir), Þröstur Haraldsson.
Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar.
Ljósmyndir: Einar Ólason, Sigurður Mar Halldórsson.
Útlit: Sævar Guðbjömsson, Garðar Sigvaldason.
Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir.
Skrifstofustjóri: Jóhannes Harðarson.
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Magnús Loftsson.
Útbreiðslustjóri: Sigríður Pétursdóttir.
Auglýsingastjóri: Sigríður Hanna Sigurbjörnsdóttir.
Auglýsingar: Ásdís Kristinsdóttir, Guðbergur Þorvaldsson, Olga
Clausen.
Símvarsla: Katrín Anna Lund, Sigríður Kristjánsdóttir.
Húsmóðir: Ölöf Húnfjörð.
Bílstjóri: Jóná Sigurdórsdóttir.
Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Björnsson.
Utkeyrsla, afgreiðsla, auglýsingar, ritstjórn:
Síöumúla 6, Reykjavík, sími 681333.
Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verð í lausasölu: 40 kr.
Helgarblöð: 45 kr.
Áskriftarverð á mánuði: 450 kr.
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 6. mars 1986