Þjóðviljinn - 17.05.1986, Page 2
W LAUSAR STÖÐUR HJÁ
L'I^J REYKJAVÍKURBORG
Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftirtalinna
starfa. Starfskjör samkvæmt kjarasamningum.
Staða deildarsálfræðings við Unglingadeild
Félagsmálastofnunar. Starfsreynsla af vettvangi
unglingamála æskileg.
Upplýsingar gefur yfirmaður fjölskyldudeildar í
síma 25500 og deildarfulltrúi Unglingadeildar í
síma 622760.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð fyrir
kl. 16.00 mánudaginn 2. júní.
ffi LAUSAR STÖÐUR HJÁ
'V REYKJAVÍKURBORG
Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftirtalinna
starfa. Starfskjör samkvæmt kjarasamningum.
Tvo starfsmenn vantar til ræstinga frá 1. júní.
Kvöld- og helgarvinna. Samhent fólk æskilegt.
Upplýsingar í Sundlaug Vesturbæjar, sími:
15004.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð á
sérstökum umsóknareyðublöðum sem þar fást
fyrir kl. 16.00 fimmtudaginn 29. maí.
I ______
Auglýsið í Þjóðviljanum
FRÉTTIR
Valgeir Hallvarðsson við einn nýju ferskfiskgámanna. Ljósm. Sig.
24000%
mmi
2400%
52901
21600%
«1
3i,2ki.i
i4mft
MAXGROSS
y-TARE
Ferskfiskgámar
Geymsluþol talið
stóraukast
Eimskipafélagið hefur látið smíða nýja ferskfiskgáma með
bœttri einangrun og hvítmálaða. Talið að geymsluþol aukist
um helming
Komnir eru til landsins nýir
ferskfiskgámar í eigu Eim-
skips, sem eru betur einangraðir
og hvítmálaðir og eiga að auka
geymsluþol ferskfisks um allt að
helming. Talið var að eldri gám-
arnir þyldu að standa allt að 3
sólarhringa í sumarhita ef rétt var
ísað í kassana en í þessum nýju
gámum telja menn hjá Eimskip
að geymsluþolið verði allt að 6
dagar.
Vageir Hallvarðsson deildar-
stjóri gámadeildar Eimskips hef-
ur hannað þessa gáma, eða eins
og hann sagði framkvæmt endur-
bætur á þeim gámum sem áður
voru notaðir, en 120 gámar eru
komnir til landsins af þessari nýju
gerð.
Gámarnir eru 2,28 m á breidd,
2,52 m á hæð og 6 m langir. Ein-
angrunin er 30 millimetra Poly-
styren einangrun límd innan á
veggina og þakið. Síðan eru settir
eins millimetra stálplötur innan á
einangrunina til hlífðar. Þær eru
galvaniseraðar og málaðar hvítar
og málningin innbrennd. Þetta
auðveldar þrif á gámunum mjög.
Öll samskeyti eru þétt með silic-
oni. Gámarnir eru allir hvítmál-
aðir utan til þess að áhrif sól-
arljóssins verði sem minnst.
Menn binda miklar vonir við
þessa nýju gáma varðandi fersk-
fiskflutningana á sumri kom-
anda, en eins og menn eflaust
muna skemmdist gámafiskur
mjög í fyrrasumar í hitunum og
var illa einangruðum gámum
kennt um, þótt aðrir vildu um
kenna rangri ísunaraðferð í fisk-
kassana.
-S.dór
Hafskipsmálið
Skrípaleikur
Þrotabú Hafskips stefnir íslenska
skipafélaginu - Islenska skipafélagið stefnir
Hafskip fyrir sömu sök.
SÖmu mennirnir
stóðu að Hafskip og íslenska
skipafélaginu
Skrípaleikur Hafskipsmálsins
virðist nú hafa náð hámarki.
Eins og skýrt var frá i Þjóðviljan-
um í gær hefur íslenska skipafé-
lagið gert kröfur uppá rúmar 200
milj. kr. á hendur þrotabúi Haf-
skips. Hver er svo ástæðan?
Hún er sú að Hafskip gerir
kröfur á hendur íslenska skipafé-
laginu vegna þeirrar ákvörðunar
stjórnar ísl. skipafélagsins að láta
Skaftá sigla inn til Belgíu, þar
sem skipið var kyrrsett. Þar með
hafi Hafskip misst af þeim verð-
mætum sem skipið er og ekki
fengið farmgjöld af farminum.
Að sögn Jóns G. Zöega lög-
manns sem átti sæti í stjórn ls-
lenska skipafélagsins, sem var
stofnað af nokkrum hluthöfum
Hafskips til að reyna að bjarga
fyrirtækinu, stefnir ísl. skipafé-
lagið nú Hafskip og gerir kröfur
uppá 206 miljónir króna. í fyrsta
lagi vegna þess að Hafskip gat
ekki leyst úr skuldamálum vegna
Skaftá og þar með missti Isl.
skipafélagið 6 miljónir í farm-
gjöldum og í öðru lagi vegna þess
að þar sem ekki var leyst úr vanda
Skaftár fóru áætlanir ísl. skipafé-
lagsins útum þúfur og tekjutap og
ágóðavon nam 200 miljónum
króna.
Þess ber að geta að bæði í Haf-
skipum og ísl. skipafélaginu er
um sömu menn að ræða, þar sem
ísl. skipafélagið var stofnað af
Hafskipsmönnum til að reyna að
bjarga fyrirtækinu. -S.dór
Megas
Níu plötur
í einum
kassa
Allt efni meistara
Megasar gefið út í einum
pakka. Ljóð hans við
löginprentuð ísérstakri
bóksemfylgir
Megas allur heitir heildarút-
gáfa á verkum Megasar, sem
kemur í hljómplötuverslanir eftir
helgina. Þar er að fínna 9 plötur í
einum kassa, öll útgefín verk hans
hingað til og svo tvær nýjar
hljómplötur einnig. Þá fylgir með
í kaupum textabók með öllum
Ijóðum listamannsins.
Það er Hitt leikhúsið sem gefur
verk meistarans út og segir í frétt
frá útgefanda að allar plötur
Megasar séu löngu ófáanlegar.
Utgáfan sé ekki einungis hugsuð
til að gefa fornum áhangendum
skáldsins tækifæri til að endur-
nýja safnið sitt á hagkvæman hátt
heldur líka til að kynna ungum
aðdáendum Megasar verk hans
til þessa. _v<
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 17. maí 1986