Þjóðviljinn - 10.06.1986, Síða 12
FRETTIR
Melaskólamálið
Augljós politísk
misbeiting
Gerður Steinþórsdóttir: Þettafólk telursig
ekki þurfa að taka tillit til neins
Vestmannaeyjar
Fógetinn dæmdur
meirihlutans að hafna Rögnu Ól-
afsdóttur þrátt fyrir eindregin
meðmæli skólastjóra og kennara-
liðs skólans, og þrátt fyrir þá
menntun og starfsreynsíu sem
hún hefur umfram þann umsækj-
anda sem meirihlutinn hafði
augastað á.
„Þessi viðbrögð eru ekkert
einsdæmi," sagði Gerður, „þótt
vissulega megi segja að þau hafi
opinberast með augljósari hætti í
þessu máli en öðrum. Formaður
fræðsluráðs, Ragnar Júlíusson,
treysti sér ekki til að rökstyðja
mál sitt á fundi ráðsins, en vísaði
aðeins til þess að hann hefði rétt
til að taka þá afstöðu sem sér
sýndist og þyrfti ekki að taka tillit
til eins eða neins í því sambandi.
Gerður sagði ennfremur:
„Þetta fólk er alltaf að sýna að
það hafi völdin og þurfi ekki að
taka tillit til eins eða neins. Allir
þeir sem þekkja skólastjóra
Melaskóla vita að hann gerir að-
eins það sem honum finnst rétt og
skólanum fyrir bestu. Ég lít svo á
að hér sé um algjöra pólitíska
misbeitingu að ræða.“
- g-sv.
Þetta mál er bara dæmigert
fyrir þá pólitísku misbeitingu
sem meirihluti Sjálfstæðismanna
viðhefur í fræðsluráði,“ sagði
Gerður Steinþórsdóttir fræðslu-
ráðsfulltrúi í samtali við Þjóðvilj-
ann um Melaskólamálið í gær.
Ásamt Þorbirni Broddasyni
lagðist hún gegn þeirri ákvörðun
Gerður Steinþórsdóttir: Þetta fólk er
alltaf að sýna að það hafi völdin.
Sakadómur dœmirfógeta og aðalbókara hans
í Eyjum í5 mánaðafangelsi oggreiða allan
sakarkostnað
Sakadómur Vestmannaeyja
hefur dæmt þá Kristján Tor-
fason bæjarfógeta í
Vestmannaeyjum og Olaf Jóns-
son aðalbókara við fógetaemb-
ættið í 5 mánaða fangelsi þar af
þrjá skilorðsbundna og til
greiðslu hundruð þúsunda í sak-
arkostnað.
í ákæru sl. haust var þeim gefið
að sök að hafa lánað sjálfum sér
og öðrum úr sjóðum embættisins
og rangfært bókhald. Einnig að
hafa geymt um óhæfilega langan
tíma innistæðulausa tékka í sjóði
og að hafa heimilað afhendingu á
vörusendingum án lögboðinna
tollmeðferðar.
Sakadómur komst að þeirri
niðurstöðu að tvímenningarnir
væru sannir að sök sinni hvað
varðaði þessar ákærur. Dóminn
kváðu upp þeir Gunnlaugur Bri-
em yfirsakadómari, Ásgeir Pét-
ursson bæjarfógeti og Haraldur
Henrysson sakadómari.
Knattspyrna
Hentu sjón
varpinu út
um gluggann
Beirut — Tveir Beirutbúar sem
voru að fylgjast með sjón-
varpsútsendingu frá heims-
meistarakeppninni t knatt-
spyrnu urðu svo illir þegar
uppáhaldsliðið tapaði að þeir
fleygðu tækjum sínum út um
gluggann.
Þetta kom fram í útvarpsstöð í
Beirut þegar stöðin bað hlustend-
ur sína að segja frá viðbrögðum
við leikjum í úrslitunum. Einn út-
varpshlustandi sagðist hafa
skotið sjónvarpstæki sitt í tætlur
þegar liðið hans tapaði. Kona ein
sagði að maður sinn hefði barið
fast í borðið þegar uppáhaldsliðið
hans fékk á sig mark. Húsköttu-
rinn sat á borðinu og honum brá
svo mikið að hann stökk út um
gluggann, ofan af fjórðu hæð.
IH/Reuter
Konur
Síminn
þagnaði ekki
Þegar yfirfullt á nám-
skeið Iðntœknistofn-
unarfyrir konur um
stofnun og rekstur
fyrirtœkja
Það verður að segja að þessi
viðbrögð voru margfalt betri en
við höfðum átt von á.
Síminn hefur varla stoppað í
allan dag og það er þegar búið að
ákveða að bæta við einu nám-
skeiði og kannski verða þau enn
fleiri, sagði Vilborg Harðardóttir
hjá Iðntæknistofnun í samtali við
Þjóðviljann.
Stofnunin auglýsti í vikunni
sérstök námskeið fyrir konur sem
vilja stofna eða stjórna fyrirtækj-
um. Byrjað var að taka við um-
sóknum í gær og var fullbókað á
námskeiðið á örskömmum tíma.
Síminn hringdi látlaust og ljóst að
fleiri slík námskeið verða haldin á
næstunni.
->g
Til hamingju
sveitastjórrm -
merin.
Við óskum ykkur alls hins besta á nyju
kjörtímabili um leið og við hvetjum ykkur til
að vinna markvisst að öryggismálum og
slysavörnum.
Leggið okkur lið í baráttunni gegn allt of
tíðum óhöppum og slysum.
AUK hf. 104.2/SlA