Þjóðviljinn - 27.03.1986, Blaðsíða 20
ÁVARP
/ tilefni alþjóða ieikhúsdagsins
í dag, 27. mars, eralþjóða
leikhúsdagurinn. Hannerhald-
inn hátíðlegur í yfir 50 þjóð-
löndum eða öllum þeim, sem að-
ild eiga að alþjóðasamtökum
leikhúsmanna. Á alþjóða
leikhúsdaginn hefur löngum ver-
ið minnst hinna ýmsu listgreina,
sem á leiksviðinu búa og í ár
ákvað leiklistarsamband íslands
að gefa fulltrúa dansins orðið. Því
stend ég hér og ávarpa ykkur í
nafni leikhúsfólks.
Áður en maðurinn hafði orðið
hafði hann dansinn.
Sagan segir okkur að dansinn
hafi átt ríkan þátt í menningar-
þróun mannsins. Þörfin til að tjá
sorg og gleði, ást og athafnir í
dansi hefur fylgt manninum frá
örófi alda.
Frummaðurinn dansaði á vorin
til dýrðar nýju lífi, hann dansaði
þakkardans á haustin fyrir góða
uppskeru. Frá fæðingu til dauða
átti hver merkisatburður í lífi
frummannsins sér dans.
Hvatinn að dansi mannsins
voru hreyfingar náttúrunnar,
sjávarföll, vindar og leikur dýr-
anna sem hellaristur frá steinöld
hinni fornu bera vitni um.
Hofdansar Forn-Grikkja og
Egypta að ógleymdum dönsum
fornra menningarríkja Austur-
landa, segja okkur að staða dans-
ins hafi borið hátt í trúarmenn-
ingu þessara þjóða.
Á miðöldum tíðkuðust dansar
frá heiðinni tíð í helgisiðum krist-
innar kirkju, og er víða hægt að
finna leifar þessa nú á tímum,
m.a. í Seville stíga kórdrengir
dómkirkjunnar dans fyrir framan
altarið við ýmsar trúarathafnir.
En í aldanna rás breyttist við-
horf kirkjunnar til dansins og var
hann lagður niður og litið á hann
sem syndsamlegt athæfi. Þessi
viðhorf kirkjunnar höfðu örlaga-
rík áhrif á stöðu dansins. Hér á
landi reyndi kirkjan þegar á 12.
öld að banna dansinn, og með
húsagaskipan um 1700 hverfur
dansinn úr okkar menningarlífi í
rúma öld.
Með þeim samfélagsbreyting-
um sem urðu á endurreisnartíma-
bilinu, komu fram ný viðhorf í
Evrópu. Hirðdansinn hefst til
vegs og virðingar og leikdansar
eru samdir. Við hirð Lúðvíks 14.
var samið kerfi, sem dansararnir
voru þjálfaðir eftir og getur list-
dans nútímans rakið uppruna
sinn til þess tfma.
Eins og fyrr segir hefur dansinn
verið ríkur þáttur í lífi mannsins
og menningu þjóða. Sem tjáning-'
arform og listgrein er dans alhliða
andleg og líkamleg athöfn, sem
uppfyllir þörf mannsins til að
sameina hreyfingar og tilfinning-
ar, sem leið til samskipta við um-
hverfi sitt.
Á undanförnum árum hefur
orðið mikil vakning á sviði dans-
ins, diskó- og freestyle-dansinn
fóru eins og eldur um sinu um
allan heim, og gaf ungmennum
tækifæri til að skapa og tjá sinn
eigin dans.
Break-dansinn stuðlaði að
byltingu í samskiptum unglinga í
fátækrahverfum stórborga
Bandaríkjanna, í stað blóðugra
átaka var tekist á í dansi.
Er dansinn ekki jafn nauðsyn-
legur nútímamanninum sem
skapandi afl og hann var í
bernsku mannkyns?
Hver á staða dansins að vera í
okkar listmenningu, sem er for-
senda framþróunar og fegurra
mannlífs?
Listdans er ung listgrein hér á
landi. Atvinnuflokkur hefur ver-
ið starfandi síðan 1973. Á þessum
þrettán árum hefur verið unnið
mikiö og óeigingjarnt starf og
margir lagt hönd á plóginn. Nú
eigum við fríðan hóp dansara sem
við getum öll verið stolt af.
Listdansinn er heillandi list-
grein, með ótakmarkaða túlkun-
armöguleika í formi og myndum,
hann á sér enginn landamæri, og
segir meira en orð fá lýst.
Islenski dansflokkurinn hefur
vaxið úr grasi, en verður að fá
möguleika til að efla starfsemi
sína enn frekar, og verða leiðandi
afl í danssköpun í landinu.
Á þessum degi vil ég að lokum
beina orðum mínum til þeirra
sem að leikhúslistum starfa.
Vinnum saman að listsköpun sern
á rætur í uppruna okkar og stuðl-
um þannig að lifandi leikhúsi sem
er í senn spegill og dómari á
samtíð okkar.
Nanna Ólafsdóttir
Listdansstjóri Þjóðleikhússins.
WALCHSEE
kr. 21.859.-*
WALCHSEE ER NÝR SUMARSTAÐUR
FLUGLEIÐA í AUSTURRÍKI
Walchsee er lítið tírólskt þorp í Austurríki, örskammt frá landamærum
Vestur-Þýskalands. Nafn sitt dregur þorpið af stóru og fallegu stöðuvatni sem
það stendur við.
í Walchsee eiga stórar og smáar fjölskyldur sæla daga. Þeir sem leita hvíldar
og endurnæringar geta slakað á í rólegu og þægilegu umhverfi. Fyrir þá
athafnasömu eru næg verkefni. Vatnið er skemmtilegur leikvangur og í þorpinu
eru m.a. tennisvellir, keilu- og minigolfvellir. Þá er tilvalið að leigja bíl og
heimsækja Salzburg, Innsbruck eða Munchen. Aðeins 400 km eru til Vínarborg-
ar og 450 km til Feneyja á Ítalíu.
Flugleiðir bjóða farþegum sínum ýmsa möguleika í gistingu, á íbúðahótelum
og gistihúsum. Flogið er í beinu áætlunarflugi til Salzborgar, þar sem rútur og
bílaleigubílar bíða farþeganna.
Fararstjóri í Walchsee er Rudi Knapp.
• Miöað við verðtlmabilið 3. júli til 21. águst 1986. Verð fyrir einstakling, miðað við 2 I ibúð á
fbúðahótelinu llgerhot I 2 vikur. og ftug báðar leiðir.
Frekari upplýsingar veita söluskrifstofur Flugleiða, umboðsmenn og ferðaskrifstofur.
Söluskrifstofan Lækjargötu sími 27477, Hótel Esju sími 685011, Álfabakka 10 sími 79500.
Upplýsingasími: 25100
FLUGLEIÐIR