Þjóðviljinn - 14.03.1986, Blaðsíða 2
FRETTIR
iTORGHD.
Fjármögnunarleiga? Skyldi ég
geta framleigt þeim lífeyris-
sjóöslánin?
Einir sjö af ellefu bæjarfulltrú-
um í Hafnarfirði gefa ekki
kost á sér í bæjarstjórnarkosning-
unum nú í vor.
Rannveig Traustadóttir,
bæjarfulltrúi Alþýðubandalags-
ins, gefur ekki kost á sér en
Magnús Jón Árnason verður í
fyrsta sæti. í öðru sæti fyrir Al-
þýðubandalagið er Bergljót
Kristjánsdóttir.
Miklar sviptingar eru hjá Sjálf-
stæðisflokknum en hann hefur
ekki enn birt framboðslista sinn.
Er búist við að listinn verði birtur
í næstu viku. Samkvæmt heimild-
um Þjóðviljans eru fimm efstu
sæti listans skipuð Árna Grétari
Finnssyni, Sólveigu Ágústsdótt-
ur, Hjördísi Guðbjörnsdóttur,
Jóhanni Bergþórssyni og Ásu
Maríu Valdimarsdóttur. I sjötta
sæti verður svo Lúxusritstjórinn
Þórarinn J. Magnússon. Þau
Hjördís, Jóhann, Ása María og
Þórarinn eru öll ný á listanum en
út falla bæjarfulltrúarnir Einar
Th. Matthíesen, Ellert Borgar
Þorvaldsson og Haraldur Sig-
urðsson.
Markús Á. Einarsson, bæjar-
fulltrúi Framsóknarflokksins gef-
ur ekki kost á sér aftur og enn
hefur ekki fundist maður í stað-
inn fyrir hann. Arnþrúður Karls-
dóttir var í öðru sæti í síðustu
kosningum, en hún er nú stödd í
Noregi. Að sögn mun hafa verið
lagt hart að Níelsi Árna Lund,
ritstjóra Tímans, að gefa kost á
sér en hann afþakkað, enda hefur
hann lýst því yfir að hann stefni á
þingsæti. Þá mun Ágúst B. Karls-
son hafa neitað að gefa kost á sér.
Berast því böndin að Garðari
Steindórssyni.
Hjá krötum er stærsta
breytingin sú að Hörður Zophan-
íasson gefur ekki kost á sér. Guð-
mundur Árni færist því í fyrsta
sæti og Jóna Ósk Guðjónsdóttir
skipar annað sætið hjá Alþýðu-
flokknum.
Vilhjálmur Skúlason hjá
Óháðum borgurum mun ekki
fara fram og er talið líklegt að
Árni Gunnlaugsson, stofnandi
flokksins komist aftur í öruggt
sæti hjá flokknum.
Þá er enn óráðið hvort konur
muni bjóða fram sérstakan
kvennalista en að sögn Ingibjarg-
ar Guðmundsdóttur hafa þær
ekki enn tekið endanlega ákvörð-
un þar að lútandi, en mikill áhugi
sé fyrir hendi.
Landsbyggðin
Drög að nýrri
stjómarskrá
M. a. lagt til að landinu verði skipt upp í5fylki
og að þjóðkjörnirþingmenn verði 46 að tölu
Frá blaðamanni Þjóðviljans á Ak-
ureyri:
Samtök um jafnrétti milli
landshluta kynntu fjölmiðlum
í fyrradag hugmyndir sínar um
nýja stjórnarskrá fyrir Island.
Þar kennir margra grasa og má
m.a. nefna breytingar á kjöri
þingmanna og skiptingu landsins
í kjörsvæði. Gert er ráð fyrir að
þjóðkjörnir þingmenn -verði 46
talsins. 31 þeirra sitji í neðri
deild, kosnir í 5 fylkjum með sem
jöfnustu vægi atkvæða en 15 sitji í
efri deild, kosnir 3 úr hverju
fylki.
Samtökin um jafnrétti milli
landshluta voru stofnuð á Akur-
eyri vorið 1982 og var meginást-
æða stofnunarinnar „yfirgangur
vissra aðila á miðstjórnarfundi
Framsóknarflokksins það ár“,
eins og komist var að orði í gær.
Síðan hafa verið haldnir á annað
hundrað fundir víða um land þar
sem hugmyndir hafa verið rædd-
ar og kynntar. Nú starfa í samtök-
unum 50-60 deildir víða um land.
Á fundinum hér á Akureyri í
gær kom fram að áhugi alþingis-
manna fyrir samtökunum hefði
verið furðu lítill. Einn þing-
manna, Ólafur Þ. Þórðarson
hefði þó haft samband og boðist
til að bera málið fram á Alþingi í
eigin nafni. Hann sagði í samtali
við tíðindamann Þjóðviljans í gær
að hér væri um að ræða mál sem
varðaði fólk í öllum stjórnmála-
flokkum. Hann kvaðst því
mótfallinn að breytá kosninga-
lögunum einum sér heldur yrði
að taka stjórnarskrána í heild til
endurskoðunar.
í stjórn Samtaka um jafnrétti
milli landshluta eiga sæti Pétur
Valdemarsson Akureyri, Árni
Steinn Jóhannsson Akureyri,
Helga Eiðsdóttir Akureyri,
Brynja Lárusdóttir Dalasýslu,
Magnús Einarsson Egilsstöðum
og Hólmfríður Bjarnadóttir
Hvammstanga.
-GA
Valdímar Elíasson var að koma af netum og sat frammí stýrishúsi að borða
fiskisúpu. „Það jafnast ekkert á við almennilega fiskisúpu", sagði hann og
fáraðist ekkert yfir rigningunni. En aflahrotan heldur áfram hér við Suðvestur-
land. Sjórinn iðar af lífi, þó stéttabræður íslenskra sjómanna við Lófót og
Grænland beri ekki jafn mikið úr býtum, sökum sjávarkulda á þeim slóðum.
Mynd E.ÓI.
Fjármálaþjónusta
Fjar-
mögnunar-
leiga á
íslandi
Fjármálafyrirtœkið
eiganditækja. Atvinnu-
rekendur leigjendur
Nýrri tegund fjármálaþjón-
ustu, sem kallast fjármögnun-
arleiga, hefur verið komið á fót
hér á landi. Það er fyrirtækið
Glitnir hf. sem stendur að þessari
þjónustu en hún felst í því að fyr-
irtækið kaupir atvinnutæki í sam-
ráði við leigutaka og leigir honum
tækið í ákveðinn samningstíma
með rétti til framhaldsleigu í lok
hans.
Fyrirtækið, sem mun einungis
þjóna atvinnurekstri, mun fjár-
magna kaup á tækjum að fullu og
mun lausafjárstaða leigutaka því
vera óskert. Leigutaki mun þó
hafa fullan afnotarétt af tækinu
og bera allar skyldur af því.
Fyrirtækið mun aðallega þjóna
atvinnurekstri á sviði iðnaðar og
fiskvinnslu, þungavinnuvéla,
flutningstækja og tölva en nú
þegar hefur það gert um 30
leigusamninga á tölvum.
Eigendur Glitnis hf. eru Iðnað-
arbanki íslands hf., A/S Nevi,
Noregi og Sleipner UK Ltd.,
London, en fyrirtæki þetta er
fjármagnað með ábyrgðarfé lagt
til af A/S Nevi auk hlutafjár en
það er nýmæli hérlendis. Á inn-
lendum fjármagnsmarkaði mun
fyrirtækið fjármagna sig með
skuldabréfaútboði en fjáröflun-
arleiðir erlendis verða notaðar
eftir því sem reglur kveða á um
hverju sinni.
-K.Ól.
Embœttisveiting
Kvennarannsóknir vanmetnar
Áhugahópur um kvennarannsóknir mótmœlir embœttisveitingu menntamálaráðherra i stöðu
lektors í íslenskum bókmenntum við Háskólann
Afundi Ahugahóps um íslensk-
ar kvennarannsóknir í febrú-
ar sl. var samþykkt ályktun vegna
nýlegrar embættisveitingar í
stöðu lektors í íslenskum bók-
menntum við heimspekideild Há-
skólans.
í ályktuninni segir m.a. „Hóp-
urinn telur að stöðuveitingin
endurspegli fordóma, vanmat og
virðingarleysi á kvennarann-
sóknum og konum.
Með aukinni menntun kvenna
eru konur nú í fyrsta sinn í að-
stöðu til að hafa mótandi áhrif á
viðfangsefni og rannsóknarað-
ferðir hinna ýmsu fræðigreina.
Kvennarannsóknir eru við fjöl-
marga háskóla og rannsókna-
stofnanir taldar frjóvgandi afl í
fræðilegri umræðu, vegna þess
endurmats og endurnýjunar á
forsendum, kenningum og vinnu-
brögðum sem þær hafa kallað á.“
„Áhugahópurinn batt miklar
vonir við umrædda stöðuveitingu
vegna þess að áhugasamir stúd-
entar um kvennarannsóknir í ís-
lenskum bókmenntum fengju þá
hæfan leiðbeinanda við cand.
mag. ritgerðir sínar þar sem
Helga Kress er brautryðjandi á
sviði kvennarannsókna hér á
landi og hefur stundað þær um
árabil. Cand. mag. ritgerðir kalla
á umtalsverðar rannsóknir,
þannig að þær hefðu orðið veru-
leg lyftistöng fyrir kvennarann-
sóknir á bókmenntastiginu.
Með því að ganga fram hjá
Helgu Kress við umrædda stöðu-
veitingu var þetta einstaka tæki-
færi til að styrkja kvennarann-
sóknir ekki notað þrátt fyrir það
að Helga væri sá umsækjandi sem
heimspekideild, að fengnu áliti
dómnefndar, mælti eindregið
með“. -K.Ól.
Hafnarfjörður
Bæjarstjómin tekur
stakkaskiptum
7af 11 bæjarfulltrúum gefa ekki kostá sér. MagnúsJón Arnason íefsta sæti hjá
Alþýðubandalaginu. Mestar sviptingar hjá Sjálfstæðisflokki
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 14. mars 1986