Þjóðviljinn - 14.03.1986, Qupperneq 14
Gísli
Sigurðsson sýnir á Kjarvals-
stöðum. Opið kl. 14-22til 16.
mars.
Gerið
gangskör að því að líta inn í
Gangskörá Bernhöftstor-
funni. Opið virka daga kl. 12-
18 og um helgar frá 14-18.
Verkstæðið V
í Þingholtsstræti 28, opið virka
daga kl. 10-18 og LA kl. 14-
16.
Mokka
er með sýningu á verkum
Helga Arnar Helgasonar.
Listasafn
Einars Jónssonar. Opið LA og
SUkl. 13.30-16.00. Garður-
inn opinn kl. 10-17 daglega.
Bogasalurinn
skartar enn verkum íslenskra
hannyrðakvenna. Opið dag-
legafrákl. 13.30-16.00.
Þjóðsagnamyndir
Ásgrímss Jónssonar er til
sýnis i Norræna húsinu, en á
LA verður opnuð þar sýning
kl. 15.00.
Olíuverk, vatnslitamyndirog
teikningar. Opið daglega frá
14-19 til 6. apríl.
Hafnarborg
íFirðinum, verkíeigu
menningar- og listastofnunar
Hafnarfjarðar. Opin 14-19.
LýkurSU.
Ásgrímssýning
ÍÁsgrimssafni Berg-
staðastræti 74. Eldgosa-
myndir, opiö SU, ÞR og Fl kl.
13.30-16.00. Til aprílloka.
Kjarval
ertil sýnis í Listasafni íslands.
ÞR,FI,LAogSUkl. 13.30-
• 16.00.
Kjartan
Guðjónsson með sýningu í
Gallerí íslensk list. Opið í dag
frá kl. 9-17 en um helgina frá
14-18. Sölusýning. Lýkur 16.
mars.
Daníel Guðjónsson sýnir í Al-
þýðubankanum á Akureyri.
HSKIMÁL
Framhald af bls. 9
ný vinnubrögð í tæknivæddu
þjóðfélagi.
Punktamatið
Síðan ríkisr íat sjávarútvegsins
tók til starfa hafa ýmsar skrítnar
hugmyndir um fiskmat skotið
upp kollinum, allar komnar frá
mönnum sem aldrei hafa komið
nálægt fiskmati. Þeim hefur ekki
skilist að fiskmat er sérstök fræði-
grein sem auk þess krefst mikillar
þjálfunar. Ein þessara hugmynda
er sú að taka upp svokallað
punktamat sem hefur í för með
sér mikla skriffinnsku og marg-
faldan kostnað/'-
i Allt gæðamat á fiski byggist á
höfuðdráttum á tvennu. Annars-
vegar á eðlisgæðum þess fisks
UM HELGINA
Hústilsölu
Samsýning arkitektafrá
Bandaríkjunum, Svissog Por-
túgal í Ásmundarsal við
Freyjugötu, heitirHústil
sölu, hefst SU, stendur út
mars.Opið 14-22.
Vilhjálmur
Vilhjálmur Vilhjálmsson sýnir í
Listasafni ASÍ við Grensás-
veg. Stendurtil 23. mars, opið
virka 16-21, helgar 14-21.
Víða slettir flórkýrin
hala sínum
Útivist
Tvær útivistarferðir á SU:
13.00: Skíðaganga Bláfjöll-
Grindaskörð, og Skúlatún-
Óbrynnishólar. Brottför frá
bensínsölu.BSl.
Hananú
Hananú-klúbburinn, Kópa-
vogi: vikuleg laugar-
dagsganga hefst frá Digra-
nesvegi 12 kl. 10. Allir Kópa-
vogsbúar velkomnir.
Þýskar kvikmyndir
Þýsk kvikmyndavika hefst
FÖ: 21.30 með Die Weisse
Rose. Á LA verða sýndar
myndirnar Die Weisse Rose
og Messer im Rucken, á SU
Die Weisse Rose og Die Ehe
der Maria Braun, á MÁ Lola
og ParisTexas.
Makalaust ball
Árshátíð Félags makalausra
á LA í Skipholti 70. Miðarfást
á skrifstofu í kvöld 19-21. Árs-
hátíðin hefst 19.00, opnað
fyrir ballgesti kl. 23.00.
Leiklistarþing
Leiklistarþing Leiklistarsam-
bandsins í Þjóðleikhúskjallar-
anumSU 10-17, MÁ14-17.
Umræðuefni:Áaðhalda
áfram að leika á íslensku?
Framsögumenn: Sveinn Ein-
arsson, Helga Bachmann,
Þórunn Sigurðardóttir, Gísli
RúnarJónsson.
Tónlistarbandalag
Fyrsti aðalfundurTónlistar-
bandalagsins LA. 14.00 á
efri hæð Gauks á Stöng. TB(
var stofnað fyrir ári, og í því
eru nú 35 félög og samtök, í
þeim yfir 10 þúsund manns.
Lúter
Á vegum guðfræðideildar Há-
skólans heldur Kjell Ove
Nilsson frá Nordiska Ekum-
eniska Institutet í Uppsölum
tvo fyrirlestra í næstu viku.
Um „Luthers teologiska bety-
delse i dag“ MÁ: 10.15, og um
„Várldsekumenik pá gras-
otsnivá" ÞR: 10.15, báðiri'5.
stofu HÍ. Þriðjudagskvöldið kl.
20.30 talar hann í Bústaða-
sem metinn er og hins vegar á
göllum sem orðið hafa á hráefn-
inu við veiðar eða í meðferð í
landi. Séu eðlisgæðin í lagi frá
náttúrunnar hendi og hafi ekki
rýrnað í meðförum á sjó eða í
landi þá kemst viðkomandi fiskur
í I. gæðaflokk. Hafi hins vegar
eitthvað farið úrskeiðis, hvort
sem er af völdum náttúru eða
meðferðar þá dæmist fiskur niður
frá fyrsta gæðaflokki í II., III.,
eða IV. gæðaflokk eftir því hvað
gallar sem fram koma eru margir
og alvarlegir. Hér er beitt
ákveðnum reglum sem matsmað-
urinn verður að kunna.
Komist fiskur í engan framan-
greindra flokka þá dæmist hann
frá vinnslu til manneidis. Þá verð-
ur matsmaður að kunna skil á því
í hvers. konar vinnslu gallaður
fiskur getur farið. Við allt gæða-
mat er nauðsynlegt að geta haldið
ákveðnum hraða svo gæðamatið
Yfirlýsing varðandi
Vögguvísu
frá Ólafi Hauki Símonarsyni
kirkju um „Folkkyrka og krist-
an troíNorden".
Skólaskák
Skákkeppni framhalds-
skóla, fjögurra manna sveit
frá hverjum, sjö Monrad-
umferðir, umhugsun klukkut-
ími á mann. 1. og 2. umferð
FÖ: 19.30-23.30,3., 4. og5.
umferð LA: 13.00-19.00,6. og
7. umferðSU: 13.00-17.00.
T eflt í húsnæði TR, Grensás-
vegi 46.
Frístæll
Úrslitakeppni í íslandsmeist-
arakeppninni í frjálsbrags-
dönsum ÍTónabæ FÖ, kvöld.
’78
Bleikt herrakvöld á vegum
Samtakanna ’78 að Brautar-
holti 18 LA.
Betri er hálfur hleifur
en ekki
Handbolti
Lokaumferð í fjórum yngri
flokkanna, LAogSU.
3.flokkur kvenna og karla, 4.
og 5. flokkur karla. Keppt í
Reykjavík, Hafnarfirði, Digra-
nesi, Vestmannaeyjum,
Garðabæ, Hveragerði, Njarð-
vík, á Seltjarnarnesi, Seyðis-
firði, Selíossi, Akureyri og að
Varmá. HK-ÞórVe. bikar:
keppni karla Digranes MÁ
20.00.
Körfubolti
Úrslitakeppni 2. deildar karla,
Skallagrímur-Snæfell, Borg-
arnesLA 14.00.
Blak
Úrslitaleikur íslandsmótsins í
karlaflokki, Þróttur-ÍS Haga-
skóli FÖ19.00. Úrslitakeppni
neðstu liða, Fram-Þróttur N.
Hagaskóli FÖ 20.30 og LA
16.00. Bikarkeppni karla,
Þróttur R.-Víkingur, Haga-
skóliSU20.15.
Frjálsar
Öldungamót innanhúss í um-
sjón FrjálsíþróttadeildarÁr-
manns. Baldurshagi LA
14.00-16.00 og Ármannshús
SU11.20-13.00. Skráningá
staðnum.
Badminton
Unglingameistaramót ís-
lands, Laugardalshöll LAog
SU.
Skíði
ÍR-mótísvigi karla, kvennaog
unglinga 15-16 ára. Bikarmót
unglinga 13-14 ára í alpa-
greinum á Dalvík. Ganga og
stökk fullorðinna og unglinga
áSiglufirði.
Júdó
íslandsmeistaramót JSÍ,
seinni hluti, KHÍ, LA14.00.
Undirritaður vill taka eftirfar-
andi fram varðandi sönglagið
„Vögguvísa".
1) Kannað var sérstaklega hjá
starfsmanni Sönglagakeppninnar
áðuren lagið var sent inn, hvort
það bryti með einhverjum hætti í
bága við reglur keppninnar, að
lag hefði heyrst áður í leiksýn-
ingu. Starfsmaður keppninnar
upplýsti að þó slík birting hefði
átt sér stað væri lagið fyllilega
gjaldgengt í keppninni. Starfs-
menn Sönglagakeppninnar stað-
festa að þessara upplýsinga hafi
verið leitað og að þau svör hafi
verið gefin, að ekkert væri athug-
avert við slíka birtingu; lagið væri
samt sem áður gjaldgengt.
2) Lagið, einsog það var flutt í
leiksýningunni, var um það bil
þriðjungi styttra en það er í
keppninni og tæplega þriðjungur
textans var aldrei fluttur á sviði
og heldur ekki í tengslum við sýn-
inguna.
3) Einungis brot af laginu hefur
verið leikið í sjónvarpi til kynn-
ingar á leiksýningunni, þar er það
borið fram sem hluti af lengra
leiknu atriði, enda samræmist
það reglum keppninnar eftir því
sem upplýst var fyrst af starfs-
mönnum iceppninnar, og síðar af
lögfræðingi Sjónvarpsins, Baldri
Guðlaugssyni.
4) f Svæðisútvarpi á Akureyri
var einungis flutt brot af undir-
leik lagsins, án söngs, án texta,
enda var textinn ekki til orðinn
þegar viðkomandi brot var flutt
inní kynningarpistli frá leikhús-
inu. Laglína kom þannig ekki
fram.
5) Enginn fótur er fyrir því að
lagið hafi verið leikið á Rás 2.
Slíks er hvergi getið í skýrslum
samkvæmt upplýsingum Þorgeirs
Ástvaldssonar forstöðumanns
rásarinnar, enda hefur engin
greiðsla komið til höfundar fyrir
slíka birtingu. Hafi slík birting
einhverra hluta vegna átt sér stað
eftir að sýningum á leikritinu
lauk, annaðhvort á hluta lagsins
sem leikið var á Akureyri eða því
öllu, þá hefur það verið flutt án
leyfis eiganda höfundar- og flutn-
ingsréttar, þ.e.a.s. stolin upp-
taka, því í samningi undirritaðs
við Leikfélag Akureyrar er það
strangt tekið fram að undirritað-
ur sé einn eigandi að öllum tón-
listarupptökum þarsem viðkom-
andi undirleikur heyrist og hafi
einn óskorðaðan ráðstöfunarrétt
á þeim. Leikfélag Akureyrar átti
ekki, og á ekki, neinn rétt á að
hafa undir höndum upptökur á
tónlistinni eftir að sýningum á
viðkomandi leikriti lauk. Er
þetta bundið í samning undirrit-
aðan af stjórn leikhússins.
6) Sá upptökumaður, Jónas R.
Jónsson í Hljóðrita h.f., sem
vann að því ásamt höfundi og út-
setjara, Gunnari Þórðarsyni, að
lengja lagið og ganga frá því á
segulband áðuren það var sent
inní keppnina, vissi að lagið hafði
heyrst í leiksýningu á Akureyri.
Jónas R. Jónsson var síðar skip-
aður í þá dómnefnd sem valdi
lagið til keppninnar. Þessir
menn, útsetjari og dómnefndar-
maður, þekktu báðir feril lagsins
og sá hvorugur ástæðu til að ætla
að það væri ekki gjaldgengt í
keppninni.
7) Vitanlega er á margra vit-
orði hverjir eru höfundar þeirra
laga sem valin hafa verið í úrslita-
lotu Sönglagakeppninnar, enda
fer ekki hjá því að tugir, ef ekki
hundruð manna komi við sögu
undirbúnings keppninnar, vinni
að textagerð, upptökum o.s.frv.,
eða hafi heyrt lögin leikin meira
eða minna opinberlega. En um
það ætti að vera samstaða að láta
slíkt ekki hafa áhrif á val laga til
keppninnar, jafnvel þó upplýs-
ingar leki út eða séu fyrir hendi
um höfunda; ekki á meðan lögin
uppfylla öll önnur skilyrði til að
teljast gjaldgeng í keppninni. Það
hlýtur að skipta meginmáli að
lögin séu góð, að þau auki veg og
virðingu sönglagahöfunda og
flytjenda.
Með þökk fyrir birtingu
Ólafur H. Símonarson
verði ekki of dýrt í framkvæmd
en sé þó öruggt. Góður matsmað-
ur verður því að vera eftirfarandi
kostum búinn. Hann þarf að vera
fljótur að hugsa og framkvæma.
Hann verður að hafa góða sjón
og liprar hendur, auk þess þarf
hann að hafa þjálfaða skapgerð.
Allt þetta er nauðsynlegt til að
gæðamatið sé öruggt og ekki of
dýrt í framkvæmd. Þegar litið er
yfir farinn veg á þessu sviði sl. 80
ár, þá verður ekki annað sagt en
þessi framkvæmd hafi tekist
sæmilega vel.
Aðferð faranleikans
Ég geng út frá því sem gefnu að
ekki séu til á íslandi svo illa gefnir
fiskframleiðendur að þeir gangi
inn á það að taka upp punktamat
við útflutningsmat, því það hefði
í för með sér margföldun á mats-
kostnaði. Hinsvegar er nú talað
um að koma þurfi á punktamati
við ferskfiskmatið. Þar greiðir
ríkissjóður kostnaðinn, og þegar
tillaga um þetta kemur frá
mönnum sem titlaðir eru sérfræð-
ingar á einhverju sviði og gefin
aðstaða til breytinga, þó þeir beri
ekkert skynbragð á fræði-
greinina, fiskmat, þá getur verið
hætta á ferðum ef fjármálavaldið
sefur á meðan framkvæmdinni er
komið á.
Ég mun þvf hér gefa lýsingu á
hinu svokallaða punktamati.
Punktamatið byggir á sömu
göllum við mat á fiski og notaðir
hafa verið. Hinsvegar felst kostn-
aðaraukinn í framkvæmdinni.
Þessir þekktu gallar eru skrifaðir
á blað og hver fær sinn tölustaf,
en töluhæðin aðskilur flokkana.
Nú er hver einstakur fiskur tek-
inn og gallar hans skrifaðir niður
en þeir kallast punktar og af þeim
er nafnið punktamat dregið.
Þegar tölustafir punktanna eru
lagðir saman þá sést í hvaða
gæðaflokk viðkomandi fiskur á
að fara. Nú framkvæmir hér einn
maður ferskfiskmatið og ákveð-
inn hraði verður að vera í matinu
svo þetta hafist undan. Ef tekin
yrði upp þessi aðferð við mat á
fiski með tilheyrandi skriffinnsku
þá tel ég að ekki dygði að tvö-
falda mannafla við matsstörf
heldur þyrfti að hafa þrjá menn
að starfi þar sem einn er nú, til að
fá sömu afköst.
Menn geta leikið sér að svona
kúnstum við skrifborð ef þeir eru
í vandræðum með að drepa tím-
ann. En þegar menn halda að
þetta sé framkvæmanlegt við
störf þá sýnir það aðeins að við-
komandi þekkir lítið til mats-
starfa.
6.3. 1986.
14 SlÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 14. mars 1986