Þjóðviljinn - 17.06.1986, Page 1
1936-1986 ÞJÓÐVILJINN 50 ÁRA
17. JÚNÍ
ÍÞRÓTTIR
HEIMURINN
Guðmundur J. Guðmundsson
Vil hreinsa mitt mannorð
Guðmundur J. Guðmundsson:
Krefst rannsóknar á málinu. Mun segja afmérformennsku íDagsbrún og þingmennsku
á meðan.
Albert Guðmundsson:
Fékk Björgólftil að aflafé meðal vina. Guðmundi var aldrei sagt hvaðanpeningarnir komu
Mannorðið er mér hcilagt. Ég
mun því óska eftir rannsókn á
málinu. Éf hún fæst mun ég óska
eftir að láta af formannsstörfum
Dagsbrúnar á meðan, láta af
formannsstöðu Verkamanna-
sambandsins og láta af þing-
mannsstörfum. Ég vil hreinsa
mitt mannorð. Það er mér heil-
agt, og að bregðast ekki mínum
félögum. Ég tel mig ekki hafa gert
það. Ég hef ekkert að fela.
Þannig fórust Guðmundi J.
Guðmundssyni efnislega orð í
fréttaviðtali við sjónvarpið seint í
gærkvöldi. Hann kvaðst þar hafa
veitt viðtöku fjárupphæð frá Al-
bert Guðmundssyni, og ekki haft
nokkurn grun um að peningarnir
kæmu frá öðrum en Albert sjálf-
um. í viðtali við Þjóðviljann segir
Albert að Guðmundur hafi ekki
vitað hvaðan peningarnir komu.
Albert sagði í viðtali við Þjóð-
viljann í gærkvöldi að Björgólfur
Guðmundsson, framkvæmda-
stjóri Hafskips hafi haft forgöngu
um að útvega féð, og Albert
milligöngu um að afhenda það
Guðmundi.
Þessa milligöngu hafði Albert
Guðmundsson á þeim tíma sem
Pjóðviljinn
Friðsæll
fundur
Stefnt að því að skipa
þriðja ritstjórastólinn
í haust
I gær var samþykkt í stjórn Út-
gáfufélags Þjóðviljans að fela rit-
stjórum blaðsins og nýkjörnum
formanni stjórnarinnar að leita
að einstaklingi í stöðu þriðja rit-
stjóra Þjóðviljans, sem hefur ver-
ið óskipuð síðustu tvö árin. Til-
lagan, sem var lögð fram af Sva-
vari Gestssyni, var samþykkt ein-
róma. í henni er miðað við að
þremenningarnir Ijúki starfi sínu
á haustmánuðum og skili tillögu
sinni þá til útgáfustjórnar.
Á fundinum voru skráðar tvær
bókanir. Annars vegar bókun frá
Svavari Gestssyni formanni Al-
þýðubandalagsins vegna um-
ræðna um ritstjórnarmál Þjóð-
viljans og er hún birt í heild á 2.
síðu blaðsins í dag. Hins vegar
bókun frá Kristínu Á. Ólafsdótt-
ur varaformanni flokksins þar
sem hún samþykkir ofangreinda
tillögu með þeim fyrirvara að um
ráðningu ritstjóra náist víðtæk
samstaða.
Ragnar Árnason var á fundin-
um í gær kjörinn formaður
stjórnar Útgáfufélags Þjóðviljans
fyrir næsta starfsár þess. -v.
hann gegndi embætti fjármála-
ráðherra. Hann skýrir svo frá
málavöxtum að Guðmundur J.
Guðmundsson hafi átt við van-
heilsu að stríða og læknar ráðlagt
honum að hvíla sig. Kveðst ráð-
herra þá hafa haft milligöngu um
að útvega honum fé til utanferð-
ar. Um þetta sagði Albert:
Njálssaga úti í hrauni
„Nú flýg ég á svörtum vœngjum hefndarinnar. “
Hildigunnur yfir líki Höskuldar Hvítanesgoða.
Myndin er tekin á æfingu á „Njáls sögu leikjunum",
en næsta laugardag verður frumflutt ný leikgerð
Marðar Valgarðssonar og Njálu i hrauninu skammt
frá Kaldárseli. Það eru þau Bryndís Petra Braga-
dóttir og Jakob Þór Einarsson sem sjást á myndinni
en nánar er sagt frá Söguleikjunum í blaðauka í
tilefni þjóðhátíðardagsins í dag, 17. júní.
„Guðmundur er ekki ríkur
maður. Hann er fátækur niaður.
Ég bað því Björgólf uni að leita til
vina og kunningja um að hjálpa
honum um að komast í hvíld.
Björgólfur tók vel í það og hon-
um tókst að finna peninga til þess
að bjóða Guðmundi. Þetta gerði
hann með því skilyrði að Guð-
mundur vissi ekki hvaðan pen-
ingarnir kæmu né hverjir stæðu
að þessu.“
Álbert bætir við: „Ég hef ekki
sagt Guðmundi enn þann dag í
dag hverjir stóðu að því að hjálpa
honunt til þess að komast í hvíld
og ég veit ekki til þess að hann
hafi fengið neina peninga, hvorki
frá Hafskip né Eimskip eða öðr-
um skipafélögum. Guðmundi
hefur aldrei verið sagt hverjir
stóðu að þessari söfnun."
- Hverjir voru það?
„Ég veit það ekki sjálfur. Ég
bað bara Björgólf um að safna
meðal vina og kunningja."
Iðnaðarráðherra kveðst ekki
muna nákvæmlega um hve háa
upphæð var að ræða en telur lík-
legt að það hafi verið liðlega
eitthundrað þúsund krónur.
í yfirlýsingu Guðmundar J.
Guðmundssonar sem birtist í
Þjóðviljanum í dag segir hann
m.a.: „Ég hef aldrei, hvorki fyrr
né síðar, þegið fé frá Hafskip né
nokkru öðru skipafélagi, fyrir-
tæki eða forsvarsmönnum
þeirra."
Ekki náðist í Guðmund J.
Guðmundsson í gærkvöldi.
- G. Sv.
Sjá bls. 3
Trimmdagar í
Hafnarfirði
íþróttabandalag Hafnarfjarð-
ar hefur sent frá sér dagskrá
Trimmdaganna, 20. - 22. júní. A
degi leikfiminnar, föstudaginn
20. júní, hefst leikfimi kl. 16 í
íþróttahúsi Víðistaðaskóla. Leið-
beinendur frá fimleikafélaginu
Björk sjá um tilsögn sem hefst á
hálftíma fresti til kl. 18.
Á degi sundsins, laugardaginn
21. júní, verður Sundhöll Hafn-
arfjarðar opin frá kl. 7-16. Leið-
beinendur verða frá Sundfélagi
Hafnarfjarðar. Aðgangur verður
ókeypis.
Á degi skokks og gönguferða,
sunnudaginn 22. júní, verður
skokkað í miðbæ Hafnarfjarðar
og safnast saman við Sparis'jóð-
inn kl. 10. Skokkið hefst kl.
10.30 og vegalengdir verða við
allra hæfi. Gönguferð verður frá
Höskuldarvöllum um Sog að
Djúpavatni og komið niður við
Lækjarvelli. Rútuferðir verða frá
íþróttahúsinu við Strandgötu.
»
l. .
3
I-
jv