Þjóðviljinn - 05.06.1986, Qupperneq 4
GARÐAR OG GRÓÐUR
Horft yfir beðin hennar Lilju, sem upphaflega urðu til vegna þess að hún þurfti að bjarga plöntum undan vinnuvélum.
Mér finnst gott
að vita af
blómunum mínum
hjá fólki sem á
lítið af peningum
„Þegar ég var barn austur í
Vík í Mýrdal fékk ég áhuga á
blómum. Pabbi hafði gaman af
að dútla í garðinum og ég var
eina systkinið sem fékk þenn-
an áhuga að einhverju ráði.
Systir mín austur á fjörðum er
að vísu líka dugleg við garö-
rækt og ég sel aldrei rósir,
nema ég viti að tegundin hafi
haldið lífi í garðinum hjá henni.
Ég er hjátrúarfull og gef alltaf
fyrsta gestinum á vorin blóm.
Þegar ég fæ ung hjón í heim-
sókn, eða fólk sem ég sé að á
ekki mikla peninga gef ég því
gjarnan blóm. Mér finnst gott
að vita af blómunum mínum
hjá fólki, sem á lítið af pening-
um.“
Þetta sagði Lilja Ólafsdóttir
meðal annars, þegar við heim-
sóttum hana í litla gróðurhúsið
hennar og garðinn við Skjólbraut
í Kópavoginum, en Lilja hefur
nokkra sérstöðu meðal „garð-
yrkjumanna“ sem selja plöntur.
Hún er alls ólærð, by r j aði að sel j a
plöntur þegar hún þurfti að láta
stóran ræktaðan garð undir
vinnuvélar og gat ekki hugsað sér
að fleygja öllum blómunum. Og
við byrjum á byrjuninni.
Eyrarcs
frá Græntandf
„Ég flutti til Reykjavíkur ung
með manninum mínum og við
keyptum hér kofa á erfðafestu-
Iandi 1946. Þá var hér hvorki gata
né vatn. Ég hafði hænur og blóm
og þótti hvorttveggja skemmti-
legt. Smátt og smátt komum við
upp ákaflega fallegum garði. Þá
var ákveðið að taka landið nærri
allt undir ný hús og allur garður-
inn var eyðilagður. Ég grét þegar
vinnuvélarnar tættu hann í sund-
ur. Það eru 10 ár síðan, og af því
að ég kom ekki öllum plöntunum
fyrir í þessum garði hér við húsið,
þá fór ég að selja þetta sem ég
hafði hirt undan vélunum,“ segir
Lilja um leið og hún sýnir okkur
garðinn. Við hittum á einstakt
gróðurveður, milt sólskin með
smáskúrum, og Lilja gengur um
vott grasið á grasflötinni og talar
um blómin sín eins og lifandi
fólk.
„Hér á ég ýmislegt sem aðrir
eiga ekki. Ég á t.d. hvíta eyrarós,
en hún vex villt á Grænlandi. Ég
setti hana með bleiku eyrarósinni
minni og sú bleika kaffærði hina
og drap að lokum. Sem betur fer
átti ég meira af henni og nú passa
ég að láta þær ekki saman í beð
systurnar. Svo á ég risavalmúa,
fylltan, og hárauðan, en uppá-
haldsblómið mitt er nú samt
freyjugrasið sem ég á bæði hvítt
og blárautt. Það er fallegt og reist
og ef það dæi frá mér, missti ég
Tollar og söluskattar
Eru garðyrkjumenn ekkert að
amast við því að þú skulir vera að
selja plöntur, ólærð manneskj-
an?
„Það er helst að þeim finnist ég
of ódýr. En ég ræð sjálf hvað
blómin mín kosta. Sumir eru á
móti mér, aðrir ekki. Ég skrökva
aldrei að fólki, ég segi því hvað
drepst hjá því og hvað lifir. Það er
fyrir mestu. Eg sel nærri ein-
göngu sumarblóm og fjölær
blóm, en svolítið af rósum líka.
Ég flutti inn rósir sem ég pantaði,
en það var svo mikið papp-
írsfargan sem fylgdi því og enda-
lausir tollar og söluskattar að ég
hætti því. Ef ég hef heilsu ætla ég
nú samt að panta inn plöntur sem
lifa í Norður-Noregi og ég veit að
munu lifa hér.“
Hvaða rósir ráðleggur þú fólki
að kaupa sem er að byrja, í rósa-
ræktinni?
„Þær sterkustu, hansarósina,
sem lifir allt af og síðan ef fólk vill
kaupa ágrædda rós, þá er
dornrósin best. Ég segi fólki líka
að setja sand ofan á moldina, því
sandurinn hylur frostsprungurn-
ar á veturna og heldur hita á rót-
unum. Og svo er að gæta þess að
láta ekkert af hnúðnum standa
upp úr moldinni, því hún verður
að þekja vel.“
Eru ekki mikil viðbrigði að
finna þennan mikla garðáhuga
hjá fólki í dag hjá því sem áður
var?
„Jú,ég var hálfgerður sérvitr-
ingur með þessar plöntur mínar á
sínum tíma, en nú hafa flestir
áhuga á garðrækt. Þó sér maður
einstaka hús sem er draugfínt að
innan, en ekkert nema illgresi í
garðinum. Svoleiðis fólk skil ég
ekki. Meðan ég held heilsu verð
ég í garðinum með blómunum
mínum á hverju sumri, en ég er
nú orðin 76 ára. Ég þoli ekki að
sjá blóm í hirðuleysi og garð í
órækt,“ segir Lilja um leið og hún
sýnir okkur kassana með öllum
fjölæru jurtunum. Stórt beð af
túlipönum og páskaliljum prýðir
SÍiGARDENA'
gerir garðinn frægan
Gunnar Ásgeirsson hf.
Suóurlandsbraut 16 Sími 9135200
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN