Þjóðviljinn - 10.06.1986, Síða 3
Svartfuglseggin eru nú á boðstólum í þeim verslunum sem jatnan selja þau stykkjatali og er verðið mjög sviþað í flestum verslunum.
á þessum árstíma. Verðið er nokkuð svipað og ottast áður, þó ívið hærra. - Að Þjóðviljinn kannaði verðið í nokkrum verslunum. Langvíuegg voru að meðal-
sögn Péturs Péturssonar sem verið hefur einn stærsti dreifingaraðilinn í tali á 42-45 kr., svartbaksegg 38 kr., sílamávsegg 32 kr., rituegg 24 kr. og
Reykjavík er framboðið nokkuð svipað og undanfarin ár. Eggin eru seld í kríuegg 18 kr. -.g.sv.
Kjarnorkuvopnalaus
Norðurlönd
íhaldið
ekki
með
Neitar að skipafull-
trúa í norrœna nefnd
Sjáifstæðisflokkurinn hefur
ákveðið að skipa ekki fulltrúa í
sérstaka 25 manna norræna
nefnd til að ræða hugmyndir um
kjarnorkuvopnalaus Norður-
lönd. Allir íslensku flokkarnir
utan Bandalag jafnaðarmanna
hafa skipað sína fulltrúa.
Það var skömmu fyrir þinglok
sem Anker Jörgensen forystu-
maður danskra jafnaðarmanna
sendi forseta Sameinaðs þings er-
indi um að þingflokkarnir
skipuðu menn í þessa norrænu
samstarfsnefnd, en sérstakur
fundur um kjarnorkuvopnalaus
Norðurlönd verður í Kaup-
mannahöfn í lok mánaðarins. Al-
þýðubandalag, Alþýðuflokkur,
Framsóknarflokkur og Kvenna-
listi hafa skipað sína fulltrúa. BJ
hefur málið til athugunar. Sjálf-
stæðisflokkurinn ætlar ekki að
skipa mann og sýnir þar með hug
sinn til hugmyndarinnar um
kjarnorkuvopnalaus Norður-
lönd, sem nýtur almennrar hylli
meðal íbúa þar.
Eldvatn
Flakið
fundið
Leitin að stúlkunni sem fórst í
Eldvatni bar árangur aðfararnótt
sunnudags en bflflakið sem stúlk-
an fannst í var dregið upp með
bátsakkeri.
Talið er að stúlkan hafi misst
stjórn á bílnum í lausamöl í
beygju við brúna þar sem öku-
tækið kastaðist út af veginum.
Stúlkan sem fórst hét Karítas Ósk
Bjarnadóttirog var 19 ára gömul.
Karítas átti lögheimili á Eyrar-
landi í Fljótsdalshreppi í Norður-
Múlasýslu en hafði búið í Reykja-
vík undanfarna mánuði.
-K.ÓI.
Kísilmálmverksmiðjan
Hagkvæmnisathugun ræður úrslitum
FRETTIR
s
UTHLUTUN Rannsóknasjóðsstyrkjanna
Líf- og lífefnatækni forgangssvið
Um þriðjungur styrkjanna til rannsókna á sviði líf- oglífefnatœkni. Umfimmtungurtilfiskeldis
ýlega staðfesti
menntamála-
ráðherra tillögur
Rannsóknaráðs ríkisins um út-
hlutun styrkja úr Rannsókna-
sjóðs. Styrkjunum, sem er ætlað
að renna til rannsókna og þróun-
arstarfsemi í þcim tilgangi að
hvetja til nýsköpunar í atvinnulíf-
inu, var úthlutað til 33ja verkefna
en heildarupphæð veittra styrkja
eru rúmar 60 miljónir.
Flæstu styrkirnir fara til
rannsókna á sviði líf- og iífefna-
tækni og fiskeldis en tæplega
þriðjungur fjármagnsins fer til
þriggja verkefna á sviði líf- og líf-
efnatækni og um fimmtungur fer
til níu verkefna á sviði fiskeldis.
Af þeim sem fá styrk að þessu
sinni eru fyrirtæki og einstakling-
ar, aðilar að 28 af 33 verkefnum
en þar af eru 15 verkefni unnin í
samstarfi stofnana, fyrirtækja og
einstaklinga. Sú breyting hefur
orðið á frá því í fyrra að einstök-
um fyrirtækjum sem fá styrk hef-
ur fjölgað og einstökum stofnun-
um fækkað.
Meðal verkefna sem eru styrkt
má nefna rannsóknir á ensím-
vinnslu úr íslensku hráefni, fisk-
snakk til útflutnings, söfnun og
eldi á smálúðu, rannsókn á eigin-
leikum íslenskrar ullar til að örva
þróun á nýjum bandtegundum,
þróun og hönnun fjölteljarakerfa
með gasnemum og vökvasind-
urnemum og ræktun íslenska
melrakkans.
-K.Ól.
Tvœr verktakasamsteypur bítast um verkið. Tilboðum skilaðfyrir
júlílok. Rœðst af niðurstöðu hagkvœmnisathugunar hvort RTZhefur
áhuga. Verður Ijóst seinna ísumar. Samninganefndin rœðir við
Landsvirkjun um raforkuverð. Lœgra verð en til ísal?
hagkvæmt fyrir Landsvirkjun að tölur verið nefndar í sambandi
selja orkuna. Samkvæmt heim- við Kísilmálmverksmiðjuna.
ildum Þjóðviljans hafa mun lægri —Sáf
Trimmdagar
Leikfimi um allt land
Vestmannaeyjar
Hjón
drukkna
Miðaldra hjón drukknuðu þeg-
ar bifreið þeirra ók útaf bryggj-
unni í Vestmannaeyjum laust
fyrir hádegið á sunnudag. Ekki
hafa enn fundist skýringar á at-
burðinum, sem átti sér stað í
Friðarhöfn. Ekki er hægt að birta
nöfn hjónanna að svo stöddu.
Listahátíð
Tónleikum
aflýst
í dag höfðu verið auglýstir á
Listahátíð tónleikar breska orgel-
leikarans Colin Andrews. Hann
mún hafa veikst og verður því að
aflýsa þessum tónleikum. Að-
göngumiða sem keyptir hafa ver-
ið getur fólk fengið endurgreidda
í Gimli við Lækjargötu.
Tvær fyrirtækjasamstæður
bítast nú um að gerast verk-
takar að kísilmálvcrksmiðjunni á
Reyðarflrði, ef samningar takast
við Rio Tinto Zink. Það er ann-
arsvegar samsteypa þýska verk-
takafyrirtækisins Demag og Hag-
virkis og hinsvegar enska verk-
takafyrirtækisins David McGue
og ístak. Þessar fyrirtækjasam-
steypur eiga að skila endanlegum
tilboðum í verksmiðjuna fyrir
júlflok.
Alls tóku fimm innlendar
verktakasamsteypur þátt í forval-
inu í vor en eingöngu Hagvirki og
ístak höfðu tryggt sig sem undir-
verktaka erlendra aðalverktaka.
í framhaldi af því að tilboðum
hefur verið skilað inn mun samn-
inganefndin, sem í eiga sæti þeir
Birgir Isleifur Gunnarsson og
Guðmundur G. Þórarinsson,
fyrir hönd stóriðjunefndar og
þeir Gcir Haarde og Axel Gísla-
son fyrir hönd stjórnar kísilmálm-
verksmiðjunnar, láta gera hag-
kvæmnisathugun á verksmiðj-
unni. Sú athugun mun svo ráða
úrslitum um hvort Rio Tinto
Zink hefur áhuga á að taka þátt í
verksmiðjunni. Athugun þessari
þarf að ljúka í sumar, því verði af
þátttöku RTZ þá á frumvarp um
verksmiðjuna að liggja fyrir er
þing kemur saman í haust.
Sá þáttur sem hvað mest áhrif
hefur á það að jákvæð útkoma
verði af hagkvæmnisathugun-
inni, er raforkuverðið til verk-
smiðjunnar. Samkvæmt heimild-
um Þjóðviljans eru nú í gangi við-
ræður milli samninganefndarinn-
ar og fulltrúa Landsvirkjunar um
verð á rafmagni. Það kom fram í
ræðu Jóhannesar Nordal, á árs-
fundi Landsvirkjunar í vor, að
verð á raforku til stóriðju mætti
ekki vera lægra en raforkan er nú
seld til ísal, ef það ætti að vera
Þjóðviljinn minnir á Trimm-
dagana á Jónsmessu, 20. til 22.
júní. Föstudagurinn 20. júní er
dagur leikflminnar, 21. júní er
dagur sundsins og 22. júní er dag-
ur gönguferða og skokks.
Fimleikafélög og íþróttafélög
hvert á sínum stað skipuleggja
leikfimina í íþróttasölum um land
allt föstudaginn 21. júní. Nánari
upplýsingar eru gefnar í næsta
íþróttahúsi eða hjá íþróttafé-
lögum.
Fyrir mig og þig: Aldur skiptir
minna máli en margan grunar.
Einstaklingur, 50-60 ára, er oft
svo vel á sig kominn að þrítugur
má vara sig. Heilbrigði er ham-
ingja. Mundu að það er aldrei of
seint að byrja. Tækifærin eru alls
staðar.
^7
ÞJÓÐVILJINN - SIÐA 3