Þjóðviljinn - 27.03.1986, Blaðsíða 21
HEIMURINN
Líbýa
Fara Bandaríkjamenn á brott?
Fréttir bárust ígœrfrá Washington að sjöttifloti
Bandaríkjamanna, sem undanfarið hefur verið við strendur Líbýu,
verði eftil vill á brott í dag
Washington — í gær var skýrt
frá því í Washington að ekki
væri ólíklegt að sjötti floti
Bandaríkjamanna sem verið
hefur staðsettur á Sirte flóa
undan ströndum Líbýu myndi
hverfa þaðan í dag.
Bandarísku fulltrúarnir sem
skýrðu frá þessu óskuðu nafn-
leyndar. Þeir sögðu að ekki væri
ólíklegt að heræfingum þeim,
sem verið hafa undan ströndum
Líbýu,verði hætt á morgun en
þær áttu að standa til 1. apríl.
Caspar Weinberger sagðí í gær að
það væri ekki óalgengt að heræf-
ingum væri lokið á undan áætlun.
Þá sagði talsmaður Hvíta hússins,
Larry Speakes, að vel gæti verið
að heræfingarnar yrðu stöðvað-
ar, þeim gæti hins vegar alveg
eins verið haldið áfram fram yfir
1. apríl.
Fulltrúar í bandaríska varn-
armálaráðuneytinu sögðu í gær
að þau lýbísku flugskeyti sem
áttu að hæfa flugvélar Banda-
ríkjamanna hefðu verið með bil-
aðan stýribúnað og hefðu því ver-
ið langt frá því að hæfa vélarnar.
Bandaríkjamenn hafa neitað að
það hafi verið ætlun þeirra að
ögra Gaddafi með því að fara inn
fyrir þau mörk sem Líbýumenn
telja sitt yfirráðasvæði. Fulltrúar
Bandaríkjastjórnar sögðu að
flest ríki viðurkenndu ekki hina
svonefndu dauðalínu við mynni
Sirteflóans og svo væri einnig um
Bandaríkjamenn. Þeir hafa verið
harðlega gagnrýndir fyrir að ögra
Lýbíumönnum að óþörfu.
Bandarískir stjórnarerindrekar
segjast óttast að Líbýumenn
muni svara fyrir sig með hermd-
arverkum í Bandaríkjunum eða
Evrópu. Það eru fleiri sem óttast
slíkt því í gær voru gerðar strang-
ar varúðarráðstafanir á flu-
gvöllum á Ítalíu og búast má við
svipuðum aðgerðum víðar í
heiminum á næstunni. Gaddafi
hefur þegar hótað að senda sjálfs-
morðssveitir til Bandaíkjanna.
Þegar Charles Redman, tals-
maður bandaríska innanríkis-
ráðuneytisins, var spurður að því
hvernig Bandaríkjamenn myndu
bregðast við ef hermdarverk, fyr-
irskipuð af Gaddafi, ættu sér stað
innan landamæra Bandaríkj-
anna, svaraði hann: „Gaddafi
verður að hafa í huga þá afstöðu
sem Bandaríkjamenn hafa lengi
haft í þessum málurn. Við getum
og munum nota okkur ýmiss kon-
ar möguleika sem við höfum ef
eitthvað slíkt kemur upp“.
Redrnan vildi ekki skýra þetta
nánar.
Eftir að átökin hófust í Sirte-
flóa lýstu Lýbíuntenn yfir að þá
Bandaríkjamenn sem sagðir eru
njósnarar í Arabalöndum en
nefna sig sérfræðinga og ráð-
gjafa, ætti að taka af lífi. Redman
sagði að Bandaríkjamenn myndu
lýsa ábyrgð á hendur Líbýu-
mönnum varðandi öryggi þeirra
100 Bandaríkjamanna sem nú
eru í Líbýu.
Líbýumenn skutu á mánudag-
inn sex flugskeytum og síðar tólf
á Bandaríkjamenn. Bandaríkja-
nienn svöruðu þessunt árásum
með því að sökkva að minnsta
kosti fjórum varðbátum og skjóta
á flugskeytastöð í bænum Sirte.
Þegar fuiltrúi varnarmálaráðu-
neytisins var spurður hvers vegna
ráðist hefði verið á varðbátana
svaraði hann: „Líbýumenn hafa
sýnt í verki árásarstefnu sína á
síðustu tveimur dögum, bæði
með flugskeytum og skipurn, og
við ætlum að verjast".
Þetta líka...
Aþena — George Schultz, utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna, hóf i
gær viðræður í gríska utanríkis-
ráðuneytinu um svipað leyti og
hinn ráðandi flokkur í Grikkland-
i.Sósíalistaflokkurinn, gagnrýndi
Bandaríkjamenna harkalega fyrir
aðgerðir þeirra við strendur Líbýu,
nefndi þær „tilraun til að koma af
stað blóðbaði".
Chandigarh, Indlandi — Lögreglan
skaut fimm öfgasinnaða Sikha og
særði aðra 15 í Punjab í gær. Út-
göngubann var sett á i borginni
eftir miklar óeirðir.
Brazzaville — Forseti Chad, Hiss-
ene Habre, og leiðtogi uppreisnar-
manna í landinu, Goukoni Quedd-
ei, ætla að setjast að samninga-
borði um helgina og ræða hvernig
binda megi enda á 20 ára borgara-
styrjöld í landinu.
Belgrað — Eitt helsta dagblaðið í
Júgóslavíu, Vecernje Novostí, birti
í gær nákvæma eftirprentun skjals
þar sem því mun vera lýst yfir að
Kurt Waldheim sé stríðsglæpa-
maður.
Manila — Þingmenn filippeyska
þingsins mótmæltu í gær harðlega
að Corazon Aquino skyldi afnema
þinghald. Var þar að finna jafnt
samstarfsaðila hennar sem ands-
tæðinga. Töldu þeir aðgerð henn-
ar fela í sér skref í átt til einræðis.
Kaíró — Yfirvöld í Egyptalandi rufu
í gær tveggja daga þögn sína og
sögðust áhyggjufull yfir þeim
átökum sem nú ættu sér stað milli
Líbýu og Bandaríkjanna. Egyptar
hvöttu báða aðila til að gæta hófs.
Bern — Fulltrúar Filippseyja eru
komnir til Sviss þar sem þeir ætla
að reyna að ná aftur þeimn sjóðum
sem Marcos kom fyrir í
svissneskum bönkum. Svissnesk
yfirvöid frystu í gær þá bankar-
eikninga sem Marcos á í Sviss og
hefur sú aðgerð vakið nokkrar
deilur þar í landi. Stjórnin á Fil-
ippseyjum ætlar að höfða mál á
hendur Marcosi til þess að
auðveldara reynist að komast yfir
það fé sem Marcos geymir á
bankareikningum í Sviss.
ERLENDAR
FRÉTTIR
HJÖRLEíIFSSOn/R E U1E R
S-Afríka
Lögreglan skýtur 10 manns
Jóhannesarborg — Lögregan í
bænum Winterweld í heima-
landi svartra, sem nefnt er
Bophuthatswana, réðist í gær
á mótmælagöngu svartra og
drap 10 manns. Þar með hafa
að minnsta kosti 30 manns lát-
ist í óeirðum víðs vegar um
landið á síðastu tveimur sólar-
hringum.
Lögreglan í Winterveld réðst
til atlögu við mótmælagönguna
og hóf skothríð, eftir því sem tals-
maður lögreglunnar f bænum
sagði. Hann sagði að gangan
hefði verið ólögleg. Um það bil
1000 manns voru handteknir og
fjöldi særðra lá eftir á götum
bæjarins. Ekki var ljóst hver til-
drög mótmælagöngunnar voru.
Fulltrúi lögreglunnar sagði að
ástæðan fyrir því að hafin var
skothríð á fólki hafi verið sú að
það neitaði að dreifa sér en henti
grjóti að öryggissveitum lögregl-
unnar. George sagðist ekki vita
hvers konar vopn hefðu verið
notuð gegn fólkinu. Bophut-
hatswana hefur hingað til verið
laust við ofbeldi í þeim átökum
sem verið hafa í landinu að und-
anförnu.
Fyrr hafði verið sagt frá því í
aðalstöðvum lögreglunnar í Pret-
oríu að 20 manns hefðu látist síð-
an í fyrradag. Þar með er ljóst að
106 manns hafa látist í átökum í
landinu frá því neyðarástandi var
aflétt, 7. mars síðastliðinn.
Neyðarástandslögunum var
aflétt í þeirri von að óeirðaöldur
myndi lægja.
Stöðugt meiri harka færist í mótmælin í S-Afríku.
Sveitarstjórnarkosningarnar
1986
Leiðbeiningar um undirbúning og framkvæmd.
1. Kjörskrá skal lögð fram.
2. Sveitarstjórnarmaður, sem ekki vill endurkjör, tilkynni það yfirkjörstjórn eigi
síðar en
3. Kjörskrá liggur frammi til
4. Framboðsfrestur rennur út
5. Yfirkjörstjórn úrskurðar, merki og auglýsir framboðslista
6. Yfirkjörstjórn lætur gera kjörseðla
7. Utankjörstaðaratkvæðagreiðsla hefst eigi síðar en
8. Kærufrestur til sveitarstjórnar vegna kjörskrár rennur út
9. Afrit af kæru sendist þeim sem kærður er út af kjörskrá fyrir
10. Sveitarstjórn boðar kæruaðila á fund eigi síðar en
11. Sveitarstjórn úrskurðar kjörskrárkærur eigi síðar en
12. Sveitarstjórn undirritar kjörskrá eigi síðar en
13. Sveitarstjórn tilkynni hlutaðeigandi yfirkjörstjórn kjörskrárúrskurð
14. Dómari tilkynni hlutaðeigandi yfirkjörstórn kjörskrárdóm
15. Yfirkjörstjórn auglýsir kjörfund og atkvæðatalningu fyrir
16. Kjördagur
17. Talning atkvæða hefst.
18. Kjörstjórn innsiglar notaða kjörseðla eftir talningu.
19. Kosningarnar má kæra skriflega fyrir sveitarstjórn innan 14 daga frá því lýst
er úrslitum kosninga.
Félagsmálaráðuneytið, 26, mars 1986.
KOSNINGAR
31 . maí 14. júní
1. apríl 14. apríl
4. maí 18. maí
28. apríl 11. maí
7. maí 22. maí
17. maí 31. maí
16. maí 30. maí
19. maí 2. júní
20. maí 4. júní
23. maí 7. júní
23. maí 7. júní
23. maí 7. júní
strax strax
28. maí 11. júní
31. maí 14. júní
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 21