Þjóðviljinn - 05.06.1986, Page 16
GARÐAR OG GRÓÐUR
- Yfir 100 tegundir af fjölærum plöntum í Grænuhlíð
Islensku
blómin
harðgerðust
Nú er besti tíminn til að setja
fjölæru plönturnar niður í
garðinn, en fjöldamargar
þeirra eru um það bil að
springa út og sumar þegar í
blóma. í Gróðrastöðinni Græn-
uhlíð skammt ofan við Borgar-
spítalann er mikið úrval af fjöl-
ærum plöntum eða yfir 100
tegundir og eru þær allar bún-
ar að vera úti í vetur og því
tilbúnar til gróðursetningar.
Við hittum Vernharð Gunnars-
son og báðum hann að sýna
okkur nokkrar fallegar f jölærar
jurtir.
Þá er mikið til af sumarblóm-
um rósum og dalíum í Grænu-
hlíð, en nú er einmitt að fara í
hönd sá tími þegar dalíurnar
mega fara út. Þær eru síðan
klipptar niður fyrir frost og
laukurinn geymdur fram á næsta
vor, þegar þeim er komið til í
potti inni og síðan settar út aftur
yfir sumarið. Þeim þarf að skýla
vel líka eins og rósunum.
Á síðustu árum hefur áhugi á
blómum og garðrækt aukist gífur-
lega á íslandi. Sjálfsagt kemur
margt til. Ný tíska hefur rutt sér
rúms í kjölfar viðhorfsbreyting-
lífi sem maðurinn stjórnar ekki
nema að litlu leyti. Takmörkuð
snerting okkar við náttúruöflin
eykur á þessa þörf því jafnvel í
skýldum garði inni í Reykjavík,
kemstu ekki hjá því að finna fyrir
þessum voldugu öflum, sem
stjórna vexti og viðgangi þess
gróðurs sem þú í bjartsýni þinni
hefur sett þar niður. Þar að auki,
hefur langur og dimmur vetur oft
aukið mjög á ama okkar hér á
íslandi og því leitum við allra
ráða til að lengja sumarið. Um
sálræn áhrif gróðurs og blóma,
inni sem úti, mætti sjálfsagt rita
„Ég held sjálfur mikið upp á
íslensku jurtirnar og það er mikill
áhugi á þeim, enda geta menn
treyst nokkurn veginn á að þær
drepast ekki. Við erum t.d. með
fyllta brennisóley, bláklukku,
bæði bláa og hvíta, og einnig
erum við með hvítt blágresi og
svo eyrarós, sem jafnan er mjög
vinsæl. Þá má nefna ýmsa fallega
steinbrjóta, t.d. klettafrú sem er
sjaldgæft afbrigði.
í steinbeð er t.d. dvergavör
maríustakkur eða ilmfjóla mikið
keypt og einnig eru stærri íslensk-
ar plöntur vinsælar eins og t.d.
maríustakkurinn. Aðrar fallegar
garðplöntur er t.d. rauði valmú-
inn okkar vatnsberi frönsk ilm-
fjóla og mjólkurjurt, sem þegar
er í fullum blóma. Við höfum
eignast þessar plöntur smátt og
smátt og teljum að við séum með
góða og harðgerða stofna. Aðal-
atriðið er að fólk blandi þessu
skemmtilega saman, setji plöntur-
nar ekki of þétt, velji saman liti
og plöntur sem blómstra á mis-
munandi tímum,“ sagði Vern-
harður.
í Grænuhlíð er líka mikið til af
fallegum runnum og sagði Vern-
harður að ætlunin væri að koma
upp góðum runnastofnum. Það
vakti athygli hversu sterklegar
plönturnar virtust og eru þær sem
fyrr segir allar búnar að vera úti í
vetur og vel búnar til gróðursetn-
ingar.
Vernharður með fallegan íslenskan
steinbrjót, klettafrú. Ljósm. Sig.
Sigríður Zebitz var að skoða sumarblómin í Grænuhlíð þegar Ijósmyndarinn smellti af henni mynd.
ar, nýrómantíkin kemur víða við í
samfélaginu og endurskoðuð við-
horf til heilbrigðs mannlífs spegl-
ast í lifandi áhuga á hverskyns
gróðri. í kjölfar síaukinnar tækni
á flestum sviðum skapast þörf
fyrir umhverfi, sem lifir eigin lífi,
margt og langt og því er oft haldið
fram að gróður hafi bein áhrif á
líkamlega og andlega vellíðan
okkar.
Þótt vissulega megi hafa mikla
ánægju af inniplöntum, af-
skornum blómum og gróðurskál-
aplöntum, kemur þó ekkert í
staðinn fyrir garðskikann, þar
sem þú ert á þínu eigin landi,
kóngur í ríki þínu með plöntun-
um. Fyrir utan ánægjuna af því að
dútla við arfatínslu, vökvun og
aðra umhirðu, er varla hægt að
hugsa sér þægilegri útivist, sem
gefur bæði loft í lungu og góða
hreyfingu fyrir skrokkinn.
Áð lokum má svo nefna það
táknmál sem blóm eru í mann-
legu samfélagi. Þau eru notuð
þegar orð þrjóta, sem ástarjátn-
ing jafnt sem hinsta kveðja, og
þau fylgja okkur öllum síðasta
spölinn. Enda segir spekingur-
inn: Blóm tala mál sem allir
skilja.
i
Viltu prýða garðinn þinn?
Garðeigendur
Vel upplýstur garöur er fagur. Nýkomin sending af
Ijósum, dælum, tjörnum og styttum. Úrval af Ijósum í
beð og tjarnir.
í#- £ ■■ Ath. lokað þriöjudaga.
VÖrUTell Svaraðísímaeftirkl. 14. Sími 5870
Heiðvangi 4, Hellu. Kvöldsímar 99-5870 - 99-5867
Fyrir tröppurnar, veröndina og svalirnar, lóðina.
Útihandrið og Girðingar
Notið sumarið
og fullgerið húseigninga með
Oregon pine handriðum
Handriðin eru með innbyggðum
raflögnum og lituð eftir yðar eigin vali.
Konuim og mælum
Gerum verðtilboð
TRÉSMIÐJA
ÁRMÚLI 20 - SÍMI 84630