Þjóðviljinn - 14.03.1986, Side 6

Þjóðviljinn - 14.03.1986, Side 6
HEIMURINN Forsetinn, annar frá vinstri, ræöir viö stjórnarandstöðuleiötoga á óvæntum hádegisverðarfundi í forsetahöllinni. Suður-Kórea Einræðið í hættu? Forseti landsins reynir að lœgja óróaöldur ílandinu, hann vill nefnilega veraforsetiþegar Olympíuleikarnir verða settir í landinu eftir tvö ár l>aö leið ekki langur tími t'rá því að einræðisherrann, Ferdinand Marcos hrökklaðist frá völdum á Filippseyjum, þar til annað land í Asíu fór að finna fyrir áhrifum athurða á Filippseyjum. I Suður- Kóreu tók forsetinn, Chun I)oo Hwan, sig til og lappaði upp á stjórnkerfi sitt. í tvær vikur síðasta mánaðar hafði 1 iwan handtckið andstæð- inga sína svo hundruðunt skipti. En þegar fór að hitna í kolunum á Filippseyjum og séð var hvert stefndi breytti Hwan snarlega um stefnu. Hann leysti 270 stjórnar- andstæðinga úr haldi, þar á með- al Kim Dae Jung, einn helsta andófsmanninn í landinu. Hann hafði verið í stofufangelsi í 12 daga. Síðan bauð forsetinn þrem- ur leiðtogum stjórnarandstöð- unnar í hádegisverð á forsetasetri sínu þar sem hann viðurkenndi m.a. að aðgerðir stjórnar sinnar heföu ef til vill verið heldur harkalegar. Óvænt I fádegisverðarboðið kom stjórnarandstæðingum alveg í opna skjöldu. Aðeins nokkrum dögum fyrr hafði Hwan skipað lögreglunni að kveða niður aö- gerðir stjórnarandstæöinga sem höfðu haft sig mikið í frammi við að fá fram breytingar á stjórnar- skrá landsins. Aðgerðirnar voru í formi undirskriftaherferðar sem Nýi Kóreanski Demókrataflokk- urinn (NKDP) hafði staðið fyrir. Þessu haföi stjórnin svarað á þann veg að engar breytingar yrðu á stjórnarskránni fyrr en eftir Ólympíuleika og forseta- kosningar í landinu. 1988. En á hádegisverðarfundinum meö formanni NKDP og öðrum leiðtogum stjórnarandstöðunnar bauðst Hwan til þess aö láta semja nýja stjórnarskrá, en ekki fyrr en eftir 1988. Á vissan hátt var þessi tilkynning forsetans mikil breyting frá fyrri stefnu, Kim Dae Jungsagði hinsvegar að þær væru aðeins tæknilegar. „Það hafa í raun og veru ekki orðið neinar verulegar breytingar á pólitískri stöðu mála í landinu," sagði Jung. Stjórnarandstaðan svaraði tilboði Hwans á þá leið, að ef Hwan breytti stjórnar- skránni á þá lund sem hann vildi, yrði útkoman sú að Hwan gæti valið sér eftirmann. Ástæðan fyrir því er sú að samkvæmt nú- verandi stjórnarskrá er sérstakt kosningaráð sem kýs forseta og flokkur Hwans, Réttlætisflokkur Demókrata, hefur þar öll ráð í hendi sér. Þessu svaraði Hwan á þann veg að forsetinn sem kjörinn yrði 1988 skyldi lofa að halda nýjar kosningar 1989, eftir nýjum regl- um. En stjórnarandstaðan eins og hún leggur sig hefur þegar hafnað þessurn málamiðlunar- tillögum forsetans varðandi stjórnarskrána. Álit Kim Dae Jung vará þessa leið:,.Hwan talar um að láta af völdum í mars, 1988 og það sem síðan eigi að gerast. En það kemur honum bara ekk- ert við, hvað þá gerist." Mistök Marcosar Það stendur hins vegar eftir að sáttatillögur forsetans sýna mikla breytingu frá þeirri harðlínu- stefnu sem hann fylgdi gagnvart stjórnarandstöðunni. Sú ályktun er því dregin af þessari hugar- farsbreytingu hans að honum sé mikið í mun að forðast þau „mis- tök" sem Marcos gerði. Hwan mun hafa minnst á þessar vanga- veltur sínar á fyrrnefndum há- degisverðarfundi. Hann á að hafa sagt að hann vildi ekki að Suður- Kórea yrði „aðrar Filippseyjar". Hwan er fyrrum hershöfðingi. Hann hrifsaði til sín völdin sem slíkur árið 1980. Og hann ætlar að leggja allt í sölurnar til þess að vera við völd í landinu þegar Ól- ympíuleikarnir verða settir, 1988, í höfuðborginni, Seoul. Þá er einnig ætlunin að forsetakosn- ingar verði. Það má segja að á vissan hátt hafi atburðirnir á Filippseyjum orðið forsetanum óvænt lexía. En um leið hafa atburðir þar orðið stjórnarandstæðingum hvatning til að draga úr einræðisvaldi for- setans. Nú spyrja margir sig hvort einræði eða lýðræði hafi betur í Suður-Kóreu á næstu á árum. Noregur Olían veldur vandræöum Osló — Tilkynnt var í Noregi í gær að norska stjórnin hygðist auka mjög skattheimtu og minnka framlög frá hinu opin- bera til ýmissa mála. Þetta verður gert til þess að mæta tekjutapi ríkisins vegna hruns olíuverðs á alþjóðamarkaði. Norðmenn framleiða næstum eina milljón tunna af Norðursjáv- arolíu á dag og hafa þeir farið mjög illa út úr þeirri 30 -40 % verðlækkun sem orðið hefur á hráolíu undanfarna þrjá mánuði. Fjármálaráðherrann, Rolf Prest- hus sagði í gær að tekjur af olíu- og gaslindum gætu minnkað úr 6,7 milljörðum dollara árið 1985 í 2,1 milljarð dollara á þessu ári ef verð einnar tunnu af hráolíu héldist áfram í 14 dollurum. Talsmaður fjármálaráðuneyt- isins sagði í gær að lögð hefðu verið drög að fjárhagsáætlun þessa árs áður en verðfall varð á olíu. Tekjur af olíu og gasi voru um það bil 20 % af áætluðum heildartekjum ríkisins fyrir árið 1986. I þessari áætlun vargert ráð fyrir að meðaltalsverð yrði 25 dollarar á tunnuna og að gengið yrði 7,25 norskar krónur gagnvart dollara. í dag er olíu- tunnuverðið hins vegar komiö niður í 14 dollara og dollarinn er kominn niður í 7 norskar krónur. „Þetta þýðir að verð á olíu í norskum gjaldmiðli hefur lækkað um nær helming", sagði talsmað- ur fjármálaráðuneytisins, Steen Bruun. „Hinir nýju skattar eru til þess að stoppa upp í þetta gat. Með þeim áætlum við að ná inn 285 milljónum dollara, þetta verða tekjuskattur og lækkun í útgjöld- um ríkisins", sagði Bruun. Gert er ráð fyrir að með þessum áætl- unum hækki verð á eldsneyti, tó- baki, áfengi og kjöti. Kvenfyrirlitning „veikalýðs- forsetans“ frá sjö konum íHveragerði og á Selfossi Við undirritaðar mótmælum harðlega þeim hroka og kvenfyr- irlitningu sem kemur fram í um- mælum Ásmundar Stefánssonar í viðtali við Þjóðviljann sem birtist þann 12. mars s.l. í tilefni 70 ára afmælis ASÍ. Þar ræðir hann í tví- gang um einn félaga sinn í forystu Alþýðubandalagsins sem „konu ritstjórnarfulltrúans". Ásmundi ætti að vera fullkunnugt um að þessi „kona ritstjórnarfulltrúans" hefur bæði nafn og stöðu. Þjóð- viljinn birtir kannski næst viðtal við „eiginmann framkvæmda- stjórans". Það er hörmulegt til þess að vita að kjaramál og lífsaf- koma kvenna skuli vera að miklu leyti í höndum manns sem sýnir konum slíka lítilsvirðingu. Ásmundur Stefánsson forseti ASÍ telur þann ávinning helstan til handa konum af nýgerðum kjarasamningi að nú geti konur verið heima hjá veikum börnum „sínum" í 7 daga á ári. Þetta ákvæði jafnar líklega launamis- mun karla og kvenna að áliti „eig- inmannsins". Svo virðist sem full ástæða sé til að benda sama „eiginmanni" á að þverpólitísk verkalýðsforysta er ekki sama og Alþýðubandalagið. Alþýðu- bandalagið sem flokkur ber ekki ábyrgð á þessum kjarasamning- um og einstakir félagar þess hafa fulla heimild til að gagnrýna bæði samninginn og verkalýðsfor- ystuna sem gerir slíkan samning. Það sama gildir um dagblaðið Þjóðviljann, sem fyrst og fremst er málgagn sósíalismans. Sem slíkur hefur hann fjallað um títt- nefndan samning, eina dagblaðið sem reynt hefur að gægjast undir þá blekkingarhulu sem sveipað hefur verið um samninginn til að villa um fyrir launafólki. Fyrir það á Þjóðviljinn þakkir skildar. Því skal harðlega mótmælt sem fram kemur í fyrrnefndu viðtali að blaðið hafi með þessu gerst málsvari „þröngs hóps innan Al- þýðubandalagsins". Þvert á móti má af viðtalinu og samningnum ljóst vera að „eiginmaður fram- kvæmdastjórans" sé fulltrúi af- skaplega þröngs hóps sem sé gjörsamlega slitinn úr tengslum við raunveruleika hins almenna lífs í landinu, venjulegs fólks í þeirri hreyfingu sem hann er „kosinn" til forystu fyrir. Anna Kristín Sigurdardóttir, formaður Alþýðubandalagsfélags Selfoss Kolbrún Guðnadóttir, varabæjarfulltrúi AB á Selfossi Auður Guðbrandsdóttir, hreppsnefndarfulltrúi AB Hveragerði Gyða Sveinbjörnsdóttir, í stjórn AB á Selfossi Þorbjörg Þorkelsdóttir, 6. sæti á lista AB Selfossi Bryndís Sigurðardóttir, gjaldkeri AB Selfossi Ingibjörg Sigmundsdóttir, gjaldkeri AB Hveragerði Davíð Oddsson borgarstjóri Þjóðviljinn með hálmstrá Dagblaðið Þjóðviljinn hefur haldið áfram að hamast með sérkennilegum hætti vegna ó- sannindafrétta þess um hækkun á húsaleigu í horgarhúsnæði, þar sem gefið var í skyn, að allar lciguíbúðir borgarinnar, tæpicga 1000 að tölu, hefðu hækkað um 67%. Þetta hefur verið rekið ofan í blaðið, sem situr uppi með skömmina. Þá er næsta hálmstráið gripið og það verður að stórum staur í höndum Þjóðviljans. Því er hald- ið fram með stríðsfyrirsögnum í Þjóðviljanum, að ég hafi sagt ósatt, þegar ég upplýsti, að inni- falið í húsaleigu í hinum um- ræddu íbúðum væri liiti og raf- magn. Þetta er auðvitað hár- togun hjá Þjóðviljanum. sem blaðið leyfir sér að slá upp með þeim hætti, sem það hefirgert, og endurtekur ósmekkleg svigur- mæli sín og persónulegar svívirð- ingar í leiðurum. Upphaf þessa moldviðris má rekja til hækkunar á framleiguí- búðum að Vatnsstíg 11, en um- ræðan hefur síðan snúist um hækkun á húsaleigu í tveimur framleiguhúsum, Vatnsstíg 11 og Síðumúla 21. Hvað Vatnsstíg lj varðar þá er allur orkukostnaður, bæði hiti og rafmagn, innifalinn í hinni lágu húsaleigu, reyndar var sums staðar ekki nema 2000 kr. greiðslu að ræða, en annars stað- ar um kr. 3100 og hafði ekki hækkað í eitt ár. í Síðumúlanum er innifalið í húsaleigu, sem nú er kr. 4200, allur hitakostnaður og sameiginlegur raforkukostnaður. Af þessu sjá menn hvert tilefnið er til hinna stóryrtu yfirlýsinga Þjóðviljans í leiðurum og 5 dálka fyrirsagnar, þarsem undirritaður er lýstur ósannindamaður. Það er aumt að horfa upp á þetta blað verða sér til skammar dag eftir dag. Davíð Oddsson ALÞÝDUBANDAIAGHE) Fundur um sveitastjórnarmál Alþýðubandalagið í Borgarnesi boðar til fundar sunnudaginn 15. mars kl. 15.00. Fundarefni: Undirbúningur sveitastjórnarkosninga. M.a. sagðar fréttir af prófkjöri AB í Borgarnesi. Fjölmennið. Stjórnin. 6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.