Þjóðviljinn - 05.06.1986, Blaðsíða 8
GARÐYRKJUVERKFÆRIN
FÆRÐU HJÁ OKKUR
VONDUÐ
VARA
ÁGÓÐU
VERÐI
Síðumúla 4, símar 687171 og 687272 .
NÝJUNG
til aö bæta garðagróðurinn
(h
7/1
LIFRÆNN
ÁBURÐUR
Hafin er framleiðsla og sala á þurrkuöum hænsnaskít
í 10 kg og 20 kg sekkjum.
Þetta er áburður beint frá náttúrinni og inniheldur
flest þau efni sem garöagróður þarf.
Engin lifandi illgresisfræ eru í áburðinum þar sem
hann er hitaður upp í 140°C og síðan malaður.
Hitinn dauðhreinsar jafnframt skítinn.
Langvarandi áburður, sem virkar allt sumariö.
Viljirðu fá fallegan gróöur og holl og góö matvæli úr
garðinum þá er
Lífrænn áburður sérstakiega góður.
Til sölu hjá flest öllum gróörarstöövum.
Holtabúið h.f.
Ásmundarstööum.
Sími: 99-5033
Söluskrifstofa í Reykjavík sími: 40302
\l\rrs.
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 5. júní 1986
Grunnur a
Góður garðyrkjumaður
sagði við mig á dögunum, þeg-
ar ég bað hann um ráðlegging-
ar fyrir byrjendur í garðrækt:
Ég skipti fólki í tvennt: „Þá sem
drepa blóm og þá sem láta þau
lifa. Annað hvort hefur fólk
þetta í sér eða ekki“. Þar höfum
við það.
Eigi að síður ætlum við hér á
nokkrum síðum að gefa fólki ráð,
ekki síst þeim sem hættir til að
drepa blóm, ekki af karakter-
veikleika heldur frekar af
þekkingar-, tíma- og hugsunar-
leysi. Við munum eyða mestu
rými í garðplönturnar, enda
þeirra árstími að ganga í garð og
þær jafnan erfiðari viðfangs.
Enginn garður er eins og annar,
rokið og regnið hvergi „alveg úr
sömu áttinni“ eins og garðyrkju-
maðurinn sagði. Þeir sem rækta
blóm inni á heimilum eða á vinn-
ustöðvum eiga oftast auðveldan
aðgang að fræðslu. Góðar bækur
um pottaplöntur hjálpa mikið við
umhirðuna og innandyra er mað-
urinn sjálfur hæstráðandi, á með-
an náttúruöflin ráða ríkjum undir
berum himni og sífellt þarf að
verja gróðurinn fyrir þeim. Úti
ertu í nánum tengslum við tungl
og sól, vor og haust, og hversu
harður sem veturinn kann að
hafa verið, spretta vorboðarnir
ætíð upp úr jörðinni hafir þú búið
um þá sem skyldi.
Alls staðar
má rækta
Enginn garðskiki er svo lítill að
ekki megi rækta í honum, jafnvel
þótt sólin nái aldrei niður í hann.
Svalir, verandir og sólstofur eru
tilvaldir staðir fyrir gróður og
enginn vandi að koma sér þar upp
gróðurkössum með trjám,
sumarblómum eða fjölærum
blómum, sem mikla ánægju má
hafa af. í sólarlausum garðskika
má einnig koma upp lítilli gróður-
vin, því nú er mikið til af
plöntum, sem dafna vel þótt þær
fái ekki beina sól. Þeir sem glímt
hafa við garðrækt vita að sólin
skiptir oftast minna máli en skjól-
ið. Aðalatriðið er að skýla nýjum
plöntum vel og sjá um að þær fái
næga vökvun, ef langir þurrviðr-
iskaflar koma.
Þegar byrjað er á garði, við ný-
byggingar eða við eldri hús, þar
sem koma á upp nýjum garði,
þarf fyrst og síðast að undirbúa
vel jarðveginn. Best er að fá mold
og láta hana standa heilan vetur
áður en byrjað er að gróðursetja í
henni. Moldin þarf að vera létt og
næringarrík og best er að blanda
hana sandi eða vikri svo að fram-
rennslið verði greitt. Nauðsyn-
legt er að kynna sér vel hvers
konar mold maður kaupir. Þung
og ljós mómold er t.d. alls ekki
góð gróðurmold fyrr en hún hef-
ur staðið lengi og brotnar
auðveldlega þegar henni er mok-
að.
Undirbúningur
Þegar búið er að fá jarðveginn í
gott Iag, stinga hann vel upp og
blanda góðum áburði, t.d.
þurkkuðum hænsnaskít eða góð-
um húsdýraáburði, er hægt að
fara að gróðursetja. Enginn
skyldi setja niður plöntu í nýjum
garði, án þess að gera sér í hugar-
lund hvernig hann vil skipuleggja
garðinn. Mistök í upphafi geta
orðið dýrkeypt. Það er ekki
óþarfa peningaeyðsla að láta
teikna fyrir sig garðinn, en
gleymið ekki að spjalla vel við
arkitektinn eða garðyrkjufræð-
inginn um það sem þið viljið fá út
úr ykkar garði. Er blóma og trjá-
rækt aðalatriðið, viljið þið fá
góða grasflöt eða fyrst og fremst
gott svæði til útivistar á góðum
dögum? Pallar og stétt eru fyrst
og fremst útivistarsvæði þegar
borða á úti, eða liggja í sólbaði.
Trépallar hafa náð miklum vin-
sældum, enda hlýlegir og þægi-
legir og hreyfast ekki ef undir-
stöðurnar eru steyptar og ekki
hætta á sigi. Þegar lögð er stétt,
þarf að huga mjög vel að undir-
laginu því ef jarðvegurinn er
mjög blautur og langt niður á
fast, er hætta á að þær aflagist.
Nauðsynlegt er að setja möl
undir hellurnar og ganga vel frá
þeim svo að þær hreyfist sem allra
minnst um ókomna framtíð. Ef
lagðar eru hitaleiðslur þarf að