Þjóðviljinn - 27.03.1986, Síða 4

Þjóðviljinn - 27.03.1986, Síða 4
 Bandið á æfingu, frá vinslri Björgvin Gíslason, Guðmundur Benediktsson, Haraldur Þorsteinsson, Ásgeir Óskarsson og Megas. Myndir: Sig. Dœgurlaga- söngvarinn syngur sér til sáluhjólpar Þegarég kominnúr dyrunum á heimili Megasar í vikunni streymdi á móti mér lokkandi ilmur af soönu kjöti og kryddjurtum. Ég var þangað kominn til að spyrja út í hljómleika þá sem hann heldurá laugardagskvöld í Austurbæjarbíói með Passíusálmum Hallgríms Péturssonar. Milli þess sem hann leysti úrspurningum mínum var hann á þönum í eldhúsinu að hræra í kjötkötlum sínum. Sem kunnugt er samdi Megas tónlist við alla Passíusálma Hall- gríms fyrir rúmum áratug síðan. Á páskunum í fyrra hélt hann tónleika þar sem hann flutti úrval úr sálmunum ásamt hljómsveit. Ég spurði hann fyrst hvers vegna hann léki nú sama leikinn. Skrautlausir og hráir „Hugsunin á bakvið þetta er þessi: I fyrra komu páskar og ég flutti sálmana af því tilefni. Núna um áramótin uppgötvaði ég svo að páskarnir væru að koma aftur. Mér þótti þá við hæfi að hugsa upp eitthvað nýtt. Petta verður annað úrval úr sálmunum en í fyrra og uppfærslan gerólík. Hún verður í mjög lútersk- evangelískum anda, á dægurlaga- máli mundi maður segja að sálm- arnir væru „stripped down to bas- ics“. Peir verða skrautlausir og svolítið hráir. Pað þótti tilraunarinnar virði að hafa þetta í einfaldari og létt- hráum kanti. f ljós kom þegar nokkuð var komið áleiðis að text- unum hæfði mjög einföld og hrá útgáfa þó að auðvitað séu allir möguleikar til.“ Má búast við að flutningur þinn á Passíusálmunum verði árviss viðburður? , Megas: „Réttlætiskenndin er móðir siðleysisins." hjálpar. Hann er sér þess mjög meðvitaður að hann deyr og skilur hvað maðurinn er lítið mál.“ Hvað sækir fólk í dæmi píslar- sögunnar? „Píslarsagan er stöðugt í gangi. Þetta fólk, sem þar kemur fyrir, gengur um hér á meðal okkar. Af helgu letri höfum við best nœmi og heilnœm eftirdœmi. “ Þrjóskan er óeðli „Ég get ekkert fuilyrt um það hér og nú hvort það komi fleiri páskar.“ Eru nýjar áherslur í þessu úr- vali þínu úr sálmunum núna? „Það er kannski meiri para- noja á ferðinni núna. Sálmarnir, sem voru ekki með í fyrra en verða fluttir núna, eru Um iðrun Péturs, Um Jesú síðusár, Um Jesú dauða, Um Kristí krossburð og Um Kristí kunningja sem stóðu langt frá." Pastorale a la Americana Hefurðu breytt tónlistinni eitt- hvað? „Laglínurnar í þeim lögum sem eru tekin aftur eru eins en um- búnaðurinn einfaldari, þetta er pastorale a la Americana. Því slær yfir í hreint eðalborið frum- rokk.“ Þegar hér var komið sögu bar Megas fram kjötsúpu sína. Reyndist hún svo safarík og kraftmikil að helst verður jafnað við sálma Hallgríms. En meðan á hinu nautnalega borðhaldi stóð flögruðu samræðurnar yfir í aðra sálma, þ.á.m. blautbolskeppn- ina. -,,Ég býst við að þetta sé fal- legt,“ sagði Megas. Það var ekki fyrr en með kaffinu eftir matinn að við snerum okkur aftur að Hallgrími. Ég spyr Megas hvort hann sé ekki að seilast inn á verksvið kirkjunnar þjóna með þessum sálmasöng. „Nei, ég er bara í sömu sporum og Bach, Hándel, Stravinsky og fleiri ágætir menn. Ég er fyrst og fremst dægurlagasöngvari og það sem dægurlagasöngvarar eru að keppa að er að raula eitthvað gott fyrir munni sér og lifa af því. Þeim er ekki sama hvað þeir setja upp í sig. Stundum vilja þeir fá eitthvað virkilega saðsamt og safaríkt, einkum sér sjálfum til yndisauka og gera sér þá ekki grillur út af því hvort fleiri eða færri mæti á svæðið. Dægurlaga- söngvarinn syngur sér til sálu- Hvað er að segja um málsnilld Hallgríms? „Þess ber að geta að texti Hailgríms beinlínis æpir á rock’n- ’roll. Sem dæmi um málsnilld hans má nefna þessar línur úr 21. sálmi: Réttlætis skrúða skartið þitt skíni á sálu minni, þó líf hér linni; eins láttu holdið einninn mitt afklœðast þrjósku sinni. Þetta segir okkur að þrjóskan er óeðli. Manninum er eðlislægt að vera sveigjanlegur, góður og í samræmi við náttúruna. Hitt allt er seinni tíma tilbúningur, eink- um og sér í lagi hin illa þrjóska. Réttlætiskenndin er móðir sið- leysisins.“ Tónleikar Megasar verða á laugardagskvöld í Austurbæjar- bíói og hefjast kl. 21.30. Honum til aðstoðar verða Björgvin Gísla- son (gítar), Ásgeir Óskarsson (trommur), Haraldur Þorsteins- son (bassi) og Guðmundur Bene- diktsson (hljómborð o.fl.). -Á.Ó. 4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 27. mars 1986

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.