Þjóðviljinn - 17.05.1986, Qupperneq 6

Þjóðviljinn - 17.05.1986, Qupperneq 6
ÍÞRÓTTIR i Reykjavíkurleikar Sjö atvinnu- menn Það verða sjö atvinnumenn í liði íslands sem tekur þátt í Reykjavíkurleikunum síðar í þessum mánuði og mætir þar Irum og Tékkum. I hópinn vantar þá þrjá sem leika í Vestur- Þýskalandi þar sem þeir eru löngu komnir í sumarfrí og þeir Bjarni Sigurðsson og Sævar Jóns- son fengu ekki leyfi frá félagi sínu, Brann í Noregi. Sjömenningarnir eru þeir Arn- ór Guöjohnsen, Pétur Pétursson, Ragnar Margeirsson, Siguröur Jónsson, Sigurður Grétarsson, mæta Ömar Torfason og Guðmundur Þorbjörnsson. Þeir Sigurður G. og Ómar leika þó sennilega að- eins seinni leikinn þar sem lið þeirra í Sviss, Luzern, á í harðri baráttu um sæti í UEFA- keppninni. Sigi Held landsliðsþjálfari og Guðni Kjartansson aðstoðar- maður hans munu fylgjast vel með leikjum 1. deildar í dag og á þriðjudag til að finna þá leik- menn sem skipa munu landsliðs- hópinn ásamt sjömenningunum ofantöldu. —VS Körfubolti Skellur gegn Póllandi Sigi Held — mætturtilstarfa. Mynd: Sig. Knattspyrna Sigi á Skaganum ✓ Fylgist með leik IA og Fram Sigi Held, landsliðsþjálfarinn nýi í knattspyrnu, verður meðal áhorfenda á Akranesi í dag. Þar leika tvö af sterkustu liðum lands- ins, ÍA og Fram, í 1. umferð 1. deildarinnar og vafalítið verða margir leikmenn þar undir smásjá Vestur-Þjóðverjans. Sigi kom til landsins á fimmtudag, alkominn, og hefur þegar undirbúning fyrir Reykja- víkurleikana í lok mánaðarins, en þar leikur Island við Irland og Tékkóslóvakíu. —VS íslenska landsliðið hafði lítið í Pólverja að gera.í fyrstu umferð B-keppninnar í körfuknattlcik sem hófst í Belgíu í gærkvöldi. Pólverjar sigruðu með yfirburð- um, 95-56, og hölðu örugga for- ystu allan tímann. Pólland gerði fyrstu 11 stigin og leiddi síðan 46-25 í hálfleik. Allan leikinn var aðeins spurning um hve stór sigurinn yrði. Pálmar Sigurðsson skoraði 15 stig fyrir ísland og Guðni Guðnason 12. fsrael sigraði Svíþjóð 86-69 og Tyrkir unnu Ungverja 73-67 í fyrstu umferðinni. ísland leikur við Svíþjóð í dag, Tyrkland á morgun, Ungverjaland á mánu- dag og loks við ísrael á þriðjudag. —'VS Leikjahœstir IA með reynd- ustu mennina Guðjón með 200. leikinn í dag Akurnesingar eiga á að skipa leikreyndustu leikmönnum allra 1. deildarliðanna í knattspyrnu. Þeir eiga tvo leikjahæstu leik- mcnnina, Guðjón Þórðarson sem væntanlega lcikur sinn 200. 1. dcildarlcik í dag og Árna Sveins- son. Sigurður Lárusson er síðan í fimmta sæti. GuðmundurSteinsson, Fram..........88 Sigurjón Kristjánsson, Val........88 Helgi Bentsson, Víði..............87 GuðbjörnTryggvason, (A............86 ÁgústMár Jónsson, KR...............83 GuAjón Þórðarson leikur væntan- lega sinn 200. leik í 1. deild í dag. íslandsmótið Alls hefur 21 leikmaður sem virkur er í sumar leikið 100 leiki í 1. deild eða meira. FH á þrjá reynda og athyglisvert er að Viðar Halldórsson hefur leikið Valur er á 119afþeim 1201eikjumsemFHá að baki í 1. deild. Fram og ÍBK standa líka vel að vígj, hafa nokkra reynda jaxla í sínum her- búðum. Þessir hafa leikið fleiri en 100 leiki. Það skal tekið fram að hér er aðeins um leiki í 1. deild að ræða, ekki í bikarkeppni, 2. deild, eða öðrum mótum. Guðjón Þórðarson, |A..............199 Árni Sveinsson, lA................193 Ingi B. Albertsson, FH............188 Valþór Sigþórsson, (BK............170 Sigurður Lárusson, ÍA.............151 SigurðurBjörgvinsson, (BK.........137 Viðar Elíasson, (BV...............128 Hálfdán Örlygsson, KR.............127 VignirBaldursson, Breiðabl........125 EinarÁ. Ólafsson, IBK.............123 Sverrir Einarsson, Fram...........122 Viðar Halldórsson, FH.............119 Hörður Jóhannesson, lA............118 Þorsteinn Bjarnason, IBK..........113 Ómar Jóhannsson, IBV..............111 Ólafur Danivalsson, FH............108 Pétur Ormslev, Fram...............108 GunnarGíslason, KR................106 Rúnar Georgsson, IBK..............106 GuðmundurBaldursson, Fram.........105 SæbjörnGuðmundsson, KR............101 Þeir sem eiga möguleika á að komast í þennan hóp í sumar eru eftirtaldir: Þorgrímur Þráinsson, Val...........97 Jósteinn Einarsson, KR.............94 Stefán Jóhannsson, KR..............92 Sveinbjörn Hákonarson, (A..........92 GuðmundurTorfason, Fram............90 ValurValsson, Val..................90 GuðmundurKjartansson, Val..........88 toppnum Einafélagið sem hefur gert 1000 mörk í 1. deildarkeppninni Islandsmeistarar Vals eru á toppi 1. deildarinnar þegar árang- ur félaganna frá upphafsárinu, 1912, er reiknaður út. Þeir urðu í fyrra fyrsta félagið til að skora 1000 mörk í 1. deildarkeppninni og hafa góða forystu í stigakeppninni. Þeir hafa líka leikið flesta leiki allra, Valur er enda eina félagið í íslenskri knattspyrnu sem aldrei hefur leikið utan 1. deildar. Árangur liða í 1. deild frá upphafi er sem hér segir. Skýringar á tölum: fyrst leikjafjöldi, þá sigrar, jafntefli, töp, markatala og loks stig. Valur....................................526 252 127 147 1017-740 649 KR.......................................512 216 136 160 965-728 582 ÍA.......................................423 220 86 117 855-554 549 Fram.................................. 505 204 121 179 853-823 546 ÍBK......................................347 141 81 125 527-486 380 Víkingur.................................361 109 83 169 480-701 309 ÍBV.......................................234 96 57 81 375-319 249 Breiðablik............................... 184 59 43 82 228-297 165 IBA...................................... 180 52 39 89 288-383 143 ÞrótturR................................. 168 30 43 95 172-358 111 ÞórA.......................................90 27 22 41 118-148 93 FH........................................120 21 35 64 136-236 86 KA.........................................90 21 25 44 98-155 71 iBl........................................46 8 15 23 45-94 31 Víðir......................................18 4 4 10 21-38 16 IBH........................................21 1 4 16 18-69 6 Haukar.....................................18 1 3 14 12-44 5 Tvö síðustu ár hafa verið gefin 3 stig fyrir sigur og það ruglar dálítið stigagjöfina. —VS England Pleattil Tottenham David Pleat var í gær ráðinn framkvæmdastjóri enska knattspyrnuliðsins Totten- ham Hotspur, Félagið rak stjóra sinn, Peter Shreeve, fyrr í vikunni. Pleat hefur stýrt liði Luton undanfarin ár og náð mjög góðum árangri þar. Hann sagði að ákvörðunin hefði ver- ið erfíð, Luton væri honum mjög hjartfólgið en Totten- ham væri eitt örfárra félaga sem hann gæti hugsað sér að fara til. - VS/Reuter Kötfubolti Webster íÞór ívar Webster, körfuknatt- leiksmaðurinn kunni sem leik- ið hefur með Haukum undan- farin ár, er á förum til Akur- eyrar. Hann mun dvelja þar næsta vetur og leika með 1. deildarliði Þórsara - sem hugsanlega leikur í úrvals- deildinni ef fyrirkomulaginu verður breytt á komandi árs- þingi. Þetta er mikill styrkur íyrir Þórsliðið sem er skipað ungum og efnilegum leik- mönnum. - VS Landsliðið Knapp neitaöi Brann, norska félagið sem Sæ- var Jónsson og Bjarni Sigurðsson leika með, neitaði þeim um leyfi til að leika með íslenska landslið- inu gegn írum og Tékkum síðar í þessum mánuði. Samkvæmt heimildum Þjóð- viljans er það þjálfari liðsins sem neitar þeim um íslandsferðina. Og hver er hann? Jú, enginn ann- ar en Tony Knapp, fyrrverandi landsliðsþjálfari Islands! Merki- legt hvað hlutirnir geta snúist við þegar menn skipta um stöðu. Bjarni var reiðubúinn að leika báða leikina og Sævar a.m.k. þann seinni. Brann leikur á mán- udagskvöldi, ísland á sunnudegi og fimmtudegi, svo ekki hefði verið mjög erfitt að komast að samkomulagi. —VS Knattspyrna Danir unnu Danir sigruðu Pólverja 1-0 í vin- áttulandslcik í knattspyrnu sem háð- ur var í Kaupmannahöfn í gærkvöldi. Preben Elkjær-Larsen skoraði sigur- markið á 60. mínútu. Þetta var loka- leikur þjóðanna fyrir heimsmeistar- akeppnina í Mexíkó en báðar eru á förum þangað. —VS/Reuter Stjörnugjöfin Með sama sniði Stjörnur á dómara, leikmenn ogleiki Þjóðviljinn tók í fyrra upp þa nýjung að gefa leikmönnum, dómurum og leikjum 1. deildar- innar í knattspyrnu stjörnur fyrir frammistöðu og gæði. Einnig voru leikir í 2. deild metnir með stjörnum og þar valinn maður leiksins í hverjum leik. Þetta fyrirkomulag reyndist vel og því verður það með óbreyttu sniði í sumar. Stjörnugjöfin er þriþætt: 1. Leikmenn: 1 stjarna fyrir góðan leik, 2 stjörnur fyrir mjög góðan og 3 fyrir frábæran leik. Fjöldi stjörnuleikmanna er ekki ákveðinn, allir í liðinu gætu feng- ið stjörnu eða enginn. 2. Dómarar: 1 stjarna fyrir að standa sig ekki nógu vel, 2 fyrir eðlilega dómgæslu og 3 fyrir mjög góða dómgæslu. 3. Leikur: 1 stjarna þýðir lé- legur leikur, 2 stjörnur í slakara lagi, 3 ágætur, leikur í meðallagi, 4 stjörnur er mjög góður leikur og 5 stjörnur eru gefnar fyrir frá- bæran leik. Sama gildir fyrir leiki 2. deildar. Þjóðviljinn veitti viðurkenn- ingar í lok keppnistímabilsins í fvrra og gerir það aftur í haust. Ómar Torfason úr Fram hlaut flestar stjörnur allra í 1. deildinni, Guðmundur Haralds- son var stjörnuhæsti dómarinn og Fram í 1. deild og Skallagrímur í 2. deild fengu flestar stjörnur fyrir leiki sína. —VS Markaskorarar Ingi Bjöm er langhæstur Hefur gert 118 mörk í 1. deild Ingi Björn Albertsson, þjálfari FH, er langmarkahæstur þeirra leikmanna sem leika i 1. deildinni í knattspyrnu í sumar. Hann hef- ur gert 118 mörk í 1. deild, 108 fyrir Val og 10 fyrir FH. Hann er líka sá eini í sögu Islandsmótsins sem hefur náð 100 mörkum. Tuttugu leikmenn sem nú leika í 1. deild hafa skorað 15 mörk cða fleiri á ferli sínum í deildinni. Þeir eru eftirtaldir: Ingi B. Albertsson, FH.............118 PéturOrmslev, Fram..................35 GuðmundurSteinsson, Fram...........33 Hörður Jóhannesson, |A.............33 Ómar Jóhannsson, IBV...............30 GuðmundurTorfason, Fram............27 Árni Sveinsson, lA.................25 EinarÁ. Ólafsson, IBK..............23 Sveinbjörn Hákonarson, lA..........21 Sigurjón Kristjánsson, Val.........21 BjarniSveinbjörnsson, Þór..........19 ÓlafurDanivalsson, FH..............18 SigurðurLárusson, |A...............18 Ásbjörn Björnsson, KR .............17 Guðbjörn Tryggvason, |A............17 GunnarGlslason, KR.................17 Hilmar Sighvatsson, Val............16 Helgi Bentsson, Viði...............15 Kári Þorleifsson, IBV..............15 RúnarGeorgsson, (BK................15 —VS 6 SIÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 17. maí 1986

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.