Þjóðviljinn - 03.05.1986, Page 16
NöoviuiNN *minrjrnrJitaim
1936-1986 ÞJÓÐVILJINN 50 ÁRA
Laugardagur 3. maí 1986 98. tölublað 51. örgangur
Skúlagötuskipulag
Aðalsími: 681333. Kvöldsími: 681348. Helgarsími: 681663.
Borgarráð
Urskurður innan tíðar
Umdeilt Skúlagötuskipulag á borði hjáfélagsmálaráðherra. Ákvörðun um staðfestingu nœstu
daga. Gagnrýni að engu höfðfram tilþessa
Það er komið að okkur að skila
þessu og ég reikna með að það
verði einhvern næstu daga. Eg vil
ekkert segja um hver niðurstaðan
verður, sagði Alexander Stefáns-
son félagsmálaráðherra í samtali
við Þjóðviljann í gær, en úr-
skurðar er að vænta innan tíðar
um deiliskipulagstillögu að
Skúlagötusvæðinu.
Borgarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins samþykktu tillöguna í
vetur, en minnihlutinn í borgar-
stjórn hefur gagnrýnt hana
harkalega fyrir margra hluta sak-
ir. Skipulagsstjórn ríkisins hefur
einnig staðfest tillöguna, en þar
var einnig talsverður ágreiningur
um ágæti skipulagsins. Þannig
lagði Stefán Thors skipulagsstjóri
til að skipulagið yrði staðfest í
áföngum og studdi Guðrún Jóns-
dóttir fulltrúi Alexanders í
stjórninni tillögu Stefáns, en
meirihluti skipulagsstjórnar lagði
blessun sína yfir skipulagið eins
og það er.
Þegar skipulagið var kynnt íbú-
um og lóðareigendum á þessu
Verðkönnun
Fimmfaldur
verðmunur
á grænmeti
Verðlagsstofnun hefur sent frá
sér nýja verðkönnun á grænmeti.
Könnunin náði til 11 tegunda á
nýju grænmeti í 65 verslunum á
höfuðborgarsvæðinu og var gerð
25. apríl sl. í tveimur tilvikun var
hæsta verð nærri fimmfalt hærra
en lægsta verð. Þannig kostar kg.
af blómkáli kr. 69.00 í Hagkaup
en kr. 327.00 í SS á Háaleitis-
braut, - þarna reiknast verðmun-
ur 374%. Kg. af púrrulauk kostar
kr. 71.00 í Hagkaup en kr. 318.00
í Kjötbæ á Laugavegi. -Ing
Vesturberg
Fleiri hraða-
hindranir
Borgarráð ákvað í gær að
verða við þeirri beiðni Framfara-
félags Breiðholts 3 um að komið
verði fyrir tveimur hraðahindr-
unum við Vesturberg, auk þeirra
tveggja sem fyrir eru. Framfa-
rafélagið sendi beiðni sína upp-
haflega til umferðarnefndar og
málið fékk afgreiðslu á fundi
borgarráðs í gær. -gg
Kvikmyndir
svæði reis upp mikil andstaða
meðal einstaklinga og félaga, en
athugasemdir þeirra voru að
engu hafðar.
Fróðir menn um skipulagsmál
hafa einkum gagnrýnt þetta
skipulag á þeim forsendum að
byggingar- og skipulagsskilmála
vantar. Þá er óljóst hvað íbúar og
eigendur lóða mega búast við að
rísi á þessu svæði. Nánari út-
færslu vantar, segja þeir sem
gagnrýna skipulagið. Og nú
stendur á því að félagsmálaráð-
herra staðfesti. - gg-
Mamma fær
100 þúsund
Borgarráð hefur ákveðið að
úthluta leikhópnum Veit mamma
hvað ég vil? aukastyrk að upp-
hæð 100 þúsund krónur. Málið
var tekið fyrir á fundi borgarráðs
í vikunni og samþykkt einróma.
Veit mamma hvað ég vil? er ung-
ur leikhópur sem á nokkrar
leiksýningar að baki. - gg-
Óskar býður
afnotarétt
Óskar Gíslason kvikmynda-
gerðarmaður hefur boðið
Reykjavíkurborg kaup á afnota-
rétti af nokkrum gömlum kvik-
myndum sem hann hefur fram-
leitt. Borgarráð hefur ákveðið að
skoða málið nánar í samráði við
fróða menn, með það fyrir
augum að semja um kaup á af-
notarétti. Óskar myndi eftir sem
áður halda höfundarrétti. - gg.
Práfaðu flug
íDanmöiku
ÞAÐER
• •• að vera á nýjum eða nýlegum bíl, traustum
og skemmtilegum og líða eftir hinum full-
komnu akvegum Evrópu.
• •• að þurfa ekki að hafa neinar áhyggjur af
kílómetragjaldi, lélegum merkingum eða
bilunum.
• •• að geta skotist á stuttum tíma til spennandi
áfangastaða um alla álfuna; borga, bæja,
skemmtigarða, veitingastaða, baðstranda -
hvert sem er.
Herbz
Herti
Okeypis hjó í Danmörku
• Ókeypis vegakort/bók
• Tölvuútskrift með leiðbeiningum um stystu
leiðir til þeirra áfangastaða sem þú hefur
valið þér.
• Afsláttarbók sem veitir margs konar afslátt á
veitingastöðum, gististöðum, skemmtistöð-
um, leikhúsum, skemmtigörðum og víðar.
Afsláttarbókin getur hæglega sparað þér
margar þúsundir króna.
• Handhæg taska fyrir léttan farangur - fram-
tíðareign sem alltaf kallar á góðar ferða-
minningar.
• •• að skipta um veður, menningu, þjóðtungur,
eftir því sem hentar hverju sinni.
• •• að vera í Kaupmannahöfn í dag og Rínar-
dalnum á morgun.
• •• að njóta aðstoðar SL-veganestisins, (Euro-
guide bókarinnar) þar sem þú hefur ógrynni
upplýsinga um fallegar ökuleiðir og athygl-
isverða staði, borgakort, gististaðaskrár og
fleira og fleira.
• •• að borga aðeins krónur 15.900,- fyrir flug og
Ford Escort í 2 vikur, svo dæmi sé tekið.
••• að borga ekkert fyrir þriðju vikuna þegar fjórir
eða fimm eru í bílnum.
Samvinnuferóir - Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899
SÖLUSKRIFSTOFA AKUREYRI: SKIPAGÖTU 18 - SÍMAR 21400 & 23727